Dagblaðið - 30.05.1980, Side 13
Nýja þotan mun
sveima
yf ir Hvaleyrinni
Þotukeppnin i golfi verður haldin á Hvaleyrarvell-
inum um helgina og hefst kl. 9 i fyrramáiið. Þotu-
keppnin er eitt af stærstu golfmótum sumarsins og
setið hefur verið mikil spenna um efstu sætin. Leikn-
ar verða 36 holur með og án forgjafar og ekki þarf
að taka það fram að keppnin gefur stig til landsliðs.
Verðlaun i keppninni eru að vanda eínkar glæsi-
leg, m.a. Skotlandsferð. Er ekki að efa að giæsileg-
ustu verðlaun i íþróttum hérlendis er að finna í
golfinu. Þátttökutilkynningar skuii berast í siðasta
lagi kl. 19 í kvöld i sima 53360 i golfskálanum.
I tilefni dagsins mun nýja Flugleiðaþotan, sem
kemur til landsins i fyrramálið, sveima tvo eða þrjá
aukahringi yfir Hvaleyrarholtsvellinum.
Teiturskoraði
Gautaborg, lið Þorsteins Ólafssonar, sigraði Elfs-
borg á útivelli i 1. deildinni sænsku i gærkvöldi og er
nú efst i deiidinni með 13 stig eftir 8 leiki.
Teitur Þórðarson, sem ekki hefur verið á skot-
skónum til þessa þrátt fyrir að hann hafi sýnt góða
leiki, skoraði nú loks mark og það strax á fyrstu
minútu lciksins. Mark hans tryggði Öster 1—1 jafn-
tefli gegn Norrköping og er Öster nú í 3. sæti með 11
stig. Landskrona, lið Árna Stefánssonar, tapaði illa
á heimavelli gegn Hammarby og er nú i þriðja neðsta
sæti i deildinni.
Ótrúlegir yfirburðir
Indónesíumanna
>\
Indónesíumenn sýndu og sönnuðu yfirburði sína
á heimsmeistaramótinu i badminton f Jakarta i gær.
í karlaflokki voru þaö eingöngu Indónesíumenn sem
komust í undanúrslit.
All-England meistarinn Prakash Padukone frá
Indlandi mátti lúta í lægra haldi fyrir Indónesiu-
manninum Hapyianto 11—15 og 13—15. Hinir
Indónesiumennirnlr sem komust í undanúrslit voru
Liem Swie King sem sigraði Japanann Tsuchida með
yfirburðum 15—1 og 15—2, Luis Pongoh sem lék
sér að Dananum Morten Frost 15—3 og 15—5 og
Rudi Hartono sem burstaði Ray Stevens, Englandi
með 15—1 og 15—3. Af þessum úrslitum sést að
yfirburðir Indónesíumanna í þessari grein eru hreint
og beint ótrúlegir.
J
Lena Köppen á
sigurbraut
Danska badmintonstúlkan Lena Köppen, núver-
andi heimsmeistari heldur sinu striki á heims-
meistaramótinu f badminton i Jakarta. í gær sigraði
hún Sauri Kondo frá Japan örugglega i átta kvenna
úrslitum 11—4 og 11—2. Auk hennar komust i und-
anúrslit þrjár stúlkur frá Indónesu, þær Ivana, Taty
Sumirah og Erawaty. Köppen er nú eini erlcndi
keppandinn sem getur ógnað tvöföldum sigri
Tndónesiumanna á heimsmeistaramótinu.
Frakkarsendaekki
körfuboltalið sitt
Franska ólympfunefndin hafnaði í gær boði um
að senda körfuboltalið á ólympiuleikana i Moskvu í
staðinn fyrir lið Bandaríkjanna og Kanada, sem
munu sem kunnugt er sniðganga leikana.
Franska körfuboltasambandið mótmælti
haröiega þessari ákvörðun ólympfunefndarinnar
frönsku. Ólympiunefndin sagði að franskt
körfuboltalið yrði ekki sent á leikana þar sem það
hefði ekki unnið sér rétt til þátttöku.
