Dagblaðið - 28.02.1980, Síða 1
rlanhlaft
6. ÁRG. — FIMMTUDAGUR 28. FEBRÚAR 1980 — 50. TBL.
RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12. AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI ll.-AÐALSÍMI 27022.
Vopnuð ógnun hermannanna á Keflavíkuflugvelli:
Vamarmáladeildin hefur
ekkert um máliö að segja
—en utanríkisráðherra þóttu viðbrögðin fullmikil, segir Magnús Gíslason
„Utanrikisráðherra tók ljúfmann-
lega á móti okkur,” sagði Magnús
Gíslason í morgun. Eins og DB
greindi frá í gær gekk Magnús á fund
ráðherra m.a. vegna atburðanna í
Rockville fyrr í vikunni er vopnaðir
hermenn beindu byssum sínum að
honum og öðrum manni við störf í
herstöðinni.
„Utanríkisráðherra hafði ekki
fengið í hendur lögregluskýrslur um
málið, en þá skýringu að bjalla hefði
hringt í skúr þarna rétt hjá. Honum
fundust viðbrögðin fullmikil við
þessu og var sammála okkur að koma
þyrfti í veg fyrir að slíkir atburðir
endurtækju sig.
Þá ræddum við um ómerkt svæði,
bæði á Miðnesheiðinni og Hafnaveg-
inum, sem munu vera undir yfirráð-
um Bandaríkjamanna. Slík svæði
verðuraðmerkja.
Við eigum því eftir að fá skýringu á
þessum atburði. Engin formleg skýr-
ing hefur komið frá varnarliðinu.
Hún hlýtur að koma. Ég á ekki von á
þvi, að þessi atburður breyti neinu
um okkar starf í Rockville. Ég hef að
vísu ekki komið þangað síðan at-
burðurinn varð en Björn Stefánsson
félagi minn, sem einnig varð fyrir
þessu, fór þangað í gær og var allt'
með felldu.”
Ekki náðist i utanríkisráðherra í
morgun, en Helgi Ágústsson, for-
maður varnarmáladeildar, sagði að
utanrikisráðuneytið hefði ekkert látið
frá sér fara og um málið væri ekkert
að segja. Þá vildi hann ekki segja
hvenær viðbragða væri að vænta frá
ráðuneytinu.
- JH
Stal 293 bíó-
miðum í ölæði
Ölvaður maður stal i gær tæplega
300 miðum að ákveðinni sýningu i
Hafnarbtói. Hafði hann orðið
ósátlur við starfsfólk biósins og mun
hefnd aðallega hafa ráðið um grip-
deild mannsins. Frá bióinu hvarf
hann síðan sent farþegi í grænleitum
bil.
Lögreglan hafði snör handtök,
setti verði við fjölfarnar götur i ná-
grenninu og litlu siðar fannst bíllinn
og var þá farþeginn með bíómiðana
293 enn í bilnum.
Hann sat inni í nótt og beið fundar
við rannsóknarlögreglumenn. - A.Sl.
Óbreytt harka
ímnheimtu?
— bæjarráð Neskaup-
staðarbíðursvars
fjármálaráðuneytis
Fjármálaráðuneytið hefur nú
fjallað um erindi bæjarráðs Nes-
kaupstaðar vegna deilna bæjarstjór-
ans á staðnum og bæjarfógetans
vegna skila á skattinnheimtu bæjar-
ins af starfsfólki sinu. Þessum crjum
fógeta og bæjarstjóra lyktaði með
ákærurn á hendur bæjarstjóranum
um fjárdrátt og gagnkæru bæjar-
stjóráns á hendur fógetanum.
Bæjarráðið fordæmdi vinnubrögð
fógetans i skeyti sinu til fjármála-
ráðuneytisins og krafðist opinbers
svars ráðuneytisins um hvort inn-
heimtuaðferðir fógetans, sent eiga sér
enga hliðstæðu i samskiptum bæja
og ríkis, séu af hálfu ráðuncytisjns
taldar eðlilegar og hvort sveitarfélög
mættu búast við.slikum vinnubrögð-
um í innheimtu í framtíðinni.
„Svarbréf fór héðan i póst um lok-
un á þriðjudag,” sagði Höskuldur
ráðuneytisstjóri Jónsson i morgun.
„Tel rétt að bæjarráð fái bréfið áður
en uppskátt er látið hvað í því
slendur.”
Logi bæjarstjóri sagði í morgun að
bréFtð væri ókomið, enda ekkert
flogið í gær. Hann kvað ekkert hafa
gerzt i málinu síöan bærinn gerði full
skil á inhcimtum skattgjöldum 5.
febrúar, en neitaði að greiða dráttar-
vexti. Rannsóknarlögreglumcnn taldi
Logi horfna af staðnum, að minnsta
kosti færu þeir leynt væru þeir enn á
Neskaupstað.
-A.Sl.
Spenna færist í Reykjavíkurskákmótið:
í KVÖLD TEFLA ÞEIR EFSTU
Tony Miles hefur nú fengið keppinaut I efsta sætinu á Reykjavfkurskákmótmu, Rúss-
ann Kupreitshik. Leiða kapparnir saman hesta sina i kvöld og verður eflaust spenn-
andi að fylgjast með viðureign þeirra. Meðal áhugasamra áhorfenda á Loftleiðum i
gærkvöld voru Fríðrik Olafsson, forseti FIDE, og Miles, sem samdi um jafntefli við
Torre eftir nokkra leiki.
DB-mynd Bjarnleifur.
— heimarannsóknir Guðmundar brugðust og hann féll fyrir Rússanum Í4. umferð
Eftir 4. umferð i Reykjavikurmótinu
er röð keppenda þessi:
1.—2. Miles og Kupreitshik: 3 vinn-
ingar.
3.—6. Browne, Margeir.Helgi,
Sosonko: 2,5 v.
7.—9. Schussler, Jón L., Torre: 2 v.
10. —12. Byrne, Haukur, Vasjukov:
1,5 v.
13. Guðmundur: 1 v.
14. Helmers: 0,5 v.
5. umferðin verður tefld í Loftleiða-
hótelinu i kvöld. Þá eigast þessir við:
Jón L. — Byrne, Guðmundur —
Browne, Miles — Kuþreitshik, Margeir
— Torre, Helgi — Vasjukov, Helmers
— Haukur, Schussler — Sosonko.
Teflt verður kl. 5 til kl. 10. -BS
— sjá nánarábls. 5
— sjá viðtöl við ólympíufara í framhaldi af skodanakönnun DB um þátttöku í ÓL á bls. 8-9