Dagblaðið - 28.02.1980, Page 12
12
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 28. FEBRÚAR 1980.
Það geta komið upp þannig
stöður að menn þurfi að hugsa"
„Þetta er jafnteflisfjandisagði
lngvar Ásmundsson, þegar hann var
að skýra skák þeirra Vasjukov og
Margeirs á Loftleiðahótelinu í gær-
kvöldi. Það var eins og hendi veifað.
Upp var settur borði með jafnteflis-
tilkynningu. Þá höfðu þeir Torre og
Miles samið um jafntefli, sem og
Byrnc og Schiissler, og loks Browne
og Jón L.
,,Það er vitlaust gefið,” sagði einn
áhorfenda, „við látum gefa aftur.”
Það verður of seint fyrir þig,” var
svarað.
„Orð Ingvars eru nefnilega lög á
Hótel Loftleiðum,” segir í skemmti-
legu spjalli af vettvangi í 3. tölublaði
af aukaútgáfu timaritsins Skákar
sem kemur daglega út vegna Reykja
vikurmótsins.
Þar er meðal annars sagt frá þvi
að meistari Benóný, sem nú er fjarri
góðu gamni, telji nýja tímakerfið
ekki samboðið skákmönnum, ,,þv
það geta kontið upp þannig stöður
að menn þurfi að hugsa.”
Meðal áhorfenda í gærkvöldi má
—segir Benóný um „nýja tímann”
nefna þessa: Ólaf P. Stephensen
tannlækni, Steinar Ó. Stephensen
nema, Áslaugu Kristinsdóttur,
Ragnar Halldórsson, frkvstj. Isal,
Sigmund Böðvarsson lögmann, Frið-
rik Ólafsson skákmeistara, Þóri
Oddsson vararannsóknarlögreglu-
stjóra, Sæmund Pálsson lögreglu-
mann, Pétur Árnason framkvstj.,
Guðmund G. Þórarinsson alþm.,
Gunnar Gunnarsson, alþjóðl. dóm-
ara m.m., Hjört Jónsson kaupmann,
Áka Jónsson tölvufræðing, Sigurkarl
Stefánsson menntaskólakennara,
Ellert Sölvason verzlm., Árna
Jakobsson, Sigurjón Pétursson
borgarfulltrúa, Kristján Ómar Krist-
jánsson frkvstj., Þórhall Björnsson
stórkaupm., Högna ísleifsson,
deildarstj. Hagstofunni, Þórhall Þor-
steinsson verzlm., Bernharð Guð-
mundsson kjötiðnaðarmann, Leif
Eiríksson kjötiðnaðarmann, Egil
Valgeirsson hárskerameistara, Har-
ald Sveinbjörnsson verkamann, auk
fjölda annarra áhorfenda.
- BS
Þrátt fyrir fimm jafntefli á Loftleiöa-
hótelinu í gærkvöld voru þar að
vanda gífurleg átök, bæði milli kepp-
enda og meðal áhorfenda.
...en heimarannsóknir
Guðmundar brugðust
Eguene Torre —
Anthony Miles
1/2:1/2
Stórmeistarajafntefli varð upp á
teningnum eftir aðeins fimmtán leiki.
Torre byrjaði með g2—g3 en náði
engu frani gcgn traustri vörn Eng-
lendingsins. Það er ekki þar með sagt
að staðan væri möguleikalaus þegar
þeir sömdUí öðru nær, ekki var
annað að sjá en gífurleg átök væru
framunda.
Viktor Kupreitshik
— Guðmundur Sig-
urjónsson 1:0
Þeir Guðmundur og Rússinn tefidu
upp, að því er talið var, gamla skák,
sem Guðmundur hafði teflt gegn
Austur-Þjóðverjanum Malich í Telex
ólympíukeppninni 1977. Sá munur
var þó á að nú stýrði Guðmundur
svörtu mönnunum en var með þá
hvitu gegn Þjóðverjanum! Við skul-
um nú lita nánar á þessa skák.
Hvitt: Kupreitshik.
Svart: Guðmundur.
Sikileyjarvörn.
1. e4 c5 2. Rc3 e6 3. Rf3 d6 4. d4 cxd4
5. Rxd4 Rf6 6. f4 Be7 7. Be3 0-0 8.
I)f3
Það er vel þekkt meðal skákfræð-
inga að svartur nær góðu tafli eftir 8.
Bc2 a6 9. 0-0 Rbd7!
8. — e5! 9. Rf5
9. Rb3 var varfærnislegri leikur cn
vart var við þvi að búast af hinum
sókndjarfa Rússa.
9. — Bxf5 10. exf5 Da5 11. 0-0-0 e4
12.1)h3 Hc8!
