Dagblaðið - 29.11.1980, Síða 9
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 29. NÓVEMBER 1980.
9
Þeir eru ekki ýkja margir mynd-
listarmennirnir hér á landi sem fást
við að opinbera listræn sannleiks-
korn með raunsærri túlkun á manns-
líkamanum, nöktum sem fullklædd-
um. Einn þeirra er Guðmundur
Björgvinsson sem fyrst vakti á sér
athygli með sýningu í kjallara
Norræna hússins árið 19C78 og sýnir
nú verk sín að Kjarvalsstöðum til
sunnudagskvölds. Í Norræna húsinu
virtist Guðmundur hafa markað sér
stefnu af óvenjulegri festu, — konu-
líkaminn var yrkisefnið og pastel
miðillinn. Þeim kúrs heldur hann á
þessari sýningu, en með frávikum þó,
aðallega portrettmyndum, svo og
kvikum formyndum eða stúdíum
gerðum með tússi eða prentlitum,
en myndir af því tagi sýndi Guð-
mundur á haustsýningu FÍM fyrir
stuttu.
Svartigaldur
Það hefur sjálfsagt mátt nálgast
þessar pastelmyndir Guðmundar út
frá fleirum en einu sjónarhorni, — t.
d. sem formkönnun, eða erótíska hyll
ingu. En á þessari sýningu kemur i
ljós að svo einfaldar skýringar nægja
ekki í öllum tilvikum. Þótt naktar
konur engist sundur og saman í
myndum hans, þar séu kvenbrjóst,
bakhlutar og læri, jafnvel völsi í
stærra lagi, þá andar einkennilega
köldu frá þessum efnivið, öll ástúð
og girnd eru víðs fjarri og áhorfand-
inn fær það sterklega á tilfinninguna
að hann sé hér viðstaddur formfast
Guðmundur Björgvinsson — Sjálfsmynd milli stafs og hurðar.
KÖLD NEKT
Sýning Guðmundar Björgvinssonar að Kjarvalsstöðum
kynferðislegt ritúal eða svartagaldur
fremur en hyllingu holdsins. Þetta
gera m.a. þeir litir sem Guðmundur
heldur mest upp á, — stálgráir eða
grábláir, með stöku sterkrauðu ívafi.
Heiti margra myndanna benda enn-
fremur til þess að þeim sé ætlað að
vera boðberar ákveðinna hugmynda
um lífið og tilveruna, fremur en lífs-
nautnarinnar einskærrar. Myndir af
því tagi eru t.d. Samruni kynþátt-
anna, Móðir náttúra, myndþrennan
Mátturinn og dýrðin, Bláköld
bernskan o.fl.
Á sviði
En í þeim er- það oft svo að annað-
hvort er hin myndræna úrvinnsla of
langsótt eða of augljós og betur kann
ég við það þegar Guðmundur fjallar
um ýmsar tilfinningar sem þorri
manna hefur kynnst af eigin raun,
einsemd, örvæntingu, kvíða, ótta, og
þar er helst að geta mynda nr. 32—
40, sérílagi „sviðsmyndanna” af
drengjum í ham. Mér skilst að
bræður tveir „túlki” svo þær myndir
einhvem tímann á sýningartímanum,
sem ætti eiginlega að vera óþarfi.
Guðmundur gerir margt vel, tekst
t.d. að byggja upp ljóðræn augnablik
í myndum, sjá nr. 8 og 9, nr. 6 (Það
var vor. . .), en samt er eins og öll
nákvæmnin laði ekki að, þegar öll
kurl eru komin til grafar. Leikni lista-
mannsins í notkun pastellita hefur
enn aukist frá því 1978, t.d. eru
myndir þær sem hann gerir eftir ljós-
myndum af þekktu fólki oft sláandi.
Þó gætir enn vanmáttar i myndum
sem virðast teiknaðar eftir lifandi
fyrirsætum, útlínur gerast þá óþarf-
legaharðar.
Prentlita- og tússmyndirnar eru allt
annar kapítuli á sýningunni og fór
stórum betur í mig heldur en ofur-
raunsæið. Þar virðist Guðmundur
-leika af fingrum fram, leggja drög að
mannamyndum, hressa upp á
minnið, æfa sig í myndbyggingu, en
alltaf án þess að gefa of mikið í skyn.
Þar gefst okkur tækifæri til að geta í
eyðurnar, gerast þátttakendur í
sköpuninni. Það er ekki lítils virði.
