Dagblaðið - 01.12.1979, Síða 11

Dagblaðið - 01.12.1979, Síða 11
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 1. DESEMBER 1979. f—————— 11 SKA TTLAGNING BÍLA í flestum löndum heims er nú unnið að því að gera ökutæki sem hagkvæmust með tilliti til orkunotk- unar. Hafa augu manna einkum beinst að notkun disilbíla og rafbíla. Dísilvélin hefur mun betri nýtni en bensínvélin. Dísilbílar nota um 30% minna eldsneyti á hvern ekinn kíló- metra en bensínbíllinn. Hve mikill orkusparnaður felst í notkun rafbíla er háð því, hvernig raforkan er fram- leidd. Sé hún framleidd með elds- neyti, er um óverulegan orkusparnað að ræða. Hins vegar er hægt að nýta orkugjafa til raforkuframleiðslu, sem ekki eru nýtanlegir á ökutæki, svo sem kol og kjarnorku. Þess vegna er mikið fé látið í rannsóknir með raf- bíla víða um heim, svo sem í Banda- ríkjunum og Japan. Fáar þjóðir búa eins vel að orku- lindum til raforkuframleiðslu og við íslendingar, sem eigum gnægð sjálf- endumýjandi orkulinda, sem nýtan- legar era til raforkuframleiðslu, þ.e. vatnsorku og jarðvarma. Raforkuna' má nýta til að knýja ökutæki á tvenn- an hátt, þ.e. nota hann beint á rafbíla eða nota hana sem frumorku til elds- neytisframleiðslu. Af þeim ökutækj- um, sem fram til þessa hafa verið í notkun og fyrirsjáanleg era, notar rafbíllinn með rafgeymum minnsta orku á ekinn kílómetra. í töflu 1 er sýnd frumorkunotkun ökutækja miðað við bensín unnið úr jarðolíu, raforku framleidda með vatnsorku og vetni framleitt með þeirri rafgrein- ingaraðferð, sem í dag er í notkun. Enda þótt reikna megi með, að þau hlutföll milli orkunotkunar, sem sýnd era í töflu 1, geti breyst með þróun ökutækja er ljóst að orkan verður ekki nýtt á betri hátt en með notkun rafbíla. Ókosturinn við raf- bílinn er hins vegar sá að vegalengd sú, sem hægt er að aka á hverri hleðslu, er mjög takmörkuð a.m.k. ennþá, en ljóst er að hún mun lengj- ast verulega í náinni framtíð. Tafla 1. Frumnotkun ökutækja. Wh/km % Rafbíll 377 100,0 Bensínbíli 823 218,3 VetnisbUl 1139 302,1 Með hliðsjón af því, sem að fram- an greinir, hljótum við íslendingar að stuðla að aukinni notkun rafbUa á öllum þeim notkunarsviðum þar sem þeir koma til með að geta leyst bensínbUinn af hólmi og vinna síðan að því að framleiða eldsneyti, vetni, metanól eða bensín á önnur ökutæki, skip og jafnvel flugvélar. Framleiðsla rafbíla er ennþá afar lítil og þeir rafbUar, sem eru á al- mennum sölumarkaði, eru svo til ein- göngu bensínbilar sem breytt hefur verið í rafbíla. Verð þeirra er því al- mennt um tvöfalt hærra en verð bensínbíla. Það er hins vegar gert ráð fyrir því að þegar þeir verða komnir í fjöldaframleiðslu sem vænta má um 1985, verði þeir á svipuðu verði og bensinbilar. Samanburður á heildar- gjaldeyriskostnaði rafbíla og bensín- bíla er því vart tímabær. En ef litið er á gjaldeyriskostnað vegna eldsneytis- kostnaðarins eins kemur í ljós • að verulegur gjaldeyrissparnaður felst í notkun rafbíia og dísilbUa í stað bensínbíla, jafnvel þótt gert sé ráð fyrir að raforka tU hleðslu geyma raf- bíla sé keypt skv. heimilistaxta. Sjá töflu 2. Miðað er við núverandi bensínverð og raforkuverð, bensín- notkun 0,1 1/km, dísUoliunotkun 0,07 1/km, raforkunotkun 0,5 kWh/km, erlendan kosmað raforku- verðs 20% af útsöluverði, erlendan kosmað bensínverðs 38% og erlend- an kostnað dísUolíu 80% af útsölu- verði, erl. kosmaður í dreifmgar- kostnaði oliu og bensíns meðtalinn (lauslega áæUaður). Tafla 2. Áætlaður erlendur orku- kostnaður. Bensín..................13,40kr/km DísUolía................ 