Dagblaðið - 23.02.1980, Síða 6
6
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 23. FEBRÚAR 1980.
3JA TONNA
PLAST-
BÁTUR
TIL SÖLU
BÁTURINN ER NÝR OG
ÓINNRÉTTAÐUR
UPPLÝSINGAR í SÍIVIA 84681 - 44215
EFTIR KL. 19 Á KVÖLDIN.
Hreppsnefnd Fellahrepps N-Múlasýslu
auglýsir eftir:
Tæknimenntuóum
starfsmanni
til að gegna störfum sveitarstjóra, starfssvið
auk venjulegra sveitarstjórastarfa byggingar-
fulltrúastarf og verkstjórn.
Launakrafa fylgi umsókn. Umsóknarfrestur er
til 3. marz. Umsóknum sé skilað til oddvita
Fellahrepps, Brynjólfs Bergsteinssonar Hafra-
felli, 701 Egilsstöðum. Upplýsingar í síma 97-
1473.
28611________________________28611
Söiuturn tiisöiu
Til sölu er einn af betri kvöldsölustöðum hér í
Reykjavík, verð tilboð.
Upplýsingar hjá Hús og Eignir, Bankastræti
6.
Lúðvík Gizurarson hrl., kvöldsími 17677.
Sjúkraþjálfarar
óskast til starfa hjá Vinnu- og dvalar-
heimili Sjálfsbjargar að Hátúni 12 nú
þegar eða eftir samkomulagi.
Upplýsingar um störfin gefur yfirsjúkra-
þjálfari í síma 29133.
Auglýsing
Með tilvísun til 17. gr. skipulagslaga nr. 19 frá
8. maí 1964, auglýsist hér með deiliskipulag
einbýlishúsalóða á Bráðræðisholti, nánar til
tekið við Lágholtsveg, Framnesveg og
Grandaveg, eins og sýnt er á uppdrætti borg-
arskipulags í m. 1:500, dags. 14. des. 1979.
Deiliskipulagið er byggt á staðfestu aðal-
skipulagi, samþykktu af skipulagsnefnd þann
27.12. 1972, í borgarráði þann 16.1 1973 ogaf
félagsmálaráðuneytinu þann 28.8 1973.
Uppdrátturinn liggur frammi almenningi til
sýnis á skrifstofu borgarskipulags, Þverholti
15, næstu 6 vikur frá birtingu þessarar
auglýsingar. Athugasemdir, ef einhverjar eru,
skulu hafa borist borgarskipulagi, Þverholti
15, innan 8 vikna frá birtingu þessarar
auglýsingar, eða fyrir kl. 16.15 miðvikudaginn
þ. 23. apríl 1980, sbr. áðurnefnda grein
skipulagslaga. Þeir, sem eigi gera athuga-
semdir innan tilskilins frests, teljast samþykkir
deiliskipulaginu.
Borgarskipulag Reykjavíkur
Þverholti 15.
Austfirðingarnir vigrcifir við nýju skiðalyftuna i Oddskarði.
DB-mynd Emil Thor, Eskifirði.
4 1».
Rykið dustað af öllum
skíðum eystra
— eftir að skíðalyfta þriggja byggðarlaga var vígð við Oddskarðsgöng
Segja má að duslað hafi verið rykið
af öllum skíðum sem til eru i
Neskaupstað, Eskifirði og á Reyðar-
firði, og þau tekin i notkun eftir að ný
skiðalyfta þessara staða i Selárdal
var vígð 13. jan. sl. Hel'ur mikið
fjölmenni sótt i skíðalandið siðan,
einkum um helgar. Lyftan cr sér-
staklega vinsæl hjá börnum, sem nú
fyrst kunna viðsig.
Skiðalyftan er diskalyfta af
Doppelmyrgerð. Hún er 600 m löng en
hæðarmunur milli endanna er 180
metrar. Lyftustæðið er í 5—700 metra
hæð yfir sjó i Selárdal við Oddskarðs-
göngin Eskifjarðarmegin. Lyftan getur
flutt 450 manns á klukkustund. Lyftan
er aðeins steinsnar frá hjóðveginum til
Neskaupstaðar.
Skiðalandið á fiessum slóðum er
mjög gott og mun snjór haldast ftar
langt fram á sumar.
Eigendur skíðalyftunnar, sem
kostaði 43 milljónir, eru sveitarfélögin
Neskaupstaður, Eskifjörður og
Reyðarfjöður.
-A.Sl/Regína Eskifirði.
VIÐ MIKLATORG
Munið konudaginn
sunnudaginn 24. febrúar
Glæsilegt blómaúrval
Blómstrandi pottablóm
OPIÐ ALLA DAGA TIL KL. 21
SÍMI 22822
Sjómenn! Hringiðy viðsendum
konunniblóm.
Sigurjón úti og inni
Félag islenskra myndlistarmanna
hefur ákveðið að halda sýningu á
verkum Sigurjóns Ólafssonar niynd-
höggvara á I.istahátíð. Að sögn
Sigrúnar Guðjónsdóttur, formanns
FÍM er ætlunin að setja upp minni
verk Sigurjóns í sal félagsins að
Laugarnesvegi 112 og tengja hana
siðan útisýningu á verkum hans i
kringum vinnustofuna á Laugarnes-
tanganum. Hefur FÍM sótt um
aðstoð frá borginni við að snyrta og
lagfæra i kringum vinnustofuna og
hefur því máli nú verið vísað til
garðyrkjustjóra. Kvaðst Sigrún
vonast eftir jákvæðum viðbrögðum
borgarinnar þannig að hægt yrði að
bjóða sýningargestum á Listahátið
upp á stuttan labbitúr út á Laugar-
nesið eftir skoðun á smærri verkum
Sigurjóns.
-Al.
Sigurjón Olafsson myndhöggvari:
gestur á Listahátíð.