Dagblaðið - 12.01.1981, Blaðsíða 6

Dagblaðið - 12.01.1981, Blaðsíða 6
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 12. JANÚAR 1981. NÁMSFLOKKAR KÓPAVOGS Innritað verður alla þessu viku 12.-18. jan í síma 44391 kl. 16—19 Erlend tungumál (byrjendafl. og framhaldsfl.). kr. 200 — skrautskrift kr. 240 — bíllinn kr. 200 — leðurvinnan kr. 240 — skartgripasmíði kr. 330 (m. efni) — tréskurður kr.; 310 (m. efni) — leirmótun kr. 310 (m. efni) — myndlist kr. 280 — ljósmyndun kr. 240 —- saumar kr. 330 — mynd- vefnaður kr. 250 — hnýtingarkr.220 — vélritun kr. 300 og skrúðgarðyrkja kr. 190 (hjónaafsláttur). 3S STILL Esslingen lyftarar uppgerðir frá verksm. Til afgreiðslu nú þegar. Rafmagns: 1,5 t, 2 t, 2,51 og 3, tonna. Dísíl: 3,51,41 og 6 tonna. Greiöslukjör. STILL einkaumboð á íslandi " J^K. JÓNSSON & CO. HF. §, SS2W*. ÚTBOÐ Orkubú Vestfjarða óskar eftir tilboðum i eftirtalið rafbúnaðarefni: 1. Dreifispenna — útboð 181. 2. Strengi — útboð 281. 3. Götugreiniskápa — útboð 381 4. Aflspenni — útboð481 Útboðsgögn fást á tæknideild Orkubús Vestfjarða. Stakkanesi. ísafirði. Sími 94-3900. Tilboð samvkæmt lið 1. 2 og 3 verða opnuð miðvikudaginn 25. feb. nk. kl. 14. Tilboðsamkvæmt lið 4 verða opnuðmiðvikud. 4. marz nk.kl. 14. Orkubú Vestfjarða, tæknideild JUDO Ný byrjendanámskeið hefjast 12. janúar. Þjálfari: Viðar Guðjohnsen Innritun og upplýsingar í síma 83295 allri virkadagafrákl. 13-22. JÚDÓDEILD ÁRMANNS Ármúla 32. „Þeir hafa tvöföld laun- in sem hæst hrópa” —segja háskólamenn ,,Laun háskólamenntaðra ríkis- starfsmanna eru eftir úrskurð Kjara- dóms kr. 5.500—10.000 og eru meðallaun þeirra um kr. 7.300 á mánuði,” segir í tilkynningu frá launamálaráði Bandalags háskóla- menntaðra manna, BHM. Furðulegt sé, að 6 prósent hækkun launa ríkis- starfsmanná innan BHM hafi orðið tilefni þess að ráðherrar, forystu- menn Alþýðusambandsins og ýmsir fleiri hafi keppzt við að lýsa yfir hneykslun sinni. „Þessir menn sem hæst hrópa nú um of mikla hækkun til „hálaunamanna” hafa hins vegar að minnsta kosti tvöföld meðaiiaun háskólamenntaðra ríkisstarfsmanna og um 50—100% hærri laun en þeir hæst launuðu,” segja háskólamenn. Kjaradómur hafi nú sem oft áður sýnt íhaldssemi og aðeins dæmt BHM hluta af þeim hækkunum sem urðu á almennum vinnumarkaði. Sem dæmi um hækkanir hópa á al- mennum markaði, sem hafi svipuð Þrír hlutu vígslu ígær —tveirnýirprestar ogkonahlaut krístríboðavígslu Valdís Magnúsdóttir kennari var í gær vígð kristniboðavígslu af herra Sigurbirni Einarssyni biskup og heldur nú til kristni- boðsstarfa í Kenya ásamt eigin- manni sínum, séra Kjartani Jóns- syni, sem einnig hlaut vígslu i gær. Þriðji maðurinn hlaut og vígslu í gær, séra Guðmundur Karl Ágústsson, settur sóknar- prestur i Ólafsvík. Þau Valdís og séra Kjartan hafa verið kölluð til kristniboða- starfa í Kenya á vegum Sambands íslenzkra kristniboðsfélaga. Er Valdís sjöunda konan sem fer til starfa á vegum Kristniboðssam- bandsins en fleiri íslenzkar konur hafa unnið að kristniboði á veg- um annarra trúfélaga. Gísli Arnkelsson, formaður Sambands íslenzkra kristniboðs- félaga, lýsti vígslunni í gær. Vígsluvottar voru þeir sr. Árni Bergur Sigurbjörnsson, áður prestur í Ólafsvík, séra Guð- mundur Óskar Ólafsson, for- maður Prestafélags íslands, og séra Jón Dalbú Hróbjartsson ásamt séra Hjalta Guðmundssyni