Dagblaðið - 31.10.1979, Blaðsíða 27

Dagblaðið - 31.10.1979, Blaðsíða 27
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 31. OKTÓBER 1979. - VERÖLDVATNSINS —sjónvarp kl. 18.30: Líf heimur vatnsins og baráttan þar ,,Þetta er mynd um lifið í vatninu. Sýnt er hvernig hver tegundin lifir á annarri og hvernig lífverurnar eru háðar hver annarri. Ýmsar dýra- tegundir koma þarna fram, allt frá frumstæðum þörungum til fiska og dýra,” sagði Bjöm Baldursson, þýð- andi myndarinnar. Veröld vatnsins er kanadísk mynd um lífheim vatnsins og baráttuna þar. Myndin er á dag- skrá sjónvarpsins i dag kl. 18.30 og er hún tuttugu og fimm mínútna löng. -ELA. Laus staða í félagsmálaráðuneytinu er laus til umsóknar staða deildarstjóra, sem veita skal forstöðu deild er annist málefni þroskaheftra. Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins. Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf skulu hafa borist félagsmálaráðu- neytinu fyrir 20. nóvember nk. Félsgsmálaréðunaytið 26. oktöbar 1979. ÚTVARPSSAGA BARNANNA - útvarp kl. 16.40: „Brot úr borgarlífi en ekki ádeilusaga” Sjónvarp í kvöld klukkan 21.05: Vélabrögðin innan veggja Hvíta hússins NÝJASTA TÆKNI0G VÍSINDI —sjónvarp kl. 20.35: Eltthvað þessu llkt ttum við að sjá í Nýjustu tækni og visindum i kvöld I sjén- varpi. NÝTING SÓL- AR0RKUNNAR ,,í þessum þætti verður sýnd ein mynd sem fjallar um nýtingu sólar- orkunnar,” sagði Sigurður fir. Richter, umsjónarmaður Nýjustu tækni og vísinda í kvöld kl. 20.35. „Það hefur verið geysilegur áhugi undanfarið á rannsóknum á sólar- orkunni og við höfum áður sýnt nokkrar slíkar myndir en þær berast' mikið til okkar núna. Myndin er að mestu yfirlit um hvernig rannsóknir standa i dag. Við fáum að sjá sólarorkuver, allt frá smáum og upp í mjög stór. Einnig er gerð grein fyrir því hvemig þetta muni koma til með að vera i framtíðinni,” sagði Sigurður. Nýjasta tækni og visindi er tuttugu og fimm minútna langur þáttur. - EI.A — segir höfundur sögunnar, Þórir S. Guðbergsson Höfuðpaurar Watergate-hneykslisins: erfitt er að finna úr hverjir eru hvað þvi nokkrar af persónum myndarinnar voru aldrei til. Fyrsta þætti Vélabragða í Washington lauk á því að Monckton (Nixon) vinnur sigur i forsetakosn- ingunum og Gilley (Humphrey) vara- forseti bíður lægri hlut. Myndin Vélabrögð í Washington er byggð á ferli Nixons Bandarikja- forseta og hinu svonefnda Water- gatemáli sem að lokum varð til þess að hann hrökklaðist úr embætti. Þetta er því nokkurs konar „lykil- þáttur”, þó svo að framleiðendur vilji ekki kannast við slikt. í fyrsta þætti kom i Ijós að þarna er um vel gerðan sjónvarpsþátt að ræða. Spennunni er haldið betur uppi en búast-má við þegar um er að ræða nokkurra ára gamalt efni og flestir vita hvernig fer að lokum. í öðrum þættinum megum við, ef að líkum lætur, búast við að fræðast um hvernig Monckton (Nixon) og hans menn hreiðra um sig í Hvíta húsinu og þá hvernig vélabrögð í Washington eru í orðsins fyllstu merkingu. Þátturinn er einmitt að nokkru byggður á bókinni The Company en höfundur hennar er John Ehrlichman sem var ráðunautur Nixons fyrrum forseta í innanríkis- málum. Meða aðalhlutverkin fara Cliff Robertson sem fer með hlutverk Williams Martin, forstjóra CIA, Jason Robards sem fer með hlutverk Richards Monckton — Richard Nixon, Stefanie Powers — Sally Whalen, Robert Vaughn í hlutverki Frank Flaherty — Halde- man/Ehrlichman, Harold Gould í hlutverki Carl Tessles — Kissinger og Andy Griffith — Esker Scott Ander- son — Lyndon B. Johnson. Þáttur- inn í kvöld er liðlega einn og hálfur tími að lengd og þýðandi er Ellert Sigurbjörnsson. - ELA Táningar og togstreita nefnist saga sem lesin verður i útvarpi í dag kl. 16.40. Sagan er eftir Þóri S. Guð- bergsson og mun hann sjálfur lesa hana. „Sagan er byggð á ákveðnum heimildum frá Noregi en stilfærð og staðfærð íslenzkum aðstæðum,” sagði Þórir í samtali við DB. ,,Ég skrifaði þessa sögu í vetur, sumar og haust, svo hún hefur ekki birzt áður. Þetta er brot úr sögu 16 ára unglings. Hún er gróft dæmi úr borgarlífinu en ekki það grófasta. Það má kannski orða það þannig að hún sé hvorki ádeila á skóla, lög- reglu, foreldra né sérfræðinga þó að allir þessir aðilar komi við sögu á misjafnan hátt. Eyvindur heitir aðalpersóna sög- unnar og segir frá lifi hans i nokkrar vikur; samskiptum hans við félaga i innbroti og í skóla, einnig hjá sér- fræðingi þar sem hann er til með- ferðar og á heimili hans. Það kemur fram i lok sögunnar að það er ekki foreldrum að kenna hvernig þeir eru aldir upp og því ekki þeim að kenna hvemig börnin þeirra eru alin upp,” sagði Þórir. Aðspurður um hvort bókin yrði gefin út fljótlega sagðist Þórir ekkert vita um það enda hefði hann unnið stift við hana. „Ég ætla að leyfa henni að meltast aðeins og síðan mun ég athuga um breytingar á handriti.” Alls verða lestrarnir 13 — á miðvikudögum, fimmtudögum og föstudögum. Þess má geta í leiðinni Þórir S. Guðbergsson, höfundur sögunnar Táningar og togstreita, sem hann byrjar að lesa i útvarpi i dag. að breytt hefur verið tima útvarps- greindu daga í stað mánudaga og sögu barnanna, með tilkomu vetrar- þriðjudaga. dagskrár verður hún þessa framan- - ELA

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.