Dagblaðið - 28.02.1980, Blaðsíða 19

Dagblaðið - 28.02.1980, Blaðsíða 19
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 28. FEBRÚAR 1980. 19 Menningarverðlaun DB: Mikill fjöldi at- kvæða hefur borizt Þeir Friðrik Þ. Friðriksson og Þorleifur Friðriksson taka við Menningarverðlaunum DB fyrir myndlist úr hendi Aðalsteins Ingðlfssonar, menningarritstjóra DB. Verð- launin hlutu þeir fyrir rekstur Gallcrí Suðurgötu 7 og blaðaútgáfu, „sem hvorutvcggja hafa hrint af stað umræðum um eðli og gildi myndlistar i nútimasamfélagi” eins og sagði I áliti dómnefndar. Nú fer að styttast i afhendingu Menningarverðlauna DB, en hún fer fram föstudaginn 14. marz I Hótel Holti að viðstöddum fulltrúum hinna ýmsu listafélaga landsins og öðrum góðum gestum. Jónas Kristjánsson rit- stjóri DB og valinkunnir matsveinar staðarins munu velja saman sérstakan matseðil og vín. Skilafrestur í atkvæða- greiðslunni vegna Menningarverðlaun- anna rennur út 5. marz, en þó verður tekið á móti seðlum sem póstiagðir eru þann dag. Þegar hefur borizt mikill fjöldi atkvæðaseðla og vonum við að sem flestir noti tækifærið og láti í ljós skoðun sina á afreksfólki innan is- lenzkrar menningar. Dómnefndir starfa nú af fullum krafti og vilja gjarnan fá eins margar ábendingar og kostur er á. Það skal ítrekað að ekki er nauðsynlegt að fylla út alla seðlana, nema fólk hafi á því áhuga. Nóg er að Seðlarnir verða svo prentaðir í síðasta senda einn seðil fyrir þá grein sem les- sinn mánudaginn 3. marz. andinn telur sig hafa mestan áhuga á. -AI t fyrra hannaði Jónína Guðnadóttir ieirkerasmiður verðlaunagripi DB, en I ár tók Haukur Dór að sér það verk. Eins og sjá má eru þetta veglegustu grípir. Meðan Jónína hélt sig við skálarformið afréð Haukur Dór aö vinna sérstaka veggskúlptúra og getur hér að líta einn þeirra. UM SÓLINA, VORIÐ 0G... Tónleikar Tónlistarfólagsins ( Austurbœjarbiói 23. febrúar. Flytjendur: Sigriður Ella Magnúsdóttir söng- kona og dr. Erik Werba píanóleikari. Á efnisskrá: lög eftir Mozart, Schubert, Schu- mann, Mendolssohn, Brahms, Grieg og Dvorák. Tónleikar þessir voru á skránni fyrr í vetur en þar eð Sigríður Ella var löglega forfölluð á þeim tíma urðu þeir ekki haldnir fyrr en nú. Ekki er mér grunlaust um að þessi frestun hafi verið jákvæð, að minnsta kosti ef litið er á lagavalið. Öllu vorlegri dagskrá getur vart að heyra, nema ef til vill i Rikisútvarpinu á sumardag- inn fyrsta. Sem hver maður kann Þarna ómuðu þau hvert af öðru vorljóðin, Komm lieber Mai, Fruhlingsglaube, Im Frúnling, Erstes Grún Frúhlingslied og svo fi mve>íis. Þetta var Sigríði Ellu likt, að velja er öll þessi vorljóð. Og svo eru þetta allt saman lög sem allur almenningur kann og syngur, meira að segja við ís- lensk ljóð og telur jafnvel þjóðlög. Nú mætti spyrja sem svo, hvað er hún að vilja með að syngja, á opin- berum hljómleikum, lög sem hvert skólabarn er látið læra, og þykir ekki mikill vandi að komast skammlaust í gegnum? Hvað ræður sliku vali? — Ég held að þetta hafi allt komið af sjálfu sér. í fyrsta lagi fær hún til liðs við sig einhvern mesta meistara smá- lagsins, sem til er, dr. Erik Werba. í öðru lagi þekkir dr. Werba vel til getu