Dagblaðið - 20.10.1979, Qupperneq 7
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 20. OKTÓBER 1979.
7
Sætleiki valdsins — eða?
Tvísýnir dagar f ramundan, en enn trúir Vilmundur að hlutunum megi breyta með vilja—og kjörfylgi
„Ég hef orðið var við það hvað fólk
stendur iðulega á gati gagnvart kerfinu.
Hve kerfið er þungt í vöfum, hvemig
mál klúðrast þar og týnast ...” sagði
Vilmundur Gylfason í viðtali í Vikunni
fyrir rúmu ári og átti við dómskerfið.
Nú er hann á mjög skyndilegan hátt
setztur í stól dómsmálaráðherra með
æðsta vald yfir skrifstofunum þar sem
, ,mál klúðrast og týnast’ ’.
Okkur langaði að gá hvort skoðanir
hans hefðu breytzt.
Við ákváðum stefnumót við hann
klukkan hálfsjö að kvöldi annars
starfsdags hans í dómsmálaráðuneyt-
inu. Klukkan fimm hringdi hann og
bað okkur að koma ekki fyrr en sjö.
Klukkan eina mínútu yfir sjö hringdum
við dyrabjöllunni á húsi hans í Þing-
holtunum. Það er gamalt og veðrað.
Plastmálningin er að flagna af því og
flaksast í kvöldstrekkingnum.
Finn enga slíka
kennd
Hann var ekki kominn en Valgerður
kona hans tók ljúflega við okkur og gaf
okkur kaffi. Úr útvarpinu glumdu
fréttirnar um friðarverðlaunin til systur
Teresu og munaðarleysingjahælið sem
hún ætlar að byggja fyrir þau og við
vorum að hugsa hvort Carter mundi
hafa notað sín i kosningabaráttuna til
að ná forsetakjöri á ný, hefði hann
fengið þau.
Áður en langt leið opnuðust dyrnar
Nýja flugstöðvarbyggingin á Rifi.
DB-mynd: Hafsteinn Jónsson.
NýflugbrautáRifi:
Enginn vegur
að flugaf-
greiðslunni
„Eini gallinn við þessa nýju
flugstöðvarbyggingu er sá að af
pólitískum ástæðum hefur ekki
ennþá verið lagður að henni
vegur. Því þurfa menn að aka í
kringum flugvöllinnum kletta og
klungur til þess að komast að
byggingunni,” sagði Hafsteinn
Jónsson fréttaritari á Hellissandi
um nýja flugstöðvarbyggingu á
Rifi.
Unnið hefur verið að því í
sumar að leggja nýja flugbraut
við flugvöllinn á Rifi. Er þetta
flugvöllur sem flugfélagið Vængir
byggði árið 1973. Þær flugbrautir
sem fyrir voru voru taldar
hættulegar vegna fjalla og kirkju
í grennd við þær og því var
ákveðið að leggja nýja flugbraut.
Undirbyggingu nýju flugbraut-
arinnar var lokið í sumar og gera
menn sér vonir um slitlag ofan á
hana innan tíðar.
Þá var einnig reist farþegaaf-
greiðsla við vöUinn en þar höfðu
farþegar áður ekki í neitt hús að
venda. Nýja húsið er ákaflega
fallegt og vel gert en gallinn að
það er ögn út úr vegasamgöngum.
-DS/HJ, Hellissandi.
og Vilmundur snaraðist inn, fleygði sér
ofan í stól og bað um sígarettu. Hann
er dáUtið stressaður og snöggur upp á
lagið og sagði okkur að byrja strax að
spyrja.
Okkur langaði mest til að vita
hvernig honum fyndist að njóta sæt-
leika valdanna.
„Ég finn enga slíka kennd,” segir
hann trúverðuglega og snýr upp á lokk
í hárinu á sér. „Það hefur ekki gefizt
tími til slíks.”
Og satt að segja er hann ekkert
drembilegur, minnir fremur á einhvern
sem er kominn heldur langt út í djúpt
vatn.
Spennandi
viðureign
Hann er yngsti ráðherrann, rétt rúrh-
lega þrítugur, og virðist ekki hafa unnizt
tími til að þaulhugsa samhengin i þjóð-
félaginu. En sem manneskja orkar
hann síður en svo útsmoginn eða kald-
rifjaður, þvert á móti. Svolitið fljót-
fær, kannski hvatskeytslegur. Hann á
það til að rjúka upp á nef sér. En á eftir
iðrast hann og leitar sátta.
Sumir finna það að honum í núver-
andi stöðu að hann er ekki löglærður
— hann er sagnfræðingur að mennt.
Segist sjálfur hafa dálæti á Napóleoni.
Þegar hann vill láta sér líða vel hlustar
hann á keisarasinfóníuna, þá fimmtu,
sem Beethoven tileinkaði upphaflega
þessum fræga hershöfðingja en strik-
aði tileinkunina út þegar Napóleon lét
krýna sig til keisara. — „Þegar hann
varð hégómanum að bráð,” segir Vil-
mundur.
„Hvað finnst þér vera mikilvægast i
pólitík, Vilmundur?”
„Að setja spurningarmerki við lögin
og breyta þeim.” —
Hann fylgist betur en margir aðrir
með stjórnmálaþróun í Bandaríkjunum
og Vestur-Evrópu. Og er ekki sízt hrif-
inn af þeirri frjálsu gagnrýni á gerðir
ríkisvaldsins sem þar tiðkast.
„Ég mundi skilgreina sjálfan mig
sem Kennedy-demókrata, eða þá
miðjumann í brezka verkamanna-
flokknum,” segir hann.
„En eftir tveggja daga setu í dóms-
málaráðuneytinu er ég enn vissari um
það en áður að löggjafarvaldið á að
hafa miklu meira eftirlit með fram-
kvæmdavaldinu en það hefur nú.”
Margir yngri lögfræðinga eru sam-
mála Vilmundi um, að réttargæzlu-
Valgerður Bjarnadóttir og Vilmundur Gylfason. Þau hjónin ræða mikið um stjórnmál og eru stundum sammála, stundum
DB-mvnd: Hörður.
„Ég hef fulla trú á því að með vilja
— og kjörfylgi — sé hægt að breyta
hlutunum,” segir hann.
kerfið sé eins og stirðnað steintröll.
Það þarf geysilegan kraft til að róta við
því. Tekst Vilmundi það?
Og nú bíðum við spennt eftir að sjá
hvernig honum tekst til.
- IHH
stórH
ÁVBJK
.T.mMlAUÍlQlNU V© ... „
HALLVElGAnSU . v.nningar; m1ðSTöÐinn\
—Ö33s
<;vo sem heimilistœW, höfjaHasöl
—-SSSKÍSS*-*1-*'■"
KOMIÐ OG STYRKIÐ GOTT MALEFNI.
ENGIN NLILL
L
LIONS KLÚBBURINN TYR
ibbi