Dagblaðið - 28.02.1980, Page 2
2
/*
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 28. FEBRÚAR 1980.
ListiðnaðarsýninginKjarvalsstöðum:
Falleg sýning
Jóhanna Guðmundsdóttir, Austur-
brún 4, skrifar:
Mikið fannst mér gaman á Kjar-
valsstöðum núna um daginn þegar ég
skoðaði listiðnaðarsýninguna sem
’þar stóð yfir á vegum Bandalags
kvenna i Reykjavík.
f>etta er fallegasta sýning sem ég
hef séð þar og svo ánaegjulegt hvað
allt hefur tekizt vel, allir fallegu mun-
irnir nutu sin svo vcl og það var bjarl
vl'ir salnum. Það var enginn hasar-
svipur vl'ir þessari sýningu sem svo
ofl vill verða þegar ullarvinna, út-
saumur og annað slíkt er sýnt.
Hönnuðurinn, Gunnar Bjarnason,
hefur unnið frábært starf og Banda-
lag kvenna í Reykjavík hefur brotið
upp á nýmæli sem verður að gera að
föstum lið í starfi bandalagsins á
komandi árum.
Bandalagi kvenna i Reykjavik óska
ég til hamingju með sýninguna.
Hljómsveitin The Clash.
Kampútseu-hljómleikamir:
Lagið Police and
Thieves er ekki
eftir The Clash
Rockville-herstöðin á Miðnesheiði.
Lykt af Rockville-
frétt útvarpsins?
Dagmar Gunnlaugsdóttir hringdi: -
„í hádegisútvarpinu í dag (þriðju-
dag) var þrisvar eða fjórum sinnum
lesin frétt þess efnis að tveir
hermenn suður í Rockville hefðu
miðað hlöðnum byssum á íslend-
inga sem þar voru að vinna.
Ég hef aldrei heyrt það áður í frétt-
um, hvorki af flugvélaránum eða
öðru, að menn hafi miðað hlöðnum
byssum á einhvern.
Mér fannst lykt af þessari frétt. Ég
er sannfærð um að ef þessi atburður
hefði átt sér stað á einhverjum öðrum
stað en Rockville þá hefði ekki verið
minnzt á að byssan hafi verið hlaðin.
Hvernig gátu þeir líka vitað að
byssan hafi verið hlaðin? Mér finnst
eins og þessi frétt sé frá kommúnist-
um komin. Ég hef heyrt að mikið sé
af þeim á rikisfjölmiðlunum.”
Nýbylgjurokkari skrifar:
í DB 19. feb. sl. fjallar Helgi Briem
um Kampútseu-hljómleikana í
Austurbæjarbíói. Er ekki nema gott
eittt um það að segja. Þó vil ég leið-
rétta tvær missagnir sem fram koma í
umfjöllun Helga: Hann segir að
Fræbbblarnir hafi flutt „lagið Police
And Thieves eftir Clash”. Rétt er að
Fræbbblarnir fluttu Police And
Thieves. En þetta stórgóða lag er
bara ekki eftir Clash. Það er eftir
Junior Murvin, gitarleikara í hljóm-
sveit Bob Marleys, The Wailers.
Þess má geta að Police And Thieves
er af mörgum talið vera eitt af 10
beztu lögum allra tíma. Er það því
ósjaldan nefnt í sömu andrá og
Imagine (eftir John Lennon), No
Woman No Cry (eftir Bob Marley)
og slík snilldarverk. Enda hafa
margir flutt Police And Thieves inn á
plötur. M.a. hefur Clash tekið þetta
ágæta lag upp á sína arma og flutt
það á þann hátt sem þeim einum er
lagið.
Helgi segir að ljóðin, sem Þursa-
flokkurinn spann í kringum á hljóm-
leikunum, hafi verið samin á
staðnum af Agli Ólafssyni. Hið rétta
er að ljóð þessi eru eftir Ara Jósefs-
son. Anzi skemmtileg Ijóð.
í tilefni framlags söngsveitarinnar
Kjarabótar langar mig svo til að
benda meðlimum sveitarinnar á eftir-
farandi: Ef þið viljið ná til fólksins
þá þýðir ekki að bjóða upp á 25 ára
gamlar útsetningar. Þið virðist hafa
gott efni til að moða úr. Því ekki að
poppa það svolítið upp, gera það
aðgengilegra ungu fólki sem hafnar
algjörlega tónlist í anda Bing Crosby
og Frank Sinatra. Hvernig væri að
pæla svolítið í plötum Clash, Bob
Marley & The Wailers og Þursa-
flokksins með nútímalegri útsetn-
ingar í huga?
