Dagblaðið - 29.11.1980, Qupperneq 7
DAGBLAÐiÐ. LAUGARDAGUR 29. NÓVEMBER 1980.
7
Lögreglan í Keflavík loks í nýtt húsnæði:
„EINS OG AÐ KOMAI
HIMNARÍKIÚR HELVÍTI
—og það án viðkomu á jörðinni”
„Þetta er eins og að koma úr helviti í
himnaríki, án viðkomu á jörðinni,”
sagði einn í Keflavíkurlögreglunni er
lögregluliðið lauk flutningi í nýtt hús-
næði við Hringbraut í Keflavík. Þar er
um nýbyggingu að ræða, glæsilegt
húsnæði hið innra sem ytra, og það fær
lögregluliðið eftir að hafa hirzt í
ófullnægjandi og heilsuspiilandi húsa-
kynnum að Hafnargötu 17 yfir tvo ára-
tugi.
„Bygging stöðvarinnar hófst fyrir
hálfu öðru ári en aðdragandi að
byggingunni er miklu lengri. Má rekja
hann aftur til Alfreðs Gíslasonar fógeta
en þrátt fyrir heitar óskir varð ekkert úr
húsbyggingu fyrr því fjárveitingavaldið
þráaðist lengi við,” sagði Jón Eysteins-
son sýslumaður og fógeti sem sam-
gladdist undirmönnum sínum í nýju
stöðinni í fyrrakvöld.
Nýja lögreglustöðin er tvílyft hús,
rúmlega 200 fermetrar að flatarmáli
auk bílageymslna. Á neðri hæð er varð-
stofa, fangageymslur (7 klefar) o.fl. Á
efri hæð eru herbergi lögregluþjóna,
rannsókna- og fíkniefnalögreglu-
þjóna, yfirmannaherbergi og eldhús.
Mjög fullkomið fjarskiptakerfi er í
húsinu og lýsing vekur einnig athygli.
Enn vantar ýmislegt af innanstokks-
munum í stöðvarhúsið en úr því mun
rætast á næstu vikum.
Byggingarkostnaður nemur að öllu
samanlögðu rúmlega 200 milljónum
króna. „En þetta er okkar húsnæði,”
íslandsklukkan:
Hvenær drepur
maður mann og
hvenær drepur
maður ekki mann?
Það þarf talsvert hugrekki til að
láta nemendur spreyta sig á íslands-
klukkunni þegar leikarar eins og
Þorsteinn ö. og Lárus Pálsson hafa
gert persónurnar ódauðlegar, að
manni finnst. En þetta gerði Bríet
Héðinsdóttir og árangurinn hjá henni
er svo góður að áhorfandinn bæði
hlær og grætur. Tjöldin eru afar
einföld svo það er ekkert sem truflar
frá verkinu sjálfu. „Krakkarnir ná
inn úr textanum og inn í hrygg á
manni,” sagði einn áhorfandi.
íslandsklukkan er eins og tilbrigði
um spurninguna: hvenær ber mann-
leg viðleitni þann árangur sem til var
ætlazt? Arne Arneus eyðir allri ævi
sinni í að safna bókum sem síðan
fuðra upp á einni nóttu í Kaup-
mannahöfn. Hann gengur í lið með
þeim svarlausu og fær smáglæpa-
menn sýknaða svo dómarinn, faðir
Snæfríðar, missir æruna. Þá neyðist
hún, konan sem ein hefði hæft
honum sem eiginkona, til að giftast
til fjár og endurheimta æru föður
síns með því að fá alla smáglæpa-
mennina dæmda aftur.
Aðeins eitt tekst Arneusi, að
hindra að Danakóngur selji landið,
en jafnvel það kann að vera
skammgóður vermir.
Nú eru fáar sýningar eftir á
íslandsklukku nemendaleikhússins.
Miðasalan í Lindarbæ er opin alla
daga nema laugardaga frá 4—7, sími
21971. -IHH.
Jón Hreggviðsson: Hvenær hefur
verið alminlegur dýrlingur, sem ekki
varþjófur fyrst?
sagði Jón sýslumaður,” „og því losnar leigðum gömlu stöðina af Keflavíkur-
embættið við leigukostnað, en við bæ.” -EMM
Jón Eysteinsson fógeti í Keflavfk (t.h.) á nýju lögreglustöóinni: „Þetta er okkar
húsnæði.” y DB-mynd emm.
RAFAFL STÁLAFL SAMAFL
AÐALFUNDUR
Framleiðslusamvinnufélag iðnaðarmanna boðar til aðal-
fundar laugardaginn 6. desember 1980 kl. 8.30 árdegis að
Smiðshöfða 6, Reykjavík.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Starfsáætlun 1981 — 1982
3. Önnur mál
Stjórnin.