Hótar skiptantunarfórn niðri á c3.
Nú kemur í Ijós hversu sókn svarts á
drottningarvæng vegur þyngra en
aðgerðir hvíts hinum megin.
13. Bd4 Rc6 14. Bc4
Að öðrum kosti stendur hvíti kóngur-
inn berskjaldaður fyrir árás svarts.
14. —Db4!
Þvingar fram atburðarásina
svörtum í hag.
15. Bxf6 Bxf6 16. Bb3 Rd4 17. Rd5
Þvingað þar sem hótun svarts var
cnn á ný skiptamunarfórn á c3
17. —Hxc2 + !
Ef ég man rétl hafnnði Malich
þessari fórn i fyrrnefndri skák og
Guðmundur slapp með skrekkinn og
vann skákina um síðir.
18. Kbl
Þvingað, þvi eftir 18. Bxc2 Re2 +
19. Kbl Dxb2 er hvítur mát.
18. — Rxb3!
Drottningarfórn! en hana má að
sjálfsögðu ekki taka: 19. Rxb4?
Hxb2 mát.
19. Rxf6+ gxf6 20. Kxc2
Eftir 20. Dxb3 Dxb3 21. axb3
Hxg2 er svarta staðan unninn.
20. — Hc8+ 21. Kbl Rd2+ 22. Kal
Hc2 23. Da3
Siðustu leikir hafa allir verið
þvingaðir. Upp er nú kominn staða
þar sem svartur hefur gefið skipta-
mun en hefur þessi staða tvö sam-
stæð frípeð og öfiugt frumkvæði.
E.t.v. hefur Guðmundur treysl of
mikið á heimarannsóknir sinar sínar
þvi eins og kemur i Ijós stendur hann
brátt höllum fæti.
23. — Dxa3?
Ótimabær uppskipti. Eftir einfald-
lega 23. — Dd4 á hvitur úr vöndu að
ráða t.d. 24. Hcl Hxcl 25. e3 og
svartur heldur enn frumkvæðinu. Nú
má hann þakka fyrir ef hann nær
jafntefii.
24. axb3d5
Svörtu frípeðin virðast ógnandi en
málið er að þau verða stöðvuð i tæka
tið. 25. Hcl Hxcl 26. Hxcl d4? 26.
— Kf8 var nauðsynlegt. 27. Kb2 b5
Leikið i þeim tilgangi að koma
riddaranum til c4 Frekari framrás fri-
peðanna gengur ekki t.d. ef 27. —e3
þá 28. Hc8 + ásamt 29. Kc2.
28. Hc8 + Kg7 29. Hd,8 Rc4+ 30.
Kc2d3+ 31. Kc3 Rxa3
Það var lóðið svartur hefur sjálfsgt
gert sér grein fyrir þvi nú að 31—d2
gengur ekki vegna 32. Hxd2 og hvitur
vinnur peðsendataflið!
32. Kd4 Rbl 33. Kxé4 Rc3 34. Kxd3
Rxa2 35. Kd4 b4 36. Kc4 a5 37. Ha8
Rc3 38. Hx5 Rdl
Bæði peð svarts falla nú á drottn-
ingarvæng hann gripur þvi til
örþrifaráða til þess að gera usla í
peðastöðu hvíts hinum megin en allt
kemur fyrir ekki.
39. Kd3 h5 40. Hb5Rf2+ 41. Kd4 h4
42. h3 Rhl 43. Hxb4 Rg3 44. Hb5
Kh6 45. Ke3Kh5 46. Kf3 Rfl 47. Hb8
Hótar niáli og svartur gafst upp.
Eugenio Vasjúkov
— Margeir Péturs-
son 1/2:1/2
Margeir beitti að þessu sinni
byrjun fátæka mannsins Caró kan
vörninni. Hún þykir vera traust og
upplögð fyrir þann sem er fullkom-
lega sáttur við skiptan hlut. Vasjúkov
reyndi af fremsta megni að knésetja
hinn unga andstæðing sinn en hvorki
gekk né rak. Hann vann að vísu peð
en Margeir náði að blokkera stöðuna
þannig að Vasjúkov komst ekki
áfram. Vel af sér vikið hjá Margeiri.
Walter Browne —
Jón L. Árnason
1/2:1/2
Ekki tókst Browne frekar en
Vasjúkov að vinna sinn unga and-
stæðing. Jón beitti nú í fyrsta sinn á
ævinni hinni gömlu og góðu slavn-
esku vörn. Sjálfsagt heldur ekki i sið-
asta skipti því Amerikaninn komst
ekkert áfram og varð að sætta sig við
jafntefli í drottningarendatafii sem
sumir töldu þó betra fyrir Jón.
