Dagblaðið - 12.12.1979, Síða 15

Dagblaðið - 12.12.1979, Síða 15
14 DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 12. DESEMBER 1979. DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 12. DESEMBER 1979. 15 íþróttir íþróttir íþróttir íþróttir íþróttir íþróttir íþróttir íþróttir íþróttir ) „fangi hjá Chelsca” Frá Chelsea beintískozka landsliðið! - Eamonn Bannon, Dundee United, valinn í lands- liðshópinn gegn Belgíu Skozki lundsliflseinvaldurinn Jock Stein hcfur gert verulegar breytingar á skozka landsliðinu, sem leikur við Belgiu í 2. riðli Evrópukeppni landsliða á Hampden Park i Glasgow í næstu viku. Úrslit leiksins skipta engu máli fyrir Skota en hins vegar geta Belgar með sigri tryggt sér sæti í úrslitum í Róm næsta sumar. Það kom verulega á óvart, þegar Stein tilkynnti landsliðshópinn í gær, að Allan Hansen, miðvörður- inn sterki hjá Liverpool, missir slöðu sína ásaml Willie Miller en í stað þcirra leika Gordon McQueen, Man. Utd. og Ken Burns, Nottingham Forest. Þá eru þeir John Wark, Ipswich, Joe Jordan, Man. Utd. og Asa Hartford, Everton, einnig settir út úr liðinu frá tapleiknum við Belgíu 21. nóvember. í stað þeirra valdi Stein þá Jim Cannon, Crystal Palace, Alan Young, Leicester, og Eamonn Bannon , Dundee Utd. Þessi Bannon er „.dýrasti” leikmaðurinn í skozku knattspyrnunni — keyptur frá Chelsea i sumar fyrir 165 þúsund sterlingspund. Talinn einn efnilegasti leikmaður Skotlands, rétt rúmlega tvitugur, og Chelsea keypti hann frá Hearts fyrir 200 þúsund sterlingspund. Það var fyrir ári en hjá Chelsea náði Bannon sér ekki á strík. Kvaldist af heimþrá meðal annars og það varð til þess að hann var seldur aftur til Skotlands. Blómstrar nú hjá Dundee Utd. Aðrir leikmenn i skozka landsliðshópnum eru Allan Rough, Partick, Bobby Clark, Aberdeen, markverðir, Kenny Dalglish og Graeme Souness, Liverpool, John Robertson, Nottingham Forest, Sandy Jardine og Derek Johnstone, Rangers, Ian Munro, St. Mirren, David Provan, Celtic, Andy Gray, Wolves og Danny McGrain, Celtic, sem nú kemur aftur í hópinn eftir langan tíma. Vel heppnað borð- Haustmót UMSB fór fram að Heiðarskóla laugar- daginn 24. nóv. 1979. Mótið hófst kl. 13. Þátttak- endur voru frá 5 félögum alls 59. Þátttaka var frá 4 og upp i 13 i hverjum flokki og var leikið upp i 11 tvo unna leiki. Mótsstjóri var Sigurður R. Guðmundsson. Úrslit urðu sem hér segir: 1. HVÞ 52 stig 2. Staf 8 stig 3. —4.R 6 stig 3.—4. Sk 6stig 5. t 3 stig Mjög margir góðir tennisleikarar komu fram á þessu móti og var keppnin bæði tvisýn og spenn- andi. Swindon endurtók sigurinn frá 1969! —Andy Rowland skoraði sigurmarkid f gærkvöld þegar 4 mín. voru eftir af framlengingunni, 4-3—Úlfamir heppnir að ná jöfnu gegn Grimsby Þegar aðeins 4 mín. voru eftir af framlengingunni i leik Swindon og Arsenal á County Ground i Swindon í gærkvöld var staðan jöfn, 3—3. Knötturinn var gefinn fyrír mark Arsenal og eftir að þrivegis hafði verið bjargað á marklínu i röð sendi Andy Rowland knöttinn í netið við gifurleg fagnaðarlæti áhorfenda, sem voru 