Dagblaðið - 12.09.1980, Síða 24
Fjárframlög í tímabundið
Atlantshafsf lug Flugleiða
Lausn á Flugleiðamálinu í sjónmáli:
— Krafizt tryggingar á vinnufriði
„Fyrir verður að liggja örugg vitn-
eskja um það hverju ríkissjóður vill
hætta, hvað Flugleiðamenn vilja
sjálfir og hver er afstaða alls starfs-
liðs fyrirtækisins,” sagði Steingrímur
Hermannsson samgönguráðherra í
viðtali við DB í morgun. Hann var
spurður að þvi hvort hann teldi sig
hafa nægilegt veganesti til viðræðna
við Luxemborgarmenn um vanda
Flugleiða hf.
Ráðherra tók því ekki fjarri að
þokazt hefði i átt til lausnar vandans
en ofangreinda þætti þyrfti að af-
marka betur en gert hefði verið.
Samkvæmt heimildum DB er talið
að meira þurfi til að koma en að
breyta lausaskuldum Flugleiða hf. í
föst lán, auk venjubundinna lána-
fyrirgreiðslna. Atlantshafsflug Flug-
leiða er rekið með verulegu tapi. Nú
mun svo komið að ekki er greitt
meira fyrir farmiðann en sem nemur
olíukostnaði eða I09dollarar á hvern
farþega aðra leið.
Við athugun á Flugleiðadæminu
hafa samskipti við launþegasamtök
komizt mjög i sviðsljósið. Vegna
vinnudeilna sem stundum stafa bein-
línis af innbyrðis ósamstöðu starfs-
liðs Flugleiða, hefur rekstur fyrirtæk-
isins ekki haft starfsfrið eitt einasta
ár í allri sögu þess.
Einn þeirra kosta sem rætt er um
til lausnar er tímabundinn samningur
um Atlantshafsflug Flugleiða. Það
skilyrði yrði þó sett að með samning-
um og loforði við allt starfsfólk fyrir-
tækisins verði Flugleiðum tryggður
vinnufriður til sama tíma. Til rök-
stuðnings þessari kröfu á hendur
starfsfólki er bent á vinnustöðvanir
tuga launþegasamtaka þar sem
verkalýðsfélög starfsmanna Flugleiða
hafa verið í fararbroddi undanfarin
ár, beint eða óbeint. Má þar nefna
Félag Loftleiðaflugmanna, Félag ís-
lenzkra atvinnuflugmanna, Flug-
freyjufélagið, flugumsjónarmenn,
verzlunarmannafélög, verkstjórafé-
lag, Dagsbrún, Einingu á Akureyri,
matreiðslumenn, járniðnaðarmenn,
iðjufólk, verkakonur, rikisstarfs-
menn og að ótöldum starfsmönnum
gestamóttöku Loftleiðahótelsins árið
1977. -BS/ÓG.
MORG ERU VITIN AÐ VARAST
Mörg eru vitin aó varast og margar eru gryfjurnar sem hægt er að lenda i. Þetta við gryfjukantinn, heldur lenti bíllinn ofan i gryfjunni, eins og honum varð þangað
sannaðist illilega í morgun þegar einn af viðskiptavinum smurstöðvar Shell vjð lengst komið. Talsverðar skentmdir urðu á vinstri hlið bílsins.
Suðurlandsbraut tetlaði að fá bíi sinn smurðan. Hjólin fórn ekki sitt hvorum megin DB mynd Sveinn.
Kjartan Gunnarsson ráðinn framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins:
STIÓRN SUS fTREKAR
GAGNRÝNINA Á GEIR
— en lofar að vinna heils hugar með nýja framkvæmdastjoranum
,,Á stjórnarfundi í Sambandi
ungra sjájfstæðisrhanna að Idkiium
miðstjórnarfundi Siajrstæfjisjl’okks-
ins i gær bar jjessí Jóhannsdóttir upp
tiljögu um fordæmingu á ájykt'un
frainkvæmdastjórnar SUS þar sem
gagnrýnd var meðferð Geirs Fjaji-
grímssonar á framkvæmdastjóramáJ-
inu. jjjjaga gessíar var fejjd með 12
atkvæð.um gegn 1. Var síðan sam-
þykkf tjfiagá u;n réttmæti jyrri álýjti-
unar franijcvæ.mdastjórnar um ráðn-
ingu jvjartans Gunnarssonar, en jafn-
jframt lýst vfir aó stjórn SUS muni
vinna áf' éiritiúg méð nýja frárti-
kvæmdastjörárium,”' sagði Jón
Magnússóri, formaður SUS, i
morgun.
,,f májj Geirs j-jajjgrimssonar for-
manns á mjð.stjórnárfundimnn var
sláðjesf aþ til fárra manna var leilað
unj a.ð jaka starfið að sér.”
