Dagblaðið - 12.01.1981, Page 20
20
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 12. JANÚAR 1981.
Veðrið
Qert er ráfl ffyrir því afl norflaustan ■
áttin oangi niflur ( dag. Veatan tll á.
landinu varflur Iflriega haegviflri en
þykknar upp mefl vaxandi sufleusUn
átt og snjókomu í kvöld og nótt.
Klukkan 6 var sunnan 1, láttskýjaflj
og —7 sdg ‘í Reykjavlc; vestan 6,j
skýjafl og —1 stig á Quffuskálum; sufl-
vestan 4, hálffskýjafl og -4 stig á|
Gattarvha; suflsuflaustan 2, skýjaflog
—7 stlg á Akurayri; norðvestan 6,{
skafrenningur og —8 atig á Rauffar-
hflfn: norflvestan 6, skýjafl og — • sdg
á Dalatanga; norflnorflvastan 6, háN-
skýjafl og —6 stig á Hflffn og norflan
B láttskýjafl og —B sdg á 8tórhflfffla |
I Þórshflfn var ál og -2 stig, al-
skýjafl og 1 stig ( Kaupmannahflffn,
iáttskýjafl og 3 stig ( Osló, skýjafll
og 2 stlg ( Stokkhólmi, alskýjafl og 2
stlg I London, alskýjafl og —1 stig I
Hamborg, láttskýjafl og -4 stig I
Parie, skýjafl og -3 stlg I MadrkJ,
heiflakirt og 6 stig (Uasabon og helfl-
Alda Pálmadóltir Phillips, sem lézt 8.
janúar sl. i Ohio i Bandaríkjunum,
fæddist í Vestmannaeyjum 25. septem-
ber 1924. Foreldrar hennar voru Svein-
fríður Á. Guðmundsdóttir og Pálmi
Ingimundarson. Árið 1945 giftist Alda
Tomas C. Phillips og áttu þau tvo syni.
1945 fluttust þau til Bandarikjanna og
Bjuggu i Dayton Ohio. Tomas C.
Phillips andaðist í Ohio 3. nóvember
1975.
ÓN>r ÞórAardóttir frá Ríp, sem lézt 14.
desember sl., fæddist 8. janúar 1963.
Foreldrar hennar voru Sólveig Július-
dóttir og Þórður Þórarinsson. Ólöf ólsl
upp á heimili sinu Rípi, Hegranesi
Skagafirði. Ólöf lætur eftir sig dóttur.
Dagrún Halldórsdóttir, sem lézt 31.|
desember sl., fæddist 15. júli 1905.
Foreldrar hennar voru Guðrún Jósefs-1
dóttir og Halldór Þorgrímsson. Dagrún
flutti með foreldrum sínum til Akur-I,
eyrar og stundaði þar verzlunarstörf.
Dagrún tók þátt í störfum Leikfélags
Akureyrar og fór með nokkur hlutverk
hjá Leikfélaginu. Hún var gift Svavari
Þorvaldssyni og eignuðust þau eina
dóttur.
Dagrún verður jarðsungin 1 dag, 12.
janúar, kl. 15 frá Fossvogskirkju.
Jóraaa Jóasdóttlr frá Birkihóli, sem
lézt 2. janúar sl., fæddist 10. nóvember
1893 að Skaganesi í Mýrdal. Foreldrar
hennar voru Sigríður Ófeigsdóttir og,
Jón Jónsson. Um tvítugt fór Jórunn úr
heimahúsum og i mörg ár vann hún hjá
Halldóri Gunnlagussyni héraðslækni.
Árið 1938 fluttist Jórunn að Birkibóli
til Jóns J. Jónssonar. Þegar Dvalar-
heimili aldraðra í Borgarnesi tók til
starfa fluttist Jórunn þangað og bjó
þar til æviloka.
Þóra SigvaJdadóttlr, Hvammstanga,
sem lézt 2. janúar sl., fæddist 3. mai
1899. Foreldrar hennar voru Sigríður
Jósefsdóttir og Sigvaldi Sveinsson.
Áriö 1945 flutti Þóra til Hvammstanga
þar sem hún bjó siðan. Árið 1920 giftist
hún Þórhalli Bjarnasyni og áttu þau 4
dætur.
Sigurbjórg Hjálmandóttlr, Siglufírði,
sem lézt 1. janúar sl., fæddist 8. mai
1912 að Húsabakka í Aðaldal. Foreldr-
ar hennar voru Hjálmar Kristjánsson og|
Kristrún Snorradóttir. Sigurbjörg flutti
með foreldrum sinum til Sigiufjarðar,
þar sem hún bjó síðan. Árið 1932 giftist
Sigurbjörg Stefáni Friðleifssyni og áttu
þau 4 börn.
Ellert Árnason fv. yfírvélstjóri, sem
lézt 1. janúar sl., fæddist 3. september
1896 i Keflavík. Foreldrar hans voru
Árni Magnússon og Guðrún Jónsdótt-
ir. Ellert fór í læri hjá Kristófer Egils-
syni járnsmið, einnig stundaði hann
UM
HELGIWA
Kínverskt fjölleikafólk á
heimsmælikvarða
Þegar ég leit yfir dagskrá sjón-
varpsins yfir helgina, fannst mér hún
frekar hlutlaus, eitthvað fyrir alla, en
ekkert sem leit mjög spennandi út.
En þó fór það svo að eftir að hafa
lagt það saman sem ég sá og hlustaði
á voru plúsarnir fleiri en mínusarnir.
Vegna vinnu á föstudagskvöld missti
ég af Fréttaspegli og get varla sagt að
ég hafi séð eftir þvi, vegna þess að ég
er orðinn dauðleiður á að horfa og
hlusta á þessa forystumenn stjórn-
málaflokkanna.
