Dagblaðið - 12.12.1979, Blaðsíða 1

Dagblaðið - 12.12.1979, Blaðsíða 1
5. ÁRG. — MIÐVIKUDAGUR 12. DESEMBER 1979 — 276. TBL. RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12. AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI 11,—AÐAl.SÍMI 27022. Unghjón íStykkishólmi 45 milljónum króna ríkari: „Emil sagði mig ijúgal” —sagöi umboðsmaður Happdrættis Háskóla íslands um viðbrögð margmilljónarans íStykkishólmi „Emil sagði að ég væri að ljúga þegar ég fór til hans í bygginguna i gær og sagði honum frá stóra vinningnum,” sagði Ester Hansen, umboðsmaður Happdrættis Há- skólans í Stykkishólmi. Það hljóp heldur betur á snærið hjá Emil Guðbjartssyni og konu hans Hrafn- hildi í gær, er þau fengu hvorki meira né minna en 45 milljónir króna í 11% meðaltalshækkun á smásöluverði búvara: Mjólkuiiítnnn kostar 281 kr. Landbúnaðarafurðir hækka að meðaltali um 11% í smásölu í kjölfar ákvörðunar ríkisstjórnarinnar í gær. Mjólkurlitrinn kostar nú kr. 281 i stað kr. 254 áður og kvartferna af rjóma kostar kr. 466 í stað kr. 427. Gunnar Guðbjartsson, formaður 6 manna nefndar, sagði i morgun að tæmandi verðlisti yfir búvörurnar yrði tilbúinn siðar í dag. Smjörið hækkar mest, eða um 14.5% kinda- kjöt um 11% að meðaltali, nautakjöt um 185 kr. á kíló, kartöflur um 10.9%. -ARH. MatthíasÁ.eða MatthíasBjama form. þingflokks SjÉfsfæðismanna? Dr. Gunnar Thoroddsen hefur nú tilkynnt, að hann muni ekki gefa kost á sér sem formaður þingflokks sjálf- 'stæðismanna. Hann er, sem kunnugt er, varaformaður flokksins. Telur hann að nýr þingflokksformaður sé liöur i nauðsynlegri endurnýjun í stjórn Sjálfstæðisflokksins. Enn hefur ekki verið tilkynnt um hver hinn nýi þingflokksformaður verði. Óslaöfest er, að i stöðuna verði valinn Matthías Á.Mathiesen eða Matthías Bjarnason. Ingvar Gislason verður formaður þingflokks Framsóknarmanna og Ragnar Arnalds formaður þingflokks Alþýöubandalagsins. Sighvatur Björgvinsson veröur áfram formaður þingflokks Alþýðuflokksins eftir þvi sem næst verður komizt. -BS. Happdrætti Háskólans. Þau ungu hjónin eru með miða númer 51931 og fengu 5 milljón kr. vinning, en þau eiga alla númera- röðina og trompmiðann að auki þannig að upphæðin varð 45 milljónir. Vinningurinn kemur svo sannarleg í góðar þarfir því ungu hjónin eru að koma sér upp húsi að Tangagötu8 í Stykkishólmi. ,,Emi! var þó furðu rólegur er ég færði honum fréttina,” sagði Ester, ,,en það vil ég segja að ég vildi ekki fá svona mikið fé upp í hendurnar. Það er mikill vandi að fara með það. Við fórum síðan heim og sögðum Hrafnhildi, konu Emils, af þessu. Hún vildi ekki trúa fréttinni lengi vel. Þau hjónin hafa verið með þessa röð og sagði Hrafnhildur að hún hefði verið að reyna að fá Emil til þess að hætta við miðana, en hann sagðist fá þannstóranæst.” Börn þeirra hjóna voru að leika sér með happdrættismiðana á gólfinu og var miðunum fdrðað, enda geyma þeir heldur betur fjársjóðinn. „Vinningurinn kom á góðan stað,” sagði Ester. Þau hjónin ætla að reyna að flytja i nýja húsið fyrir áramót en ýmislegt vantar, gólf, loft, hurðir og fl. En mér er óskiljanlegt hvernig þið á DB hafið fundið út úr því hver vinningshafinn er. Við höfum öll steinþagað og engan látið vita.” -JH. Stofið úr danskri þyrlu — sem stóð nálægt gamlaflugtuminum í morgun varð ljóst að farið hafði verið í danska þyrlu sem staðið hefur skammt frá gamla flugturninum á Reykjavíkurflugvelli. Rannsókn leiddi ekki annað í Ijós en að ruslað hafði verið í lyfjakassa vélarinnar í leit að einhverju og einnig er saknað kuldaúlpu sem um borð var. Talið var að þyrlan væri óskemmd eftir þessa óboðnugestaheimsókn. -A.St. Vegsummerki eftir þjófaheimsóknir eru venjulega augijós. Svo var i þyrl- unni í morgun, er verið var að rannsaka málið. Lengst til hægri er Haraldur Árnason, rannsóknarlög- reglumaður. DB-mynd: Hörður. Poppá Listahátíð? Verður boðið upp á útlenda popp- tónlist á Listahátíð næsta sumar, Örnólfur Árnason, framkvæmda- stjóri Listahátíðar? „Já, það er stefnan. Engar á- kvarðanir hafa þó verið teknar og engir samningar gerðir við poppara. Við eigum kost á að fá Bob Marley á- MARLEY 0G ROLUNG- ARNIR ENN í SIGYI samt hljómsveit. Við höfum leitað hófanna víða og fengið þokkalegar viðtökur. En stóra spurningin er alltaf fjárhagshlið fyrirtækisins., Poppurunum fylgja stór og mikil magnarakerfi. Flutningur á þeim hingað til lands yrði allt að því jafn dýr og kaupið til listamannanna. Og svo vilja þeir hafa með sér stórar sveitir fylgdarfólks. Marley er að vísu hógvær í tölum, vill hafa með sér 16—17 manns. Aðrir vilja hafa með sér allt að 25 manns.” Fleiri þekkt nöfn sem könnuð hafa verið? „Hafa ekki allir í sömu sporum reynt eitthvað við Rolling Stones? Við höfum spurzt fyrir um þá. Þeir eru einna erfiðastir við að eiga. Hvernig sem allt veltist, þá er Ijóst að fyrirtækið yrði viðamikið og dýrt. Miðaverð yrði óhjákvæmilega mjög hátt, þrátt fyrir að ráð yrði gert fyrir fullskipaðri Laugardalshöll á hljóm- leikum.” -ARH.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.