Dagblaðið - 17.09.1980, Síða 9
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 17. SEPTEMBER 1980.
9
Söngvarinn John Denver og spámaðurinn Werner Erhard kyssa hér Buckminster
Fuller á skallann og óska honum til hamingju með daginn.
Buckminster Fuller 85 ára
Hugmynda-
bankiopnaður
í tílefni dagsins
Heimspekingurinn og hugsjóna-
maðurinn R. Buckminster Fuller varð
85 ára gamall fyrir nokkru. Um leið og
hann hélt upp á afmælið sitt var haldið
upp á 63 ára brúðkaupsafmæli hans og
Önnu konu hans og vígslu nýs hug-
myndabanka í Colorado. Auk Fullers á
dægurlagasöngvarinn John Denver
mestan heiður af bankanum. í
bankanum, sem byrjað var að reisa
árið 1976, á að vera miðstöð hug-
mynda um samræmi í náttúrunni í
umhverfi einstaklinga, hópa og á
óbyggðum svæðum.
Anna Fuller sker afmælistertuna sem var
skreytt með eftirlikingu af kúluhúsinu
hans Fullers.
Buckminster og 200 gestir afmælis-
veizlunnar dáðu mjög hinn nýja banka.
Eldri verk meistarans voru einnig til
sýnis fyrir gestina. Frægast þeirra er
líklega kúluhúsið sem byggt er úr þri-
hyrningum. Slíkt hús úr tjalddúk
höfðum við reyndar uppistandandi hér
á landi í nokkra mánuði en húsið
vestur í Bandarikjunum er úr plexí-
gleri. Einnig má nefna orkusparandi bíl
Fullers sem hann nefnir Dymaxion.
Rikisstjóri Colorado lét svo lítið að
mæta í afmælisveislu Fullers. Fuller
dró hann út í horn og hélt honum langa
tölu um mannfjölgun og húsnæðis-
vanda. Spámaðurinn Werner Erhard
gekk á meðan um á meðal gesta og
predikaði sjálfsstjórn. Gestunum var
einungis boðið upp á veitingar náttúru-
legrar gerðar því Fuller er eindregið á
móti hvers kyns kemískum efnum.
Hann Ieggur áherzlu á að matur sé
unninn sem minnst og þá við sem frum-
stæðastar aQstæður. Undir borðum
söng John Denver ljóð sem hann hafði
samið í tilefni afmælisins og gestir
skáluðu fyrir afmælisbarninu. Öllum
virtist þykja vænt um þennan aldna en
síunga speking og vita þeir íslendingar
sem hlustað hafa á hann í þau tvö
skipti sem hann hefur komið hingað
líklega ástæðuna.
Köttur lendir í þvottavél
— heppilegt aö hún var stillt á mislitt en ekki suðu
Flest getur skeð. Dönsk húsmóðir
var að þvo af heimilisfólki sínu i vik-
unni sem leið og átti sér einskis ills
von. Hún var rétt búin að setja vélina
I gang þegar henni fannst hún heyra
úr henni einhver undarleg hljóð. Eftir
nokkrar mínútur ákvað hún að
stöðva vélina og líta inn í hana. Þá sá
hún hvar hausinn á heimiliskettinum
gægðist út innan um skyrtur og
sokka, og var heldur úfinn og vesald-
arlegur.
Hún hafði aðeins brugðið sér frá
þegar hún var búin að setja tauið í
vélina og á meðan hafði kötturinn
fengið þá hugmynd að hoppa upp í
hana.Þegar hún kom aftur lokaði
hún vélinni grandalaus og setti hana í
gang.
Það var þotið á næsta dýraspítala
með kisu og höfðu læknarnir þar
aldrei fengið hliðstætt sjúkdómstil-
felli. Skoðun leiddi í ljós að það var
ekkert að kettinum nema það að
hann hafði fengið of mikla sápu i
augun og klæjaði undan.
„Það var eins gott hann lenti ekki i
suðuþvotti,” sagði læknirinn. „Það
bjargaði lífi hans að vélin var stillt á
lágan hita og lítið vatn.”
Það er líka alltaf sagt að kettir hafi
níu lif!
►
kannski maöur skelli sér í
þurrkarann næst?
Halston í heimsferðalagi með
hóp af tízkusýningarstúlkum
Halston, fatahönnuðurinn heims-
frægi, er á hnattferð þessa dagana með
tólf þekktum amerískum 'ízkusýninga-
stúlkum og einum af fösiu viðskipta-
vinunum sinum, — Biöncu Jagger.
Fyrsti viðkomustaðurinn í ferðinni er
Peking. Þangað er Halston boðið af
kínversku stjórninni og stjórnendum
silkiframleiðslu landsins.
Halston hyggst sýna Kinverjum silki-
fatnað sinn, — ekki af því tð þeir
saumi ekki nógu góðar silkiflíkur,
heldur því að „ég vona að ég geti gefið
þeim einhverja hugmynd um hvað
Bandaríkjamenn vilja,” sagði
hönnuðurinn áður en hann lagði af
stað frá New York.
GOLDIE HA WN ER AÐ
MISSA MANNINN
Söngvarinn Bill Hudson hefur
óskað eftir skilnaði frá eiginkonu
sinni, leikkonunni Goldie Hawn. Þau
hjónin hafa verið gift um nokkurra
ára skeið og eiga saman tvö börn.
Goldie Hawn er nú orðin 34 ára
gömul. Hún varð fyrst fræg fyrir að
geta flissað endalaust i sjónvarps-
þættinum Laugh-ln sem naut tals-
verðra vinsælda á sjöunda áratugn-
um. Árið 1969 hlaut hún óskarsverð-
launin fyrir beztan leik i aukahlut-
verki i kvikmyndinni Kaktusblóm.
Hún stjórnar nú sinni fyrstu kvik-
mynd, Private Benjamin, og fer jafn-
framt meðaðalhlutverkið.
Bill Hudson er einn þeirra sent
skipa söngsveitina Hudson Brothers.
TÍMARNIR TVENNIR
OG HRAÐINN ÓLÍKUR
Franski flugmaðurinn Mauriee
Bellonte (efst í vinstra horni) er
orðinn 84 ára gamall. í síðustu viku
tók hann sér far með Concorde þotu
frá Air France frá París til New
York. Þotan flaug með 1.350 mílna
meðalhraða og vantaði fimmtán
mínútur uppá að vera fjórar klukku-
stundir á leiðinni. — Bellonte var
aldeilis ekki að fara í fyrsta skiptið
yfir Atlantshafið í flugvél. Fyrir
nákvæmlega fimmtíu árum fiaug
hann næstum því sömu leið sem
aðstoðarflugmaður Dieudonne
Costes á einshreyfilsflugvélinni
Spurningarmerkið. Árið 1930 voru
þeir nú lengur en fjóra klukkutíma á
leiðinni. Ferðin á Spurningarmerkinu
tók nefnilega 37 klukkustundir og
átján mínútur. Á myndinni upp til
hægri eru Costes (til vinstri) og
Bellonte í búningum sínum.