Dagblaðið - 01.11.1980, Blaðsíða 13

Dagblaðið - 01.11.1980, Blaðsíða 13
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 1. NÓVEMBER 1980. 13 SKIN OG SKURIR hjAspassky Fyrrum heimsmeistari Mikhail Botvinnik lét þau orö falla eigi alls fyrir löngu að hann teldi skákmenn vanrækja vísindaiega skyldu sína með því að tefla of mikið en rann- saka skák þeim mun minna. Botvinnik var einmitt frægur fyrir að innleiða vísindaleg vinnubrögð í skákheiminn — undirbúningur hans var betri en áður tíðkaðist. Þá voru mótin færri svo teflendum gafst gott næði milli hviða til að sanka að sér fróðleik og undirbúa sig sem best á allan hátt. Skákir andstæðinganna voru tættar sundur í smátt, nýjar hugmyndir í byrjunum rannsakaðar, endatöfl einnig og allt þar á milli. En nú er öldin önnur. Skákmeist- urum gefast fleiri tækifæri til tafl- mennsku, því hvert mótið rekur ann- að. Margir þeirra, sérstaklega af yngri kynslóðinni, þræða mótin hvert af öðru og gefa sér engan tíma til hvíldar og rannsókna. Það heitir að læra af reynslunni. Aðrir fara rólega í sakirnar, eins og t.d. heimsmeistar- inn fyrrverandi og góðkunningi okk- ar Islendinga, Boris Spassky. Spassky hefur verið fastagestur í áskorendaeinvígjunum um langan tíma en flestir skákáhugamenn eru sammála um að hann mætti að ósekju vera tíðari gestur á mótum. Spassky sagði sjálfur í fyrirlestri í Reykjavik eftir einvígið við Hort 1977 að einn helsti veikleiki sinn sem skákmanns væri leti. E.t.v. er hún ástæðan fyrir því hve sjaldan hann teflir. Stórmeistaramótið í Tilburg í Hol- landi var eitt þeirra móta þar sem Spassky var meðal þátttakenda. Auð- vitað var fylgst vandlega með tafl- mennsku hans því hún hefur það orð á sér að vera bæði góð og skemmti- leg. Og það fór svo að hvort sem Spassky tapaði eða vann, þá voru áhorfendur ekki sviknir. Vinningsskákir hans urðu 3, tap- skákirnar 2 og jafnteflin 6. Samtals 6 vinningar og 4.—5. sæti. Hann vann sigur á Andersson, Ribli og Larsen, en tapaði fyrir Karpov og Tal. Sigur- skák hans gegn ungverska stórmeist- aranum Ribli var einkar smekkleg. Hvitt: Spassky Svart: Ribli Drottningarindversk vörn. 1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. Rf3 b6 4. e3 Þetta rólega afbrigði er talið gefa lítið í aðra hönd. 4. — Bb7 5. Bd3 d5 6. b3 Be7 7. 0-0 0-0 8. Bb2 c5 9. Rbd2 Algengara er að stilla drottningar- riddaranum upp á c3. 9. — Rc6 10. Hcl Hc8 11. De2 dxc4 12. bxc4 Dc7 13. Hfdl Hfd8 14. Bbl h6 15. Rb3 Eins og oft vill verða í stöðum sem þessari reyna báðir keppendur að þreifa fyrir sér og mynda veikleika í herbúðum andstæðingsins. Texta- leikurinn hefur í sjálfu sér engan til- gang, en engu að síður fer riddarinn eitthvað i taugarnar á Ribli. 15. — a5 16. h3 a4 17. Rbd2 Kf8? Þessi leikur á eftir að verða Ribli að faili og því er sjálfsagt að gagn- rýna hann! 18. Re4 Rxe4 19. Bxe4 cxd4?! 