dómkirkjupresti, sem þjónaði fyrir altari ásamt vígsluþega, séra Guðmundi Karli. Kjartan Jóns- son predikaði og Marteinn Frið- riksson og Dómkórinn leiddu safnaðarsönginn. Þeir Kjartan og Guðmundur Karl luku báðir guðfræðipróft frá HÍ sl. vor. Valdís stundaði kristniboðanám í Noregi að loknu kennaraprófi. Þau hjón halda þegar til Chepareria í Kenya ásamt dætrum sínum tveimur. Guðmundur Karl hefur verið settur prestur í Ólafsvík frá ára- mótum. Kona hans er Hjördís Birgisdóttir hjúkrunarfræðingur og eiga þau eitt barn. - OV eöa hærri laun en háskólamenntaðir ríkisstarfsmenn, megi nefna eftirfar- andi. Yfirmenn á farskipum hafi fengið 11% hækkun (laun þeirra séu nú allt að 20 þús. á mánuði), verk- stjórar 20% hækkun, blaðamenn 9— 15% hækkun, verkfræðingar á al- mennum markaði 9%, prentarar, bókbindarar og mjólkurfræðingar 11%, trésmiðir, múrarar, málarar og veggfóðrarar 16%, hækkun ákvæðis- vinnutaxta haft verið 8—9%. Launamálaráð BHM segist vilja leiðrétta þann misskilning að samið hafi verið við BHM eftir samninga við Bandalag starfsmanna ríkis og bæja. „Þetta er alrangt, því þessi 6% launahækkun var ákveðin með úr- skurðum kjaradóms frá 9. nóvember (0,7%) og 31. desember (5,3%). Sér- stakiega vekur það furðu að fjár- málaráðherra skyldi segja í útvarpi og sjónvarpi að samið hefði verið við BHM, og ætti hann þó að vita betur,” segja háskólamenn. „f sama viðtali sagði fjármálaráöherra einnig að efri hluti launastiga BSRB hefði litla eða enga hækkun fengið. Þetta er einnig rangt, því að efsti launa- flokkur BSRB fær á samningstíma- bilinu 7,3% hækkun. Þá er það að skilja á ráðherra að Kjaradómur eigi að fylgja stefnu ríkisstjórnarinnar í launamálum. Sú skoðun kom einnig fram í forystugrein Dagblaðsins 8. janúar. Þetta er einnig rangt. Kjara- dómur á að vera hlutlaus úrskurðar- aðili í kjaradeilum rikisins og ríkis- starfsmanna,” segir launamálaráð BHM. Ríkisstarfsmenn hafi hingað til orðið að sætta sig viö óhagstæða úr- skurði Kjaradóms. Á sama hátt eigi ríkið nú að sætta sig við úrskurðinn. Verði samþykkt í ríkisstjórninni að ógilda úrskurð Kjaradóms um laun BHM, muni launamálaráö þegar boða til fundar i kjararáði ríkisstarfs- manna og verði þar lögð fram tillaga um, að allir ríkisstarfsmenn í BHM leggi þegar niður vinnu. -HH 1 Óþverraveður gekk yfir mestan hluta landsins í gœr — nema norðanvert landið. Á Akureyri var að minnsta kosti að heyra á mönnum sem DB átti tal við að ekki vœríyfir neinu að kvarta. Þessi heiðursmaður, sem Ijósmyndarí DB ók fram á ofaríega á Laugaveg- inum, hefði vafalaust þegið skárrí tíð. DB-mynd: Gunnar Örn. Kosning í Bókmenntafélaginu Á fimmtudaginn lýkur kosningu í stjórn Hins islenzka bókmennta- félags. Kosinn verður forseti og vara- forseti til tveggja ára og tveir menn i fulltrúaráð til fjögurra ára. Forseti félagsins nú er Sigurður Líndal prófessor en varaforseti Óskar Halldórsson fyrrv. dósent. Úr full- trúaráðinu ganga að þessu sinni Ólafur Pálmason bókavörður og Garðar Gíslason borgardómari. Allir hafa þeir gefíð kost á sér til endur- kjörs en kjörgengir eru allir félags- menn sem búa í Reykjavík og ná- grenni. Kosningin er bréfleg og voru kjör- gögn send út í byrjun desember. -ÓV TILBOÐSVERÐ GUNNAR ÁSGEIRSSON H/F Suðurlandsbraut 16 — Sími 35200 HUSQVARNA HEIMIUS TÆKJUM

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.