Sigríðar Ellu og treystir henni sem sagt til að flytja með sér svo við- kvæma söngskrá. Virðingarvottur Það felst í þvi ákveðinn virðingar- vottur við söngvara að fá dr. Werba sem undirleikara en í þvi felst tvöföld virðing að fá hann til að flytja með sér efnisskrá hins makalausa einfald- leika, eins og þessa. En hver varð svo útkoman úr öllu þessu? — Jú, hér gat að hlýða ein hverja þá Ijúfustu söngskemmtun sem heyrst hefur á landinu á þessari vertíð að minnsta kosti. Sigriður Ella sýndi, svo um munaði, að ekki þarf að velja sér verkefni sem einungis eru á meðfæri lærðra söngvara til þess að bjóða upp ágóðan söng. Hún fer ein- staklega vel með texta og radd- og tónöryggi hennar er harla gott. Hvernig getur söngvari annars annað en sungið vel, þegar hann hefur annan eins undirleikara og dr. Werba? — Þegar dr. Werba er sestur við píanóið eru hann og hljóðfærið eitt og manni flýgur í hug hvort hann hefi yfirleitt stigið upp af pianóstóln- um síðustu áratugina. Maðurinn hefur líka þessa makalausu náttúru að laga leik sinn að þeim sem hann leikur með og að fá fram allar bestu hliðar söngvarans. Nýir strengir Þau Sigríður Ella og dr. Werba slógu á nýja strengi í sumum laganna, einkum í Jeg elsker dig, eftir Grieg. Við erum orðin svo vön þvi að heyra þetta lag flutt af yfirhlöðnum suð- rænum tilfinningahita að það var næstum eins og að hlýða á nýtt lag að heyra það sungið með hreinum nor- rænum trega og þeim, nánast óvænta, einfaldleik sem þau gæddu þetta vinsæla lag Griegs. Eitt vantaði þó En eitt fannst mér illilega vanta á söngskránni, nefnilega islenskt lag. Sigríður Ella hefur ætíð verið ófeimin við að syngja lög sinnar ætt- jarðar á erlendri grund. Hví skyldi hún vera feimin við að syngja þau heima? En við þessu sá öðlingurinn dr. Werba. Hann hundsaði, með réttu, óskir utan úr sal og valdi sjálfur sin eigin óskalög. Og fram streymdu þau, Draumalandið hans Bjarna, Nótt Sigfúsar, Vorvindar Kaldalóns og síðast en ekki síst, Litla kvæðið um litlu hjónin. Ég minnist þess vart að hafa heyrt þetta smellna lag Páls, við kvæði Davíðs, flutt af jafn mikilli kankvisi. Aukalagasyrp- unni lauk svo með Zueignung Richards Strauss og þar með settu þau punktinn aftan við þessa stór- kostlegu tónleika. Mér flaug hún svo i itug.þ gar cg gekk ánægður út, þessi hending úr visunni um söngvarann: ,,Um sólina vorið og . . . - EM BÓKMENNTIR Höf:......... Bók:......... Skýringar: Nafnnúmer sendanda:............ Sendist: Menningarverðlaun DB-1980 Dagblaðið Síðumúla 12. Fyrir 5. mars. TÓNLIST Tónlistarmaður/ menn:....... Skýringar: Nafnnúmer sendanda:............ Sendist: Menningarverðlaun DB-1980 Dagblaðið Siðumúla 12. Fyrir 5. mars. LEIKLIST Listamaður/ menn: Leikverk MYNDLIST Listamaður/ hópur: BYGGINGARLIST Arkitekt/ arkitektastofa: starfsemi: Bvnninn: Skýringar: Skýringar: Skýringar • Nafnnúmer Nafnnúmer Nafnnúmer sendanda: sendanda: sendanda: Sendist: Sendist: Sendist: Menningarverðlaun Menningarverðlaun Menningarverðlaun DB-1980 DB-1980 DB-1980 Dagblaðið Síðumúla 12. Dagblaðið Síðumúla 12. Dagblaðið Siðumúla 12. Fyrir 5. mars. Fyrir 5. mars. Fyrir 5. mars.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.