Dagblaðið - 23.02.1980, Qupperneq 14
14
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 23. FEBRÚAR 1980.
ð
Iþrótfir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
I
Sigurlás
til ÍBV
Sigurlás Þorleifsson, landsliAs-
madurinn kunni i knallspyrnunni,
mun lcika með Vestmannaeyingum i
sumar. Á fimmludagskvöld var
gengiö frá félagaskiplum hans úr
Víkingi í ÍBV. Langur aödragandi
hefur veriö aö þessum félagaskiptum
— Sigurlás álti erfitl með að gera upp
hug sinn hvort hann léki mefl Víkingi
áfram eöa gengi i raflir sinna gömlu
félaga í ÍBV-liðinu á ný. Nú á
fimmtudag lók hann af skarið og þá
var gengið frá þessum málum um
kvöldið.
Sigurlás var markakóngur með
Víkingi sl. sumar — skoraði flesl
mörk lcikmanna í 1. deild. Þá var
hann einnig i fyrsla skipli valinn i ísl.
landsliðið.
- hsím.
Stenmark keyrði stórkostlega
í seinni ferðinni og vann gull
—vann upp rúmlega hálf rar sekúndu forskot Phil Mahre og tryggði sér sín önnur
gullverðlaun á vetrarólympíuleikunum í Lake Placid
Ingemar Stenmark, skíðakóngurinn
frá Sviþjóð, Iryggði sér í gærkvöld sín
önnur gullverðlaun á ólympiuleikunum
i Lake Placid er hann sigraði glæsilega í
sviginu á 1 mín. 44,26 sek. Stenmark
var í 5. sætinu eflir fyrri umferðina en
keyrði brautina af stakri snilld og
öryggi og náði langbezla tímanum i
síðari ferðinni.
Eftir fyrri ferðina leiddi Bandaríkja-
maðurinn Phil Mahre og fór hann
brautina á 53,31 sek., ákaft hvattur af
fjölmörgum áhorfendum, sem voru
allir á hans bandi. í öðru sætinu voru
þeir jafnir Jacques Llithy og Hans Enn
á 53,70 sek., Bojan Krizaj kom næstur
á 53,79 og síðan Stenmark á 53,89 sek.
Síðari ferðin var ævintýri líkust hjá
Stenmark og hann kom í mark á 50,37
sek. Frábær tími. Phil Mahre átti ekk-
ert svar við þessu og varð að gera sér
annað sætið að góðu. Jacques Liithy
varð þriðji, en margir frægir kappar
féllu úr leik.
ÍA-fréttir
enn á ferð
Nú í vikunni barst 1)1$ í hendur<l.
tbl. 4. árg. ÍA-frétta en þetta rit hefur
verið gefið út mjög reglulega af hálfu
Iþróttabandalags Akraness. F.ins og
áður er nokkuð viða komið við í
blaðinu og flestum íþróttagreinum á
Skaga gerð skil að cinu eða öðru leyti.
Sá galli er hins vegar á blaðinu að það
er ekki í umsjá eins ákveðins aðila
heldur skrifa forráðamenn viðkomandi
íþróttagreina sína pistla i blaðið.
Verður það fyrir vikið sundurleitara en
ella. Jákvæðú hliðarnar við blaðið eru
að sjálfsögðu margfalt veigameiri og
það eitt að standa að útgáfu sliks blaðs
er ákaflega virðingarvert og mættu
fleiri félög fylgja þessu fordæmi.
Margrét til
Danmerkur
Margrél Sigurðardóttir, hin stór-
efnilega sundkona úr Breiðabliki,
heldur innan skamms til Danmerkur
þar sem hún mun stunda æfingar um
4 mánaða skeið hjá einum færasta
sundþjálfara Dana. Margrét, sem er
aðcins 15 ára gömul og keppti fyrir
hönd íslands á síðasta ári, mun því
niissa af öllum helztu stórmótunum
hér heima, en væntanlega koma aftur
sterkari en nokkru sinni.
