Dagblaðið - 30.10.1979, Page 8
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUÐAGUR 30. OKTÓBER 1979.
FLEETW00D ÞARFNAST
FISKS FRÁ ÍSLANDI
—blaðamaður DB dvaldi íFleetwood á dögunum, fylgdist með löndun lír
íslenzkum báti og ræddi við ráðamenn fiskiðnaðar þar
Fleetwood þarfnast fisks frá
íslandi. Það er í stuttu máli niður-
staða sú sem liggur fyrir eftir heim-
sókn blaðamanns DB til Fleetwood,
hafnarbæjarins á vesturströnd Eng-
lands. íslenzk skip hafa landað fiski í
nokkrum mæli í Fleetwood að und-
anförnu en það hefur ekki verið
stöðugt og það því skapað vandræði
á fiskmarkaðnum.
íslenzk fiskiskip landa á þremur
stöðum á Bretlandi, þ.e. Grimsby,
Hull og Fleetwood. Grimsby og Hull
eru við Humber á austurströndinni
þannig að þangað er talsvert lengri
sigling eða sem nemur tveimur sólar-
hringum í túr. Verðið sem fæst fyrir
fiskinn er hins vegar svipað og lönd-
unarkostnaður þannig að sparnaður
ætti að vera að því að auka söluferðir
íslenzkra skipa til Fleetwood.
Þá fá íslenzku skipin strax af-
greiðslu þar sem þau eru ekki í neinni
samkeppni við flota Fleetwoodbúa
þar sem þau fáu skip sem þeir eiga
eftir eru á makrílveiðum. Fleetwood-
búar treysta því á ferskfisksölu ís-
lenzkra skipa og vilja auka hana að
mun. Sem stendur er um fjórðungur
landana íslenzkra skipa á Bretlandi í
Fleetwood.
Fleetwoodhöfn hefur átt í erfið-
leikum þar sem útgerð hefur dregizt
mjög saman og við lá að loka yrði
höfninni í vor. Eftir útfærslu is-
lenzku fiskveiðilögsögunnar hafa
fiskveiðar Fleetwoodbúa dregizt
mjög saman og nú stunda aðeins
fáein skip þaðan makrílveiðar undan
Bretlandsströndum.
Blaðamaður DB dvaldi nokkra
daga í Fleetwood og ræddi við ráða-
menn fiskiðnaðar þar. Þau viðtöl
fara hér á eftir og einnig viðtal við
skipstjórann á Vestmannaeyjabátn-
um Sigurbáru sem landaði í Fleet-
wood á sama tíma.
Þá fylgdist Dagblaðið einnig með
uppboði á afla Sigurbáru og mun
segja frá því síðar. _jh
Doris Newsham, f ramkvæmdastjóri John N. Ward
útgerðarfyrirtækisins:
„Við treystum á að
íslendingar sjái
okkur fyrir fiski”
— Fleetwood hef ur orðið útundan við f isksölur íslendinga
okkur fyrir fiski en auk þess fáum við
fisk frá Færeyjum.
Fleetwood hefur orðið útundan
varðandi fisksölur í Bretlandi. íslend-
ingar þekkja Grimsby og Hull betur
og því fær Fleetwood aðeins um
fjórðung af þeim Ftski sem íslend-
ingar selja í Bretlandi. Fisklöndun er
því ekki stöðug hér og það veldur
okkur miklum vandræðum. Fisk-
löndun er hins vegar stöðug i
Grimsby þótt íslendingar landi þar
ekki.
Það má hins vegar benda á það að
það er mun styttri sigling frá íslandi
til Fleetwood heldur en til Grimsby
Doris Newsham framksæmdastjóri
umboðsfyrirtækisins John N. VVard i
Fleelwood.
i Bretlandi
„Okkar togarar hafa aldrei fiskað
við ísland,” sagði Doris Newsham
framkvæmdastjóri John N. Ward út-
gerðarfyrirtækisins í Fleetwood.
„Togararnir voru á veiðum við Skot-
land oy> írland en við höfum núengan
fisk tjp þess að veiða þar vegna fisk-
veiðis'tefnu Efnahagsbandalags
Evrópu. Við áttum 9 togara áður en
nú aðeins þrjá og þeir eru allir á sölu-
skrá.
Útgerðarfyrirtækið John N. Ward
er yftr eitt hundrað ára gamalt en
vegna þessara breyttu viðhorfa
höfum við sett upp umboðsskrifstofu
fyrir landanir erlendra fiskiskipa í
Fleetwood. Við þörfnumst fisks sár-
lega og treystum á íslendinga að sjá
Skipst jórinn á Sigurháru Atli Sigurðsson kannar niðurstöður sölunnar
með framkvæmdastjóra umboðsfyrirtækisins Doris Newsham.
og Hull. Löndunarkostnaður er vel
sambærilegur á þessum stöðum og
verði landanir reglulegar í Fleetwood
þá hækkar verðið á fiskinunt. Sé hins
vegar ekki stöðugur fiskur á okkar
markaði þá missum við okkar við-
skiptavini.
