Dagblaðið - 16.10.1980, Side 14

Dagblaðið - 16.10.1980, Side 14
14 ð DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 16. OKTÓBER 1980. Iþróttir Iþróttir íþróttir DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 16.0KTÓBER 1980. Iþróttir íþróttir Iþróttir I Wales sigraði aftur 4-0 Tyrkir fcnjju sömu útreifl hjá Wales- búum og við íslendingar fyrr á árinu, er liflin léku I 3. riflli undankeppni HM I knattspyrnu I Cardiff í gærkvöldi. Wales vann 4—0 og til að bæta gráu ofan á svart var einn Tyrkjanna, Soyak Tuncan, rekinn af leikvelli á 77. minútu fyrir gróft brot. Brian Flynn náði forystunni fyrir Wales á 18. mínútu með skoti af 20 metra færi en næstu mínútur voru Tyrkir nærri því að jafna. Fyrst brenndi Tuncay af fyrir opnu marki og síðan átti Necdet skalla, er sleikti stöng Walesmarksins. Rétt á eftir var Ian Walsh felldur í vítateig Tyrkja og Leigton James skoraði úr vítinu. Litlu síðar átti David Giles skot i stöng, en í hálfleik var staðan samt 2—0. í síðari hálfleik skoraði Ian Walsh með skalla eftir aukaspyrnu Flynn og sjö minútum fyrir leikslok var Walsh enn á ferðinni, er hann sendi góða sendingu á James Leighton, sem skoraði sitt annað mark í leiknum. Staðan í riðlinum er nú þessi: Enn sigra heimsmeistararnir Heimsmeistarar Argentínu unnu enn einn sigurinn á Austur-Evrópulandi, þegar þeir sigruðu Tékka 1—0 í vin- áttuleik í Buenos Aires í gærkvöld. Tékkar eru í riðli með íslandi í HM- keppninni og þeir léku vel i gær þó ekki nægfli það gegn heimsmeisturunum. Ramon Diaz skoraði eina mark leiksins á 17. mín. eftir snilldarleik snillingsins Diego Maradonna. Maradonna var óheppinn að skora ekki sjálfur i leikn- um — átti stangarskot auk þess, sem tékkneski markvörðurinn varði vel frá honum. Wales Sovétríkin ísland Tyrkland 2 2 0 0 8- 2 2 0 0 7- 4 10 3 4- 2 0 0 2 1- Tékkóslóvakia á enn eftir að sinn fyrsta leik í riðlinum. -0 4 -1 4 12 2 -7 0 leika íslandsmótið i 1. deild kvenna hófst i Hafnarfirði i gær með leik FH og KR. FH-stúlkurnar unnu stórsigur 22—9 og það er meistarakjarni i liðinu. Hauka- stúlkan skotharöa, Margrét Theódórs- dóttir, hefur gengifl til liðs við FH og lék sinn fyrsta leik með liðinu i gær. Hún skoraði sex mörk en Kristjana Aradóttir var markhæst í FH-liðinu með 8 mörk. 42. tbl. 42. árg. 16. okt. 1980 Verð kr. 1500 ísland átti aldrei möguleika í Moskvu „Sovézka liflið hóf leikinn með gífurlegum hraða og náði snemma forustu með marki Andreyev. Hann skallafli knöttinn i mark óáreittur eftir hornspyrnu á niundu mín. Litlu munaði að ísland jafnaði á 15 min. þegar markvörflur Sovétrikjanna, Dasayev, varði hörkuskot af 25 metra færi. Knötturinn lenti frá honum i markstönginni — og siðan var bjargað á marklinu. Eftir þafl átti ísland aldrei möguleika á að skora og Sovétrikin unnu sannfærandi sigur”, segir i frétta- skeyti Reuters frá Moskvu i gær. „Oganseyan skoraði annað mark Sovétríkjanna á 37. mín. með skoti úr þröngu færi og hann var aftur á ferð- inni skömmu eftir leikhléið. Andreyev, bezti maður sovézka liðsins, skoraði annað mark sitt á 70. mín. þegar hann hljóp frá tveimur varnarmönnum og lyfti knettinum síðan i markið. Þegar Bassonov skoraði fimmta mark Sovét- ríkjanna rétt fyrir lokin hafði íslenzka liðið gefist upp í baráttunni,” segir ennfremur i skeyti Reuters. Þá var sagt i skeytinu að áhorfendur á Leninleik- vanginum hefðu verið 40 þúsund. Jóhannes Stefánsson skorar fyrsta markKRaf línu i leiknum í gærkvöld. DB-mynd Sv.