20. exd4 a3 21. Bc3 Ra5 Er svartur gaf eftir á miðborðinu i 19. leik hefur hann haft þessa stöðu i huga. En nú skellur á stormur. 22. c5! Bxe4 23. Dxe4 bxc5 24. d5! exd5 Skásta úrræðið er 24. — Kg8, en eftir 25. dxe6 hefur hvítur yfirburða- tafi. 25. Dh7! f6 26. Rh4 Ke8 27. Dg8 + Svartur gafst upp. Ef 27. — Kd7 28. Dxd5 + Bd6 29. Bxa5 og vinnur. Spassky sat ekki alltaf réttum meg- in við borðið í Tilburg, hann átti það einnig til að tapa glæsilega. Gott dæmi um það var að finna í skák- þætti DB sl. laugardag, þar sem Tal tók hann í karphúsið. Hin tapskák Spassky var gegn sjálfum heims- meistaranum og sigurvegara mótsins, Anatoly Karpov. Þá skák tefldi Karpov djarft og skemmtilega. Fórnaði peði og fékk fyrir öfiugt frumkvæði sem hann síðan nýtti sér til sigurs. Hvítt: Karpov Svart: Spassky Siklleyjarvörn. 1. e4 c5 2. Rf3 e6 3. d4 cxd4 4. Rxd4 Rf6 5. Rc3 d6 6. g4 h6 7. h4! ? Karpov o.fi. hafa átt i erfiðleikum með að brjóta varnir svarts á bak aftur eftir 7. g5 hxg5 8. Bxg5 Rc6 o.s.frv. 7. — Rc6 Hilbner náði fijótlega betri stöðu gegn Torre á millisvæðamótinu í Rio 1979, með 7. — Be7 8. Hh3 d5 9. Bb5+ Kf8! En auðvitað kemur 8. JÓN L. ÁRNAS0N SKRIFAR UM SKÁK Hg 1 til greina, eða jafnvel 8. Df3. 8. HgldS Það er rökrétt að sprengja upp á miðborðinu, en stök peð eru þó sjaldnast stöðuprýði. 9. Bb5! Bd7 10. exd5 Rxd5 11. Rxd5 exdS 12. Be3 Be7 13. Dd2 Bxh4 14. 0- 0-0 Bf6 15. Rf5 Bxf5 16. gxf5 a6 17. Bxc6 bxc6 18. Bc5! Nú er ljóst að hvítur hefur öflugt frumkvæði fyrir peðið. Svarti kóngurinn er strandaður á mið- borðinu og hvítur undirbýr að opna tafiið enn frekar með framrás c- peðsins. 18. — Hb8 19. b4! Hb5 20. Hgel + Kd7 21. c4 Hxc5 Um aðra leiki er ekki að ræða. Spassky hyggst nú snúa vörn í sókn. 22. bxc5Bg5 23. f4Df6!? 24. cxd5! Á þennan einfalda hátt tekst Karpov að hrinda sókn svarts. Lakara er hins vegar 24. fxg5 Dal + 25. Kc2 Dxa2+ 26. Kd3 Dxc4+ 27. Ke3 hxg5! og svartur hefur hættuleg- ar hótanir. 24. — Dal + 25. Kc2 Dxa2 + 26. Kd3 Dxd2 + Eða 26. — Db3 + 27. Dc3 Dc5 + 28. Dc4ogvinnur. 27. Hxd2 Bxf4 28. Ha2 cxd5 29. Hxa6 h5 30. Kd4 h4 31. Kxd5 Hb8 32. f6 gxf6 33. Hxf6 Bg3 34. Hxf7 + Kd8 35. Hf8 + og Spassky gafst upp. Bridge-fréttir Bridgefélag Akureyrar Nú er lokið fyrstu keppni Bridge- félags Akureyrar á þessu starfsári, en það var þriggja kvölda Thule- tvímenningur. Að þessu sinni sigruðu þau Soffía Guðmundsdóttir og Ævar Karlesson, eftir góðan endasprett í síðustu um- ferð, en þegar síðasta umferð hófst voru þau í 6.-7. sæti, 23 stigum á eftir efstu pörunum. Röð efstu para varfl þessi: stig 1. Soffía Guflmundsd.