Frakkar höfnuðu í 4. sæti í undankeppninni í
sínum riðli. Aðeins þrjár efstu þjóðirnar unnu sér
rétt til þátttöku i Moskvu.
2. deild íkvöld
Þrír leikir fara fram í 2. deild íslandsmótsins í
knattspyrnu i kvöld. ÍBÍ og Haukar eigast við á ísa-
firði. Á Akureyri mætast KA og Þróttur og á
Selfossi mæta heimamenn Fylki. Allir hefjast leik-
irnir kl. 20.
Þá fer fram einn leikur i 3. deild. Óðinn og ÍK
mætast á Melavellinum og hefst sá leikur einnig kl.
20.
ÍR-ingar hyggja á
stórt í Breiðholti
—hafa fengið stórt svæði í Suður-Mjódd undir starfsemi sína
ÍR er stórhuga félag undir forystu
Þóris Lárussonar og hyggst hasla sér
völl i Mjóddinni svonefndu á næstu
árum og flytja alla sína starfsemi
þangað. Félagið boðaði til blaða-
mannafundar f „Greninu” en svo eitir
samkomustaður félagsmanna í
Breiðholtinu. Upphaflega var
húsnæðið fyrirhugaö sem salernis-
aðstaða i verzlunarmiðstöðinni við
Arnarbakka, en ÍR keypti það af
borginni og breytti þvi i félagsaðstöðu.
Ekki er hægt að segja að rýmið þar sé
neitt yfirþyrmandi en þarna hefur
félagið komið sér upp notalegum sama-
stað.
Ekki hefur það gengið átakalaust
fyrir félagið að fá svæði undir starf-
semi sína þar til nú. Árið 1967 fékk ÍR
landsvæði að gjöf frá borgarstjórn en
félagiö átti þá 60 ára afmæli. Þegar var
hafizt handa við að skipuleggja svæðið
en áður en til framkvæmda kom var út-
séð um aö neitt yrði úr neinu þar því
borgin úthlutaði lóðum stíft í næsta ná-
grenni og var farið að þrengja verulega
aðsvæðinu.
Síðan var áætlað að félagið fengi
svæði í Breiðholti III. Þá kom Leiknir
til sögunnar og fékk aðstöðu þar
uppfrá. ÍR var því enn á hrakhólum
með svæði en fékk loks vilyrði fyrir
svæði í Suður-Mjóddinni. Var það á-
kveðið í borgarráði 26. júní í fyrra. Var
strax hafizt handa um að teikna upp
svæðið og er því verki fyrir nokkru
lokið. Blaðamenn fengu uppdrátt af
svæðinu og er greinilegt að hugvitssemi
og notagildi hefur verið í hávegum haft
við hönnun svæðisins.
Svæðið var samþykkt í byggingar-
nefnd 8. maí sl. og munu framkvæmdir
hefjast innan skamms. Gert er ráð fyrir
að heildarkostnaður við uppbyggingu
fyrsta áfanga verði um 275 milljónir.
Þar af greiðir ÍR 20% en ríki og borg
80%. í ár hafa fengizt 60 milljónir til
framkvæmda og ÍR-ingar gera sér
vonir um að hægt verði að vígja svæðið
á 75 ára afmæli félagsins 1982. Á
svæðinu er gert ráð fyrir tveimur knatt-
spyrnuvöllum, malar- og grasvelli. Þá
er og handknattleiksvöllur svo og
körfuknattleiksvöllur. Þá er aðstaða!
fyrir frjáisar íþróttir, svo og íþróttahús
og búningsaðstaða.
Það er því ekki með góðu móti hægt
að segja annað en ÍR-ingar ætli sér'
stóran hlut. Knattspyrnan hefur átt
mjög vaxandi fylgi að fagna innan
félagsins og er nú svo komið að sú deild
er hvað virkust í leik og starfi. Sl.
sumar eignaðist ÍR sina fyrstu íslands-
meistara í greininni en það var 5.;
flokkur félagsins sem sigraði í sinum
fiokki. Aðrar deildir félagsins starfa
einnig með miklum blóma, en sem fyrr
hefur aðstöðuleysi verið ÍR fjötur um
fót. Meö þessum framkvæmdum ætti
jþó að rætast verulega þar úr og verður
gaman að fylgjast með framvindu
mála. -SSv. j
Jens Sumarliðason: Höfum aðeins
farið fram á venjulega dýrtfðaraukn-
ingu.
