Dagblaðið - 28.02.1980, Side 10

Dagblaðið - 28.02.1980, Side 10
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR28. FEBRUAR 1980. HÆSBIABIB frjálst, úháð dagblað Utgefandi: Dagblaðið hf. Framk vaamdastjóri: Sveinn R. EyjóHsson. Ritstjóri: Jónas Krístjánsson. Ritstjórnarfulltrúi: Haukur Helgason. Fróttastjórí: ómar Valdimarsson. Skrífstofustjóri ritstjórnar: Jóhannes Reykdal. (þróttir: Hallur Simonarson. Menning: Aðalsteinn Ingólfsson. Aðstoðarfréttastjóri: Jónas Haraldsson. Handrít: Asgrímur Pálsson. Hönnun: Hilmar Karlsson. Blaðamenn: Anna Bjarnason, Atli Rúnar Halldórsson, Atli Steinarsson, Ásgeir Tómasson;. Brag>r Sigurðsson, Dóra Stefánsdóttir, Elín Albertsdóttir, Gissur Sigurðsson, Gunnlaugur A. Jónsson, ólafur Geirsson, Sigurður Sverrisson. Ljósmyndir: Ámi Páll Jóhannsson, Bjarnlerfur Bjarnlerfsson, Hörður Vilhjálmsson, Ragnar Th. Sigurðs- son, Sveinn Þormóðsson. Safn: Jón Sœvar Baldvinsson. Skrífstofustjóri: Ólafur Eyjólfsson. Gjaldkerí: Þráinn Þorlerfsson. Sökistjóri: Ingvar Sveinsson. Drerfing arstjóri: Már E.M. Halldórsson. Ritstjóm Sfðumúla 12. Afgreiðsla, áskríftadeild, auglýsingar og skrífstofur Þverholti 11. Aðalsimi blaðsins er 27022 (10 Ifnur). Setning og umbrot: Dagblaöið hf., Sfðumúla 12. Mynda- og plötugerð: Hilmir hf., Sfðumúla 12. Prentun Árvakur hf., Skorfunni 10. Áskríftarverð á mánuði kr. 4500. Verð í lausasölu kr. 230 eintakið. Meiríhluti villþátttöku Meirihluti landsmanna hefur tekið þá /3 afstöðu, að íslendingar eigi að taka þátt í ólympíuleikunum í Moskvu þrátt fyrir framferði Sovétríkjanna á stjórn- málasviðinu að undanförnu. Þetta kom í ljós í skoðanakönnun Dagblaðsins. Þar lýstu tæplega sextíu og tveir af hundraði yfir stuðningi við þátttöku í leikunum. Tæp tuttugu prósent voru andvíg þátttöku og tæp nítján prósent óákveðin. Ef aðeins eru teknir þeir, sem taka afstöðu, reynast um þrír fjórðu þeirra vera hlynntir þátttöku í leikunum. í svörum fólksins kemur fram, að menn fordæma iftnrás Sovétmanna í Afganistan og athæfi þeirra gagn- vart vísinda- og andófsmanninum Sakharoff. En meirihlutinn segir, að ekki megi „blanda saman íþróttum og pólitík”. Því skuli ekki hætta við þátttöku í leikunum í Moskvu. Margir segja sem er, að pólitíkin komi of víða við sögu í afstöðu manna til annarra mála. Raunar er það svo um íþróttir, að erfitt hefur reynzt og oft ókleift að halda þeim ,,utan við pólitík”. Algeng skoðun er, að það sé íþróttahreyfingarinnar en ekki stjórnvalda að taka afstöðu um, hvort íslend- ingar taki þátt í ólympíuleikunum eða ekki. Vafalaust hefur afstaða íslenzku ólympíunefndar- innar, sem hallast að þátttöku í leikunum, haft sín áhrif á skoðanir fólks í þessari könnun. Ennfremur taka margir fram, að það verði að vera komið undir hverjum einstökum íþróttamanni, sem á kost á að vera með í Moskvu, hvort hann, samvizku sinnar vegna, fer eða ekki. Sú afstaða er góðra gjalda verð að vilja halda íþróttum aðskildum frá stjórnmálum. Vissulega er það mikill ljóður, hversu mikil áhrif stjórnmálin hafa gjarnan á íþróttir. í reyndinni er það svo, að pólitíkin blandast íþrótt- um, sérstaklega þegar um væntanlega Moskvuleika er aðræða. Ólympíuleikar eða heimsmeistarakeppni, svo að dæmi séu nefnd, sem er haldin á vegum einræðis- stjórna, hefur jafnan orðið verkfæri í höndum þeirra til að auka hag sinn, bæði innanlands og utan. Enginn mun mótmæla þeirri kenningu, að Adolf Hitfer hafi notað ólympíuleikana í Berlín 1936 skefja- laust stjórn sinni til styrktar, til að treysta hana í sessi innanlands og efla útþenslustefnu hennar. Berlínarleikarnir voru í þann tíð einn