Dagblaðið - 06.02.1980, Page 4

Dagblaðið - 06.02.1980, Page 4
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 6. FEBRÚAR 1980. Sjö manna fjölskyldan með hagstæðustu útkomuna í des. — Dýrast hjá tveggja maima fjölskyldunum með mmlega 50 þús. kr. í meðaHalskostnað Vinningshafi mán- aðarúttektarinnar Hagslæðust útkoman í desember- mánuði reyndist hjá sjö manna fjöl- skyldunum, sem voru með 32.246 kr. á mann að meðaltali í mat og hrein- lætisvörur. Þar næst komu sex manna fjölskyldur með 38.081 kr. á mar.n. — Það er að segja, útkoman varð þó hagstæðari hjá allra stærstu fjölskyldunni okkar, sem er ellefu manna og var með 27.882 kr. í meðaltal. Hins vegar er aðeins ein slík stórfjölskylda sem sendi seðil. ,Ein átta manna fjölskylda sendi með 55.187 kr. á mann. I skýringar- !okkur upplýsingaseðil og var hún bréfi með þeim seðli kom fram að Nafn áskrifanda Sex manna Eins og áður sagði, var næsthag- stæðust útkoman hjásex manna fjöl- skyldunum, ef undanskilin er ellefu manna fjölskyldan. Meðaltalið hjá sex manna fjölskyldunum var 38.081 kr. Fjögurra manna Eins og oftast áður var fjölmenn- asti hópurinn fjögurra manna fjöl- skyldan. Meðaltalið hjá þeirri fjöl- skyldustærð reyndist 40.081 kr. á mann. Sú fjölskyldustærð hefur oft komið hagstæðast út, þó ekki væri svo í desember. Ellefu manna Meðaltalið hjá stóru fjölskyldunni okkar, sem er ellefu manna, er aðeins 27.882 kr. Verður það að teljast mjög hagstæð útkoma og kemur sennilega meira til heldur en hagkvæm magn- innkaup. , - A.Bj. inni í þessari upphæð er nautakjöt upp á rúmlega 71 þúsund kr. Fimm manna Fimm manna fjölskyldurnar voru þriðju fjölmennustu, með 41.728 kr. á mann að meðaltali. Þessi fjöl- skyldustærð hefur oft komið hag- stætt út, eins og raunar nú, en þessi fjölskyldustærð var með fjórða hag- stæðasta meðaltalið. Tveggja manna Fyrir utan átta manna fjölskylduna okkar var útkoman óhagstæðust hjá tveggja manna fjölskyldunum. Meðaltalseyðsla á mann í mat og hreinlætisvörum reyndist vera 51.013 kr. Þriggja manna Næstfjölmennasti fjölskyldu- hópurinn sem sendi upplýsingaseðla fyrir desembermánuð var þriggja manna fjölskyldur. Meðaltalið hjá þeirri fjölskyldustærð reyndist vera 44.834. Sjö manna Útkoman var hagstæðust hjá sjö manna fjölskyldunum. Að þessu sinni sendu fjórar sjö manna fjöl- skyldur inn seðla. Meðaltal þeirra reyndist vera 32.246 kr. Þegar fjölskyldurnar eru stórar er oft hægt að ger,a hagkvæm innkaup, sem verra er að eiga við þegar um minni fjölskyldustærðir er að ræða. Ef tekið væri tillit til húsaleigu, rafmagns og hitakostnaðar, sem við höfum ekki farið út i að gera, væri útkoman enn hagstæðari fyrir stærri fjölskyldurnar. Þá dreifist ,,fastur” kostnaður á fleiri. Átta manna Ein átta manna fjölskyida sendi upplýsingaseðil. Reyndist meðaltalið á honum vera 55.187 kr. á mann. í skýringarbréfi komu fram kjötkaup upp á 71 þúsund kr. Ef við drögum þá upphæð frá heildartölunni verður meðaltalið 46.312. Það er þó frekar i hærra lagi miðað við svo stóra fjöl- skyldu. Nú höfum við fengið upplýsingaseðla frá fjölskyldum í landinu í eitt ogí hálfl ár. Þátttakan hcfur verið al- menn og okkur berast að jafnaði seðlar frá fjölmörgum sveitarfélög- um. Öllum kemur saman um að það sé til hagsbóta að halda heimilisbók- hald. DB-mynd Bjarnleifur. Upplýsingaseöill til samanburöar á heimilisköstnaði Heimili Sími Hvaö kostar heimilishaldiö? Vinsamlega sendið okkur þennan svarseðil. Þannig eruð þér orðinn virkur þátttakandi Í upplýsmgamiðlun' meðal almennings um hvert sé meðaltal heimiliskostnaðar fjölskyldu af sömu stærð og yðar. Þar að auki eigið þér von i að fá nytsamt heimilistæki. Kostnaður íjanúarmánuði 1980. Matur og hreinlætisvörur kr. Annaö kr. Alls kr. w I /Jt tv Fjöldi heimilisfólks fekk 162 þúsund kr. fyrir desember - Nú breytum við viimingar verða Mánaðarúttektin okkar fyrir des- embermánuð fór til Húsavíkur. Vinningsupphæðin kom á fjögurra manna fjölskyldu og meðaltalsupp- hæð fyrir slika fjölskyldstærð reyndist vera 40.502 kr., þannig að vinningsupphæðin var 162.008 kr. „Það má aldeilis nota þessa upp- hæð,” sagði vinningshafinn okkar, Gréta Sigfúsdóttirá Húsavík, er við hringdum og tilkynntum henni um vinninginn. — Gréta hefur verið með í heimilisbókhaldinu okkar nærri frá upphafi og hafa bréf frá henni oft birzt á Neytendasíðunni. Hún vinnur annað hvert kvöld á blognæstu heimilistæki Hótel Húsavík, er gift rafvirkja og á tvö börn, stúlku 12 ára og dreng 16 ára. — Gréta kaus að verzla fyrir upphæðina i Kaupfélaginu á Húsavík og ætlum við að fara með henni i verzlunarleiðangur í næstu viku. Þetta verður síðasta matarúttektin, sem dregið verður um. Okkur finnst kominn tími til þess að breyta örlítið til. Á næstu mánuðum verður dregið um vinning i hverjum mánuði og verða í boði ýmiss konar heimilis- tæki. Þau verða ákveðin jafnóðum og sagt frá þeim hér á síðunni.

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.