íslandsmet Helgu eini
Ijösi punkturinn
—slakur árangur á EÓP-mótinu
Killanin bjartsýnn
Killanin lávaróur formaður alþjóðlegu
ólympíunefndarinnar sagöi á blaðamannafundi í
Dublin i gær, að hann sæi ekki, hvers vegna
ólympiuleikarnir i Moskvu gætu ekki heppnast.
„Þátttökuþjóðirnar eru mun fleiri en ég átti von
á,” sagði hann. Killanin sagði, að 85 þjóðir hefðu
þegar gefið jákvætt svar varðandi þátttöku á
leikjunum, 26 þjóðir hefðu svarað neitandi og 30
þjóðir hefðu ekki svarað, þar á meöal 10, sem hafa
gefiö í skyn að þær muni ekki taka þátt i þeim.
Killanin sagði að alþjóða ólympíunefndin reri
nú að þvi öllum árum aö losa ólympíuleika fram-
tiðarinnar undan áhrifavaldi stjórnmálanna. Þannig
hefur nefndin nú til athugunar tilboð Grikkja um að
ólympiuleikár framtfðarinnar verði jafnan haldnir í
Grikklandi, líkt og hinir fornu leikar.
„Ég væri síðastur mann til að halda því fram, að
stjórnmálum og íþróttum sé ekki blandað saman. Ég
vil hins vegar mótmæla þegar iþróttirnar eru notaðir
i pólitískum tilgangi þegar völ er á öðrum leiðum,”
sagði Killanin.
Sigurður Halldórsson skorar mark f unglingalandsleiknum gegn Norðmönnum á dögunum. Með frábærri frammistöðu sinni
hefur Sigurður væntanlega tryggt sér stöðu i A-landsliðinu. -DB-mynd Sigurður Þorri. •
íslandsmet hinnar bráðefnilegu
Helgu Halldórsdóttur úr KR í 300
metra hlaupi var eini Ijósi punkturinn á
EÓP-mótinu i gærkvöldi. Helga hljóp
þessa vegalengd á 40,1 sekúndu en
eldra metið var 41,4 sek. Helga sigraði
einnig i langstökki og 100 metra grinda-
hlaupi. í langstökkinu stökk hún 5,64
metra og grindahlaupið hljóp hún á
14,2 sekúndum. íslandsmetið í 300
metra hlaupi átti áður Ingunn Einars-
dóttir, hin landskunna frjálsiþrótta-
kona frá Akureyri.
Sigurður Einarsson náði næstbezta
árangri íslendings í spjótkasti frá upp-
hafi. Hann kastaði spjótinu lengst
71,66 metra. Aðeins íslandsmethafinn
STÝRIÐ BR0TNAÐI
0G SIGURINN
FÓR ÚT UM ÞÚHJR
Laugardaginn 24. maí sl. var haldin
siglingakeppni á Fossvogi á vegum
Siglingasambands íslands. Keppni
þessi er liður i punktakeppni SÍL. 12
bátar tóku þátt i keppninni en urðu
nokkrir frá að hverfa þar sem allhvasst
var og ultu nokkrir bátar.
í upphafi keppninnar tóku forustu
Pál Hreinsson og Guðmundur Jón
Björgvinsson á Fireball, en Rúnar
Steinsen fylgdí fast á eftir á Laser bát.
Páll og Gunnar voru komnir með af-
gerandi forustu að þvi er virtist þegar
að stýrið brotnaði hjá þeim og urðu
þeir að hætta keppni. Smátt og smátt
saxaði Rúnar Steinsen á forskotið og
kom langfyrstur i mark. Keppnin var
mjög skemmtileg og spennandi brautin
var lögð af Brynjari Valdimarssyni for-
manni SÍL en hann var keppnisstjóri. '
Úrslit urðu þessi:
Nafn Bátur tjmr.tlmi
1. Rúnar Steinsen, Vmi Laser 33,11
2. Gunnar Guðmson, Vogi Topper 33,85
3. Bjarni Hanness., Vogi Vayferrer 34,07
Óskar Jakobsson hefur kastað lengra.