Aö sögn Jóns dreifði Geir Hall-
grímsson undirskrii'tajista i lok fund-
arins þar sem 15 ungir sjálfstæðis-
menn höfðu skrifað nöfn sín undir og
fordæmt ájyktun framkvæmda-
stjórnar SUS um framkvæmdastjóra-
mSjðP ■ t 3 ~ !a’ *'
„9 af 15 undirskrifendum eru
annáðhvort fyrrverandi eða núver-
andi biaðamenn á Morgunblaðinu.
Afgangurinn er nánir vinir þeirra.
Mér er kunnugt um að hringt var í
mjög marga menn og gengið ákveðið
eftir að þeir skrifuðu undir skjalið.
jafnvel verið með hótanir. Þetta er nú
allur afraksturinn,” sagði Jón
Magnússon.
Jón sagði að hann hafi lagt á það
áherzlu á miðstjórnarfundinum að
miðst’jórn bæri að ræða um forystu-
vandamál flokksins og finna á þeim
lausn.
,,En þrátt fyrir itrekuð tilmæli var
málið ekki rætt.”
-ARH.
frfálst, óháð dagblað
FÖSTUDAGUR 12. SEPT. 1980.
Minningarmót Grigorins
í Sovétríkjunum:
ién L. með
2 vinninga
— hefur mætt 5
' stórmeisturum
,,Ég er með 2 vinninga og biðskák
þar sem mín staða er heldur lakari eftir
5 umferðir í mótinu,” sagði Jón L.
Árnason skákmaður þegar Dagblaðinu
tókst loks að ná símasambandi við
hann i Sovétríkjunum í gær.
Mótið sem Jón tekur þátt í er haldið i
borginni Sochin í minningu um skák-
meistarann Grigorin. Er það í 14. sinn
sem slíkt mót er haldið. Mótið er mjög
vel skipað. Af 16 þátttakendum eru
hvorki fleiri né færri en 13 stórmeistar-
ar. Hinir þrír eru alþjóðlegir meistarar.
Meðalstig keppenda eru 2520, þannig
að með góðri frammistöðu á mótinu
ætti Jón að eiga góða möguleika á stór-
meistaratitli.
Þar sem símasamband við Sovétríkin
var ákaflega slæmt tókst blaðamanni
DB ekki að fá upp hverjir andstæðing-
ar hans í fyrstu umferðunum voru,
utan það að þeir voru allir stórmeistar-
ar.
Torre frá Filippseyjum er efstur
ásamt fleirum með 3,5 vinninga. Stiga-
hæstur keppenda er Sovétmaðurinn
Balashov. Mótinu lýkur 27. september.
,, Aðbúnaður er á allan hátt góður.
Teflt er í stórum konsertsal og fjöl-
margir áhorfendur fylgjast með tafl-
inu,” sagði Jón L. að lokum.
-GAJ/ARH.
Sáftafundur eftir hálfs-
mánaðar hlé í dag:
„Innanhústil-
laga” frá
sáttanefnd?
Samninganefndir Vinnuveitenda-
sambandsins og Alþýðustunbandsins
koma saman til fundar í dag kl. 16 í
fyrsta sinn siðan 29. ágúst en þá slitn-
aði upp úr viðræðunum um nýja kjara-
samninga. Talsvert hefur þó verið um
fundarhöld vegna samninganna siðustu
daga, bæði innbyrðis hjá samnings-
aðilum og einnig hefur sáttanefndin
rætt við samninganefndir og sérsam-
bönd.
Flogið hefur fyrir að sáttanefndin
leggi fram á fundinum í dag „innan-
hústillögu” til að freista þess að leita
sátta um röðum í launaflokka. Samn-
ingaviðræðurnar í ágústlok strönduðu
einmitt á deilum um röðun i launa-
flokka. -ARH.
„Vilhjálmi var
boðið starfið”
— segir Geir
Hallgrímsson
„Vilhjálmi Þ. Vilhjálmssyni var
boðið starf framkvæmdastjóra
flokksins en hann taldi sig bundinn af
starfi sinu hjá SÁÁ og gaf því ekki kost
á sér. Ekki komu fram á fundinum
upplýsingar um að kostur hafi verið á
öðrum mönnum sem nefndir hafa
verið,” sagði Geir Hallgrímsson, for-
maður Sjálfstæðisflokksins, í morgun.
Hann kvað Kjartan hafa verið kjörinn
með samhljóða atkvæðum. -ARH.
IUKKUDAGAR:
11. SEPTEMBER 13613
Hljómplötur að eigin vali frá
Fálkanum.
Vinningshafar hringi
ísíma 33622.