Dagblaðið - 06.02.1980, Blaðsíða 3

Dagblaðið - 06.02.1980, Blaðsíða 3
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 6. FEBRÚAR 1980. Mismunandi afstaða strætisvagnastjóra til „bara húsmæðra”: Eiga komaböm rétt á að ferðast með strætó? 4405-2276 skrifar: Ég er ein af þessum „bara hús- mæðrum” hér í Reykjavík og mig langar til að skrifa smágreinarkorn. Ég á tvær telpur sem reyndar er ekki í frásögur færandi. Þann 16. janúar ætlaði ég í bæinn með strætis- vagni. Þannig er að yngri telpan min er aðeins mánaðargömul og því að sjálfsögðu í vagni. Ég tók strætisvagninn á Langholts- vegi og maðurinn sem keyrði leið 9 var ungur og mjög indæll. Hann hjálpaði mér með' vagninn inn í strætó eins og ekkert væri sjálf- sagðara. Sem sagt mjög elskulegur maður. Á Hlemmi kom hann til mín og spurði mig hvar ég ætlaði út og ég sagði það. Þegar þangað kom hoppaði bílstjórinn út og tók á móti vagninum. Ég þakkaði kærlega fyrir mig og hann. svaraði þvi til að þetta væri alveg sjálfsagt. Þetta var kl. rúmlega eitt e.h. Síðan ætlaði ég heim kl. rúmlega 4.30. Ætlaði ég þá til baka með leið 9 aftur. En þá kom babb i bátinn. Bíl- stjórinn sem þá keyrði er frekar við aldur en væntanlega ferðafær. Ég spurði hann hvort ég mætti fara með vagninn í strætó. „Ef þú ert fljót,” sagði hann. Ég sagðist þá ekki komast með vagninn ein inn. Hann spurði hvert ég væri að fjara (var á Háteigsvegi) og sagði ég það (Skipa- sund). Hann spurði þá hvort þeir, þ.e. aðrir eða annar bílstjóri, hefðu flutt vagninn fyrir mig. Ég kvað já við því. Sagði hann þá að ég skyldi láta hann, þ.e. þann bílstjóra, flytja vagninn fyrir mig til baka aftur. Og nú spyr ég strætisvagnastjór- ana, stjórn SVR og forstjóra: Höfum við, þessar „bara húsmæður” með Dr. Gunnur Thoroddsen. DB-mynd Ragnar Th. Stjórnarmyndun dr. Gunnars: „Almenn- ingur stór- hrifinn” Símon Grétarsson, Selfossi, hringdi: Við erum hér nokkrir félagar á Sel- fossi sem viljum koma þvi á framfæri að við erum stórhrifnir af stjórnar- myndun dr. Gunnars Thoroddsens. Þarna kemur. fram íslenzki kjarkurinn sem við héldum að væri ekki lengur til á Alþingi. Gunnar hefur með þessu sýnt að hann hefur kjark til að standa upp í þessu staðn- aða flokkakerfi. Við erum ákaflega ánægðir með þetta framtak Gunnars og við heyrum það á viðbrögðum fólks að almenningur er stórhrifinn. Þetta er stór skrautfjöður i hatt Alþingis. börn i vögnum, ekki sama rétt og aðrir til að nota strætó til að komast ferða okkar? Eða eigum við bara að hima heima þar til börnin eru orðin það stór að við getum farið með þau í fanginu í bæinn? Það má undirstrika það að vagninn er alls ekki stór, eiginlega bara gott burðarrúm á grind. Um leið og ég þakka þessum almennilega manni einu sinni enn og skorá á yfirvöld SVR að gera eitthvað í málinu vil ég ljúka þessum skrifum minum með því að segja að ég fékk að bjarga mér sjálf heim. 1* „Höfum við þessar „bara húsmæður” með börn í vögnum ekki sama rétt og aðrir til að nota strætó til að komast leiðar okkar?” skrifar 4405-2776. Spurning dagsins Ræktarðu blóm? Una Svane húsmóðir: Já, svona svolitið. Þau eru reyndar heldur döpur núna yfir veturinn en annars veita þau mérmikla ánægju. Lovísa Jóhannsdóttir húsmóðir: Já, heilmikið af þeim. Ég er með mikið af gluggum sem mig vantaði eitthvað i op blómin eru heimilisleg og mikil prýði að þeim. Ég hef heilmikla ánægju af þeim Gripið simann Serið 9Óð kaup Smáauglýsingar BIAÐSINS Þverholti11 sími 2 70 22 Opið til kl.10 í kvöld Guðrún Berndsen nemi: Nei, voðalega lítið. Ég á eitt blóm. Sigríður Guðbergsdóllir, vinnur á leik- skóla: Já, svona heima geri ég það. Þau veita mér mikla ánægju. Steinunn Hansen sölukona: Já, nokkur stofublóm. Þar á meðal slórt gúmmi- tré. Svo er ég með garð sem ég vinn í á sumrin. Freysteinn Sigurðsson innkaupamaðui Ja, konan gerir það. Annars er ég dut legur við að vökva en hef aldrei lag mig niður við blómarækt að öðru leyli

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.