21.795. Swindon hafði tekizl hið ótrúlega. Arsenal lá i valnum í annað sinn á 10 árum! Leikmenn Swindon föðmuðust eftir leikinn og áhorfendur hylltu liðið vel og lengi. Fjöldi manns, sem ekki komst inn á leikvanginn, tók þátt i sigurgleðinni og bókstaflega var allt á öðrum endanum í Swindon i nótt. Swindon er 90.000 manna borg í Wilt- shire og frægðarsól félagsins hefur ekki komizt jafnhátt á loft og í gær sl. ára- tug — eða allt frá því að Swindon lagði Arsenal að velli vorið 1969 í úrslitaleik deildabikarkeppninnar. Leikurinn í gærkvöld var ákaflega spennandi allt frá fyrstu mínútu til hinnar síðustu. Arsenal lék betur til að byrja með en strax á 10. mínútu reið fyrsta áfallið yfir. William sendi þá knöttinn fyrir markið og lítil hætta virtist á ferðum. Þá gerðist óhappið. Þeir Willie Young og Steve Walford, sem kom í stað Sammy Nelson, rákust saman og Walford sendi knöttinn i eigið net. Mikill fögnuður á County Ground en sagan var ekki öll. Á 19. mínútu skoraði Alan Mayes annað mark Swindon með heljarmiklu skoti, sem hann lét ríða af utan víta- teigs. Knötturinn mun hafa komið litil- lega við Walford á leið sinni í netið. Það sem eftir lifði hálfleiksins sóttu liðin á víxl en ekki voru gerð fleiri mörk. Strax i upphafi síðari hálfleiksins gerðu leikmenn Swindon harða hríð að marki Arsenal. „Going for the kill” sagði Ron Atkinson, framkvæmda- stjóri WBA, sem var aðstoðarþulur hjá BBC í gærkvöld. Fjórum sinnum mátti Pat Jennings í marki Arsenal taka á öllu sínu til að forðast mark á fyrstu þremur mín. siðari hálfleiksins. Mayes komst tvívegis í gegnum vörnina eftir mistök Willie Young og Jennings varði að auki hættuleg skot frá Williams og Miller. Sókn Swindon var mun hættulegri en síðan skoraði Arsenal nokkuð óvænt. Bakvörðurinn John Devine sendi þá fyrir markið og Liam Brady skallaði í netið fram hjá Jimmy Allan, sem átti stórleik í marki Swindon. 59. mínútur liðnar af leiknum og forysta Swindon aðeins eitt mark. En óheppni Arsenal reið ekki við einteyming i gærkvöld. Á 64. mínútu fékk Swindon sína 7. hornspyrnu i leiknum. Knötturinn barst fyrir markið og Alan Mayes skallaði að markinu. Á leið knattarins rak John Devine höfuðið í hann og breytti stefnunni þannig að Jennings átti ekki möguleika á að verja. Tvö sjálfsmörk og Swindon komið í 3—1. Arsenal virtust allar bjargir bannaðar en leikmenn gáfust ekki upp. Á72. mín. fékk Arsenal aukaspyrnu fyrir utan vítateig Swindon. Brady tók spyrnuna afar fljótt og sendi knöttinn í netið á meðan leikmenn Swindon voru enn að koma sér fyrir, 3—2 og 18. mín. eftir. Skömmu síðar kom Billy Tucker inn á fyrir Alan Mayes og greinilegt var að Swindon hugsðist halda fengnum hlut. Ekki tókst þá getur til en svo að Bii.rn Talbot jafnaði metin á 85. m'uiútu með frábæru skallamarki — fyrsta mark hans í vetur. Leiktíminn rann út og framlengja þurfti. Bæði lið fengu sín tækifæri áður en Swindon skoraði sigurmarkið en greinilegt var að leik- menn liðanna voru orðnir örmagna. Swindon stóð uppi sem sigurvegari í lokin eftir frækilega baráttu. Ekki