meginþáttur Hitlerismans, og nasistar nutu lengi góðs af þeirri skrautsýningu, sem renndi stoðum undir kenningar þeirra um mikilleik „þriðja ríkisins” og var fylgt eftir með útþenslu ríkisins og landvinningum. Á sama hátt eru aðstæður nú þær, eftir innrás Sovét- ríkjanna í Afganistan, almenna útþenslustefnu þeirra og hugsanlega landvinninga í öðrum áttum og kúgun á andófsmöhnum innanlands, að Moskvuleikarnir munu verða býsna hentugir Kremlstjórninni, bæði innan- lands og utan. Þeir verða fullkomlega sambærilegir við Berlínar- leika Adolfs Hitlers á sínum tíma. Eins og fram kemur af skoðanakönnun Dagblaðsins telur meirihluti landsmanna á hinn bóginn unnt að vonast til, að halda megi íþróttum og stjórnmálum aðskildum. Þess vegna, segir meirihlutinn, eigum við ekki að láta það ráða afstöðu okkar, þótt risaveldið í austri hafi sýnt einstakan yfirgang að undanförnu. Hætt er við, að reynslan muni leiðaannað í ljós,. .... Uganda: Vonir glæðast um bjartari framtíð — stjórn landsins í Kampala stendur uppi í hárinu á Tansaníuvaldinu og þeim sem vilja Obote, gamla harðstjórann, aftur til valda Hinn 9. febrúar síðastliðinn var Paulo Muwanga, innanríkisráðherra Uganda, settur úr embætti og í stað þess skipaður fulltrúi lands sins hjá Sameinuðu þjóðunum í Genf. Muwanga hafði verið áhrifamikill i embætti innanrikisráðherra og sagt er að með því að setja hann úr því hafi verið komið í veg fyrir að Uganda félli aftur i gryfju harðstjórnarinnar. Fyrir nærri ári steyptu landsmenn þar harðstjóranum Idi Amin með aðstoð granna sinna í Tansaníu. Spár um að harðstjórn yrði endurreist i Uganda hafa hingað til ekki rætzt. Pingið, sem skipað er 127 þing- mönnum og situr i Kampala, kallar sig þjóðlega ráðgjafarþingið og hefur oft á tíðum sýnt verulegt hugrekki þegar það hefur gripið i taumana og stöðvað þróun í átt til sliks stjórn- kerfis. Athyglisvert er að á þinginu sitja margir prófessorar, lögmenn og aðrir sérfræðingar. Kunnugir telja nú jafnvel ekki útilokað að koma á lýðræði aftur í Uganda eftir að kosningar hafi farið þar fram í júni á næsta ári. Þinginu hefur að því er .virðist haldizt uppi að snúast gegn hefðbundinni kynþátta- pólitík i landinu. Einnig hefur tekizt bærilega, í það minnsta hingað til, að standa uppi í hárinu á áhrifavaldi Tansaníumanna sem þó voru öflugastir i að sleypa Idi Amin af stóli. Hið síðastnefnda verður ekki gert nema vegna óvenjulcgrar dirfsku. Þegar Idi Amin fór frá voru aðeins þrjú þúsund af fimmtán þúsund manna lögregluliði landsins enn á lífi og í búningum. Her landsins hafði algjörlega verið þurrkaður út og verður nú að byggja hann upp á grunni fyrrum skæruliða og nýrra herntanna. Á mej)an svo er ástatt verður rikisstjórnin og þingið i Kampala algjörlega að treysta á stuðning tuttugu þúsund manna her- liðs frá Tansaníu og það í landi þar sem allt var í raun orðið stjórnlaust og mjög margir óbreyttra ibúa hafa vopn undir höndum. Þessar hersveitir frá Tansaníu eru auðvitað ef á reynir undir æðstu stjórn Juliusar Nyerere, forseta Tansaniu. Einn nánustu vina hans er Milton Obote fyrrum forseti Uganda, sem hefur verið heiðursgestur hans síðan Idi Antin steypti honum af stóli. Stefna Obote er svipuð stefnu Nyereres, einhvers konar blanda af afrískum sósíalisma og velviljuðu einræði. Sagt er að Tansaníuforseti mundi fagna því mjög ef Obote fengi tækifæri til að setjast aftur í valda- stól i Uganda. Vandinn er aðeins sá, að Uganda- nienn sjálfir hafa langflestir engan áhuga á að fá Obote aftur til valda. Fyrri stjórn Obotes var raunveruleg harðstjórn sem nær eingöngu byggð- ist á Lango- og