-AI.
Ásmundur og Karl
Reykjavíkurmeistarar
Reykjavíkurmótið í tvímenningi var
spilað um sl. helgi. Sigurvegarar með
miklum yfirburðum urðu þeir Ás-
mundur Pálsson og Karl Sigurhjartar-
son og má segja að þeir hafi leitt alla
keppnina. Efstu pör urðu annars þessi:
1. Ásmundur Pálsson, Karl Slgurhjartarson 335
2. Guðm Hermannsson, Sævar Þorbjörnss 205
3. Jón Ásbjörnsson, Símon Símonarson 159
4. Guðm. Páll Arnarson, Sverrir Ármannsson 157
5. Jón Baldursson, Valur Sigurðsson 68
6. Eiríkur Jónsson, Páll Valdimarsson 64
Eins og undanfarin ár voru spilin
tölvugefin og mikið af skiptingarspil-
um. Verða nú sýnd nokkur spil frá
keppninni.
Hér er spil nr. 1.
NoRDl'K
AÁ9643
'"8
■>ÁK854
*76
Ai.mi'ii
A DG1087
G96
107
* 1084
Sl'DUR
A enginn
- ÁKD432
D962
+ ÁKD
Mörgum þótti sem tölvan hefði
brugðizt í þessu spili. Þvi að nokkrir
spiluðu sjö hjörtu eða sjö grönd á þessi
spil og unnu af því að hjartað féll þrjú
og þrjú, þó svo að flestir spiluðu sjö
tígla, sem ar rétti samningurinn. Gaf
það aðeins meðalskor.
Hér kemur spil nr. 2.
+ K52
T 1075
G3
+ G9532
félaga þínum og athuga hvort þú næðir
sjö á þessi spil.
Þá er komiðað 3. spilinu.
Vt.ni ií
A10962
.8762
óK
AÁD103
Norim.r
A ÁDG87
v5 Á
>85
*KG984
Ai.'sruR
* K43
KDG953
G10
*62
Sl'di'k
+ 5
104
ÁD976432
*75
Eins og sést var mikið af skiptingar-
spilunum og á þetta spil var spilað allt
upp í sex tígla doblaða og unna. Þeir
vinnast með því að taka tigulkóng ein-
spil.
Þá kemur hér lokaspilið.
VfSTOR
A ÁG973
v D832
* 652
* 6
NnwniR
+ D6
"Á
0 KG974
+ ÁK753
ÁUSTÍIR
+ K1042
•’G 10765
0 83
+ 109
Sumju
+ 85
r>’ K94
OÁD10
* DG842
Vtstur
+ 932
^ 3
0 D72
* KD8642
Nortiur
+ 84
” ÁK94
0 ÁK84
* 1073
Au.'Tiir
+ 76
872
0 10963
+ ÁG95
Suiiijh
A ÁKDG105
DG1065
0 G5
* ekkert
Aðeins fjögur pör af fjórtán náðu
þessari upplögðu alslemmu. Það væri
rétt fyrir þig að segja á þessi spil með
Mjög margir fóru í 6 lauf á þessi spil
og er ekki hægt að segja að sagntækin
sé þá á háu stigi en heppnin var með
þeim mörgum því að þau unnust á
flestum borðum.
Frá Bridgedeild
Breiðfirðinga
Þegar eitt kvöld er eftir í Butler-
keppni félagsins er staðan þessi:
1. Kriutján Ólafsson, Runólfur Slgurflsson 444
2. Albert Þorsteinsson, Siguröur Emilsson 440
3. Magnús Oddsson, Þorsteinn Laufdal 419
4. Jón Stefánsson, Óiafur Ingimundarson 412
5. Kristín Þórðardóttir, Jón Pálsson 409
6. Ester Jakobsdóttir, Erla Sigurjónsdóttir 406
7. Ingibjörg Halldórsd., Sigvaldi Þorsteinsson 397
8. Guðjón Kristjánsson, Þorvaldur Matthiasson 397
9. Böðvar Guðmundsson, Ólafur Gíslason 396
10. Gísli Víglundsson, Þórarinn Árnason 391
Lokaumferðin verður spiluð nk.
fimmtudag og hefst kl. 19.30, spilað er
í Hreyfilshúsinu við Grensásveg.