fékkst úr því skorið í gær hvort Swindon mætir 1. deildarliði Úlfanna eða 3. deildarliði Grimsby í undanúrslitunum. Wolves og Grimsby léku á Molineux í gærkvöld og mega Úlfarnir teljast heppnir að fá annað tækifæri. Andy Gray kom þeim yfir á 21. mínútu en Uddell jafnaði fyrir Grimsby á 71. mín. Leikmenn 3. deildarliðsins mun ákveðnari og óheppnir að tryggja sér ekki sigur í framlengingunni. Liðin mætast sennilega í þriðja sinn í næstu viku. Þorsteinn Ólafsson fer til Gautaborgar. Sjö leikmenn Keflavíkur halda út í atvinnumennsku —tveir til Danmerkur og fimm til Svíþjóðar. Umboðsmenn sænsks 3. deildarliðs koma til landsins á morgun og semja við þrjá Keflvíkinga Á morgun mun umboðsmaður sænsks 3. deildarliðs koma til Kefla- víkur og semja við þrjá af knattspymu- mönnum þeirra Keflvikinga. Þeir Sigurbjörn Gústafsson, Þórír Sigfús- son og Gísli Grétarsson hafa allir fengið tilboð frá þessu 3. deildarfélagi, sem DB vissi siðast i gærkvöldi ekld nánari deili á, og allar líkur eru á að þeir semji við það i vikunni. Þar með eru leikmennirnir, sem Keflavik hefur misst á skömmum tima orðnir 7 talsins. Hreint hríkaleg hlóðtaka fyrír ekki stærra bæjarfélag en Keflavik er. Þessir þrír leikmenn bætast í hóp fjögurra sem þegar hafa ákveðið að halda utan. Fyrst ber auðvitað að nefna Þorstein Ólafsson, sem heldur utan til Gautaborgar. Þá fer Sigurður Björgvinsson til 2. deildarliðsins Haukar og KR mætast í kvöld í kvöld kl. 20 mætast Haukar og KR í 1. deild íslandsmótsins i handknattt- leik i Hafnarfirði. Bæði þessi lið eru um miðja deild og hvorugt þeirra hefur efni á að tapa stigi i kvöld, vilji þau verða áfram i baráttunni um íslands- meistaratitilinn. Haukar hafa tapað 5 stigum nú þegar og liðið hefur engan veginn upp- fyllt þær vonir sem við það voru bundnar i haust. Sóknarleikurinn i molum en varnarleikurinn og mark- varzlan hefurveriðgóð í haust. í fyrra var sóknin í iagi en varnarleikurinn og markvarzlan lengst af í molum. KR- ingar hafa átt góða leiki að undanförnu og sigraði Fram og HK mjög sannfær- andi. Mikil leikgleði einkennir KR- ingana og eins og liðin hafa leikið að undanförnu er ólíklegt annað en KR beri sigur úr býtum í kvöld. Að leiknum í kvöld loknum mætast Haukar og Fram í 1. deild kvenna. Staðan í 1. deild karla. Víkingur FH Valur KR Haukar iR Fram HK 4 4 0 0 4 4 0 0 5 3 0 2 5 3 0 2 5 2 12 4 10 3 4 0 13 5 0 0 5 88—71 8 94—80 8 101—87 6 110—102 6 100—108 5 78—83 2 77— 88 I 78— 107 0 Handholtapunktar fri V-Þýzkalandi Axel Axelsson Minden 5.12.89. Þá kom að því að TV Gross- wallst. tapaði leik. Liðið varð að þola 14—17 ósigur i Míinchen gegn Milbertshofen. Þetta breytir þvt litlu um yfirburðastöðu liðsins í deildinni. Júgóslavinn Horvat, sem skoraði 7 mörk (2 víti) og Frank, sem skoraði 5 mörk fyrir Milbertshofen, áttu stærsta þáttinn í að leggja meistarana að velli. Um 3.500áhorfendur urðu vitni að ein- um bezta leik, sem Milbertshofen hefur leikið á heimavelli og vonbrigðin yfir töpuðu stigi i leiknum gegn Grun Weiss Dankersengleymdust fljótt. Dankersen