Dagblaðið - 12.12.1979, Qupperneq 9
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 12. DESEMBER 1979.
9
Rífleg peningaverð-
km til sigurvegara
—keppnisbátamir mæta til leiks
Þrír bátar hafa staðfest þátttöku í
Sjóralli 1980 og margir bátseigendur
sýnt keppninni áhuga þótt endanleg
ákvörðun bíði vorsins. Þannig eru
skráðir tveir bátar með dísilvélar, um
150 hestöfl hvor, og einn bensínbátur
með 350 hestafla vél. Ljóst er að hér
þarf flokkaskiptingu til að jafna metin
i ganghraða þó sjómennskan sé vissu-
lega hestöflunum sterkari í Sjóralli.
Rætt hefir verið um þrjá flokka fyrir
keppnisbáta. í þeim fyrsta verði bátar
með allt að 200 hestöfl og í öðrum með
frá 200 til 400 hestöfl. í þriðja flokkin-
um hafna stærri bátar og aflmeiri.
Þessi skipting er ráðgerð fyrst og
fremst til að glæða áhuga hjá fleiri
bátseigendum og tryggja jafna keppni
innan flokka. Verði þessi skipting ofan
á fást þrir sigurvegarar úr hverju Sjó-
ralli og ættu þau málalok varla að
draga úr áhuga bátafólks.
Þá verður sami háttur hafður á og
áður að eldsneytiskostnaður keppenda
verður greiddur úr sameiginlegum sjóði
og losna þeir sjálfir undan þeim krossi.
Þá hefur Dagblaðið boðið fram rifleg
peningaverðlaun til allra sigurvegara úr
hinum ýmsu flokkum, sem ákveðnir
verða. Þannig eiga keppendur góðan
möguleika á að hala inn fyrir kostnaði
og jafnvel dálítinn aukapening. Vistir
Vegna skiptingar i flokka eru áhugamenn um þátttöku i Sjóralli 1980 hvattir til að
melda báta sina hið fyrsta við ritstjórn Dagblaðsins. Myndin er af sigurvegurum Sjó-
ralls ’79, Bjarna Sveinssyni og Ólafi Skagvfk. DB-mynd Hörður.
og uppihald á viðkomustöðum er kepp-
endum að kostnaðarlausu sem fyrr.
Endanleg ákvörðun um flokkaskipt-
ingum verður tekin um miðjan janúar-
mánuð. Því er mjög áríðandi að áhuga-
menn um þátttöku meldi báta sina við
fyrsta tækifæri en þátttökutilkynning-
ar eru ekki bindandi strax heldur nauð-
synlegar til hliðsjónar við skiptingu.
- ÁHE
Sjórall’80:
BEÐIÐ BANKAGAGNA í
KÆRUMÁU UM FJÁRDRÁTT
—en varðhaldsúrskurður á að renna út í dag
í dag rennur út gæzluvarðhaldsúr-
skurður sá sem kveðinn var upp yfir
verzlunarstjóra í tízkufataverzlun við
Laugaveginn.
Erla Jónsdóttir, deildarstjóri hjá
Rannsóknarlögreglu ríkisins, kvaðst
ekki i gær geta sagt um það, hvort
farið yrði fram á framlengingu á
gæzluvarðhaldi. Kvað Erla enn vera
beðið eftir gögnum frá bönkum í
sambandi við mál mannsins. Myndi
það að einhverju leyti geta ráðizt af
þeim, hvort óskað yrði eftir fram-
lengingu eða ekki.
Grunur féll á umræddan verzl-
unarstjóra vegna óeðlilegrar rýrn-
unar á vörulager verzlunarinnar. Þá
var hann, að sögn, einnig kærður
fyrir að hafa ekki stimplað inn í pen-
ingakassa verzlunarinnar allar þær
fjárhæðir sem hann seldi fyrir í búð-
inni og að einhverju leyti lagt þær inn
á eigin reikning.
- A.St.
PASSÍUSÁLMARNIR
ÞÝDDIR Á N0RSKU
— hafa áður komið út á ensku, þýzku og ungversku
„Þegar Hallgrímur loksins eftir þrjú
hundruð ár kemst fyrir augu norskra
lesenda má hann vel una sínu föru-
neyti. Þýðandinn, Harald Hope, hefur
lengi verið heitur unnandi hans og
aðdáandi. Og þeir útlendir menn munu
fáir, sem hafa unnað íslandi sem
hann,” segir Sigurbjörn Einarsson unv
norska þýðingu Passíusálmanna sem
kom út i Osló í haust í samvinnu við
Hallgrímskirkju í Reykjavik.