Sigurður er einn þeirra íslendinga er
dvalið hafa við æfingar í Bandaríkjun-
um i vetur og árangurinn lætur ekki á
sér standa.
Hinn síungi Valbjörn Þorláksson
sigraði í 110 metra grindahlaupi á
ágætum tíma 15,5 sek. Hins vegar
ætlaði hann sér um of í stangarstökk-
inu, hóf keppni á 4,35 metrum og felldi
í öllum tilraunum. Sigurvegari í
stangarstökki varð Kristján Gissurar-
son. Hann stökk 4,20 metra. í 100
metra hlaupi sigraði Sigurður Sigurðar-
son, Ármanni á 10,7 sek.
Árangur í öðrum greinum var mjög
slakur og fjarvera okkar beztu frjáls-
íþróttamanna spillti mjög fyrir mótinu.
Þorsteinn Þórsson sigraði í kringlú-
kasti með 41,72 metra kasti og Magnús
Haraldsson sigraði í 1500 metra hlaupi
á4:27,0mínútum.
Eins og DB hefur áður greint frá eru
flestir af okkar beztu frjálsiþrótta-
mönnum enn við æfingar í Bandaríkj-
unum. Má þar nefna kúluvarparana
Hrein Halldórsson og Óskar Jakobs-
son, tugþrautarmennina Elias Sveins-
son, Þráin Hafsteinsson og Stefán
Hallgrímsson og hlauparann Gunnar
Pál Jóakimsson. Von er á flestum
þeirra til landsins fyrir helgina og munu
þeir væntanlega verða meðal keppenda
á Meistaramóti Islands í frjálsum
íþróttum.
ENGIN SVÖR FRA ÚTVARPINU
0G LÝSING ÞVÍ ÓSENNILEG
„Við hörmum það mjög ef ekki
getur orðið af þessum lýsingum. En þar
er ekki við okkur að sakast,” sagði
Jens Sumarliðason, varaformaður KSÍ,
á fundi með fréttamönnum í gær. Þar
kom fram að allt er í óvissu um hvort
útvarpað og sjónvarpað verður frá
landsleiknum á mánudagskvöld vegna
þess að samningar hafa ekki enn tekizt
milli KSÍ og ríkisútvarpsins.
„Við höfum ekki farið fram á annað
en venjulega dýrtíðaraukningu. Við
erum ekki að biðja um neina
hækkun,” sagði Jens. Á fundinum
kom einnig fram gagnrýni á að erfitt
hefði reynzt að fá forráðamenn út-
varpsins til að ræða þetta mál.
Rikisútvarpið mun hafa áhuga á að
gera heildarsamning við íþróttasam-
band íslands en Knattspyrnusam-
bandið er ekki til viðtals um það. „Við
töldum eðlilegt, að við semdum fyrir
okkur sjálfa. Við höfum okkar eigin
fjárhag og eigin rekstur,” sagði Jens.
„Við förum aðeins fram á sanngjarnar
greiðslur, og við viljum koma til móts
ivið þá sem ekki geta séð landsleikina,”
sagði Jens.
Aðspurður sagði hann að sú upphæð
sem farið væri fram á væri 600 þúsund
frá útvarpinu og 2,1 milljón frá sjón-
varpinu fyrir hvern leik. Þar væri um
að ræða 50% hækkun frá því í fyrra.
Eins og íþróttaáhugamönnum er
kunnugt hefur knattspyrnuleikjum
ekki verið lýst í útvarpi að undanförnu.
Jens sagði að í byrjun árs hafi for-
manni KSÍ verið falið að ræða við
Ríkisútvarpið um þetta mál. Það hefði
síðan dregizt að hægt væri að semja um
málið þar til ÍSÍ var komið í spilið með
ósk sína um heildarsamning við
tþróttahreyfinguna. Útvarpið hafði
áhuga á slíkum samningi en ekki KSf.
