Dagblaðið - 14.01.1980, Blaðsíða 1
6. ÁRG. MÁNUDAGUR 14. JANÚAR 1980— ll.TBL. RITSTJÓRN SÍÐLMÚLA 12. AÚGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI 11.—AÐALSÍMl 27022.
Ég varö aö henda mérá
mum /Ol röii va i sko thh M ■
— sjá viötal viö Jóhannes Reykdai fararstjóra íslenzka hjúkrunarhópsins í Thailandi á bls. 8 |
Stal tveimur
bílum og vaknaði
á Hvolsvelli
— sjá bls. 4
*
Ljóslaus á 90
km hraða í
miðbænum
— sjá bls. 9
*
Dalbær skal það
heita
Heimili aldraðra á
Dalvík vígt um helgina
— sjá bls. 4
*
Sprenging á
skrifstofu Aero-
flot í New York
— sjá erl. fréttir
á bls. 6
*
Órökstuddar
fullyrðingar og
dylgjur LI _
— sjá bls. 2
Langibarfjár-
málaráðuneytis
- sjá Fólk bls. 19
Umfangsmestu sakamál á íslandi í aldarþriðjung loks til lykta leidd?
ÓVÍST UM AHRIF NÝS
FRAMBURÐAR ERLU
Rfkissaksóknari talarí Hæstarétti fram áfimmtudag - dómur í febrúar/marz
í morgun hófst munnlegur mál-
flutningur Geirfinns- og Guð-
mundarmálanna í Hæstarétti.
Þórður Björnsson ríkissaksóknari
hóf flutning sóknarræðu sinnar kl.
10 i morgun og er áætlað að hann tali
fram á fimmtudag — fjórar klukku-
stundirádag.
Þá taka við varnarræður Iög-
manna sakborninganna sex og ætti
þeirn að verða lokið fyrir miðja
næstu viku. Hæstaréttardóms er að
vænta i febrúar eða marz á þessu ári.
Ef að líkum lætur munu margir
verða til að fylgjast með flutningi
málsins fyrir Hæstarétti, svo feiknar-
lega athygli og umtal hlutu Geirfinns-
og Guðmundarmálin á sínum tíma,
enda umfangsmestu sakamál á
íslandi i aldarþriðjung.
Erla Bolladóttir, ein sakborning-
anna, dró fyrir helgina til baka allan
fyrri framburð sinn i málinu. Húns
segist nú aldrei hafa farið til Kefla-
víkur 19. nóv. ’74, ásamt Sævari
Ciesielski, Kristjáni Viðari Viðars-
syni og Guðjóni Skarphéðinssyni
kvöldið sem Geirfinnur Einarsson
hvarf að heiman frá sér. Óvíst er hver
áhrif þessi nýi framburður Erlu kann
að hafa á framgang málsins fyrir
Hæstarétti, en skv. dómi Sakadóms
Reykjavíkur frá 19. desember 1977
skal Erla sæta þriggja ára fangelsi
fyrir meintan þátt sinn í málinu.
Sakadómur kvað upp þyngstu dóma
i sakamálum hérlendis um margra
áratuga skeið yfir þeim Sævari og
Kristjáni: ævilangt fangelsi. Guðjón
Skarphjéðinsson var dæmdur í tólf
ára fangelsi og hlutdeildarmaður
Sævars og Kristjáns í dauða Guð-
mundar Einarssonar, Tryggvi Rúnar
Leifsson, var dæmdur i sextán ára
fangelsi. Albert Klahn Skaftason,
sem flutti lík Guðmundar Einars-
sonar, var dæmdur í fimmtán mán-
aða fangelsi.
Dómarar í málinu í Hæstarétti
verða hæstaréttardómararnir Björn
Sveinbjörnsson, forseti Hæstaréttar,
Ármann Snævarr, Logi Einarsson,
Benedikt Sigurjónsson, Magnús
Torfason og Sigurgeir Jónsson, til
aðstoðar og til vara. Hann var skip-
aður hæstaréttardómari sl. haust.
Tveir sakborninganna i Geirfinns- og Guðmundarmálunum, Sævar M. Ciesielski
og Kristján V. Viðarsson, voru viöstaddir i Hæstarétti i morgun, þegar málflutn-
ingur hófst þar á slaginu kl. 10. Þeir hafa nú verið i gæzluvarðhaldi i rúm fjögur ár
— en litu f morgun áberandi betur út en þegar réttað var i máli þeirra i sakadómi
Reykjavfkur fyrir tveimur árum rúmum. A stærri myndinni situr Sævar Marinó á
milli tveggja gæzlumanna f Hæstarétti i morgun, innfellda myndin er af Kristjáni
Viðari þar sem hann kemur til dómhússins i morgun.
DB-myndir: Ragnar Th.