8,60kr/km Rafmagn Heimilistaxtí......... 3,60kr/km Næturtaxti.............0,60kr/km Til viðbótar framangreindum gjaldeyrissparnaði hlýtur að vega þungt við val á ökutækjum fram- tíðarinnar að rafbUar nýta innlendar orkulindir. Það að verða sjálfir okkur nógir með orku til ökutækja er erfitt að meta tilfjár. Með framanritað í huga er það áhugavert íhugunarefni hvort núver- andi skattlagning bUa hvetur tU notk- unar orkusparandi og gjaldeyrisspar- andi ökutækja, þ.e. disUbíla svo og rafbíla, sem þar að auki nýta inn- lendar orkulindir. Lög um fjáröflun til vegagerðar Þau lög, sem nú gilda um skatt- lagningu bifreiða til vegafram- kvæmda, eru lög um fjáröflun til vegagerðar, nr. 79/1974 með breyt- ingum þeim, sem gerðar vora með lögum nr. 78/1975 og 78/1977. Sam- kvæmt lögum þessum skal greiða sér- stakt innflutningsgjald af bensíni, svokallað bensíngjald, og árlegan þungaskatt af bifreiðum, sem nota annað eldsneyti en bensín. Gjöld þessi eru öU markaðir tekjustofnar til vegagerðar. í lögum nr. 79/1974 voru þau öU ákveðin í krónu^Hu. Með lög- unum nr. 78/1975 var hinn árlegi þungaskattur hækkaður og jafn- framt sett inn heimUd fyrir ráðherra að hækka bæði bensíngjald og þungaskatt í hlutfalli við hækkun byggingarvísitölu. Með lögunum nr. 78/1977 voru ný einingarverð ákveð- in á bensíngjaldi og þungaskatti og ákveðin ný grunnvisitala, þ.e. 159 stig. Hin nýju verð tóku gildi 1. janú- ar 1978. Með lögunum nr. 78/1975 og 78/1977 hefur löggjafinn mótað þá stefnu að bensíngjald og þungaskatt- ur skuli fylgja byggingarvísitölu. Nú- verandi gúmmígjald er óbreytt það gjald sem ákveðið var með lögunum nr. 79/1974, þ.e. 45 kr/kg, sem tók gildi 9. september 1974. Af umrædd- um gjöldum hefur gúmmígjaldið því orðið æ minna hlutfallslega og nam árið 1978 aðeins 1,64% af gjöldunum samanlögðum. Stjórnvöid virðast hafa lítinn áhuga á þessum tekju- stofni og hefur heyrst að ætlunin sé að leggja hann niður. í lögunum nr. 79/1974 og 78/1977 er ráðherra heimilað að ákveða með reglugerð, að í stað árlegs þunga- skatts skuli greitt sérstakt gjald fyrir hvern ekinn kílómetra samkvæmt ökumæli. í lögunum er ekkert ákvæði um grannupphæð kílómetra- gjaldsins og heimild ráðherra því óeðlilega rúm. En þar sem lögin gera ráð fyrir að kílómetragjaldið komi í stað árlegs þungaskatts er eðlilegt að ætla aðeftir að ráðherra hafði ákveð- ið kílómetragjald í stað þess þunga- skatts, sem ákveðinn var með lögun um nr. 78/1977, yrði það látið breyt- ast í hlutfalli við breytingu bygg- ingarvísitölu sbr. framangreind ákvæði um árlegan þungaskatt. Reynslan hefur hins vegar orðið sú að ráðherra hefur hækkað kílómetra- gjaldið langt umfram hækkun bygg- ingarvísitölu sbr. töflu 3. Tafla 3. Hækkanir tímabilið 1. jan. 1976 till.nóv. 1979. Byggingarvísitala.......... 