Dagblaðið - 28.02.1980, Page 4

Dagblaðið - 28.02.1980, Page 4
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 28. FEBRÚAR 1980. 4 % DB á ne ytendamarkaði Af 1.713 kr. rakkremi tekur ríkið nærri 800 kr. Það er ekki ofsögum sagl af því hve mikinn hluta af útsöluverði varn- ings íslenzka ríkið tekur i sinn hlut. Það hrifsar til sín í opinber gjöld langtum hærri upphæð en framleið- andi vörunnar fær. — Vera má að þetta sé réttlætanlegt ef um er að ræða „lúxus-vörur” sem ekki eru beinlínis nauðsynlegar, en þetta á ekki siður við um bráðnauðsynlegan varning. Nefna má rakkrem. Það er öllum mönnum nauðsynlegt að nota og flokkast undir eina af frumþörfum mannsins. Tökum dæmi af 216 gr túpu. Hún kostar í útsölu 1.713 kr. og þar af fara hvorki meira né minna en 792 kr. beint í ríkishítina. Ríkið fœr meira en tvöfalt innkaupsverð Við skulum kryfja verðið á þessari rakkremstúpu til mergjar. Innkaups- verð hennar er 320 kr., tollur er kr. 483, flutningsgjald og vátrygging 48 kr., bankakostnaður og vextir 33 kr., heildsöluálagning 119 kr., smásölu- álagning 401 kr., söluskatturinn er 309 kr. í prósentum er skiptingin þessi: Innkaupsverð.............18,7% Tollur og vörugj.........28,2% Flutn.,vátr.............. 2,8% Bankakostnaður........... 1,9% Heildsöluálagning...... 7 % Smásöluálagning..........23,4% Söluskattur............18 % Samtals 100% Hlutur ríkisins í rakkremstúpunni er 46,2% af útsöluverðinu eða sam- tals 792 kr. Þetta er nokkuð gróft dæmi, en við munum birta fleiri slík næstudaga. -A.Bj. Þórhlldur Karlsdóttlr, verzlunarstjóri 1 Snyrtivöruverzlunlnni I Glæsibæ, selur viðskiptavinum sínum m.a. hlð nauðsyn- lega rakkrem, sem rikið stórgræðir á. DB-mynd Bjarnleifur. Smyrjið steypujámspottana með feiti eftir hverja notkun Furðulegt að ekki skuli gefnar leiðbeiningar um meðhöndlun þar sem pottarnir eru seldir ,,Ég er búin að eiga járnpotta frá Kokkum í Sviþjóö nú í ein tuttugu og tvö ár og hefur aldrei borið á ryði í þeim,” sagði Kristín Ágústsdóttir í símtali við DB. „Það máaldrei, ekki undir neinum kringumstæðum, nota vírbursta á járnpotta, aðeins plastskrúbbur. Ég hef alltaf gert það. Síðan læt ég pottinn þorna mjög vel á litið heitri plötu. Og því næst smyr ég feiti á pottinn. Járniö verður að fá fitu eftir hverja notkun. Annars nota ég ekki járnpottana mína til þess að sjóða í, aðeins til þess að steikja í þeim. Ég hef alltaf gætt þess vandlega að smyrja þá vel með fitu, enda eru þeir alveg skinandi og kolsvartir, eins og þeir eiga að vera.” Kristín sagöi ennfremur að vel gæti verið að þeir steypujárnspottar sem framleiddir eru í dag væru e.t.v. úr lélegra efni en sams konar pottar sem framleiddir voru fyrir nokkrum árum. Sviar hafa löngum verið þekktir fyrir vandaða pottafram- leiðslu, svo vera má að pottar sem framleiddir eru hjá Kokkkum í Sví- þjóðséu þar að auki enn vandaðrien almennt gerist. Hins vegar er greinilegt að eina ráðið til þess að losna við ryð úr pottunum sé að smyrja þá vandlega með feiti, annaðhvort matarolíu eða smjörlíki, eins og áður hefur verið greint frá hér á síðunni. Vonandi lesa þeir sem selja slíka potta þessar ráðleggingar til þess að geta haft upplýsingar um meðferð söluvöru sinnar á reiðum höndum fyrir viðskiptavini sína. Má það teljast næsta furðulegt að ekki skuli vera hægt að fá réttar leiðbeiningar um meðferð dýrra potta þar sem þeir eru seldir. Meira að segja voru gefnar rangar upplýsingar um með- ferðina í einni verzluninni. Viðskipta- vini var ráðlagt að skrúbba pottana með vírbursta. Nú hefur komiö í ljós að það er einmitt það sem má alls ekki gera! A.Bj. ✓

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.