Frá Bridgefélagi
Reykjavíkur
Staðan 1 sveitakeppni félagsins að
loknum 10 umferðum af 13 er þessi:
1. Sveit Sævar Þorbjörnssonar 142
2. Sveit Samvinnuferða 139
3. Sveit Hjalta Elíassonar 129
4. Sveit Jóns Þorvaröarsonar 125
5. Sveit Sigurðar B. Þorsteinssonar 124
6. Sveit Karls Sigurhjartarsonar 115
Næst verður spilað nk. miðvikudag í
DomusMedicaoghefstkl. 19.30.
Tafl- og bridge-
klúbburinn
Fimmtudaginn 27. nóvember hófst
þriggja kvölda tvímenningur hjá félag-
inu. Spilað er með Butler fyrirkomu-
lagi. Spilaðerítveimur 14 para riðlum.
Sex efstu pör eftir fyrsta kvöldið eru
þessi:
1.-2. Bragi Jónsson, Rafn Kristinsson 65
1.-2. Valur Sigurðsson, Páll Valdimarsson 65
3. Orwell Outly, Hermann Lárusson 61
4. Ingólfur Böðvarsson, Guðjón Ottósson 51
5. Vilhjálmur Pálsson, Dagbjartur Pálsson 48
6. Sigurður Stelngrímsson, GIsli Steingrímss. 45
Fimmtudaginn 4. desember verður
spiluð fimmta umferð í Butler tvimenn-
ingskeppninni. Spilarar mæti kl. 19.10
stundvíslega. Spilað er í Domus
Medica.
Bridgedeild
Skagfirðinga
Fjórða umferð tvímenningskeppni
Skagfirðinga var spiluð í Drangey,
Síðumúla 35, siðastliðinn þriðjudag.
í efstu sætum eru nú:
1. Bjarni Pétursson, Ragnar Bjömsson 504
2. Jón Stcfánsson, Þorsteinn Laufdal 497
3. BJöm Eggertsson, Kari Adolfsson 483
4. Guðrún Hinríksdóttir, Haukur Hannesson 467
5. Andrés Þórarínsson, HJálmar Pálsson 467
6. Hjalti Krístjánsson, Ragnar Hjálmarsson 462
7. Sigmar Jónsson, Sigrún Pétursdóttir 450
8. Jón Hermannsson, Ragnar Hansen 449
Lokaumferðin verður spiluð á sama
stað þriðjudaginn 2. desember.
Bridgefélag
Kópavogs
Fjórða og næstsíðasta umferðin í
hraðsveitakeppninni var spiluð
fimmtudaginn 18. nóv.
Beztum ár;angri kvöldsins náðu þess-
ar sveitir:
Bjarni Pétursson 778
Sigurður Vilhjálmsson 702
Sigríður Rögnvaldsdóttir 699
meðalskor 648 stig
Staða efstu sveita er þessi:
1. Rúnar Magnússon 2746
2. Ármann J. Lárusson 2739
3. Jón Þorvaröarson 2736
4. Sigurður Vilhjálmsson 2693
5. Jón Andrésson 2685
6. Sverrir Þórisson 2627
Meðalskor 2592 stig
Bridgedeild
Barðstrendinga-
félagsins
4. umferð í hraðsveitakeppninni var
spiluð i Domus Medica mánudaginn
24. nóvember. Staða 6 efstu sveita er
nú þannig:
1. Ragnar Björnsson 1858
2. Óli Valdimarsson 1843
3. Ágústa Jónsdóttir 1791
4. Viðar Guðmundsson 1774
5. Baidur Guðmundsson 1742
6. Gunnlaugur Þorsteinsson 1736
Frá Bridgefélagi
Vestmannaeyja
Um síðustu helgi var spiluð hér í Eyj-
um tvímenningskeppni Suðurlands
1980. Alls tóku 14 pör þátt í keppninni,
sex frá Vestmannaeyjum, fjögur frá
Laugarvatni, þrjú frá Selfossi og frá
Bridgefélagi Reykjavíkur kepptu sem
gestir þeir Jakob Möller og Hrólfur
Hjaltason.
Byrjað var á spilamennskunni á
föstudagskvöld og spilaðar fimm um-
ferðir það kvöld. Að þeim fimm um-
ferðum loknum voru Vestmannaeying-
arnir Jón Hauksson og Pálmi Lórens-
son efstir en á hæla þeim fylgdu Sel-
fyssingarnir Sigfús og Vilhjálmur.
Hafizt var handa um spilamennsku kl.
