Dagblaðið - 23.02.1980, Page 4

Dagblaðið - 23.02.1980, Page 4
' '''dAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 23. FEBRÚAR 1980. DB á ne ytendamarkaði EGG MÁ FRYSTA MEÐ GÓDUM ÁRANGRI Réit er að benda lesendum Neytendasiðunnar á að egg er hægt að frysta. Í einiim al'hinum prýðilega greinargóðu bæklingum, sem Kvenlelagasamband íslands hefur gefið út, Frysting matvæla, cr sagl frá þvi hvernig það skal gert. f>ar stendur m.a. að egg sem á að frysta verði að vera nýorpin, alveg köld og hrcin. Frysta má hvitu og rauðu saman. Eggjahvítur má frysta án þess að blanda nokkru i þær, en eggjarauðurnar verða hins vegar seig- ar ef ekki er blandað saman við þær annaðhvort salti eða sykri — ekki má frysta heil egg meðskurni. Bezt reynist að frysta rauður og hvítur saman.Eggin eru þá brotin og blandað vel saman með gaffli án þess þó að loft hrærist í eggin. Siðan er látið 1 g af salti eða 3 g af sykri í hver 100 g af eggjum. í fjögur heil egg er hæfilegt að setja 1/2 tsk. salt eða I tsk.sykur. Eggin eru fryst í sellófan- eða plastpokum eða gler- eða plast- dollttm. Merkið þau greinilega og takið fram hverju og hve niiklu er blandað í þau. Tilvalið er að nota plastdollur undan mjólkurmat, jógúrt, sýrðum rjónia, skyri og ými, undir fryst egg. Eggin á siðan að þíða hægt, t.d. i kæliskáp eða við stofuhita. Þá tekur það 6—8 klst. á hvern 1/2 I af eggjunt. Frosin egg má nota á sama hátt og ný egg i matargerð, bakstur, mayones, búðinga o. 11. Þau verða e.t.v. aðeins dekkri á lit eftir frystingu, en það breytist við suðu og hitun. Eggjaréttir sem búnir eru til úr frosnum eggjum eru fullkomlega eðlilegir útlits. Frosin egg á að nota strax og þau hafa þiðnað. — Fryst egg má geyma i 8—10 mánuði við 18 stiga frost. -A.Bj. K Mikið eggjastríð hefur staðið undanfarna mánuði. Framboð af eggjum hefur verið mun meira cn eftirspurn og gripu framleiðendur til þess ráðs að lækkja eggjaverðið. Neytendur eiga að notfæra sér slíka verðlækkun og kaupa egg á meðan þau eru enn til á lága verðinu, því hægt er að frysta egg með góðum árangri. Stærð skammtanna fer vitanlega eftir því hver slærð heimilisins er og hve mikið er vanalegl að nota i einu í matar- gerðina. I)B-mynd Bjarnlcifur. Liðurinn „annað” fór úr böndunum í janúar — Matarmeðaltalið á mann rúml. 31 þús. en meðaltal annarra útgjalda 167 þúsund á mann ,,Kæra Neytendasiða! Þá kemur nú eyðslan í janúar- mánuði. Mér finnst upphæðin sem fór i „annað” alveg ofsalega mikil, en það vill vist oft fara þannig,” segir i bréfi frá húsmóður í Bolungarvík. Meðaltalið í mal og hreinlætisvörur hjá henni er rétt rúml. 31 þús., sem verður að teljast vel sloppið. ,,l liðnum ,,annað” (sem var upp á rúmi. 837 þúsund) var m.a. olía, 85 þús., rafmagn 30 þús., simi, nærri 56 þús., skiði 38.500, pössun, efni o. fl. 3Ó þús., áskrift á DB 4 þús., bensin 30 þús., afmælisgjafir en þær eru alltaf miklar i janúar nærri 70 þúsund, snjódekk 55 þús., passa- myndir 8.700, klipping og permanenl 16.500, leirtau ca 45 þús., dans- kennsla fyrir tvö börn 16.400 og siðast en ekki sizt afborgun af vaxta- aukaláni nærri 247 þúsund. Maturinn var 159.640, en það er ekki alveg raunhæf tala, við áttum allt kjöt og fisk i frystikistunni. Yngsta barnið á heimilinu fær enn tnikið af barnamat og finnst mér það mjög dýr liður.” 