Dagblaðið - 17.09.1980, Side 10

Dagblaðið - 17.09.1980, Side 10
10 DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 17.SEPTEMBER 1980. DB á ne ytendamarkaði „Ég skil ekki af hverju varirnar á mer verða bláleitar þótt ég noti hárauðan varalit,” sagði einn af þeim sem heimsótti básinn hjá Nestu á Heimilinu 80 í Laugardalshöll. „Það getur verið um að ræða sýrumyndun í HVAMMSTANGIFIKRAR SIG í ÁTT TIL SJÁLFSTÆÐIS „Ég vildi að ég hefði tekið með mér sýnishorn af kartöflunum sem eru á boðstólum á Hvammstangai þessa dagana,” sagði gestur í Dag- blaðsbásnum í Laugardalshöllinni. Þetta var Hólmfríður Bjarnadóttir, sem reyndar er umboðsmaður Dag- blaðsinsástaðnum. Hún sagði að kartöflurnar sem væru nýjar íslenzkar litu hreint ekki ilia út en væru vondar á bragðið. Af þeim væri hið versta moldarbragð. Ekki vissi Hólmfriður hvaðan þessar kartöflur eru ættaðar, hvort þær eru ræktaðar norðan eða sunnan heiða. Leitt er til þess að vita að lands- menn skuli ekki geta gætt sér á nýuppteknum kartöflum um há- uppskerutímann. Nýtt bakarí Hólmfríður sagði okkur almenn tiðindi fráHvammstanga. „Við erum alltaf að fikra okkur • upp í að verða sjálfstæð með sem flesta hluti. Við erum nýbúin að fá bakari og er almenn ánægja með það. Við höfum okkar eigin kjöt- vinnslu þannig að nú er meira og betra úrval af matvöru en áður var. Ekki má gleyma mjólkursamlaginu okkar. Þar er framleiddur allur brauðostur með rauðu skorpunni sem seldur er í landinu. Stundaður er talsverður sjávarútvegur, priónastofa er á staðnum og auk þess er mikið um byggingavinnu á Hvammstanga því staðurinn er í mikilli uppbyggingu.” Hólmfríður sagði að engir erfiðleikar hefðu verið fyrir skólafólk og unglinga að fá þar vinnu í sumar, m.a. vegna hinnar miklu og hröðu uppbyggingar á staðnum. fbúar á Hvammstanga eru nú um 550 talsins. Þá minntist Hólmfríður á hita- veituna, sem hún sagði íbúana mjög ánægða með. Hún var tengd í árslok 1972, rétt áður en aðalorkukreppan skall á í heiminum. Nefndi Hólmfríður sem dæmi um kostnað við hitaveituna að það kost- ar nú um 25 þúsund kr. á mánuði að hita upp meðalstórt einbýlishús. Vissi hún dæmi þess að í álíka stóru húsi á olíukyndingarsvæði varð kyndingar- kostnaðurinn nákvæmlega 100 þús. kr. hærri, eða 125 þúsund kr. Hólmfríði varð starsýnt á hið mismunandi vöruverð í Reykjavikur- verzlunum sem vakin er athygli á í DB básnum. Henni fannst þó að fljótt á litið væri verð á nauðsynjum á Hvammstanga ekki svo ýkja mikið hærra heldur en í höfuðborgar- verzlunum. Hólmfríður var nokkuð ánægð með það sem hún hafði skoðað á sýningunni Heimilið ’80, en þau hjónin komu í bæinn gagngert með þremur bömum sínum til þess að sjá sýninguna. -A.Bj. Nýir íslenzkir 3VEPPIR íslenzkir sveppir eru komnir á markað aftur eftir að hafa ekki fengizt lengi. Vissir erfiðleikar eru við að rækta þá þar eð þeir ná aldrei að gefa það mikið af sér að unnt sé að byggja varanlega aðstöðu til ræktunarinnar. Aðstöðuleysið veldur svo oft slakri uppskeru eða jafnvel uppskerubresti. Sveppirnir eru dálítið dýrir, kosta 7314 krónur kílóið. Lengi var verð þeirra miðað við verð á rækjum, en eru núna 114 krónum dýrari. En þó sveppirnir þyki dýrir má athuga það að engin ósköp þarf til þess að gera hversdagsmatinn að há- tíðamat. Sveppir, kraumaðir í söltuðu smjöri og jafnvel soðnir upp með rjóma, eru eitt það bezta meðlæti sem hægt er að fá með steikinni. islenzku sveppirnir eru mun bragðmeiri og betri en þeir út- lendu sem við fáum í dósum eða nýja stöku sinnum. - DS / DB-mynd E.