Dagblaðið - 12.01.1981, Síða 9
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 12. JANÚAR 1981.
I
Erlent
Erlent
Erlent
Erlent
I
Ítalska lögreglan hefur leitað ræningja dómarans d’Urso mjög ákaft að undanförnu
en án árangurs. Dómarinn verður tekinn af lifi i dag ef itölskum fjölmiðlum snvst
ekki hugur og þeir ganga að kröfum Rauðu herdeildanna um að þær fái birtan áróður
sinn i öllum helztu fjölmiðlum landsins. Tímafrestur skæruliða Rauðu herdeildanna
rennur út i kvöld og eru fjölmiðlarnir undir miklum þrýstingi um að ganga að kröfum
ræningjanna.
Frelsishreyfingfranskra kvenna:
BIÐJA JIANG
QING GRIÐA
Frelsishreyfing franskra kvenna
(MLF) skoraði um helgina á kínversk
stjórnvöld að falla frá kröfunni um
dauðarefsingu Jiang Qing, ekkju Maós
formanns.
Fyrrum forsætisráðherra Portúgals,
Maria de Lourdes Pintasilgo, banda-
ríski rithöfundurinn Kate Millet og
gríski þingmaðurinn og leikkonan
Melina Mercouri voru meðal þeirra
sem undirrituðu áskorunina þar sem
einnig var hvatt til alþjóðlegra mót-
mælaaðgerða.
Hreyfingin sagði krefjast þess, að
„ekki yrði þaggað niður í Jiang Qing
og að framburður hennar fyrir réttin-
um yrði gerður opinber og ekki rit-
skoðaður”.
Einn talsmaður hreyfingarinnar
sagði að ákvörðunin um að leggja
Jiang Qing lið hefði verið tekin vegna
þess að ákæruvaldið í Beijing hefði ein-
ungis krafizt dauðarefsingar yfir henni
en ekki karlmönnunum, sem ásamt
henni voru ákærðir fyrir meinta glæpi
á tímum menningarbyltingarinnar i
Kína.
Ungverjar heíðra
trúboðann Graham
Bandaríski trúboðinn heimsfrægi
Billy Graham hvatti til afvopnunar í
ræðu sem hann fiutti í Debrechen í
Ungverjalandi um helgina eftir að
honum hafði þar verið veitt heiðurs-
doktorsgráða í guðfræði.
,,Ég heiti ykkur því að ég mun vinna
að friði með öllum jseim ráðum sem
Guð hefur lokið upp fyrir mér,” sagði
dr. Graham, sem er persónulegur vinur
bæði Carters forseta og eftirmarfns
hans Ronalds Reagan.
Hann bætti því við að hann hefði
ekki trú á skjótri afvopnun. Hann
sagði að einungis væri hægt að búast
við árangri af viðræðum, sem þok-
uðust í rétta átt skref fyrir skref. Dr.
Graham, sem er 61 árs, fékk doktors-
gráðuna fyrir að stuðla að skiiningi á
milli þjóða og fyrir að vinna að þjóð-
félagslegu réttlæti.
Meðal þeirra sem hann hitti að máli í
Ungverjalandi var yfirmaður róm-
versk-kaþólsku kirkjunnar í landinu,
Laszlo Lekai kardínáii. í dag mun hann
hitta Jóhannes Pál annan páfa að máli í
Vatíkaninu.
Vinsældird’Estaing
fara enn minnkandi
Vinsældir Valery Giscard d’Estaings
Frakklandsforseta fara stöðugt minnk-
andi, ef marka má franskar skoðana-
kannanir að undanförnu.
Niðurstöður skoðanakönnunar
franska tímaritsins Le Figaro, sem
birtar voru um helgina sýndu, að 49
prósent þjóðarinnar voru þeirrar skoð-
unar að forsetinn væri ekki fær um að
leysa vandamál þjóðarinnar. Fjöldi
þeirra sem voru þessarar skoðunar
hafði aukizt um 7 prósent frá svipaðri
könnun árið áður.
Fjöldi þeirra sem taldi forsetann
færan um að leysa vandamál þjóðar-
innar hafði hrapað úr 53 prósentum í
fyrra niður i 47 prósent nú.
Niðurstöður Le Figaro eru birtar
aðeins nokkrum dögum eftir að önnur
skoðanakönnun hafði leitt í Ijós, að
forsetinn yrði að lúta í lægra haldi fyrir
leiðtoga sósíalista, Francois Mitterand,
i forsetakosningum ef kosið yrði nú.
Kosningárnar fara fram í apríl.
íranir falla frá 24 milljarða dollara kröf unni:
Lokatilraunin
igísladeilunni
—spumingar og svör berast nú stöðugt milli deiluaðila
Bandarísku samningamennirnir í
Alsírborg hafa enn á ný frestað brott-
för sinni þaðan og kanna nú ný skila-
boð frá írönum ef það mætti verða
til þess að binda enda á hina fjórtán
mánaða löngu gísladeilu áður en
stjórn Carters fer frá völdum 20.
janúar næstkomandi.
Að sögn aðstoðarutanríkisráð-
herra Bandaríkjanna, Warren
Christopher, höfðu nýjar spurningar
borizt frá Teheran fyrir milligöngu
alsirsku sendiboðanna, sem vörðúðu
ýmsar aukahliðar málsins. Hann
bætti því við, að enn væru ýmsar
hindranir á leiðinni til samkomulags.
Báðum deiluaðilum virðist þó um-
hugað um að leiða gislamálið til lykta
áður en stjórn Carters fer frá völd-
um. Talið er að íranir, sem fallið
hafa frá 24 milljarða dollara trygg-
ingakröfu sinni, óttist að Ronald
Reagan muni taka harðari afstöðu í
deilunni er hann sezt í forsetastól
Bandaríkjanna.
Ronald Reagan hefur látið í ljós
efasemdir um að nokkur sú stjórn sé
við völd í íran sem hafi vald til að
semja við Bandaríkjamenn um gísla-
málið.
GREIÐENDUR
vinsamlega veitið ef tirfarandi
erindi athygli:
Frestur til aö skila launamiöum
rennur út þann 20.ianúar.
Þaö eru tilmæli embættisins til
yöar, aö þér ritið allar upplýsingar
rétt og greinilega á miöana og
vandið frágang þeirra. Meö því
stuólið þér aö hagkvæmni í opin-
berum rekstri og firrið yöur
óþarfa tímaeyöslu.
RÍKISSKATTSTJÓRI
AFSLÁTTUR AF HUSQVARNA
OFNUM, HELLUM OG ÍSSKÁPUM
GUNNAR ÁSGEIRSSON H/F Suðurlandsbraut 16 — Sími 35200.