,,Ég er að sjálfsögðu ekki dómbær
um það, hvernig þessi þýðing hljómar í
norskum eyrum. Um form og áferð
skáldskapar getur enginn dæmt nema
móðurmál sjálfs hans eigi í hlut. En
auðvelt er að ganga úr skugga um hitt,
að þessi þýðing er frábærlega trú frum-
Á kvikmyndahátíð Listahátíðar i
febrúarbyrjun verður efnt til sam-
keppni um íslenzkar kvikmyndir, líkt
og á síðustu kvikmyndahátíð. Þá vann
Lilja Hrafns Gunnlaugssonar til verð-
launa.
Íslenzkar leiknar kvikmyndir og
heimildarmyndir gerðar 1978 og 1979
textanum. Þi.gar ég las hana í handriti
fannst mét ég heyra tungutak Hall-
gríms, það var svo glöggt viða, að
undrun vakti. Þó að ég geti ekki dæmt
um listrænt gildi þýðingarinnar frá
norsku sjónarmiði, er mér mikil nautn
að lesa þessu kæru sálma í þessum bún-
ingi, sem Harald Hope hefur fært þá
i,” segir biskup.
Á fáum árum hafa Passíusálmarnir
komið út á ensku, þýzku, ungversku og
norsku. Hallgrímskirkja hefur staðið
að öllum þessum útgáfum, kostað
hinar þrjár fyrst töldu að fullu. Allar
þessar útgáfur Passíusálmanna eru
fáanlegar í Guðbrandsstofu í Hall-
grímskirkju.
- GAJ
koma til greina. Fyrir beztu myndina
verða veitt verðlaun að upphæð 500
þúsund krónur. Allar kvikmyndir í
samkeppninni verða sýndar á hátíð-
inni.
Þátttökutilkynningar berist Lista-
hátiðarstjórn á sérstökum eyðublöðum
fyrir næstu áramót. -ARH
Sá einhver
ekiðákyrr-
stæða bfla?
Rannsóknardeild lögreglunnar i
Kópavogi leitar nú upplýsinga um
árekstur á tvo kyrrstæða bíla. Er
heitið á alla, er upplýsingar geta veitt,
að setja sig i samband við rann-
sóknardeildina I síma 43260.
Fyrra slysið varð 6. desember á
tímabilinu frá kl. 16.20—16.45 i
stæði við húsið nr. 11 við Hamra-
borg. Þar stóð bill af Maz.da 818
gerð, orangelituð, og ber einkennis-
stafina Y-8001. Hægri framhurð bíls-
insvardælduð.
Siöari ákeyrslan varð 10. desember
kl. 21—24 á stæði við Hamrahlið 1.
Ekið var á Y-7596 sem er Toyota
Cressida bifreið og hægri framhurð
hennar dælduö.
- A.St.
Týndiveski
meðverð-
mætum
I siðustu viku varð ungur strætis-
vagnstjóri í Reykjavik fyrir því Ijóta
óláni að týna seðlaveski sinu með
talsverðum verðmætum í — engum
peningum en verðbréfum og öðru.
Hann telur sig hafa týnt veskinu upp
úr vasa sínum á leiðinni frá Holly-
wood inn í Efstasund — og skiptir
það hann verulegu máli, að hann fái
veskið aftur með því sem í þvi var.
Veskinu má skila til lögreglunnar i
Reykjavik.
-ÓV
HÁLF MILUÓN
í VERDLAUN
—fyrir beztu íslenzku myndina á kvikmyndahátíð
Hin vinsœlu
D0SI bakbelti
eru komin aftur í öllum
stærðum.
Pantanir óskast sóttar.
Fást í flestum
1' apótekum.
Ifemediahf.
Borgartúni 29 Reykjavík.
Sími 27511.
1X2 1X2 1X2
16. leikvika — leikir 8. desember 1979.
Vinningsröð 122 — 1X1 — 1X2 — 11X
1. vinningur: 12 réttir — kr. 2.425.500.-
402810/12,6/11)
2. vinningur: 11 réttir — kr. 22.100.-
380 4409 11822 31332 + 33648 40394 41332
486 5229 12761 31415 + 40028 40554 41626
963 6341 30153 32294 40050 40634 41781
1407 9758 + 30406 32632 40236 40766 41797
2004 10343 30410 33526 40251 40924
3210 + 10442 30852(2/11) 33561+ 40292 41195
Kærufrestur er til 27. desember kl. 12 á hádegi. Kærur skulu vera skrif-
legar. Kærueyðublöð fást hjá umboðsmönnum og á aðalaskrifstofunni.
Vinningsupphæðir geta Iækkað, ef kærur verða teknar til greina.
Handhafar nafnlausra seðla ( + ) verða að framvisa stofni eða senda
stofninn og fullar upplýsingar um nafn og heimilisfang til Getrauna fyrir
lok kærufrests.
GETRAUNIR — Íþróttamiðstödinni — REYKJAVÍK
verða
fimmtudaginn
13. desember.
Enginn aðgangseyrir.
HEFST STUN DVÍSLEG A
KL. 20:30
Framsóknarfélag Reykjavíkur.