Ó. - Það kostar yfir 100 þúsund krónur AÐ VERA SV0LÍTIÐ SÆTUR B0RNIN HRIFIN AF MJÓLKURVÖRUNNI — Matur og hreinlætisvörur rúml. 53 þús. kr. á mann „Góðan daginn og kærar þakkir fyrir síðast! Ég og mitt fólk vorum meðal allra þeirra sem nutum gestrisni ykkar á „Heimilinu ’80”. Ég er að senda ykkur minn fyrsta seðil, en hef þó haldið „bókhald” í hátt áþriðjaár. Matur og hreinlætisvörur kr. 267.465 kr. eða 53.593 kr. á mann, er svona eins og gengur. Börnin þrjú, tveggja, fimm og niu ára, drekka mikla mjólk og eru hrifin af allri mjólkurvöru. Liðurinn „annað” finnst mér dálítið teygjanlegt hugtak. í þessum tæplega 450 þús. kr. er m.a. afborgun af láni, afborgun af barnahúsgögnum, sími, tryggingar, tannlæknir, bensín, svo og föt og snyrtivörur. Einnig höfum við staðið skil á afborgun vegna húsakaupa. í þessum mánuði greiðum við svo rafmagn og heitt vatn, þannig að liðurinn „annað” er síbreytilegur. Svona í lokin vil ég taka undir með gömlu konunni sem kvartar undan „nýju islenzku kartöflunum”. Þær teljast varla mannamatur. Ég vona að Neytendasiðan eflist með stækkandi Dagblaði. Beztu kveðjur, Guðlaug, Mosfellssveit”. húðinni og þú verður að prófa þig afar vel áfram með liti þangað til þú hittir á þann rétta,” svaraði Svan- hildur Tors snyrtifræðingur um hæl. Hún leiðbeindi fólki i sambandi við snyrtingu og var með snyrtivörur frá Biodroga. Þær er hægt að fá víðs vegar um bæinn, m.a. í apótekum. Einnig fást þær úti á landi. Ung stúlka kom aðvífandi og vildi fá að vita hvað hún ætti að gera við unglingabólur. Svanhildur sagði að rétt væri að leita til húðsérfræðings. Stórhættulegt væri að kreista bóíur. Til væri nokkuð sem héti „peeling”. Það er duft sem blandað er með vatni og verður eins og þykkur grautur. Þetta er borið á bólurnar og hreinsað síðan af. Þetta nægir oft í vægum til- fellum með bólur. Svanhildur sagði að nú orðið væru snyrtifræðingar í flestum snyrtiverzl- unum sem gæfu fólki leiðbeiningar um snyrtingu og hvað hæfði hverjum og einum að nota. En hvað kostar það þá að verða pinulítið sætur? Svanhildur sagði að Biodroga vörurnar væru mjög góðar vörur, gerðar úr náttúrlegum efnum og allar ofnæmisprófaðar. Verðið á þeim væri ekki mjög hátt, en heldur ekki lágt. Það væri einhvers staðar þar á milli. Bannað að tala um hrukkur, húðin þornar bara soldið Hreinsimjólk frá Biodroga kostar kr. 3.990, rakakrem kr. 4.150, and- litsvatn kr. 6.700, dagkrem kr. 8.840, næturkrem kr. 19.210. Það er alveg bannað að segja að maður sé kominn með hrukkur heldur hefur húðin þornað svolítið á þessum eldri en 29 ára. Þá þurfa þær augnkrem á kr. 5.790. Þetta var nú bara undirbúningur- inn. Nú komum við að förðuninni „Make up” kostar kr. 7.930, púður kostar á bilinu 3 —4000 kr. „Konur ættu ekki að nota „make up” og púður nema á kvöldin eða þá við sér- stök önnur tækifæri,” sagði Svan- hildur. Litað dagkrem kemur þarna í staðinn og kostar kr. 7.930. Kinna- litur kostar kr. 7.360, varalitur 4.845, augnskuggi kr. 5.130 maskari kr. 2.000 og varalitapensill kr. 1.705. „Málari velur sér aldrei nema góð áhöld og pensla. Það ættu konur heldur ekki að gera,” sagði Svanhild- ur. Slík áhöld og penslar kosta á milli 15 og 20 þús. Ekki er allt búið enn, því að svo þurfum við vitanlega að lykta vel og setjum á okkur Eau de toilette Verlene E.T. 30 ml kosta kr. 6.870, en 60 ml kr. 9.660. Þetta kostar þá allt saman 110.460, ef við reiknum með lægri tölunum. Ungar stúlkur þurfa að greiða minna fyrir sínar snyrtivörur. Þær vörur eru öðru vísi. En svo verður líka að athuga að það er ekki nóg að eiga aðeins einn lit af varalit eða augnskugga. Varla er hægt að komast af með færri en 2 eða 3 því að litirnir verða að vera í stil við fötin. Það er þó ein huggun í þessu öllu saman. Sjaldnast eru allar þessar vörur keyptar í einu. Oftast er eitthvað til i snyrtiveskinu. -EVI. Það má vist aldrei segja frá ekki einmitt rétti aldurinn? aldri kvenna en hún Svanhildur Tors snyrtifræðingur hefur verið 39 ára i dálitinn tíma. Er það DB-mynd Einar

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.