Smurbrauðstofan
BJORNINN
Njálsgötu 49 — Sími 15105
Sænski visnasöngvarinn
Jerker Engblom
syngur lög eftir Bellman, Evert Taube og Birger Sjöberg á
vísnastund j Norræna húsinu sunnudag 30. nóv. kl. 17.
Miðar viö innganginn, kr. 1000 Norræna húsið
Viðhorf Hrafnkels A.
Jónssonarástóriðju:
„Ekki eins-
mannsskoðun
— íAlþýðubandalaginu”
í dálkinum Fleira fólk i miðviku-
dagsblaðinu er talað um tillögu sem
sagt er að Hrafnkell A. Jónsson frá
Eskifirði hafi flutt á landsfundi
Alþýðubandalagsins til stuðnings
aukinni erlendri stóriöju á íslandi.
Hafi sú tillaga fengið „hraklegar
undirtektir” á landsfundinum.
Hrafnkell hafði samband við Dag-
blaðið og sagðist enga tillögu hafa
flutt þessa efnis. Hins vegar hefði
hann í ræðu lýst skoöun sinni á stór-
iðjumálum. Þá sagði Hrafnkell að
fram hefði komið opinberlega að
hann hefði ekki verið á þinginu þegar
stjórnmálaályktun var afgreidd en í
henni er að finna sjónarmið í stór-
iðjumálum sem Hrafnkell talaði á
móti í almennum umræðum. Sagði
Hrafnkell skýringuna vera þá aö ein-
mitt þegar stjómmálaályktun var
afgreidd var á sama tíma haldinn
fundur alþýðubandalagsfulltrúa á
ASÍ-þinginu og voru þeir því fjarver-
andi afgreiðslu ályktunarinnar.
„Ég hefði líklega greitt atkvæði
gegn stjórnmálaályktuninni ef ég
hefði á annað borð kosið að taka þátt í
atkvæðagreiðslu. Hins vegar held ég
að rangt sé sem fram kemur víða að
mitt viðhorf sé einsmannsskoðun
innan Alþýðubandalagsins. Þessi af-
staða á meira fylgi að fagna.” -ARH.
BÍLATEPPI
E Amerísk teppi i aHa bila. Sjúum um ísotningu eða sníðum oftir méli.
Ql lu *
h
Vönduð vinna — Vanir menn. V
mJ 7 litir Hrúnl
Svart Rauðbrúnt
5 Rautt lllútt Gult Rústrautt
Tilbúin teppi í Range Rover, Bronco, Lada
SlMI Sport o.fl. Sendum / póstkröfu. Höfum oinnig teppi í bóta. Erum i sama húsi og Bilesala Eggarts. Teppa-
þjónustan hf.
Auðbrekku 44—46. Simi 42240
Bremsu-
klossar
Og
borðar
,flesta«abaa
Þjóðvegargrindverk í
Kollafirði ekið niður
Fyrir tæpum hálfum mánuði, eða aiveg á einum stað.
sunnudaginn 16. nóvember, var ekið á Mál þetta er í rannsókn hjá rann-
stálgirðingu meðfram þjóðveginum í sóknarlögreglunni í Hafnarfirði og
Kollafirði, nánar tiltekið á beýgjunni óskar hún allra hugsanlegra upplýsinga
við Laxeldisstöðina. Var grindverkið — eða að sá er á keyrði gefi sig fram.
keyrt niður á um 20 metra kafla og rifið -A.St.
Tónlistarskóli Rangæinga
með kennslu á 7 stððum
Fyrir skömmu var Tónlistarskóli hreppar sýslunnar bera útgjöld af
Rangæinga ranglega kallaður Tón- skólahaldinu og kennsla fer fram á sjö
listarskólinn á Hellu í DB. Vegnaþeirra stöðum í sýslunni. Hella er því aðeins
mistaka skal tekið fram að skólinn einn af kennslustöðum skólans.
þjónar allri Rangárvallasýslu. Sjö -A.St.
Ertu 18 ára eða etöri?
Leitar þú trausts umhverfis í félagi viðönnur ungmenni? Viltu taka þátt í
menntun, sem ekki byggir á prófum, heldur áhuga?
Viðbjóðum uppá fjölda námsgreina — þú velur fagið.
Ryslinge Hojskole á Fjóni í Danmörku er heimavistarskóli með 130
nemendum. Við byrjum nýtt 20 vikna námskeið 12. janúar 1981.
Allir, sem orðnir eru 18 ára, eru velkomnir.
Styrkur frá danska ríkinu og úr Norðurlandasjóði skólans.
Skrifið eftir nánari upplýsingum til Norræna hússins i Reykjavik. eða
beint til
RYSUNGE H0JSKOLE
5856 Ryslinge, Danmark.
Þaó hefur veriö erfitt aö læra dönsku — nú veröur það gaman!
--------------------:____________________
Límum og rennum
diska og skálar
Límum á kúplingsdiska o. fl.
álímingar sf
Ármúla 22
Símar 84330 og 84181