Þ. „Þetta var erfiður leikur fyrir strákana — mótherjarnir mjög góðir — en þeir voru þó óheppnir að tapa með þetta miklum mun. Tvö síðustu mörk sovézkra voru eins ólögleg og hægt er. Leikmennirnir, sem skoruðu rang- stæðir, þar sem þeir fengu stungubolta inn fyrir vörn íslendinga. Það er ekki gott að fá þessa austantjaldsdómara i slíka leiki. Dómaratríóið frá Pól- landi,” sagði Helgi Daníeisson, for- maður landsliðsnefndar, í gær. „Þetta sovézka lið, sem við lékum við nú, var óþekkjanlegt frá leiknum heima í Reykjavík. Mjög fljótir og mun betri en okkar ieikmenn. Talsverðar breytingar voru gerðar á sovézka liðinu frá leiknum í Reykjavík. islenzka liðið átti lengstum í vök að verjast eins og við var að búast i útileik gegn jafn þrautþjálfuðum leikmönnum og sovézkir hafa yfir að ráða”, sagði Helgi ennfremur — en hann var á því, að ísiand hefði aldrei átt að tapa með þetta miklum mun. Hlutdrægir dómarar hjálpuðu ekki upp á sakirnar. En það eru nokkuð sem smáþjóðir eins og ísland verða víst að sætta sig við í Evrópu- og heimsmeistaraleikjum. íslenzka liðið í gær var skipað þessum mönnum — eða þeim, sem gefið var upp hér í blaðinu i gær. Þor- steinn Bjarnason, Viðar Halldórsson, Sigurður Halidórsson, Marteinn Geirs- son, Trausti Haraldsson, örn Óskars- son, Ásgeir Sigurvinsson, Albert Guðmundsson, Guðmundur Þor- bjömsson, Teitur Þórðarson og Arnór Guðjohnsen. Árni Sveinsson kom í stað Albert í síðari háifleik — Sigurlás Þorleifsson í staða Arnórs, sem meiddist í leiknum. Það var Guðmundur Þorbjörnsson, sem var nærri að skora á I5.mín. með hörkuskotinu, sem sovézki mark- vörðurinn varði snilldarlega. í síðari háifleiknum átti Teitur einnig hörku- skot, sem sá sovézki varði. Sá þýzki réðst til Barcelona Vestur-þýzki landsiiðsmaðurinn i knattspyrnunni, Bernd Schiister, Köln, skrifaði i gær undir samning við Barce- lona. Hann mun leika sinn fyrsta leik með Barcelona gegn Real Sociadad á sunnudag. Þar sem aðeins tveir útlend- ingar mega leika með spænsku liflunum er talið líklegt, að Daninn Alan Simon- sen verði settur út hjá Barcelona. Barcelona greiddi 3,7 milljónir marka fyrir Schúster eða um 1100 milljónir íslenzkra króna. Skapillska varð FH að falli gegn KR! Dómararnir Árni Tómasson og Jón Frið- steinsson eru hataðir menn i Hafnarfirði — það fer ekki milli mála. En það væri þó að hengja bakara fyrir smið eins og margir stuðningsmenn FH vildu vera láta i gærkvöld að kenna þeim um allar ófarir FH-liflsins gegn KR i síðari hálfleik í leik liðanna i 1. deild i iþróttahúsinu i Hafnar- firði _ . Afl vísu var dómgæzla þeirra Vesturbæjarliðinu hagstæð en ekki svo að það skipti sköpum. Þafl sem skipti sköpum var furðuleg geðillska margra leikmanna FH — það fór allt í taugarnar á þeim. Þó mest frábær markvarzla Péturs Hjálmarssonar í marki KR meðan KR-ingar þurftu aðeins að hitta markifl hjá FH — þá var mark. Skapillska FH bitnaði hroðalega á þeim sjálfum i siðari hálfleiknum — það stóð ekki steinn yfir steini i leik liðsins. Rif- izt innbyrflis, öllu mótmælt, sem hafði ekki svo fáa brottrekstra i för með sér, og leikmennirnir sem höföu svo oft leikið snilldarlega i fyrri hálf- leik voru eins og áttavilltar rjúpnaskyttur í þeim síðari. Vissu ekkert hvaðan á þá stóð veðrið — hreint sorglegt að sjá aOar þær skyssur, sem FH- ingum varð á. KR-ingar gengu á lagið með ágæt- um leik — sneru töpuðu tafli i unninn leik. Sigr- uðu 27-21 eða með sex marka mun eftir afl FH haffli veriö fimm mörkum yfir i hálfleik, 13-8. í síðari hálfleiknum skoruflu KR-ingar því 19 mörk gegn 8. Hvilikt og annað eins hjá jafn leik- reyndum köppum og eru f FH-liöinu. KR-ingar brostu i kampinn og nýttu sér skapbresti mót- herjanna til hins ítrasta og greinilegt, að þeir ætia sér að vera mefl i toppbaráttunni i 1. deild. í fyrri hálfleiknum lék FH glæsilegasta hand- knattleik, sem sézt hefur á Ísiandsmótinu hingað til. Samvinna og samleikur þeirra Gunnars og Geirs var hreint frábær. Glæsimörk skoruð — en svo hættu þeir að vinna saman og árangurinn varð svipaður og í öðrum herbúðum. KR-ingar tóku þá heldur betur við sér en það var þó mark- vörðurinn Pétur, sem átti öðrum fremur þátt í þeirri breytingu, sem varð hjá KR eftir þvi, sem á ieikinn leið. Alfreð Gíslason og Konráð Jónsson skoruðu að vild — FH-ingar