vann nú sinn fyrsta úti- sigur — að þessu sinni í Flensburg. Þar er leikið i lítilli höll, sem rúmar um 1300 manns. Stemmningin á meðal áhorfenda þar er hreint ótrúleg — ekki ósvipuð og í Kiel. Það var því nokkuð erfitt fyrir hið unga lið Dankersen að komast af staö í leiknum. Jafnt var allar tölur upp í 9—9 og þannig var staðan í hálfleik. Með betra úthaldi og meiri yfirvegun í leik sinum tókst Dankersen aö siga framúr og sigra 18— 16. Mörk Dankersen skoruðu: Axel 8/3, Meyer 3, Seehase 2, Becker 2, Frauke, Krebs og Schubert 1 hver. Flest mörk Flénsburg skoraði Hoffman eða 4 talsins — þar af 1 úr víti. Grambke kafsigldi Nettelstedt í Stadthalle í Bremen, 21 —15, í leik þar sem fslendingarnir Gunnar Einarsson og Björgvin Björgvinsson léku aðal- hlutverkiö hjá Grambke. Það bar til tíðinda í síðustu viku að Grambke rak þjálfara sin, Brinkemeier. f hans stað var Júgóslavinn Mario Andric ráðinn. Hvort þessi þjálfaraskipti er ástæðan fyrir stórsigri Grambke er erfitt að segja til um. A.m.k. var hér allt annað Gambke-lið á ferðinni en menn höfðu kynnzt í síðustu viku. Hinn nýi þjálfari, Andric, sem kunnur er í handknattleiknum hér í Þýzkalandi (þjálfari Phönix Essen, Rheinhausen og Sprenge, sem Ágúst Svavarsson leikur með) hefur áður setið í þessum sama stól í Bremen. Hann stjórnaði liðinu ’75, var rekinn um mitt leiktímabil. Á blaðamanna- fundi eftir leikinn gegn Nettelstedt var hann stórorður — sagði að Bremen mundi verða á meðal efstu liða í deildinni í ár og væri það þegar ef hann hefði verið við stjórnvölinn frá upphafi leiktímabilsins. Flest mörk Grambke skoraði Gunnar Einarsson eða 6 talsins — þrjú úr vítum. Björgviri skoraði 5 mörk en aðrir færri. Hjá Nettelstedt var Miljak atkvæðamestur með 6 mörk — eitt úrviti. Hilttenberg stóðst prófraunina í Kiel og sigraði 21 — 18. Huttenberg hefur komið nokkuð skemmtilega á óvart í vetur. Leikurinn i Kiel var mjög jafn og skemmtilegur allan tímann. Á tímabili leit þó út fyrir að dómarar leiksins ætluðu enn einu sinni að láta hina 7000 áhorfendur hafa áhrif á sig. Þeir voru nokkuö hlutdrægir í Kiel í hag en allt kom fyrir ekki. Ohly, Sprengler og Dan voru að venju beztir hjá Híittenberg en Timko og Ellwardt hjáKiel. Úrslitleikjaogstaðan Kiel-HUttenberg Göppingen-Gummersbach Birkenau-Dietzenbach Hofweier-Tusem Essen Milbertshofen-Grosswallst. Grambke-Nettelstedt TV Grossvallst. 11 TSV Milbertsh. 11 TV Hattenberg VfL Gummersb. 18—21 frestað 16—16 frestað 17—14 21 — 15 1 207—153 19 3 173—167 15 4 1 98—198 14 3 183—146 13 Tusem Essen TuS Ncttelstedt SG Dietzenbach GW Dankersen FA Göppingen TuS Hofweier THWKiel TV Grambke TSV Ðirkcnau TBS Flensburg 10 11 10 11 10 10 11 10 11 11 3 172—157 1 2 5 174—177 12 4 138—155 11 5 173—183 11 5 166—165 9 6 181—173 8 7 200—198 8 6 161 — 170 7 7 1 82—206 7 10 160—220 2 TV Grosswallstadt, Evrópumeistarar meistaraliða, fengu léttan mótherja í 2. umferð Evrópukeppninnar — Triest frá Ítalíu. Fyrri leikurinn fór fram í Þýzkalandi og lauk með yfirburðasigri Grossvallstadt, 30—14. Sá síðari var leikinn á