VIUA STOFNA
FÉLAG UM BJÓR-
INNFLUTNING
1870-7578 hríngdi:
Á döfinni er að stofna áhuga-
mannafélag um bjórinnflutning. í
bréfi sem birt verður i Röddum
lesenda á næstunni verður gerð
nánari grein fyrir félaginu.
Mig langar líka til að þakka Davíð
Scheving Thorsteinssyni fyrir stór-
kostlega framtakssemi i bjórmálum.
Hver á íslandsmetið í plötusnúningi?:
„VIÐSPILUBUM í 52 TIUA”
— segir enn einn aðilinn sem gerir kröf u til að teljast íslandsmejstari í plötusnúningi
Gunnar Gunnarsson, Skaftahliö 29
Reykjavík, skrifar:
Ég vildi gjarnan vekja athygli á þvi
að það eru fleiri sem geta sagzt eiga
Islandsmet í plötusnúningi heldur en
Villi í Klúbbnum, Logi Dýrfjörð og
Valdimar í Dynheimum á Akureyri.
Eftir því sem ég bezt veit var fyrsta
fslandsmetið í plötusnúningi sett i
Klúbbnum árið 1978 og var það Villi
sem þá spilaði í litla 13 tíma.
Stuttu seinna var sagt frá þvi í dag-
blöðunum að Þorsteinn og Gunni
nokkur Smith hefðu spilað í 26 tíma.
Villi vildi ckki viðurkenna þetta sem
íslandsmet og getur verið að hann hafi
rétt fyrir sér i því, þar sem þeir voru
tveir er þeir spiluðu helmingi lengur
en hann. Þetta var reyndar ekki á
opinberum skemmtistað en aðstaðan
og tækin voru ekki líkt þvi eins góð
að vinna við eins og á fullkomnu eða
góðu, opinberu diskóteki.
Eftir þetta datt mér í hug að reyna
að slá þetta óopinbera met því 13
tíma met var ekkert til að keppa að,
fannst mér. En þá vantaði stað og
stund og var ég með þetta i huga í
nokkurn tíma. Frétti ég þá að strákur
að nafni Emi! Bjarnason hefði það
sáma í hyggju og ég.
Ákváðum við því að spila saman í
skátaheimili Dalbúa við Leirulæk.
Byrjuðum við að spila kl. 10 að
morgni á föstudegi 22. des. 1978 og
sátum síðan við plötuspilarana stanz-
laust fram á sunnudag 24. des. kl. 2
e.h. og vorum þá búnir að spila i 52
klst.
Þetta átti ekki að \erða opinbert og
blöðin áttu ekki að frétía af þessu.
En svo vildi til að blaðamenn frá
Morgunblaðinu, sem voru að
skemmta sér í Klúbbnum, fréttu af
þessu og komu þeir á staðinn einhvern
tíma eftir miðnætti á laugardag og
Vilhjálmur Ástráðsson, einn þeirra fjölmörgu aðila sem að undanförnu hafa lýst
þvi yfir að þeir séu tslandsmeistarar i plötusnúningi.
birtu síðan frétt um þetta í blaðinu,
sem ætti aðsanna mál mitt.
Eftir þetta heyrðum við að ein-
hverjir strákar úr Keflavik hafi ætlað
að slá þetta óopinbera met en ekki
veit ég hvað varð úr því.
27.—28. okt. 1979 spilar Logi Dýr-
fjörð í 26 klst. og 48 min. í Saltvík og
sefeist eiga íslandsmetið (Dagblaðið
14. febr. 1980) og Villi i Klúbbnum
(Vilhjálmur Ástráðsson) spilar fyrir
maraþondanskeppendur í 20 tíma og
segist einnig vera íslandsmeistari í
plötusnúningi. Þá er það Valdimar
Pálsson á Akureyri sem segist vera
íslandsmethafi í plötusnúningi. Hann
spilaði í 30 tima samfleytt í æskulýðs-
heimilinu Dynheimum fyrir mara-
þondanskeppendur.
Að endingu vil ég benda á að ég er
tilbúinn til að spila einn opinberlega
fyrir dansandi fólk hvenær sem er í
a.m.k. 60 klst. ef einhver skemmti-
staður hefði áhuga á þvi.
/
Vi