252,9% Árlegur þungaskattur........295,4% Þungaskattur pr. km: Heildarþyngd 4,0—4,9tonn............. 435,7% '25,0—25,9 tonn......... 502,7% Bensingjald................ 343,3% Vafasöm hækkun km- gjalds á miðju ári 1979 Með reglugerð nr. 430/1978 er þungaskattur fyrir árið 1979 ákveð- inn. Hækkun árlegs þungaskatts er bundinn breytingu byggingarvísitölu sbr. lög nr. 78/1977 og er því hækk- aður í samræmi við það. Þunga- skattur pr. ekinn kílómetra er hækk- aður um sama hundraöshluta og allir liðir jafnt, enda má túlka lögin þannig, að ráðherra hafi ekki heimild til meiri hækkunar á km-gjaldinu en hinum árlega þungaskatti sbr. fram-. anritað. í reglugerðinni segir, að þunga- skattur sbr. e- og d-lið, þ.e. km- gjaldið, skuli innheimtur ársþriðj- ungslega eftir á og er gjalddagi skattsins 11. febrúar, 11. júní og 11. október. Þarna var því verið að ákveðagjald fyrir ailt árið 1979. Á miðju ári 1979 skeður síðan sá einstæði atburður að km-gjaldið, Kjallarinn GísliJónsson neytisstjóra fjármálaráðuneytisins var strax bent á. Þrátt fyrir ábending- una hefur ekki verið hirt um að breyta reglugerðinni til samræmis við gildandi lög. Telji ráðuneytið eðlilegt að auka umræddan afslátt er heimilt að auka hann úr núgildandi 10% í 15% eða eitthvað þar á milli. Útilokar óraunhæf skattlagning notkun dísil- og rafbíla? Eftir framanritaðar hugleiðingar um skattálagningu bíla er fróðlegt að skoða hvort núverandi skattlagning hvetji til notkunar dísilbíla og rafbíla eða öfugt. Lægsti árlegi þungaskatturinn af einkabíl, þ.e. bíl sem er minni en 2000 kg að eigin þyngd, var fyrir árið 1978 kr. 170.600. Það ár var meðal- verð á dísilolíu 65,92 kr/1 og meðal- verð á bensíni 136,53 kr. Ef gert er ráð fyrir, að bensínbíllinn eyði 10 1/100 km og dísilbíllinn 7 1/100 km þurfti að aka dísilbílnum meira en 18.875 km/ár, ef þungaskattur + olíukostnaður átti að verða minni en bensínkostnaður. Þó er ekki tekið til- lit til þess að þungaskatturinn er greiddur fyrirfram og að dísilbíllinn er dýrari en bensínbíllinn. Þessar tölur gætu t.d. hafa gilt fyrir Golf, sem fæst bæði með dísilvél (805 kg) og bensinvél (750 kg), en framleið- andi hans gefur upp að eyðslan í „Skýlaust brot á lögum var ekki leiö- rétt.” „Hækkun kílómetragjaldsins ólögleg?” „Notkun dísilbíla og rafbíla hindruð með vafasömum skattaálögum.” sem þegar var búið að ákveða fyrir allt árið, er hækkað og mismunandi mikið. Lægsta gjaldið, fyrir bíl 4,0— 4.9 t, var hækkað um 35,14% en hæsta gjaldið, þ.e. fyrir bíl 25,0— 25.9 t, um 52,27%. Skýringin, sem fengist hefur hjá fjármálaráðuneyt- inu, er sú að þessi hækkun hafi verið gerð til þess að vega upp á móti tekju- tapi ríkissjóðs vegna niðurfellingar á söluskatti af dísilolíu til bifreiða, þ.e.a.s. markaður tekjustofn til vega- gerðar er hækkaður vegna missis tekjustofns, sem ekki er ætlaður sér- staklega til vegaframkvæmda. Hin mismikla hækkun km-gjaldsins mun hafa verið grundvölluð á þeim for- sendum, að þungu bílarnir högn- uðust meira á niðurfellingu sölu- skattsins og því megi leggja á þá auknar