Gamla góða sóknar-
tríóið í fullu fjöri
Flestir hérlendir knattspyrnuáhuga-
menn sem hafa náð 20 ára aldri muna
vafalítið eftir þcim félögum Fusebio,
Torres og Sinioes. Þessir þrír félagar
mynduðu í heilan áratug einhverja þá
skæðustu framlinu, sem sögur fara af í
knatlspyrnunni er þeir léku með
Þróttur gegn
Aftureldingu
Á morgun kl. 14 leiða saman hesta
sina Þrótlur og Afturelding í 2. deild i
handknattleik. Teksl Þrótti að ná báð-
um tigimum eða láta þeir sér nægja
annað eins og í undanförnum leikjum?
portúgalska félaginu Benfica. Benfica
kom einmitt hingað til lands árið 1968
með allar sínar stjörnur innanborðs og
þá tókst íslandsmeisturum Vals að' ná
markalausu jafntefli gegn stjörnunum
— nokkuð sem enginn botnar enn upp
né niður í.
Fljótlega cftir islandsferðina tóku
leikmenn Benfica að tínast hver í sína
áttina og liðið missti allan þann
frægðarljóma sem umlék það á beztu
árum þess. Áhangendur þessara stjarna
í Portúgal geta þó enn séð sína gömlu
snillinga í fullu fjöri ennþá — alla í
sama liðinu meira að segja. Þeir leika
nú með 1. deildarliðinu Estoril í
portúgölsku deildakeppninni og hafa
bara staðið sig bærilega þótt ekki sé
hraðinn sá sami og áður.
Þetta einvalalið valkyrja og trölla tók úrvalslið iþróttafréttamanna heldur betur i karphúsið á stjörnublóti KKl á þriðjudag og
hafði þvi ærna ástæðu til að fagna á eftir. Frá vinstri: Steinn Sveinsson heldur á Oddnýju Sigsteinsdóttur, Bjarni Gunnar
Sveinsson tekur Jóhönnu Halldórsdóttur upp á arma sér, Birgir Örn Birgis tekur Guðríði Guðjónsdóttur létt með „annarri”
og loks righeldur Einar Bollason um Kolbrúnu Jóhannsdóttur. DB-mynd Bjarnleifur.
Þeir eru stigahæstir
— DB birtir lista yf ir alla leikmenn er skorað hafa yf ir 150
stig í úrvalsdeildinni í vetur
Nú líður óðum nær lokum Islands-
mótsins í körfuknattleik og þykir sýnt
að baráttan um íslandsmeistaratitilinn
komi til með að standa á milli Vals og
Njarðvíkur að þessu sinni. ÍR-ingar eru
þó ekki alveg úr sögunni og gætu
hugsanlega krækt i titilinn. IR á einmitL
leik gegn Njarðvík kl. 19 á mofgun' óg
gæti sá leikur ' skij/t miklu um
framvindu mála. ÍR-ingar verða að
sigra — annars eru þeir úr leik — og
Njarðvíkingar þurfa cinnig
nauðsynlega á sigrinum að halda.
Staðan í úrvalsdeildinni er nú
þannig:
Valur 16 12 4 1419—1317 24
Njarðvík 15 II 4 1241 — 1151 22
KR 16 9 7 1327—1261 18
j R 15 9 6 1320—1339 18
ÍS 16 4 12 1356—1425 8
Fram 16 2 14 1252—1414 4
Eins og gefur að skilja hafa
fjölmargir leikmenn komið við sögu
það sem af er mótinu og skorað stig.
Fyrir nokkru birtum við i DB lista yfir
þá sem höfðu skorað yfir 100 stig í
vetur. Siðan hafa öll liðin leikið 4 leiki
— að Njarðvik og ÍR undanskildum.