Ítalíu og var þvi lítið áhuga- verður. Þar sigraði Grosswallstadt einnig, nú 18—16. Tus Hofweier leikur á móti Tatyabanya frá Ungverjalandi. Fyrri leikurinn fór fram í sömu höll og Joachim Deckarm slasaðist svo illa i fyrir 8 mánuðum. Að þessu sinni var þó ekki leikið á steingólfi — heldur voru tréplankar lagðir yfir. Tatabanya vann 19—14 en leikmenn Hofweier voru þá bjartsýnir á að vinna þann mun upp þegar leikið verður hér í Þýzka-' landi. í Evrópukeppni bikarmeistara sigraði Gummersbach norsku bikar- meistarana örugglega 20—15 og á þvi auðveldan leik á heimavelli. Dankersen lék í Kaupmannahöfn og á móti Bagsværd. AB leikur i 2. deildinni í Danmörkuogerekkilakara enmörg 1.. deildarliðin á þessu keppnistímabili. Dankersen hafði leikið í Flensburg tveimur dögum áður og eftir erfitt ferðalag var lítill kraftur í leik- mönnum. 9—9 urðu úrslit í Kaupmannahöfn svo Dankersen ætti aðkomastí3.umferð. Kærkveðja, Axel Axelsson. örgryte og þeir félagar Einar Ásbjörn Ólafsson og Rúnar Georgsson halda báðir til Danmerkur eftir áramótin. Þetta eru alls sjö leikmenn og hefur ekkert íslenzkt 1. deildarlið orðið fyrii Sigurður Björgvinsson hefursamið við 2. deildarfélagið örgryte. Sagði nei takk við 900 millj- ónum króna! — Cosmos vildi fá Terry Venables Þekktasta knattspyrnufélag Banda- ríkjanna, The New York Cosmos, er á höttunum eftir nýjum framkvæmda- stjóra og þjálfara. Eddie Firmani, sem gert hafði garðinn frægan, var rekinn sl. sumar eftir deilu við stjórn félagsins. Cosmos komst síðan ekki einu sinni i úrslit í keppninni i haust. En forráðamenn félagsins eru alltaf stórtækir, þegar þeir fara á stúfana. í gær buðu þeir Terry Venables, fram- kvæmdastjóra Crystal Place í Lundúnum, eina milljón sterlings- punda ef hann tæki að sér þjálfun og stjórnun hjá félaginu. Ekki var getið til hvað margra ára samningurínn átti að gilda. En Venables, sem er yngsti stjórínn í deildinni ensku, 38 ára, þurfti ekki að hugsa sig lengi um. Sagði nei takk við 900 milljóna isl. króna tilboði Cosmos. ValuroglS íHagaskóla í kvöld kl. 19 mætast í íþróttahúsi Hagaskólans Valur og ÍS og hefst leikurinn kl. 19. Valsmenn eru i 3. sæti úrvalsdeildarínnar en ÍS vermir botn- sætið. ÍS hefir nú tapað 7 leikjum i röð og þykir mörgum timi til kominn að önnur úrslit verði i viðureignum ÍS. Siðustu tveimur leikjum hafa Stúdentar tapað með aðeins 1 stigi og því spumingin hvort þeim takist að gera beturi kvöld. Paraguay vann Chile Paraguay sigraði i S-Amerikukeppn- inni i knattspyrau eftir að hafa gert markalaust jafntefli við Chile i gær- kvöldi. Liðin höfðu leikið tvo leiki áður og unnið sinn hvort. Framlengt var í gærkvöldi en ekki tókst liðunum að skora fyrir það. Úrslitin úr fyrri tveimur leikjunum voru þvi látin ráða. Paraguay vann sinn heimaleik, 3—0 en Chile 1—0 i Santiago. jafn hrikalegri blóðtöku á einu bretti undanfarin ár ef þá nokkurn tima. Allir þessir Ieikmenn — utan Gísla Grétarssonar — léku með m.fl. Kefl- víkinga sl. sumar og liöiö stóð sig prýðilega í 1. deildarkeppninni. Gísli lék með Njarðvík