-Ævar Karlesson 391 2. Ragnar Steinbergsson-Gunnar Sólnes 383 3. Ólafur Ágústsson-Grettir Frímannsson 379 4. Július Thorarensen-Sveinn Sigurgcirsson 371 5. Hörflur Steinbergsson-Jón Stefánsson 368 6. Stefán Sveinbjömsson-Sigurflur Búason 367 7. Páll Pálsson-Frimann Frímannsson 362 8. Sveinbjörn Jónsson-Einar Sveinbjömsson 360 9. Stefán Ragnarsson-Pétur Gufljónsson 357 10. Amald Reykdal-Gylfi Pálsson 354 Spilað var í þremur 12 para riðlum og með meðalárangur 330 stig. Keppnisstjóri félagsins er Albert Sigurðsson. Næsta keppni félagsins er sveita- keppni, Akureyrarmót, og eru spilarar beðnir að skrá sveitir sínar hjá stjórn félagsins. Einnig mun stjórnin aðstoða og leiðbeina við myndun sveita. Sveitakeppnin hófst þriðjudaginn 28. október kl. 20 í Félagsborg. Frá Bridgefélagi Hafnarfjarðar Mánudaginn 27. okt. hófst sveita- keppni félagsins með þátttöku 13 sveita. Spilaðir eru 2 16 spila leikir á kvöldi með yfirsetu sem gefur 12 stig. Úrslit leikja urðu: Aflalsteinn Jörgensen — Dröfn Guflmundsdóttir 16—4 Dröfn Guflmundsdóttir — Ólafur Gíslason 19—1 Albert Þorsteinsson — Hlynur Helgason 20—0 Albert Þorstcinsson — Ólafur GLslason 4—16 Sævar Magnússon — Krístófer Magnússon 9—11 Sævar Magnússon — Hlynur Helguson 12—8 Krístján Hauksson — Ólafur Torfason 13—7 Krístján Hauksson — Krístófer Magnússon 2—18 Ragiiar Halldórsson — Jón Gislason 20—0 Ragnar Halldórsson — Ólafur Torfason 6—14 Þorsteinn Þorsteinsson — Ólafur Valgeirsson 3—17 Þorsteinn Þorsteinsson — Jón Gíslason 17—3 Aðalsteinn og Ólafur V. fá 12 stig fyrir yfirsetu. Staða efstu sveita er þá þannig: 1.-2. KristóferMagnússon 29 1.-2. Ólafur Valgeirsson 29 3. Aflalsteinn Jörgensen 28 4. Ragnar Halldórsson 26 5. Albert Þorsteinsson 24 Næstkomandi mánudag 3. nóv. verður 3. og 4. umferð spiluð. Spilað er í Gaflinum við Reykjanesbraut og hefst spilamennskan stundvíslega klukkan hálf átta. Áhorfendur eru sérstaklega velkomnir. Bridgefélag Breiðholts Á þriðjudaginn var spilaður eins kvölds tvímenningur og var spilað í einum tólf para riðli: Úrslit urðu þessi: EiflurGufljónsson-Krístinn Helgason 131 Hermann Lárusson-Axel Lárusson 131 Tómas Sigurjónsson-Sigurflur Blöndal 123 Leifur Karlsson-Hreiflar Hanssen 121 Meðalskor 110. Næstkomandi þriðjudag hefst þriggja kvölda hraðsveitakeppni og verður stökum pörum raðað saman í sveitir áður en spilamennska hefst. Spilað er í húsi Kjöts og fisks, Selja- braut 54, kl. hálf átta stundvíslega. Frá Bridgedeild Barðstrendinga- félagsins Fimmtu og síðustu umferðinni i tví- menningskeppninni lauk mánudags- kvöldið 27. október og sigruðu Þórarinn Árnason og Ragnar Björnsson með miklum yfirburðum. En að lokinni keppni var staða 10 efstu para þessi: 1. Þórarinn Ámason-Ragnar Björnss. 