Dagblaðið - 12.09.1980, Page 4

Dagblaðið - 12.09.1980, Page 4
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 12. SEPTEMBER 1980. Lftrinn af gosinu á 4.737 á dansleikjum á Húsavík Ölsalan á að greiða ræstingu, kaup afgreiðslufólksins, dúkaþvott og flösku- og öskubakkabrot! Mikil umræða hefur undanfarið verið um hve vöruflutningar séu mik- ill [láttur í hærra vöruverði úti á landi. Ýmislegt annað getur einnig orðið til þess að hækka þar vöruverð, svo sent eins og íbúarnir sjálfir. í Víkurblaðinu sem gefið er út á Húsa- vík er sagt frá því að á dansleikjum í Félagsheimilinu kosti ein kókflaska 900 kr. í blaðinu er reiknað út að þarna leggi Félagsheimilið 479,%% á hverja 19 cl flösku, miðað við að hótelið kaupi hverja flösku á 151,83 kr. og greiði síðan af henni söluskatt. Rætt er við Ólaf Skúlason hótel- stjóra á Húsavík sem segir að ölsalan hafi hingað til verið rekin með tapi! Reiknað hafi verið út að hver maður keypti að jafnaði tæplega eina flösku. Segir í blaðinu að margir blandi brennivínið með vatni og aðrir koma með kók með sér. Ólafur sagði ennfremur að eftir dansleikjahald mætti gjarnan sjá mikið af tómum gosdrykkjaflöskum i salnum. Reiknað er með því að gosdrykkja- salan eigi að greiða ræstingu á saln- um, kaup afgreiðslufólksins, þvotta á dúkum og einnig flösku- og ösku- bakkabrot. Læðupokaháttur og slæm vínmenning í Víkurblaðinu bendir Ólafur hótelstjóri á hina slæmu vinmenn- ingu þar sem menn eru að læðupok- ast með drykkjarföngin. Benti hann á að hið eina raunhæfa sé að leyfa vín- veitingar á almennunt dansleikjum. Víkurblaðið varpar fram þeirri spurningu hvort hið háa gosverð dragi ekki úr aðgangi á dansleiki i Félagsheimilinu og hvort Félagsheim- ilið verði hreinlega ekki af miklum tekjum vegna þess. ,,Alla vega eru margir sem myndu heykjast á því að borga 4.737 kr. fyrir litrann af kóki, en það er verðið sem greitt er fyrir það á dansleik i Félagsheimilinu á Húsavík,” segir í Víkurblaðinu. -A.Bj. Hótelstjórinn segir I greininni i Vikur- blaðinu að ölsalan hafi verið rekin með tapi. Menn virðast ckki aðeins smygla áfengi inn á böllin heldur einnig gos- drvkkjunt. Þar má jafnan finna margar tómar gosflöskur þegar böllunum lýkur. Væri ekki tilvalið fyrir hótelið að koma þessum tómu flöskum i verð, — og draga þannig úr tapinu á gos- drykkjasölunni! Daninn sem haldið var upp á fimm ára afmœli Danhlaðsins á Heimilissýninn- unni I Launardalshull með mörg þús- und manna tertu átti umsjðnarmaður Neytendasiðunnar einnig afmœli. Sam- starfsfðlk I sýninyardeildinnifierði um- sjðnarmanni fnrkunnarfayran pnstu- linsfunl skreyttan með þurrkuðum islenzkum jurtum, frá Binna l Blðmum ny ávöxtum. Á myndinni eru, frá vinstri Anna Bjarnasnn með afmœlis- yjnfina, Halla Jðnsdóttir, Gauja Siyriður Karísdðttir, Rósa Ólafsdðttir, Herdls Siirensen, Dðra Stefánsdðttir of; Erna V. Inyðlfsdðttir. DB-mynd Bjarnleifur. Heillaóskir Neytendasamtakanna Formaður Neytendasamtakanna, Reynir Armannsson, kom í fimm ára afmœli Dagblaðsins sem haldið var á sýningunni í Laugardalshöllinni. Færði hann blaðinu og umsjónarmanni Neytendasíð- unnar hamingjuóskir í tilefni af afmælinu ásamt fallegum blómvendi. Umsjónarmaður Neytenda- síðunnar, Anna Bjarnason, tekur hér við hamingjuóskum Reynis Ármannssonar. Þau eru um- kringd af nokkrum starfsmönnum Dagblaðsins. DB-mynd Bjarnleifur. Þessi ungi snáði átti fmm ára afmœli 7. september, eins og DB. Hann heimsðtti okkur I sýningardeild DB á heimilissýningunni. t baksýn má sjá afmœlistertuna sem boðið var upp á. Hvorki meira né minna en á sjöunda þúsund manns fengu af henni vœna sneið. — Því miður láðist að skrifa niður nafn þessa afmœlisbarns í öllu afmælispatinu á sunnudaginn. DB-mynd Bjarnlcifur. - jí f } Fleirí áttu afmæli en DB

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.