álögur. Það er mat undir- ritaðs, að hækkun þessi brjóti í bága við þá stefnu í gjaldtöku til vega- gerðar, sem mótuð var með lögum nr. 79/1974 sbr. lög nr. 78/1975 og 78/1977 og hafi því verið ólögleg, en ráðuneytisstjóri fjármálaráðuneytis- ins hefur ekki víljað fallast á það sjónarmið. Með framangreindri hækkun er dísilbílaeigendum freklega mis- munað, þar sem hækkunin lenti ein- ungis á þeim sem greiða km-gjald en ekki á hinum sem greiða fast árgjald. Það gjald var ekki hægt að hækka, þar sem það var löngu gjaldfallið. Hví var skýlaust brot á lögum ekki leiðrétt? í lögunum nr. 78/1977 er ákvæði sem heimilar ráðherra að endurgreiða allt að 15% þungaskatts skv. öku- mæli, sem til fellur umfram 30.000 km akstur og að 45.000 km akstri á ári, en 25% umfram 45.000 km akstur á ári. Þessa heimild hefur ráð- herra ekki nýtt að fullu heldur veitt 10% afslátt. Með reglugerð nr. 241/1979 eru fyrri mörkin lækkuð úr 30.000 km í 25.000 km enda þótt lögin heimili ekki að veita afslátt fyrr en eftir 30.000 km. Hér er því um skýlaust brot á lögum að ræða, sem ráðu- bæjarakstri sé 9,9 1/100 km bensín- bíllinn en 6,81 dísilbíllinn. Sé hins vegar athugaður stærri bill, t.d. miðlungsstór leigubíll, þar sem reikna má með eyðslu bensínbílsins um 18 1/100 km og dísUbílsins um 11 1/100 km, hefði akstur árið 1978 þurft að vera meiri en 12.800 km/ár til þess að þungaskattur + olíukostn- aður sé minni en bensínkostnaður, en árlegur þungaskattur af leigubUum er 30% hærri en af einkabílum. Fróðlegt er ,að athuga hvert fram- lag framangfeindra bíla til vega- gerðar hafi orðið árið 1978, annars vegar í formi þungaskatts og hins vegar í formi bensíngjalds. Miðað er við að einkabílnum sé ekið 12.000 km/ár en leigubílnum 45.000 km/ár. Kemur þá fram niðurstaða sú sem sýnd er í töflu 4. Meðalbensíngjald árið 1978 var 41,81 km/1. Tafla 4. Skattur til vegagerðar árið 1978 í krónum á ekinn kilómetra miðað við árlegan þungaskatt. Einkabíll (12.000 kr/ár): Dísilbíll............14,22 kr/km BensínbUl............ 4,18kr/km Leigubíll (45.000 km/ár): DísUbíll f .......... 4,93 kr/km BensínbUl............ 7,53 kr/km Enda þótt dísUbíllinn sé svolítið þyngri en bensinbíllinn er ljóst af töflu 4, að þungaskatturaf litlum bíl- um er allt of hár. Að lokum skal litið á þungaskatt skv. ökumæli, þ.e. km-gjald. Frjálst val er um greiðslu þunga- skatts sem fast árgjald eða km-gjald. Sá gaUi er hins vegar á km-gjaldinu að það er ekki þrepað lengra nður en í bíl af heildarþyngd 4,0—4,9 tonn. Af litlum bíl þyrfti því að greiða sama gjald og af bíl sem er allt að 5 tonn. • f töflu 5 er sýndur skattur til vega- gerðar í krónum á ekinn kílómetra miðað við að greiddur sé þunga- skattur skv. ökumæli. Miðað er við sams konar lítinn einkabíl og miðl- ungsstóran leigubíl, eins og hér að framan, en nú er skatturinn óháður árlegum akstri. Bensíngjaldið er í dag 70,93 km/1. Tafla 5. Skattur til vegagerðar i krón- um á ekinn kílómetra miðað við þungaskatt skv. ökumæli. Meðaltal óriö . . . 