Dagblaðið - 12.12.1979, Side 7

Dagblaðið - 12.12.1979, Side 7
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 12. DESEMBER 1979. 7 NewYork: STALVEGGIR RIFNUDU OG HVERFID TITRAÐI —er sprengja sprakk í byggingu sovézku sendinefndarinnar hjá SÞ—sex manns slösuðust Að minnsta kosti sex manns slösuöust er mjög kraftmikil sprengja sprakk við dyr bifreiðageymslu á fyrstu hæð byggingar sovézku sendinefndarinnar hjá Sameinuðu þjóðunum í New York í nótt. Urðu miklar skemmdir á byggingunni, sem er ellefu hæðir og stendur á Manhatt- an eyju. Svo öflug var sprengingin að stál- veggir í húsinu rifnuöu og rúður brotnuðu i allri byggingunni allt upp á fimmtu hæð. Auk þess urðu skemmdir á nærliggjandi byggingum. Hinir særðu eru fjórir lögreglumenn sem voru á varðgöngu nærri og auk þess tvær sovézkar konur sem voru að störfum á skrif- stofu inni í byggingunni. Að sögn lögreglunnar í New York hafa samtök kúbanskra útlaga, Omega-7, þegar lýst sök á hendur sér fyrir sprenginguna. Samtökin hafa talið sér til tekna tvö sprengjutilræði sem gerð hafa verið á sendinefnd Kúbu hjá Sameinuðu þjóðunum á undanfömum vikum. Sprenging þessi er sögð einhver sú mesta sem orðið hefur í New York í manna minnum. Var sprengjan skilin eftir við innkeyrslu í bifreiða- geymslu á jarðhæð byggingarinnar, nærri götunni. Aðalfulltrúi Bandaríkjanna hjá Sameinuðu þjóðunum, Donald McHenry, kom þegar á slysstaðinn og tók þátt i björgunaraðgerðum og 'störfum við að finna hverjir hér hefðuverið að verki. Af ótta við fleiri sprengjur var nokkru svæði lokað og sérþjálfaðir hundar fengnir til að leita. Flugslysið á Suðurheimskautslandinu: ítrekuðum aðvör- unum ekki sinnt Flugmenn DC-10 þotunnar, sem fórst yfir Suðurskautslandinu í fyrra mánuði og með henni 257 manns, virðast ekki hafa sinnt ítrekuöum aðvörunarmerkjum frá tækjum i stjórnklefa. Samkvæmt upptöku á því sem gerðist í stjómklefa þotunnar rétt áður en slysið varð hefur sérstakt tæki gefið fjórum sinnum til kynna að þotan væri of lágt á lofti. Merki þessi eiga að gefa flugstjórnar- mönnum til kynna að þegar í stað verði að auka flughæð eigi vélin ekki að landaá jörðinni. Upplýsingar þessar komu frá einum bandarisku fulltrúanna viö rannsókn flugslyssins. Hann sagði ennfremur að engir gallar hefðu fundizt á þotunni sjálfri sem hefðu getað valdið slysinu. Segulbandsupptökurnar úr flug- stjórnarklefanum hafa verið rann- sakaðar í Washington. Bretland: Frumvarp um tak mörkun á vakfí verkalýðsfélaga Brezka ríkisstjórnin hefur nú lagt fram frumvarp þar sem gert er ráð fyrir verulegum takmörkunum á völdum brezkra verkalýðsfélaga. Er þetta sam- kvæmt einu kosningaloforða Margrét- ar Thatcher, formanns íhaldsflokksins, en völd verkalýðsfélaganna og foringja þeirra hafa verið henni mikill þyrnir í augum. Helztu atriði tilagnanna eru þau að nú verður aðeins leyfilegt að standa verkfallsvörð við það fyrirtæki sem menn starfa við sjálfir. Er þetta að sögn gert til að koma í veg fyrir að sveitir harðsnúinna verkfallsmanna eða jafnvel æsingamanna stöðvi vinnu utan síns raunverulega starfssvæðis. Verði lögin samþykkt verða ákvæði um einkarétt á vinnu hjá einstökum vinnuveitendum að samþykkjast af í það minnsta 80% allra þeirra sem þar starfa. Ekki verður heimilt að þvinga neinn til að ganga í verkalýðsfélag. Verður brotum gegn þessu ákvæði vísað til almennra dómstóla. Einnig getur maður fengið að vera utan verkalýðs- félaga með vissum skilyrðum þó á- kvæði séu um einkarétt þeirra á vinnu. Ríkisvaldið ætlar að greiða kostnað af almennum atkvæðagreiðslu , þegar teknar eru ákvarðanir um mikilvæg verkföll og fleira. Þannig hyggst íhalds- stjórnin gefa mönnum kost á að lýsa áliti sínu leynilega. Fyrirtæki með tuttugu starfsmenn eða færri verði hér eftir ekki skyldug til að taka konur aftur til starfa eftir barneignafrí. Verkalýðsleiðtogar flestir hafa lýst yfir andstöðu við frumvarpið en skoðanakannanir sýna að þrír af hverjum fjórum félögum i brezkum verkalýðsfélögum eru hlynntir frumvarpinu. Guatemala: 2000myrtír á 18mánuðum Rúmlega tvö þúsund menn hafa verið myrtir í Mið-Ameríkuríkinu Guatemala síðastliðið eitt og hálft ár. Þar hafa verið að verki sveitir sem styðja hin hægri sinnuðu stjómvöld Iandsins og þá gjarnan einkennis- klæddar hersveitir eða úr öryggis- verði ríkisstjórnarinnar. Samkvæmt upplýsingum Amnesty International, en nefnd frá samtök- unum hefur verið í Guatemala, hafa það aðallega verið vinstri sinnaðir stjómarandstæðingar og verkalýðs- leiðtogar sem látið hafa lífið í aðgerðum sveita stjómarinnar. Einkum munu það vera félagar flokka sem taldir eru geta orðið skeinuhættir ríkjandi stjórnendum í forsetakosningum, sem fara eiga fram 1982, sem morðsveitirnar hafa sótzt eftir. Stjómvöld í Guatemala hafa ekki í eitt einasta skipti séð ástæðu til að kalla neinn meðlim morösveitanna fyrir rétt vegna atburöanna. Romeo Garcia .forseti landsins og flestir ráð- herranna láta nægja að kalla þá kommúnistaútsendara eða leiguþý brezku krúnunnar. Aðeins varaforseti landsins, Francisco Kramer, hefur óskað eftir því að málið verði rannsakað og jafn- framt tekið fyrir hjá Samtökum' Ameríkurikjanna. KrisogRita ætla að skilja Krís Krístoffersson, bandaríski söngvarinn og leikarinn, og kona hans Rita Coolidge söngvarí eru nú að skilja eftir sex ára hjónaband. Svo virðist sem ekki verði neinn ágreiningur um skiptingu eigna og farið hefur verið fram á að dóttir þeirra, fimm ára gömul, verði i umsjá beggja foreldranna. Gripið simann gerið góð kaup Smáauglýsingar BIAB5IN5 Þverholti11 sími 2 70 22 Opið til kl.10 í kvöld

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.