10 á laugardagsmorgun enda var stefnt
að því að ljúka mótinu fyrir kvöldmat,
sem og tókst. Þeir Jón og Pálmi héldu
forystunni allt þangað til þrjár um-
ferðir voru eftir, þá sigu Sigfús og Vil-
hjálmur fram úr og sigruðu nokkuð
örugglega. En lokastaðan varð þessi
(meðalskor 546):
1. Sigfús ÞórOarson — Vllhjúlmur Pálsson
(Bridgefélag Selfoss) 682
2. Jón Hauksson — Pálmi Lórensson
(Brldgefélag Vestmannaeyja) 653
3. Sigurgeir Jónsson — BjamhéOlnn Elfass.
(Bridgefélag Vestmannaeyja) 597
4. Jakob Möller — Hrólfur Hjaltason
(Bridgefélag Reykjavlkur) 565
5. Haukur GuOjónsson — Þorlelfur Slgurláss.
(Brldgefélag Vestmannaeyja) 561
6. Lelf österby — Brynjólfur Geslsson
(Brldgefélag Selfoss) 552
7. Helgi Bergvlnsson — HJálmar Þorlelfsson
(Bridgefélag Vestmannaeyja) 547
Aðrir keppendur náðu ekki meðal-
skor. Laugvetningar blönduðu sér ekki
í keppnina um efstu sætin að þessu
sinni en árangur Vestmanneyinga hefur
sjaldan eða aldrei verið betri, eða
fjögur af sjöefstu sætum. Þó hefur lík-
lega ekkert komið eins á óvart og
árangur þeirra Sigurgeirs og Bjarn-
héðins sem hrepptu þriðja sætið án
mikillar fyrirhafnar. Þetta er því at-
hyglisverðara þar sem hvorugur þeirra
hefur verið mjög áberandi hvað efstu
sæti varðar í keppni hingað til og hafa
þeir raunar ekki spilað saman í keppni í
allmörg ár. Hallast menn helzt að því
að ástæðan fyrir þessari velgengni
þeirra sé sú að þeir mættu til leiks með
spánýtt kerfi sem reyndist prýðilega í
alla staði, þrátt fyrir að vera mjög ein-
falt í sniðum. Gengur kerfið undir
nafninu „Matsstöðvartigullinn” og
þykir líklegt til vinsælda.
Keppnisstjóri í þessu móti var Sigur-
jón Tryggvason frá Reykjavík og rækti
hann sitt hlutverk með prýði.
Nú er hálfnuð aðalsveitakeppni
Bridgefélags Vestmannaeyja en þar er
spiluð tvöföld umferð með þátttöku
sex sveita. Eftir fjórar umferðir er
staðan þessi:
1. Sveit Valgeirs Kristinssonar 62
2. Sveit Gestgjafans 48
3. Sveit Sveins Magnússonar 43
4. Sveit Guðlaugs Stefánssonar 23
5. Sveit Friöþjófs Mássonar 21
6. Sveit Einars Friðþjófssonar 15
Tvær siðustu sveitirnar eiga einn leik
til góða þannig að stigatala þeirra getur
breytzt. Sveit Valgeirs skipa auk hans
þeir Anton Bjarnason, Gunnar Krist-
insson, Magnús Grímsson, Ragnar
Helgason og Sigurgeir Jónsson. Sveit
Gestgjafans skipa þau Hilmar Rós-
mundsson, Jakobína Guðlaugsdóttir,
Jón Hauksson, Pálmi Lórensson og
Sigfús Sveinsson. Og sveit Sveins
Magnússonar skipa auk hans þeir
Benedikt Ragnarsson, Bjarnhéðinn
Elíasson og Leifur Ársælsson.
Bridgefélag
Breiðholts
Þriðjudaginn 25. nóv. lauk þriggja
kvölda hraðsveitakeppni félagsins með
sigri sveitar Baldurs Bjartmarssonar
sem hlaut 1383 stig. f sveit Baldurs
voru þessi auk Baldurs: Rafn Kristjáns-
son, Sigríður Rögnvaldsdóttir og
Hannes Jónsson. Næst komu:
Sveit Bergs Ingimundarsonar 1308
Sveit Óiafs Garðarssonar 1285
Meðalskor 1296
Næstu þriðjudaga verða spilaðir eins
kvölds tvímenningar og er allt spilafólk
velkomið meðan húsrúm leyfir. Spilað
er í húsi Kjöts og fisks, Seljabraut 54
kl. hálfátta stundvislega. Keppnisstjóri
er Hermann Lárusson.