Dagblaðið - 12.01.1981, Blaðsíða 10
10
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 12. JANÚAR 1981.
I
Erlent
Erlent
Erlent
Erlent
D
Mikil morðalda í Kaliforníu vekur éhug:
ALLAR UKGEYMSLUR
ERU NÚ YFIRFULLAR
— og þess er kraf izt að dauðaref singar verði innleiddar á ný eftir fjórtán ára hlé
Kvikmyndaborgin Los Angeles í
Kaliforníu þar sem framleitt hefur
verið ofbeldi til sýningar á hvíta
tjaldinu fyrir milljónir áhorfenda á
liðnum árum og áratugum býr nú við
vaxandi ofbeldi í raunveruleikanum.
Lögreglan í Los Angeles rannsak-
aði 1045 morð á síðastliðnu ári og var
það 25 prósent aukning frá árinu
áður, en þá urðu morðin í borginni
806 og voru þá fleiri en nokkru sinni
fyrr.
Síðasta morðið á árinu 1980 varð
þegar 74 ára gamall maður var
skotinn sjö sinnum með riffli eftir að
hafa kvartað undan hávaða frá sam-
kvænii á gamlárskvöld. Þrettán ára
gamall piltur er í gæzluvarðhaldi
grunaður um morðið.
70 ára kona grunuð
um morð
Þá var 70 ára gömul kona handtek-
in grunuð um að hafa myrt mann sem
lagt hafði bíl fyrir framan hús hennar
í óþökk hennar. Konur sem vilja vera
færar um að verja sig fyrir morðingj-
um, nauðgurum og ræningjum sækja
námskeið i notkun sprautubrúsa til
varnar sér.
Byssusali í Los Angeles segir að
eftirsóttasta varan sem hann hefur á
boðstólum sé perluskreyttar skamm-
byssur, sem eiginmenn kaupa handa
konum sínum til þess að hafa hlaðnar
í náttborðsskúffum.
Starfsmenn líkhúsa í Los Angeles
segja að líkgeymslurnar séu svo yfir-
fullar að þeim hafi hugkvæmzt að
nota kælda flutningavagna sem
geymslurfyrirlíkin.
Lögreglan segir að morðin séu oft
framin af ræningjum sem séu á hött-
unum eftir fáeinum dollurum. í
síðastliðnum mánuði réðust vopnaðir
menn inn á veitingahús í Los Ang-
eles, ráku gestina inn í lítið herbergi,
Rakarastofan Klapparstíg
Sími 12725
Hárgreiðslustofa Klapparstíg
Tímapantanir
13010
OPIÐ í KVÖLD %
FRÁ KL. 18-01
Halldór Árni
í diskótekinu ' jr
SPAKMÆLI DAGSINS:
„ Oft er í holti heyrandi nær."
SJÁUMST HEIL
Oðal
Morðum i Kaliforniuriki fjölgaði um 20 prósent á síöastliðnu ári frá fvrra ári,
þó var metár hvað fjölda morða snerti.
hófu skothríð, drápu þrjá og særðu
sex. Þeir höfðu aðeins nokkur
hundruð dollara upp úr krafsinu.
Skortur á
lögregluþjónum
Opinberir embættismenn telja að
meðal ástæðna fyrir hinni miklu
aukningu morða í borginni sé von-
leysi fólks í fátækrahverfum borgar-
innar, skortur á lögregluþjónum,
mikill fjöldi vopna í eigu almennings
og fjölgun glæpaflokka í borginni.
Sumir hinna íhaldssamari
embættismanna i Los Angeles telja
að hluta skýringarinnar sé að leita í
því að dauðarefsingu hefur ekki verið
fullnægt í Kaliforníu i fjórtán ár,
þrátt fyrir að íbúar ríkisins hafi með
yfirgnæfandi meirihluta greitt því at-
kvæði fyrir tveimur árum að dauða-
refsingu yrði beitt við fleiri afbrot en
áður.
Brown á móti
byssueftirliti
Ríkisstjórinn í Kaliforníu, Jerry
Brown, sem er frjálslyndur demó-
krati, hefur hafnað hugmyndjnni um
hert eftirlit með byssusölu.
Flest fórnarlömb morðingja eru
myrt með byssum og Jerry Brown
viðurkennir að í þeim löndum
Vestur-Evrópu þar sem er strangt
eftirlit með útgáfu byssuleyfa sé
glæpatíðni minni en í Los Angeles.
Hann telur þó, að slík takmörkun
komi ekki að gagni í Kaliforníu þar
sem ómögulegt yrði að innnkalla
þann gífurlega fjölda vopna sem
þegarerí umferð.
Tuttugu lögregluforingjar víðs
vegar úr Kaliforníu gengu nýverið á
fund ríkisstjórans og lögðu til að
hann skipaði harðskeytta baráttu-
menn gegn glæpum í dómarastöður.
Eitt aðalvandamálið felst í því
hversu lögreglan er fáliðuð. í Los
Angeles eru nú 6650 lögreglumenn,
en voru 7506 árið 1975. Borgarráðs-
maðurinn Ernani Bernardi hefur lagt
til að her- og öryggissveitir taki að sér
umferðarstjórn svo fleiri lögreglu-
menn geti helgað sig baráttunni gegn
glæpum.
Félagsráðgjafar
út á göturnar
Stjórnvöld í Los Angeles hafa
varfð þremur milljónum dollara til
áætlunar, sem miðar að því að koma
i veg fyrir götubardaga glæpahópa
með því að senda félagsráðgjafa út á
göturnar.
Saksóknari borgarinnar, John van
de Kamp, segir að svertingjar séu
oftast fórnarlömb morðingjanna.
Opinbera tölur sýna að það er sex
sinnum líklegra að svartur maður
falli fyrir morðingjahendi en hvitur.
„Glæpir gagnvart svertingjum hafa
viðgengizt árum saman en þjóðfélag-
ið sem heild hefur ekki veitt því
athygli, meðal annars vegna þess að
svertingjar hafa verið ákaflega ein-
angraðir i hverfum sínum.”
Van de Kamp sagði að almenn-
ingur hefði aðeins veitt fjöldamorð-
um athygli og þau ein hefðu áhrif á
þjóðfélagið þrátt fyrir að þau væru
lítill hluti þeirra morða sem í borgun-
um eru framin.
Fjöldamorð-
ingjar á ferð
Bifvélavirki var ákærður fyrir tíu
morð og frænka hans var dæmd i
lífstíðarfangelsi fyrir þátttöku hennar
í fimm af hinum svokölluðu „hill-
side” morðum, þar sem ungar stúlk-
ur voru kyrktar og líkamar þeirra
grafnir í jörðu. Fimm menn hafa
verið ákærðir fyrir fjórtán morð í svo
kölluðu „freeway killer” máli, en
þar hafa lík 44 ungra manna fundizt
grafin í jörðu meðfram þjóðvegi
síðan 1972. Flest fórnarlambanna
höfðu verið kyrkt.
„Síðasta morðaldan hefur fram-
kallað skilning á þvi að heimurinn í
kringum okkur er óþolandi ofbeldis-
hneigður og ef við ætlum okkur að
komast af þá skulum við líka gripa til
einhverra ráða,” skrifaði van de
Kamp nýlega. „Þessi skilningur er
seint á ferðinni. Hann var ekki fyrir
hendi fyrr en hræðsla við morð hafði
náð upp í miðstéttir og efri stéttirnar,
það er til fólksins, sem stjórnar
þjóðfélaginu.”
(Reuter)
Jerr.v Brown ríkisstjóri segist þeirrar skoðunar að takmörkun byssulevfa þjóni
ekki tilgangi.