4 ÚTBOÐ Áburðarverksmiðja ríkisins óskar eftir tilboðum í byggingu stálþilsbryggju í Gufunesi í Reykjavík. Út- boðsgögn verða til sýnis á skrifstofu Áburðar- verksmiðjunnar í Gufunesi frá og með mánudegi 25. febrúar 1980 á venjulegum skrifstofutíma og verða þau þar afhent væntanlegum bjóðendum gegn 80.000 kr. skilatryggingu. Tilboðum skal skila í lokuðu umslagi merktu nafni út- boðs eigi síðar en kl. 14.00 miðvikudaginn 9. apríl 1980, á skrifstofu Áburðarverksmiðju ríkisins í Gufunesi Reykjavík og verða tilboð opnuð þar kl. 14.15 sama dag Áburðarverksmiðja ríkisins. Raddir neytenda Bóndinn fljóturað gleyma útgjöldunum ,,Ég sendi hér minn fyrsla seðil. Liðurinn „annað” fór allur í graul, þvi bóndinn borgar flesl sem fer í þann lið og er fljótur að gleyma,” segir i bréfi frá Sigríði. Nokkrir af sildarréttunum sem eru um borð i Vikingaskipinu i Blómasal Loftleiðahótelsins, þar sem „Sildarævintýri” hefur verið i gangi alla vikuna. DB-mynd Bjarnleifur. Karrýsfld á kvöldborðið Við skulum lita hér á eina síldar- uppskrift, svona i tilefni af því að um helgina lýkur „Sildarævintýrinu” á Hótel Loftleiðum. Uppskriftin er úr uppskriftabæklingi íslenzkra mat- væla. KARRÝ-SÍLD 4 marineruð sildarflök I cpli 1 lítil dós ananas 1 1/2 dl olíusósa (mayones) karrýduft Skerið sildina í bita. Eplið er afhýtt og skorið i litla bita og ananasinn einnig skorinn smátt, eftir að safinn hefur verið látinn renna af honum. Hrærið olíusósuna með smá ananassafa og kryddið með karrýinu eftir smekk. Blandið síðan öllu sam- an og látið standa í kæli. Tilvalið að bera fram rúg- brauðsklemmur með þessu salati. Hráefniskostnaður er nálægt 930 kr. -A.Bj. Uppskrift dagsins Gagnlegt að bera sig sam an við aðra Kæra DB á neytendamarkaði. Með þessum upplýsingaseðli fannst mér ég verða að senda fáeinar linur. Ég hef fylgzt með neytenda- síðunni frá byrjun af miklum áhuga. Það er mjög gagnlegt að geta borið heimilisbókhald sitt saman við aðra og ég held að það sem kom fram á síðunni um daginn, að þetta væru líklega einu raunhæfu tölurnar um heimiliskostnað, sé alveg rétt. Ég hef haldið heimilisbókhald, svona nokkuð reglulega, i fjórtán ár. I liðnum „annað” á seðlinum er ýmislegt sem vantar. Þar á meðal er kostnaður við bílinn og eflaust fleira. En inni í tölunni er olia upp á 90 þúsund og sími og rafmagn. I matar- og hreinlætiskostnaðar- liðnum er allt i þeim ,,dúr” er keypt var, eitthvað var víst til í kistunni góðu sem fer svo víst að verða tóm. Með þökk fyrir góða síðu í DB. Ein á Akureyri”. Við þökkum kærlega góðar óskir. Upplýsa má að þessi Akureyrar- fjölskylda er með tæpar 29 þúsund krónur á mann að meðaltali, en fjölskyldan er sex manna. Liðurinn „annað” hljóðaði upp á rúmlega 141 þúsund. Ef tekið er tillit til þess að þar af er oliuupphitun upp á 90 þúsund finnst mér heildarupphæðin afar lág, — jafnvel þótt vanti allan kostnað við heimilisbílinn. Hvort tölurnar i heimilis- bókhaldinu okkar séu þær einu raunhæfu skal ósagt látið. En þetta er tölur frá fólkinu víðs vegar um landið. Eins og sjá má á kortinu seml við birtum i byrjun hvers mánaðar um meðaltalstölurnar frá hinum! ýmsu stöðum á landinu er hreint ótrúlegt hve víða að við fáum upplýsingaseðla. Við erum að vonum glöð yfir því að fólkið i landinu skuli taka þátt i þessu með okkur og vildum helzt að þeir væru miklu fleiri semgerðuþað. -A.Bj.

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.