Talsmenn KSÍ sögðu á fundinum, að
ekki hefði enn fengizt skriflegt svar frá
Rikisútvarpinu um þetta mál og munn-
leg svör talsmanna útvarpsins væru á
þá leið ,,að erfitt væri að ræða málið”.
Vonir standa þó til að umræður geti
farið fram á mánudag en hvort þær
'leiða til þess að útvarpað og sjónvarpað
verði frá leiknum er alveg óvíst.
Einn sigur
ogfimmtántöp
íslendingar taka nú í fjórða sinn þátt
í heimsmeistarakeppninni í knatt-
spyrnu. Árið 1957 voru íslendingar i
riðli með Belgum og Frökkum, árið
1972 og 73 voru íslendingar i riðli með
Belgíu, Hollandi og Noregi og árin
1976 og 77 voru andstæðingar okkar
manna Norður-írar, Belgar og
Frakkar.
Það er skemmst frá þvi að segja, að
íslendingar hafa aðeins unnið einn
þessara leikja, gegn Norður-írum á
Laugardalsvelli 1977. Fimmtán leikir
hafa tapazt og markatalan er 10 mörk
gegn 67.
Nú þegar íslendingar taka þátt í
keppninni i fjórða sinn eru andstæð-
ingar okkar ekki af lakara taginu
fremur en áður. Við leikum nú í 3. riðli
ásamt Tékkum, Sovétmönnum,
Tyrkjum og Wales.
„m EIGUM AÐ GETA
UNNIÐ ÞENNAN LEIK”
—sagði Guðni Kjartansson landsliðsþjálfari
er landsliðshópurinn gegn Wales var tilkynntur í gær
„Það er min skoðun, að við eigum
að geta unnið þennan leik,” sagði
Guðni Kjartansson, landsliðsþjálfari í
hádegisverðarboði sem stjórn KSÍ
boðaði blaðamenn til i gær.
Á fundinum tilkynnti Helgi
Daníelsson, formaður landsliðs-
nefndar um val landsliðsins, sem mætir
landsliði Walcs á mánudagskvöld. Þeir
sexlán leikmenn er munu skipa liðið
eru eftirtaldir: Þorsteinn Ólafsson,
Gautaborg (13), Guðmundur Baldurs-
son, Fram (0), Atli Eðvaldsson, Val
(17), Arnór Guðjohnsen, Lokeren (2),
Árni Sveinsson, ÍA (25), Dýri
Guðmundsson, Val (4), Janus
Guðlaugsson, Fortuna Köln (14), Karl
Þórðarson, (La I.ouviere (9),
Guðmundur Þorbjörnsson, Val (17),
Pétur Pétursson, Feyenoord (9), Ólafur
Júliusson, ÍBK (15), Marteinn Geirs-
son, Fram (45), Sævar Jónsson, Val
(0), Pétur Ormslev, Fram (1), Sigurður
Sterkt landslið Wales
—vann Englendinga 4-1 fyrír skömmu
Landslið Wales er hingað kemur
vakti mikla athygli fyrir skömmu er
það lagði landslið Englendinga að velli
með fjórum mörkum gegn einu, en
tapaði síðan fyrir Skotum 0—1 og írum
0—1.
Liðið er skipað eftirtöldum leik-
mönnum: David Davies (Wrexham),
Joey Jones (Wrexham), David Jones
(Norwich City), Paul Price (Luton
Town), Brian Flynn (Leeds United),
Peter Nicholas (Crystal Palace), Terry
Yorath (Tottenham), Mike Thomas
fyrirliði (Man. Utd.) David Giles
(Swansea City), Ian Walsh (Crystal
Palace), Martin Thomas (Bristol
Rovers), Leighton James (Swansea)
Leighton Phillips (SwanséáJ, Byron
Stevenson (Leeds), Carl Harris (Leeds)
og Gordon Davies (Fulham).
Samskipti íslands og Wales hafa
ekki verið mikil á knattspyrnuvellinum
fram að þessu. Árið 1977 léku þjóð-
irnar tvo landsleiki í undankeppni
Evrópukeppni unglingalandsliða (16—
18ára)og lauk þeim þannig að jafntefli
varð í Reykjavík 1—1, en í Wales
sigraði ísland með 1—0.