rifust. Jafnræði var með liðunum framan af. Allar jafnteflistöiur upp í 4-4. Síðan kom Geir Hall- steinsson inn á og FH fór að leika snjailan hand- knattleik. Fiéttur hans og Gunnars Einarssonar voru frábærar — leikni þeirra félaga oft unaðs- leg. FH skoraði hvert markið öðru glæsilegra og KR-ingar áttu ekkert svar. Fimm marka munur í hálfleik, 13-8, og það stefndi í stórsigur Hafn- firðinga. Þeir voru svo miklu betri en Vesturbæ- ingarnir i fyrri hálfleiknum. Markvarzlan var þá svipuð hjá liðunum — Pétur varði 6 skot, Gunn- laugur Gunnlaugsson 5. í síðari hálfleiknum var algjör breyting — þá varði Pétur 10 skot, FH- markverðirnir eitt, og það fór í taugarnar á FH- ingum. KR-ingar byrjuðu síðari hálfleikinn vel. Skor- uðu þrjú fyrstu mörkin, tvö úr vítum, og munur- inn var allt í einu orðinn tvö mörk en FH breytti fljótt stöðunni aftur i þrjú mörk, 14-11 og 15-2. Eitthvert pat var þó komið á FH-inga, liðsstjóri þeirra, Ragnar Jónsson, hrópaði til þeirra og bað þá að hætta að mótmæla og rifast. Það gerðu þeir ekki og fallið var framundan. Mestu mistökin voru þó í stöðunni 15-12 að fara að taka Alfreð Gíslason úr umferð, nokk- uð, sem FH-ingar höfðu ekki gert fyrr í leiknum. KR-ingar höfðu svar á reiðum höndum, Konráð Jónsson fór að skora grimmt og þegar Alfreð var kominn í gæzluna losnaði fyrst virkilega um hann. Um miðjan hálfieikinn var staðan orðin jöfn, 18-18,og það, sem FH sýndi síðustu 15 mínúturnar átti ekkert skylt við handknattleik. Tveimur leikmönnum liðsins vikið af velli nær samtímis, Geir og Guðmundi Árna — og næstu fjögur mörk voru KR-inga, 18-22. Alfreð og Konráð voru óstöðvandi — skoruðu sex mörk hvor af síðustu 14 mörkum KR. Góður sigur KR og liðið hafði sótt tvöstig í ljónagryfjuna í Hafn- arfirði. Þaðerafrek. Lið FH er mikið spurningarmerki eftir þennan leik — liðið getur leikið frábæran handknattleik — en ef skapofsinn á að ráða ríkjum er hægt að afskrifa það í baráttunni um meistaratitilinn. Siðari hálfleikurinn var sorglegur fyrir leikmenn iiðsins. KR-ingar nýttu sér vel fiumbrugang FH. Léku mjög yfirvegað í síðar hálfleiknum eftir að hafa ieikið aðra fiðlu allan þann fyrri. Pétur er kom- inn í hóp okkar albeztu markvarða — Alfreð náði sér frábærlega á strik eftir að hann var tek- inn úr urr ferð!! — og Konráð nýtti sér vel veil- umar í vörn FH. Varnarleikurinn var heldur slakur framan af en eftir því, sem á leikinn leið lagaðist hann mjög. Friðrik Þorbjörnsson þar oft eins og herforingi. KR-liðið getur leikið prýðilegan handknattleik og Haukur Geir- mundsson vex með hverjum leik, og ekki má lita af Jóhannesi Stefánssyni á línunni. Mörk FH skoruðu Kristján Árnason 5/1, Gunnar 4, Guðmundur Magnússon 4, Geir 2, Valgarður Valgarðsson 2, Árni Árnason, Þórir Gislason, Guömundur Ámi og Sæmundur Stef- ánsson 1 hver. Mörk KR: Aifreð 10/4, Konráð 8, Jóhannes, Haukur Geirmundsson, Haukur Ottesen og Friðrik 2 hver, Björn Pétursson 1/1. Dómarar eins og áður segir Árni og Jón og þeir em ekki ofarlega á vinsældalista Hafnfirð- inga nú. FH fékk tvö viti í leiknum — Pétur varði annað frá Kristjáni. KR fékk sjö víti. Skoraði úr fimm. Gunnlaugur varði frá Birni (tvívarði, Björn fékk knöttinn aftur) og Haukur Ottesen skaut framhjá. FH-ingum var vikið af velli í 12 mínútur, Geir tvívegis, Gunnari, Krist- jáni, Guðmundi Mag. og Guðmundi Árna. Þremur KR-ingum var vikið af velli í tvær mínútur hverjum, Alfreð, Konráði og Jóhann- esi. - hsím. ' V LOTUS hefur einstæða lögun, sem leiðir til fullkominnar aðlögunar að líkaman- um, jafnvel í þrengstu flíkum. LOTUS veitir fyllsta öryggi, vegna tveggja trefjalaga og plasthúðaðrar bakhliðar. Á bakhliðinni er einnig límræma, sem eykur stöðugleikann. Hverjum pakka af LOTUS fylgja 10 plastpokar. LOTUS fæst í þremur stærðum: LOTUS mini, LOTUS futura og LOTUS maxi. Dömubindi

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.