Þá má benda á það að löndun i
Fleetwood er mjög fullkomin og
tekur stuttan tíma. Nýlega hefur
verið tekin i notkun sjálfvirk dæla
við löndunina sem skilar fiskinum
þvegnum á land og ætti það að auka
líkurnar á hærra verði fyrir fiskinn.
Það verður að fást sem bezt verð fyrir
fiskinn til þess að ftskimennirnir séu
ánægðir og ferðin borgi sig. Þess
vegna þykir okkur æskilegt að verðið
sé yfir 500 kr. fyrir hvert kg, en
ferðin borgar sig vel sé verðið á milli
400 og 500 kr.
Ég tel að þorskastriðið sé gleymt
og okkar skip tóku engan þátt i þvi.
Því viljum við gjarnan eiga meiri við-
skipti við íslendinga. Það má heldur
ekki gleyma þætti Helga Zoega um-
boðsmanns íslenzku skipanna hér en
hann vinnur mjög gott starf. Það
gerir m.a. það að verkum að hér eru
engir tungumálaerfiðleikar milli um-
boðsfyrirtækisins og íslenzku áhafn-
anna."
- JH
JAFNAR 0G STÖD-
UGAR LANDANIR
NAUÐSYNLEGAR
með því veröur markaðurinn
tryggður og slíkt hækkar f iskverðið
„Við þurfum um 200 tonn af Ftski
á viku hér í Fleetwood,” sagði Harry
Fairbotham formaður stjórnar fisk-
kaupenda i Fleetwood er blaðamaður
DB ræddi við hann og aðra nefndar-
menn í Fleetwood á dögunum.
„Þetta þýðir það að við þurfum að
meðaltali tvo báta eða togara frá
íslandi og þrír á viku væri kjörið.
Skip frá öðrum löndum koma síðan
inn á milli með fisk hingað.
Fleetwood er ekki nógu þekkt á
íslandi og það kann að ráða því að
útgerðarmenn og skipstjórar leita
hingað ekki í nógu rikum mæli þrátt
fyrir það að ýmislegt mæli með slíku.
Fleetwood fær nú um fjórðung af
þeim fiski sem landað er i Bretlandi
en annað fer til Grimsby og Hull.
Hér er alltaf landað á einum degi
og skipin tekin strax þannig að þau
þurfa ekki að biða. Þessu veldur að
ekki er samkeppni frá heimaflota
þannig að þau skip eru ekki tekin
fram fyrir þau íslenzku. Tekin hefur
verið í notkun ný löndunardæla, sú
fyrsta sinnar tegundar í Bretlandi, og
stefnt er að því að taka aðra slíka í
notkun.
Við leggjum áherzlu á það að það
munar tveimur dögum á siglingu til
Fleetwood og það dregur sig saman
að geta bætt þeim við veiðarnar. Þá
sparast einnig um 5 þúsund pund
vegna minni olíueyðslu.
Fleetwood á í erfiðleikum og fær
takmarkaða hjálp frá brezku stjórn-
inni, enda verðum við að standa á
eigin fótum. Atvinnuleysi hér er á bil-
inu 5—7% og er það nokkuð yfir
þjóðarmeðaltali. Sá fiskur sem fisk-
kaupmenn i Fleetwood kaupa er
seldur um allt land og höfnin í Fleet-
wood hefur eigið flutningakerfi.
Eigin floti Fleetwoodbúa veiðir
makril sem seldur er til Rússlands og
Nígeríu.
Ástandið í löndunarmálum í Fleet-
Framfaranefnd Fleelwood og fulllrúar fiskkaupenda er ræddu við Daghiaðiö um vanda Flcelwood.
wood var orðið svo slæmt að allt
benti til lokunar hafnarinnar í vor.
Það hefur nú breytzl til batnaðar,
sérstaklega vegna löndunar íslenzkra'
skipa. Þar hafa Helgi Zoéga umboðs-
maður og Doris Newsham fram-
kvæmdastjóri umboðsfyrirtækisins
John N. Ward unnið mikið og gott
starf. Ef íslendingar geta aukið það
magn sem þeir selja hér á viku yrðu
viðskiptin mun öruggari. Þau myndu
byggjast upp og slíkt myndi tvímæla-
laust hækka verðið á fiskinum.
Það er ákaflega mikilvægt að fá
stöðugar landanir og að skip komi
hingað aftur og aftur. Með því að
vita um sölu, t.d. með viku fyrirvara,
standa aðilar mun betur að vígi.
Það hefur verið komið upp nýtízku
fisksölumarkaði i Fleetwood og
vinnuafliö er í jafnvægi við hina nýju
tækni. Það þekkjast því varla verk-
föll. Markaðurinn er alltaf opinn, að
því undanskildu að ekki er tekið við
fiski i kringum jól og áramót, þ.e. frá
21. desember til 3. janúar.”
- JH