í sumar en með Kefl- vikingum árið áður og hafði hugsað sér að leika með Kefiavík næsta sumar. Til þess kemur þó varla þar sem þetta sænska 3. deildarlið er komið í spilið. Sigurbjörn lék stöðu miðvarðar í allt sumar og vakti athygli fyrir sterkan leik. Þórir er framherji i Keflavikur- liðinu — eldsnöggur og útsjónarsamur leikmaður. Rúnar Georgsson og Einar Ásbjörn Ólafsson halda sem fyrr sagði til Dan- merkur. Einar er ekki alveg ókunnugur þar þvi hann lék þar um tima með félaga sínum Sigurði Björgvinssyni í 1. deild- inni við góðan orðstír. Einar var einn helzti máttarstólpi Keflavíkurliðsins í sumar — uppbyggjandi leikmaður með ákafiega næmt auga fyrir samleik. Rúnar lék í fremstu víglínu i Kefla- víkurliðinu — baráttuglaður og mark- heppinn. Þorsteinn Ólafsson var kjölfesta Kefiavíkurliðsins í sumar. Þorsteinn, sem er margfaldur landsliðsmaður, átti hvern stórleikinn á fætur öðrum með ÍBK í sumar og sýndi og sannaði að hann er einn okkar allra beztu mark- varða. Sigurður er einnig landsliðs- maður þótt ungur sé og hefur náð skjótum framaá knattspyrnubrautinni. Margfaldur unglingalandsliðsmaður og geysilegur baráttukarl í vörninni auk þess að vera mjög uppbyggjandi og útsjónarsamur leikmaður. Af þessu sést að Keflvíkingar missa meirihluta I. deildarliðs síns á einu bretti. Það, sem verra er e.t.v. er að óvenju lítið hefur verið af sterkum 2. flokks strákum í Keflavík í sumar og þvi gæti reyriz! erfitt að fyila skörðin. Kefivíkingar liuta þó áður sýnt að þeir gefast ekki upp fyrr en í fulla hnefana og með mikilli þrautseigju tókst þeim að ná upp sterku liði — því sem nú hefur splundrazt — þrátt fyrir hrak- spár. Brottför þessara leikmanna er geysilegt áfall fyrir Keflavik og íslenzka knattspymu í heild. Kefivíkingar voru rétt búnir að ná upp góðu liði eftir „gullaldartímabilið 1969—73” þegar allt fer úr böndunum. Sannkallað rothögg! Annars fer það að verða mikið áhyggjuefni með brottflutning leik- manna til félaga á Norðurlöndunum. Flestir þeirra leikmanna sem héðan halda fara til félaga i 2. eða 3. deild í Svíþjóð þar sem gæði knattspyrnunnar eru ekkert meiri en í 1. deildinni hér heima. Það er hins vegar ævintýraþráin sem rekur marga áfram og hún ætlar sannarlega að reynast íslenzku knatt- spyrnunni erfið. Kefiavík er annað 1. deildarfélagið sem missir alla helztu máttarstólpa sína á einu brctti. Eyjamenn hafa einnig misst lykilmenn úr liði sinu. Mikil blóð- taka fyrir þessi bæjarfélög en bæði Keflvíkingar og Eyjamenn eru þekktir fyrir annað en að gefast upp og fróð legt verður að fylgjast með framvindti hjá þessum félögum. -SS\. Þeir félagar Einar Ásbjörn Ólafsson (t.v.) og Rúnar Georgsson munu halda til Danmerkur um áramótin. Gimilegur ostabakki gerir ávallt lukku. Við óvænt innlit vina, sem ábætir í jólaboðinu eða sér- réttur síðkvöldsins. OSTABAKKI-GÓÐ TILBREYTING Láttu hugmyndaflugið ráða ferð- inni, ásamt því sem þú átt af ostum og ávöxtum. Sannaðu til, árangurinn kemur á óvart RAUÐINU 0G StJKKULAÐINU

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.