669 2. Magnús Halldórsson-Jósef Sigurösson 609 3. Gunnl. Þorsteinsson-Hjörtur Eyjólfsson 600 4. Kristján Ingólfsson-Jón Björnsson 578 5. Sigurður Krístjánsson-Hermann Ólafsson 572 6. Þórir Bjarnason-Hcrmann Samúelsson 558 7. Ágústa Jónsdóttir-Guflrún Jónsdóttir 553 8. Viðar Guflmundsson-Pétur Sigurðsson 550 9. Gísli Benjamínsson-Jóhannes Sigvaldason 549 10. Einar Ólafsson-Þröstur Einarsson 535 Mánudaginn 3. nóvember hefst síðan 5 kvölda hraðsveitakeppni. Spilarar mæti stundvíslega kl. 19.30. Frá Bridgefélagi Kópavogs Fimmtudagskvöldið 23. okt. lauk þriggja kvölda tvímenningskeppni hjá Bridgefélagi Kópavogs. Sigurvegarar urðu Jón Andrésson og Garðar Þórðarson. Bezta árangri kvöldsins náðu: A-riðill stig Valdimar Þórflarson-Haukur Hannesson 187 Bjami Pétursson-Vilhjálmur Sigurflsson 186 Ármann J. Lárusson-Sverrír Ármannsson 174 B-riflill stig Guðjón Sigurflsson-Frífljón Margeirsson 203 Fríflrík Guflmundsson-HreinnHreinsson 197 Július Snorrason-Barfli Þorkelsson 180 Röð efstu para í keppninni varð þessi: 1. Jón Andrésson-Garflar Þórflarson 554 2. Ármann J. Lárusson-Sverrír Ármannsson 551 3. Bjaml Pétursson-Vilhjálmur Sigurflsson 538 4. Valdimar Þórflarson-Haukur Hannesson 534 5. Georg Sverrisson-Rúnar Magnússon 530 6. Sævin Bjarnason-Ragnar Bjömsson 527 Fimmtudaginn 30. okt. hófst 5 kvölda hraðsveitakeppni hjá félaginu. Spilað er í Þinghól, Hamraborg 11 og hefjast spilakvöldin kl. 20.00. Tafl & bridge- klúbburinn Fimmtudaginn 23. október var spil- uð fimmta og síðasta umferð i tví- menningskeppninni. Sigurvegarar urðu Valur Sigurðsson og Jón Baldursson. Hæstu skor kvöldsins fengu i A-riðli Gestur Jónsson og Sverrir Kristinsson, 264 stig, í B-riðli Þorsteinn Erlingsson ogViggó Gíslason, 254 stig. Lokastaða 10 efstu para er þessi: 1. Jón Buldursson-Valur Sigurðsson 1194 2. Ingvar Hauksson-Orwell Utley 1162 3. Jón P. Sigurjónsson-SigfúsÖ. Árnason 1152 4. Guðbr. Sigurbergss.-Oddur Hjaltason 1142 5. Helgi Einarsson-Gunnl. Óskarsson 1127 6. Bragi Björnsson-Þórh. Þorstelnss 1124 7. Ragnar Óskarsson-Sig. Ámundason 1111 8. Óskar Karlsson-Guflm. Sigursteinsson 1100 9. Aflalst. Jörgensen-Stefán Pálsson 1091 10. Ingólfur Böflvarsson-Gufljón Á. Ottósson 1085 Fimmtudaginn 30. október var spil- uð fyrsta umferð í hraðsveitakeppni félagsins. Staða efstu sveita eftir fyrstu umferð er þessi: 1. Sveit Gests Jónssonar 631 2. Sveit Sigurflar Steingrimssonar 591 3. Sveit Sigfúsar Arnars Sigurhjartarsonar 561 4. Sveit Ragnars Ólafssonar 558 Fimmtudaginn 6. nóvember verður ■spiluð önnur umferð, spilað verður í Domus Medica. Spilarar mæti stund- vislega kl. 19.30. Bylting í bygg- ingar iðnaði þú ert, eða œtlar \ að byggja... ... þá kynntu þér BYGGINGARKERFIÐ sem sparar tíma og peninga, færanlegir skil- veggir fyrir heimili, iðnaðar- og skrifstofu- húsnæði og verzlanir. Gerum tilboð í uppsetningu Framleiðandi: HANNES GUNNARSS0N Þorlákshöfn. Simi Hönnun og einkaleyfisvernd: nn ocon Ráðgjöf og 99-3620 HÖNNUNSIF

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.