Dagblaðið - 31.10.1979, Side 6
6
DAGBLAÐIÐ. MIDVIKUDAGUR 31. OKTÓBER 1979.
Hárgreiðslustofan
Noröurbrún 2
Sími 31755
Sparta
Mft O
Höfum opnað
nýja hárgreiðslustofu.
Veitum alla
almenna þjónustu,
ath. opið laugardaga.
Gústa Hreins. — inga Gunnars.
KJÖRSKRÁ
Kjörskrá til Alþingiskosninga, er fram eiga að
fara 2. og 3. des. n.k., liggur frammi almenningi
til sýnis á Manntalsskrifstofu Reykjavíkurborg-
ar, Skúlatúni 2, 2. hæð, alla virka daga frá 3.
nóvember til 17. nóvember )k.. þóekki á laugar-
dögum.
Kærur vegna kjörskrárinnar skulu hafa borist
skrifstofu borgarstjóra eigi síðar en 17. nóvember
k.
Reykjavik, 30. október 1979.
Borgarstjórinn í Reykjavík.
BJÖRNINN
Smurbrauðstofqn
Njólsgötu 49 - Sími 15105
I kvöld kl. 20:30
Norski bókmenntafræðingurinn
KJELL HEGGELUIMD
heldur fyrirlestur, sem hann nefnir „Petter
Dass og dansk-norsk felleslitteratur”.
Allir velkomnir
NORRÆNA HÚSIÐ
1X2 1X2 1X2
10. leikvika — leikir 27. október 1979
Vinningsröð: X22-X12-211-1X2
1. vinningur: 11 réttir — kr. 1.813.500.-
7397 (Rt‘ykjavik)
2. vinningur: 10 réttir - - kr. 43.100.-
539(2/10) 2361 4135 5342 30383
1037 3430 4986 6271 31106(2/10) 4447
1776 3437 4989 8664 + 40984
Kærufrestur er til 19. nóvember kl. 12 á hádegi.
Kærur skulu vera skriflegar. Kærueyðublöð fást
hjá umboðsmönnum og á aðalskrifstofunni.
Vinningsupphæðir geta lækkað, ef kærur verða
teknar til greina.
Handhafi nafnlauss seðils verður að framvísa
stofni eða senda stofninn og fullar upplýsingar
um nafn og heimilisfang til Getrauna fyrir
greiðsludag vinninga.
GETRAUNIR — íþróttainiöstööinni — REYKJAVÍK
Danmörk:
Tvö sovézk olíu-
skip rákust á og
eru nú að brenna
Frá Vígsteini Vernharðssyni
fréttaritara DB í Danmörku:
Tvö stór sovézk olíuskip rákust á í
nótt þar sem þau voru á siglingu á
Stóra-belti við Danmörku. Skömmu
siðar kom upp eldur í báðum skipun-
um og logar þar nú glatt að sögn
danska útvarpsins. Ekki er að fullu
Ijóst hve margir voru um borð en
þegar er talið víst að sjö hafi látizt af
völdum árekstursins og eldsins, sem
mun vera mikilí í skipunum.
í morgun var búið að flytja fjöru-
tiu og sex manns í sjúkrahús í Slag-
else og Korsör á Sjálandi. Voru þeir
allir meira og minna brenndir. Miklar
annir hafa verið hjá björgunar- og
sjúkraliði við að aðstoða hina slös-
uðu, bjarga þeim af brennandi skip-
unum og síðan koma þeim til nær-
liggjandi sjúkrahúsa.
Ekki er neitt vitað um orsakir
áreksturs skipanna og ekki heldur
hvort hætta sé á að olía úr tönkum
þeirra geti mengað sjóinn og nær-
liggjandi fjörur.
Aflraunamaðurinn Jack La Lanne tók nýlega að sér að synda I auglýsingaskyni með þessa sextfu og fimm báta þvert yfir
vatn eitt I Japan. Tilgangurinn var aö auglýsa framleiðsluvörur trjávörufyrirtækis eins, hvers nafns er ekki getið. Ekki er
þess heldur getið hvað aflraunakappinn hafi fengiö greitt fyrir viðvikið.
Bandaríkin: mu r
ÞARF AUKID 0RYGGII
KJARNORKUIÐNAÐI
Taka verður allar öryggisreglur
varðandi kjarnorkuver og vinnslu til
rækilegrar athugunar. Þannig hljóð-
ar meginniðurstaða bandariskrar
nefndar sem sett var á fót til að
kanna orsakir kjarnorkuslyssins
nærri Harrisburg og gera tillögur um
úrbætur á öryggisreglum.
Nefndin gagnrýnir bæði opinbera
aðila og starfsmenn og stjórnendur
kjarnorkustöðvarinnar, þegar hún
rekur orsakir þess að geislavirkt efni
komst út I andrúmsloftið og nær-
liggjandi á, sem rennur um þéttbyggð
svæði.
Athygli vekur að nefndin, sem i
sátu tólf manns, varð ekki sammála
um að leggja til að byggingar kjarn-
orkustöðva verði bannaðar þar til
nýjar öryggisreglur hafa gengið í
gildi. Harmaði formaður nefnd-
arinnar John Kemeny að slikt var
ekki gert. í tillögum nefndarinnar er
lagt til að endurskipulagt verði það
undirbúningsstarf sem framkvæmt er
áður en einkaaðilar fá leyfi til að
reisa kjarnorkuver.
Neytendamálaforkólfurinn Ralph
Nader hefur sagt að skýrsla
rannsóknarnefndarinnar sé alvarleg
ákæra á hendur þeim aðilum sem
falið hafi verið að sjá um að fulls
öryggis sé gætt við kjarnorkuver i
Bandarikjunum.
Holland:
Stjómarflokkur
hafnar kjamorku-
eldflaugunum
Stjórnarflokkurinn í Hollandi —
Kristilegir demókratar — samþykkti í
gær að fallast ekki á hugmyndir helztu
hermálasérfræðinga Atlantshafs-
bandalagsins um að endurnýja
verulegan hluta kjarnorkueldflauga
þeirra sem beint er gegn Sovét-
rikjunum í Evrópu.
Talsmaður flokksins sagði í gær
að þingmenn flokksins hefðu fallizt á
tillögu þess efnis að rétt væri að
hefja aðeins smiði á takmörkuðum
fjölda slíkra eldflauga. Auk þess
skyldi ekki hafin uppsetning þeirra i
Evrópu fyrr en gengið hefði verið að
fullu úr skugga um að árangur af af-
vopnunarviðræðum við Sovétmenn
yrði enginn.
Talið cr að ákvörðun um hinar
nýju kjarnaeldflaugar verði tekin á
ráðherrafundi Atlantshafsbanda-
lagsins sem haldinn verður i Brussel.
um miðjan desember næstkomandi.
Helzta röksemd þeirra sem vilja láta
hefja uppsetningu og framleiðslu
slikra eldflauga er sú að yfirburðir
Sovétmanna á hernaðarsviðinu séu
svo miklir i Evrópu að við svo búið
megi ekki standa.
Opinberir aðilar í Hollandi hafa
látið hafa eftir sér að ekki sé þó
liklegt að ráðamenn þar muni beita
sér hart gegn uppsetningu eld-
flauganna innan Atlantshafsbanda-
lagsins.