Hér á eftir fer listi yfir alla þá leikmenn
sem skorað hafa yfir 150 stig fyrir lið
sín í vetur. Flestir leikmenn á listanum.
nú eru hinir sömu og síðast en þó
hafa þrír helzt úr lestinni. Þórir
Magnússon, Val, Jónas Jóhannesson,
Njarðvik, og Stefán Kristjánsson, ÍR,
voru allir með yfir 100 stig síðast, en
hafa ekki náð 150stigum nú. Þá hefur
einn nýr maður bætzt inn, Darrell
Shouse i Fram. Annars lítur listinn
þannig út:
stig
Trent Smock, ÍS 519
Tim Dwyer, Va! 452
Mark Christensen, í R 376
Símon Ólafsson, Fram 356
Jón Sigurðsson, KR 348
Kristinn Jörundsson, ÍR 336
Marvin Jackson, KR 285
Gunnar Þorvarðarson, Njarðvík 277
Ted Bee, Njarðvík 268
Kristján Ágústsson, Val 249
John Johnson, Fram 245
Guðsteinn Ingimarsson, Njarðvik 237
Þorvaldur Geirsson, Fram 224
Ríkharður Hrafnkelsson, Val 203
Jón Héðinsson, ÍS 200
Torfi Magnússon, Val 196
Kolbeinn Kristinss, ÍR 1B2
Garðar Jóhannsson, KR 180
Gisli Gislason, ÍS 166
Bjarni G. Sveinsson, ÍS 161
Geir Þorsteinsson, KR 160
Jón Jörundsson, ÍR 157
Darrell Shouse, Fram 155
Eins og sjá má af listanum er Trent
Smock úr ÍS langstigahæstur. Hann
hefur þó misst úr einn leik og er því
aðeins með 15 leiki eða 34,6 stig að
meðaltali, sem er frábært. Þeir Símon
Ólafsson, Jón Sigurðsson og Kristinn
Jörundsson eru alveg sér á báti hvað
varðar íslenzku leikmenni.ta og langt er
í næsta íslending.
-SSv.
Sigursveit Meiintaskólans við Sund. Frá vinstri: Helgi, Kristinn, Einar og Trausti.
DB-mynd Þorri.
Menntaskólinn við Sund
sigraði með yfirburðum
— í svigmóti f ramhaldsskólanna
Menntaskólinn vió Sund, A-sveit,
sigraði með yfirburðum á svigmóti
framhaldsskólanna sem haldið var við
Skiðaskálann í Hveradölum á öskudag.
Skiðafélag Reykjavíkur sá um fram-
kvæmd mótsins. Svigbrautina lagði
Haraldur Pálsson. Fjórtán skólar
sendu fimmtán sveitir. Margir af beztu-
skiðamönnum Reykjavíkur voru meðal
keppenda. Menntaskólinn á Akureyri
sendi sveit með Finnboga Baldvinsson í
broddi fylkingar. í liði íþróttakennara-
skólans á Laugarvatni voru nokkrir
góðir skíðamenn, þau Margrét Bald-
vinsdóttir frá Akureyri, Valþór Þor-
geirsson frá Húsavík og Hans Krist-
jánsson Rvík.
Fimm menn voru í hverri sveit og
giltu fjórir beztu tímarnir. Veður var
hið bezta og mótið mjög skemmtilegt.
Skíðafélag Reykjavíkur á þakkir
skildar fyrir sitt framtak.
10sveitir af 15 luku keppni. Úrslit:
Sveit Menntaskólans við Sund, A-sveit
' Helgi Geirharðsson 28,5 sek.
Trausti Sigurðsson 30,8 sek.
EinarÚlfsson 28,7 sek.
Kristinn Sigurðsson 28,5 sek.
116,5 sek.
Menntaskólinn á Akureyri 129,1 sek.
Fjölbrautaskólinn Breiðholti I29,3sek.
Menntaskólinn í Reykjavík 134,8sek.
Menntask. v/Sund B-sveit 142,8 sek.
íþróttakennarask. Laugarv. 148,4 sek.
Skiðafélag Reykjavíkur bauð að
keppni lokinni öllum keppendum og
starfsliði upp á veitingar í Skíðaskálan-
um. Sigurvegurum var afhentur
fallegur bikar sem verzlunin Sportval
gaf til þessarar keppni. Menntaskólinn
við Sund vann þennan bikar lika í
fyrra.
- Þorri.