1978 kr/km Einkabill: Miðað vlð nú- verandi gjöld kr/km DísUbíH 6,48 15,00 Bensínbíll 4,18 7,09 LeigubUl: DísilbUl 6,48 15,00 BensínbUl 7,53 12,77 Með því að bera saman töflu 4 og 5 má sjá að miðað við árið 1978 var miklu hagstæðara fyrir einkabílseig- andann að greiða af iitlum dísilbíl, sem er um 800 kg, km-gjald sem gildir fyrir bíl sem er allt að 5 tonn að heildarþunga heldur en fast árgjald. Að vísu vantar að bæta við km-gjald- ið kostnaði vegna mælis en á móti kemur að árgjaldið er greitt fyrirfram í upphafi árs en hitt eftir á. Jafnframt sýnir tafla 5 að framlag dísUeinka- bílsins árið 1978 og beggja dísUbíl- anna nú til vegagerðar er hærra en bensínbílanna. Vegna takmarkaðrar mögulegrar akstursvegalengdar á hleðslu hlýtur árlegur akstur rafbíla, a.m.k. fyrst um sinn, að vera minni en bensín- og dísilbíla. Þungaskattur í formi fasts árgjalds kemur því ekki til greina. Af rafbíl eins og þeim, sem Háskóli íslands hefur keypt, mundi því þurfa að greiða nú 15,00 kr/km en af svipað þungum bensínbíl um 7,10 kr/km. Niðurlag Hér að framan hefur einungis verið fjallað um skattlagningu á Iitlum bil- um og er ljóst að í þeim málum ríkir stefnuleysi. Þar sem þungaskattur og bensingjald eru markaðir tekjustofn- ar til vegagerðar væri eðlilegast að ákveða þá í hlutfalli við slit á vegum, þ.e. í samræmi við þyngd bílanna og akstur. Það er auðvelt mál að ákveða þungaskatt skv. ökumæli þannig að greitt sé svipað gjald á hvern ekinn kílómetra, hvort heldur notaður er dísilbíll, rafbíll eða bensínbíll, en það virðist vera réttlátasta viðmiðunin ef yfir höfuð á að innheimta slíka mark- aða tekjustofna. Með álagningu fasts árgjalds má áætla meðalakstur og þannig ákveða gjöldin á þann veg að þau séu í sem mestu samræmi við slit á vegum. Eins og fram hefur komið hér að framan er nauðsynlegt að þrepa þungaskattinn lengra niður, bæði fasta árgjaldið og km-gjaldið. Við ákvörðun á núverandi þunga- skatti virðist hafa ríkt það sjónarmið að komi fram ódýr valkostur megi leggja á hann þyngri álögur en þann dýrari. Á þennan hátt er verið að hindra eðlilega þróun heppilegra val- kosta, sem nýta betur innflutta orku, sem þarfnast minni gjaldeyris á ekinn kílómetra og sem nýta innlendar orkulindir. Kominn er timi til að líta fram til framtíðarinnar og hugsa ekki einungis um það hvað hægt er að skattpína í augnablikinu, þ.e. að segja að kanna hvort ekki geti borgað sig, þegar til lengri tíma er litið, að örva til notkunar dísilbíla og rafbíla í stað þess að setja þröskuld í veg þeirra. Varðandi rafbíla má geta þcss að auk þungaskattsins þarf að taka til skoðunar hvort ekki sé rétt að lækka á þeim aðflutningsgjöld á meðan þeir eru dýrari en bensínbílar. Ef t.d. toll- verð rafbíla árið 1980 yrði ákveðið 50% af cif-verði mundu fjárhagslegir möguleikar á notkun þeirra batna mikið án þess að ríkið missti neitt í aðflutningsgjöldum miðað við sam- bærlega bensínbíla. Þennan hundraðshluta mætti síðan smá- hækka eftir því sem verð rafbíla lækkar. Á sama tíma sem aðrar þjóðir verja milljörðum í þróun hagkvæm- ari ökutækja og örva til notkunar dísilbUa og rafbíla er notkun þessara bUa þindrað hér á landi með vafa- J.. - sömum skattaálðgum. Gísli Jónsson prófessor J

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.