Micky Thomas, Manch. Utd., er fyrir-
liði velska liðsins og jafnframt
kunnasti leikmaður þess.
Árið 1966 kom hingað til lands
áhugamannalandslið Wales og gerði
jafntefli við landslið Íslands 3—3 á
Laugardalsvellinum. Mörk fslands í
þeim leik gerðu Hermann Gunnarsson,
Jón Jóhannesson og núverandi for-
maður KSÍ Ellert B. Schram.
Að þessuisinni mætum við atvinnu-
mönnum Wales sem flestir leika með
sterkum liðum í Englandi.
Halldórsson tA (0), Trausti Haralds-
son, Fram (4).
Valið á sextán manna hópnum
jkemur ekki á óvart nema að því leyti,
jað Ólafur Júlíusson skyldi valinn í
stað Alberts Guðmundssonar.
-Aðspurður, hvað ráðið hefði þvi
vali sagði Guðni, að það hefði verið
reynsla Ölafs Júlíussonar, en hann hef-
jur leikið 15 landsleiki auk fjölda
jEvrópuleikja með Keflavík.
Tveir leikmenn sem hefðu verið
isjálfsagðir í landsliðið gátu ekki leikið.
Ásgeir Sigurvinsson á við meiðsli að
stríða og Teitur Þórðarson fékk ekki frí
frá félagi sinu öster í Svíþjóð. Ekki
þarf að taka fram að fjarvera Ásgeirs
hlýtur að veikja íslenzka liðið.
Guðni Kjartansson vildi ekki greina
frá þvi á fundinum hvaða ellefu
leikmenn hefja leikinn en DB telur
'liklegast að það verði eftirtaldir 11
leikmenn: Þorsteinn, Janus, Marteinn,
Sigurður, Trausti, Atli, Karl,
Guðmundur, Ólafur, Pétur og Arnór.
Leikaðferðin sem notuð verður i
leiknum er 4—4—2 þar sem atvinnu-
mennirnir ungu Pétur og Arnór verða
væntanlega fremstu menn.
Íslenzki landsliðshópurinn verður á
æfingu i Laugardal kl. 18 i dag og
á morgun kl. 14 en síðan verður haldið
til Þingvalla og dvalið þar yfir helgina.
Á sunnudaginn verður skotizt á Laug-
iarvatn og þar haldin létt æfingkl. 14.
Liðið kemur siðan til Reykjavíkur
síðdegis á mánudag. -GAJ-
Staðan í 1. deild
Staðan i 1. deild að loknum jafn-
teflísleik Vikings og FH 2—2 i fyrra-
kvöld
Valur 3 3 0 0 10—2 6
Fram 3 3 0 0 4—0 6
Akranes 3 2 0 1 3—3 4
Keflavik 3 111 3—3 3
Breiðablik 2 10 1 4—4 2
Þróttur 3 10 2 1—2 2
Vikingur 3 0 2 1 3—4 2
KR 3 10 2 1—4 2
FH 3 0 1 2 3—8 1
ÍBV 2 0 0 2 1—3 0
MARTEINN SETUR
LANDSLEIKJAMET
Marteinn Geirsson, Fram mun í
iandsleiknum á mánudagskvöld setja
nýtt landsleikjamet. Hann hefur þegar
leikið 45 landsleiki. Það hefur Matthías
Hallgrímsson einnig gert. Leiki
Marteinn landsleikinn gegn Wales sem
ekki er að efa verður hann fyrstur
íslendinga til að leika 46 landsleiki.
Aðrir sem leikið hafa yfir 30 lands-
leiki eru: Guðgeir Leifsson (39), Rík-
harður Jónsson (33), Jóhannes
Eðvaldsson (32), Teitur Þórðarson (32)
Guðni Kjartansson (31) og Ólafur
Sigurvinsson (30).
Flest mörk í landsleikjum hafa eflir-
taldir skorað: Ríkharður Jónsson 17,
Matthías Hallgrímsson 11, Þórður
Þórðarson 9, Teitur Þórðarson 7,
Ellert Schram 6 og Hermann Gunnars-
son6. -GAJ.