Haukur — Helgi 0:1
Þeir Helgi og Haukur tefldu nú
sína fyrstu skák síðan Helgi vann
Hauk i einvigi þeirra um íslands-
meistaratitilinn fyrir tæpum tveim
árum. Helgi vann það einvígi 3 1/2:2
1/2 og þvi var stund hefndarinnar
runnin upp. Haukur skákaði á bS
með biskup i Sikileyjarvörninni,
leikur sem reyndist svo vel gegn Mil-
kunnugur — hefur sjálfsagt búist við
skákinni. Hann sneri tafiinu fljótlega
sér i hag en miðtaflið var þó þrungið
af fiækjum og möguleikum á báða
bóga. Haukur gaf m.a. drottninguna
fyrir tvo hróka en Helgi náði að
koma einu peða sinna niður á g2.
Þetta peð reyndist síðan örlagavaldur
skákarinnar því Helga tókst að not-
færa sér það til hins ítrasta.
Robert Byrne —
Harry Schússler
1/2:1/2
Eins og við sáum i Dagblaðinu i
gær vann Byrne Sosonko örugglega í
endatafli. Hætt er við að sú skák hafi
eitthvað setið í kappanum því ekki
voru liðnir meir en sjö leikir í skák
hans við Schússler þegar hann bauð
fram drottningarkaup. Schussler sem
tefidi Petroffs jafnteflisbyrjun sína
var auðvitað ekki lengi að skipta upp
og hélt sér síðan fast þannig að Byrne
komst ekkert áfram. Jafntefli voru
því sanngjörn úrslit.
Gennandí Sosonko
— Knud Jöran
Helmers 1:0
Mál manna á Loftleiðum var að
hér leiddu saman hesta sina tveir
mestu „teoriuhestar” mótsins. Það
kom því ekki á óvart að upp á
teningnum varð nýjasta tískuaf-
brigðið af drottningarindverskri vörn
þar sem svartur leikur Ba6 í stað hins
hefðbundna Bb7. Skák þeirra varð
því einskonar barátta um það hvor
þeirra kynni meira en þegar eftirfar-
andi staða kom upp var orðið Ijóst
mál að Hollendingurinn Sosonko
hafði unnið þá baráttu:
Sosonko sem hafði hvítt fórnaði
nú drottningunni á ansi laglegan hátt
oglék: 24. Dxf6 og eftir 24. — gxf6
25. Hxe8+ Kh7 gafst Helmers upp
því framhaldið liggur Ijóst fyrir; 26.
He7 D ad libitum 27. Hxb7 Dxb7 28.
Rxd6 fráskák og drottningin fellur.
Sleppi svartur því hins vegar að drepa
aftur á b7 i 27. leik þá hefur hvitur
algera liðsyfirburði fyrir drottning-
una.
Biðskákin
var jaf ntef li
Eins og kom fram i þættinum í gær
átti Jón L. ívið betri biðskák gegn
Kupreitshik. Það kom þó á daginn að
jafntefli i henni voru einu rökréttu
úrslitin. Þáer Jón búinn að gera jafn-
tefli við báða Rússana og hafa skák-
irnar verið svipaðar um margt. Jón
hefur haft þrjú peð gegn tveimur í
hróksendatafli gegn þeim báðum.
Eftir að biðskákinni við Kupreitshik
var lokið i gær sagðist Jón vel hafa
getað sætt sig við að hafa haft jafnt á
peðum á móti öðrum en þá tveim
meira gegn hinum! Við skulum nú
skoða hvernig biðskákin gekk fyrir
sig.
54. Ke2 (biðleikur Jóns) h5 55.
gxh5+ KxhS 56. Kd2 Kh4 57. Kc2
Hc8 + 58. Kd3 Hd8 + 59. Kc3 Hc8 +
60. Kb2 Hb8 61. Hf3 Hb7 62. Kc3
Hc7 + 63. Kd4 Hb7 64. Kc4 Hc7 +
65. Kd5 Hb7 66. Kc5 Hc7+ 67. Kd6
Hb7 68. Ke5 He7+ 69. Kb6 Hc2 70.
b4 Hh2 71. b5 Hxh3 72. Hxh3 Kxh3
73. Kc6 g4 74. b6
Hér bauð rússinn svo jafntefii sem
Jón þáði. Peðin koma jafnt upp og
verða að drottningum.
Úrslit
4. umferðar
Torre — Miles 1/2—1/2
Haukur — Helgi 0—1
Vasjúkov — Margeir 1/2—1/2
Kupreitshik — Guðmundur I —0
Browne — JónL. 1/2—1/2
Byme — Schússler 1/2—1/2
Sosonko — Helmers 1 —0
/