Dagblaðið - 01.12.1979, Blaðsíða 5
5
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 1. DESEMBER 1979.
Austfirðir:
Allirbumrað
fá rjúpu í
jólamatinn
Rjúpnaveiði hefur verið sæmileg á
Austfjörðum og eru allir Austfirð-
ingar sem vilja rjúpur i jólamatinn
búnir að tryggja sér þær.
Þeir sem stundað hafa veiðarnar
segja rjúpuna stygga og langt að
sækja hana enda ekkert vetrarriki á
Austfjörðum enn sem komið er.
- A.St. / Regina Eskifirði.
Fleiri og betri
tæki á Bama-
spítala
Hringsins
- merkjasala á morgun
Það er engin tilviljun að barna-
deildin á Landspítalanum heitir
Barnaspítali Hringsins. Það er vegna
þess að Kvenfélagið Hringurinn í
Reykjavik á mjög verulegan hlut að
þvi að þessi deild er til eins og hún er i
dag. Hún hefur nú á þriðja tug ára
verið griöastaður og heilsubótar-
staður sjúkra barna hvaðanæva af
landinu.
Þegar hún tók til starfa árið 1957
var kvenfélaginu þakkað á þann
verðuga hátt að nefna deildina eftir
félaginu. Bæði fyrir þann tima og æ
siðan hafa Hringskonur stutt deildina
af mikilli rausn og fómfýsi. Þau eru
orðin mörg, tækin, sem þær hafa
fært spitalanum að gjöf.
Reykvíkingar hafa tekið þátt i
þessu starfi með því að kaupa merki
Hringsins þegar þau hafa verið boðin
einn dag á ári. Merkjasöludagurinn í
ár er á morgun, sunnudag. Auk þess
verður kaffisala Hringsins á Hótel
Borg sunnudaginn 9. desember næst-
komandi.
- BS
Kökur og sæl-
gæti á basar
14 GRÍSIR DRAPUST
(GNÚPVERJAHREPPI
— að því að talið er úr f óðurm jölseitrun
Fyrir nokkru gerðist það á svína-
búi að Ásólfsstöðum í Gnúpverja-
hreppi að 14 eða 15 grísir á fjórða
mánuði drápust og er fóðurmjöli frá
ákveðnum seljanda í Reykjavík kennt
um. Drápust svínin 3—4 dögum eftir
að fyrstu einkenna varð vart.
Stefán Pálsson bóndi sagði í sam-
tali við DB að hér væri um allmikið
tjón að ræða. Hvert svín á þessum
aldri er talið leggja sig á 70—75 þús-i
und krónur, svo tjónið varð samtals
um ein milljón kr. Kvaðst Stefán
hafa farið fram á bætur fyrir svínin
frá seljanda fóðurmjölsins og hefði
komið til tals að leggja verð „förg-
unargrísa” á þessum aldri til grurid-'
vallar bóta.
Fóðurmjölið var rannsakað á
Keldum og sagði Stefán bóndi að
skýrsla um niðurstöður rannsóknar-
innar væri komin en hún væri svo
óákveðin að vart væri af henni ráðið
hvort fóðurmjölinu yrði tvímæla-
laust um kennt.
Hins vegar sagði Stefán að selj-
endur mjölsins hefðu Iátið í ljós vilja
til bóta þrátt fyrir það að þeir teldu
skýrsluna ekki sanna að fóðurmjölið
væri orsök dauða svinanna. -A.St.
Vakin er athygli á núgildandi reglum um lánskjör við innlánsstofn-
anir, sem meðal annars fela í sér eftirfarandi:
Ný lán: A. Vísitölubundin
Lán verðtryggð með lánskjaravísitölu bera lága vexti. Verðbætur
greiðast hverju sinni aðeins á gjaldfallinn hluta láns.
B. Tengd verðbótaþætti
Verðbótaþáttur vaxta leggst við höfuðstól láns á gjalddaga og
greiðist eins og hann. Á þetta við um vaxtaaukalán og skuldabréfalán
og hliðstæð greiðslukjör annarra lána.
— til ágóða fyrir
Tjaldanes
Styrktarfélag Tjaldanesheimilisins
efnir til kökubasars í dag og verður
hann í húsakynnum Blómavals við
Sigtún. Salan hefst kl. 10 og stendur
lil 4 ef allt verður ekki uppselt fyrir
þann tíma.
Á boðstólum er úrval af jólakök-
um og alls kyns sælgæti i jólapakk-
ana. Allur ágóði rennur til að bæta
aðstöðu vistfólks í Tjaldanesi.
Þórshöfn:
Beðið eftir
Eldri lán: C.
Breyta má skilmálum eldri lána og taka upp nýju kjörin með endur-
skoðun lánssamnings.
Samanburður:
Samanburóur á endurgreiðslu 1 milljón króna láns til fjögurra ára
með þrem mismunandi greiðslukjörum. Heildarvextir eru jafnháir for-
sendu um verðbólgu (40% á ári), en vísitölubundið lán með 2%
vöxtum. Greiðslur eru sýndar á föstu verðlagi upphafsársins.
einvíginu
Lítið hefur heyrzt af fyrirhuguðu
einvígi þeirra Árna Gunnarssonar og
Stefáns Valgeirssonar sepi sagt var
frá í DB nýlega. Árni skoraði Stefán
á hólm á framboðsfundi á Þórshöfn
og tók Stefán boðinu. Biða Þórs-
hafnarbúar nú eftir þeim köppunum
og ekki mun skorta einvigisvottá. Er
það skoðun krata að Árni muni ekki
óbættur falla því svo kann að fara að
Soffia Guðmundsdóttir velgi Stefáni
undiruggum.
-PÓ/JH
Dagblaðsbíó
ámorgun
í Dagblaðsbíói á morgun verður
sýnd myndin um Róbinson Krúsó.
Hún er i litum en ekki með íslenzkum
texta. Sýningin verður klukkan þrjú á
morgun i Hafnarbíói.
PLASTPOKÁR
Plnstos Uf QufiÞ
0> 82655
þús.kr.
400
300
200
100
Kynnið ykkur nánar þær reglur, sem gilda um lánskjör við
innlánsstofnanir. Hafið samband við banka ykkar eða sparisjóð.
Reykjavík, 29. nóvember 1979
Samvinnunefnd banka og sparisjóða