Acholi-ættflokkunum i norðurhluta landsins, ættmönnunr Obotes sjálfs. Sannleikurinn er sá, að vegna óvinsælda Obotes á sínunt tíma fögnuðu flestir Ugandamenn byltingu Idi Antins árið 1971. Julius Nyerere forseti gerir sér þetta ntjög vel ljóst og því er Obote enn i Tansaniu. Helzti stuðningsmaður Obotes fyrrunt forseta innan núverandi rikis- stjórnar í Uganda var til skamms tima Paulo Muwanga innanríkis- ráðherra. í þessari stjórn Itafa verið fulltrúar allra pólitískra skoðana og ættflokka. Muwanga naut stuðnings Tansaniumanna auk þcss sem hann átti góðan bakhjarl í tólf þúsund tnanna vopnuðum sveitum, sem tveir fyrrum herforingjar í Ugandaher hafa haldið í noröurhéruöunum. Þeir V. LÆKNIR ER LÍKNARHÖND Ekki fyrir löngu gerðist það við Hrauneyjafoss að vinur minn einn féll úr stiga og slasaðist. Þegar þetta gerðist varð tuttugu til þrjátíu mínútna bið cftir sjúkrabíl vinnu- staðarins, samkvæmt frásögn vinnu- félaga. Nær sanni mun að biðin hafi verið fimmtán til tuttugu mínútur en hjúkrunarkona staðarins var sótt og var á slysstað fimm til sjö minútum eftir slysið. Það sem mér finnst umhugsunar- vert er að í kaffitíma, eftir slysið, komu fram raddir starfsfélaga, sem töldu algerlega til skammar að sjúkrabíll staðarins, sem var í aðeins eins kílómetra fjarlægð, skyldi þurfa tuttugu mínútur til hálftíma til þéss að komast á slysstað. Mönnunum við Hrauneyjafoss fannst með öðrum orðum sjálfsagt og eðlilegt að sjúklingurinn kæmist án tafar í sjúkrabíl og með honum á skömmum tíma undir læknishendur. Skoðun almennings er sú að sjálf- sagt og eðlilegt sé að sjúklingur komist á skömmum tíma frá slysstað í læknishendur. Menntakerfi okkar hefur vissulega gefið af sér þann fjölda lækna að þessi krafa eða ósk almennings virðist ekki óraunsæ. Fjöldi útskrifaðra lækna frá íslenskum menntastofnunum er sá að enginn fslendingur ætti að þurfa að bíða lengi eftir líknandi læknishönd- um. Við höfum vissulega byggt háskóla og þennan háskóla byggði þjóðin til þess að njóta siðan menntunar þess gæfusama fólks sem þar nyti lærdóms og menningar. Nokkuð virðist Ijóst að nóg sé um t.d. lögfræðingana (margir kannast við þessa sjö hjá vesalings Sjálf- stæðisfiokknum) („íslands óham- ingju verður flest að gagni,” sagði Andrés Kristjánsson rétt i þessu i út- varpinu). Þetta gæfusama fólk úr Háskóla íslands fullnægir þörfum þjóðar sinnar í flestu. Einn er þó sá hópur sem ekki virðist nógu stór, það eru læknanemarnir. Sá hópur sem ekki fullnægir þörfum þjóðar sinnar er læknarnir, þeir eru vissulega nógu margir til þess, en því miður, rætnar tungur myndu segja að vegna aumingjaskapar og fégræðgi ung- lækna búa landsmenn nú við það að lækning er lúxus. Peningapungarnir Ekki er langt síðan eitthvað sem kallað er „félag ungra lækna” gaf út þá yfirlýsingu að nær útilokað væri að vera læknir úti á landi, I hinum litlu læknishéruðum. Hver er ástæðan sem hinir vösku menn í félagi ungra lækna gefa? Jú, ástæðan er sögð sú að ekki sé hægt að vera læknir í hinum litlu læknis- héruðum úti á landi vegna þess að þar séu þeir einangraðir og ekki aðeins það (og þá kemur brandarinn) heldur séu þeir settir í þá aðstöðu að dvöl úti á landi sé röskun á heimilishögum. Peningapungarnir í félagi ungra lækna telja sem sé að starf i t.d. sex mánuði í litlu læknishéraði úti á landi sé „röskun á heimilishögum.” „Félag ungra lækna”? Hvernig i ósköpunum stendur á þvi að læknar skuli þurfa að vera i tveim félögum, félagi ungra lækna og þá væntanlega félagi aldraðra lækna? í félagi ungra lækna eru væntan-

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.