Dagblaðið - 12.09.1980, Síða 5
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 12. SEPTEMBER 1980.
5
Fiskbirgðir f rystihús-
anna minnka nú óðum
— Tæp sex þúsund tonn af fiski til Bandaríkjanna með Hofsjökli og Brúarfossi
Hofsjökull fór i fyrrakvöld með
fullfermi af freðfiski áleiðis til
Bandaríkjanna, alls um 4000 tonn. í
gærkvöld fór Brúarfoss síðan utan
með um 1750 tonn.
Að sögn Eyjólfs ísfeld Eyjólfsson-
ar, forstjóra Sölumiðstöðvar hrað-
frystihúsanna, eru freðfiskbirgðirnar
í landinu nú óðum að minnka og
a.m.k. er ekki Iengur um nein pláss-
vandræði að ræða eins og orðið var í
frystihúsum mjög víða um land. Að
því leyti til hefði ástandið mjög batn-
að.
Mjög víða um land var svo komið í
sumar að frystihús voru að því komin
að lokast þar sem allar birgðageymsl-
ur voru að fyllast. Átti þetta ekki sízt
rætur sínar að rekja til sölutregðu á
Bandarikjamarkaði, sem kom í kjöl-
far mikils framboðs af fiski.
-GAJ.
Hofsjökull fór í fyrrakvöld með full-
fermi af freöfiski til Bandaríkjanna og
Brúarfoss hélt utan i gær.
DB-mynd: Sv. Þorni.
Málaferli um dýraspítalann hafin:
PÁLLFÉKK FRESTTIL AÐ ÚTVEGA GÖGN
Mál Dýraspítalans gegn Páli Pálssyni
yfirdýralækni hefur verið tekið til um-
fjöllunar hjá borgardómara. Þann 4.
september mættu lögmenn Dýraspítala
og Páls hjá börgardómara en Páli var
þá veittur frestur til 18. þessa mánaðar
til að skila greinargerð.
I Dýraspítalanum er ennþá starfrækt
hjálparstöð þrátt fyrir að enn eina ferð-
ina sé spítalinn læknislaus. Sigfrið
Þórisdóttir dýrahjúkrunarkona og
Edda Sigurðardóttir sjúkraliði sjá um
aðhlynningu dýranna. Danski dýra-
læknirinn Garbus fór hins vegar héðan
af landi brott í ágústlok eins og skýrt
hefur verið frá í DB. Garbus gafst upp
á að vera hér eftir að íslenzkir dýra-
læknar höfðu hvað eftir annað lagzt
eindregið gegn dvöl hans og reynt að fá
landbúnaðarráðherra til að vísa honum
úr landi. Þrátt fyrir auglýsingu Dvra-
spítalans í vor hefur enginn islenzkur
dýralæknir viljað taka að sér fulla
vinnu við spítalann. Nú stendur hins
vegar til að auglýsa enn eina ferðina til
þess að reyna til þrautar hvort einhver
gefur sig ekki fram.
-DS.
Forsetaframboð Ouð-
laugs Þorvaldssonar:
57 þús.
kr. nagn-
aður
Forsetaframboð Guðlaugs Þor-
valdssonar rikissáttasemjara skilaði
rúmlega 57 þús. kr. hagnaði sam-
kvæmt uppgjöri fjármálanefndar
stuðningsmanna hans.
Heildarkostnaður vegna fram-
boðsins er kr. 43.364.075. Stærstu
gjaldaliðirnir eru auglýsingar 14.8
milljónir og útgáfukostnaður 9.6
milljónir. Rekstur kosningaskrifsjofa
kostaði Guðlaugsmenn 6.2 milljónir
kr.
Tekjur af happdrætti voru 22.8
milljónir og frjáls framlög námu 20.6
milljónum. Tekjuafgangurinn var
sem fyrr segir 57 þús. kr. þegar upp
var staðið.
í fjármálanefnd Guðlaugsmanna
sátu Erling Aspelund, Sigmundur
Jónsson, Óskar Einarsson, Örn Mar-
ínósson og Steinar Berg Björnsson.
-ARH.
SKIPlUTGgRB RlKISIN$j
Ms. Coaster Emmy
fer frá Reykjavik 16. september
vestur um land til Húsavíkur og
snýr þar við.
m/s Baldur
fer frá Reykjavik 16. september til
Patreksfjarðar, Þingeyrar og
Breiðafjarðarhafna.
m/s Esja
fer frá Revkjavík 18. september
austur um land i hringferð.
Viðkomur samkvæmt áætlun.
NOTAÐIR
VARAH LUTIR
í flestar gerðir bifreiða
Öpið 9-7
laugardaga kl. 10-3
Opið í hádeginu
Sendum um a//t /and
BÍLAPARTASALAN
. .
Höfðatúni 10
Sími: 11397 og 26763