Siðast á dagskránni á föstudags-
kvöldiö var bandarisk sjónvarps-
mynd, Hafa skal holl ráð (Daughter
of the mind — Hvílik þýðing!). Yfir-
leitt hafa þessar sjónvarpsmyndir
verið vel heppnaðar, en það er ekki
hægt að segja um þessa mynd. Þarna
var öllu hrært saman í einn graut,
meðal annars framliðnu fólki og
njósnum stórveldanna, og loks þegar
skýringin kom á öllu saman þá var
það svo langsótt að ég verð að viður-
kenna að ég var engu nær um lausn
gátunnar, nema það að vondu Rúss-
arnir voru að reyna að eyðileggja
fyrir góðu Könunum.
Á laugardaginn kveikti ég á sjón-
varpinu strax kl. 4.30 til að missa
ekki af neinu í íþróttunum og ég verð
að segja að þátturinn var með fjöl-
breyttara móti, þó mér finnist að í
skíðastökki þurfí ekki að sýna nema
kannski 10 beztu en ekki 1 kringum 40
stökkvara vera að gera nákvæmlega
það sama. Ég verð nú að segja eins og
er að ég bjóst við einhverju hörkuliði
íslendinga 1 körfubolta eftir þær yfir-
lýsingar sem búið var að gefa í
blöðunum fyrir helgi, en það kom nú
heldur betur annað 1 ljós. Það lá við
að maður vorkenndi Guðna Kol-
■beinssyni fyrir að þurfa að lýsa öllum
þeim mistökum sem íslenzka liðið
gerði.
Nú eru þeir komnir aftur á skjáinn
læknarnir 1 Spítalalífi og get ég ekki
annaö en glaðzt yfir því, ég hef alltaf
verið aðdáandi þessara þátta, þó
fyrsti þátturinn ylli mér töluverðum
vonbrigðum, var varla nógu fyndinn.
Kannski er ég orðinn svo vanur að
horfa á Löður þar sem hver brandar-
inn tekur við af öðrum. En samt sem
áður bíð ég eftir næsta þætti og vona
að rætist úr.
Nú kom upp vandamál hjá mér.
Átti ég að kveikja á útvarpinu og
hlusta á þátt Þorgeirs Ástvaldssonar
um Bítlana eða horfa á þátt um kín-
verska fjölleikamenn? Ég valdi síðari
kostinn og sá ekki eftir því, þarna var
mjög góður þáttur á ferðinni sem
ekki bara sýndi okkur hvað kínverskt
listafólk er miklum hæfileikum búið,
heldur einnig hið daglega lif kin-
verskra verkamanna og tómstunda-
iðju þeirra.
Kvikmynd laugardagskvöldsins var
nokkuð betri en mynd föstudagsins.
Var þar lýst á mjög áhrifaríkan hátt
þegar foreldrar skilja og eru svo upp-
teknir af sjálfum sér og vandamálum
sínum að þeir gleyma því alveg að
sonur þeirra hefur tilfinningar og
skilnaður fóreldra kemur alveg jafn-
illa við hann eins og þá. Sérstaklega
var góður leikur Scott Jacoby í hlut-
verki táningsins.
Sunnudagurinn fór nú að mestu í
annaö en að hlusta á útvarp eða
horfa á sjónvarp. í sjónvarpinu er
þáttur á sunnudögum kl. 17.10 sem
heitir Leitin mikla og er athyglis-
verður, þar er lýst á mjög skilmerki-
legan hátt trúarbrögðum heims. En
þetta er afleitur tími fyrir prógramm
sem ætlað er fullorðnum.
Að lokum vil ég lýsa ánægju minni
með framhaldsmyndaflokkinn Land-
nemana, sem bæði er spennandi og
skemmtilegur og hefur þann góða
kost að þótt þú missir af einum þætti
þá ertu ekki alveg eins og álfur út úr
hól þegar þú sérð þann næsta.
- HK
nám í Iðnskólanum í Reykjavík. Árið
1921 lauk hann svo prófi úr Vélstjóra-
skólanum i Reykjavík. Árið 1922 réðst
hann til starfa hjá Rafmagnsveitu
Reykjavíkur sem vélstjóri við Elliðaár-
stöðina. Árið 1936 var Ellert ráðinn hjá
Sogsvirkjun til starfa við Ljósafoss-
virkjun. Síðar varð hann stöðvarstjóri
við Ljósafossvirkjun. Árið 1947 var
Ellert ráðinnt il starfa við gufustöðina
við Elliðaár þar sem hann starfaði til
ársins 1966 er hann lét af störfum
vegna aldurs. Árið 1930 kvæntist Ellert
Sigþrúði Sigurbjörnsdóttur og eign-
uðust þau2börn.
Hann verður jarðsunginn í dag, 12.
janúar, kl. 13.30 frá Fossvogskirkju.
Marsibil Jóhannsdóttir frá ölversholts-
hjáleigu, sem lézt 26. desember sl.,
fæddist 22. marz 1893 að Efri-Hömr-
um, Holtahreppi Rangárvallasýslu.
Foreldrar hennar voru Sigrún Þórðar-
dóttir og Jóhann Ólafsson. Hún fór
ung til Reykjavikur og lærði karl-
mannafatasaum og að sauma íslenzka
búninginn. Um tíma lærði hún matar-
gerð á Hótel íslandi. Árið 1919 fluttist
Marsibil að ölversholtshjáleigu í Holt-
um. Árið 1918 giftist Marsibil Árna
Árnasyni og áttu þau 6 börn en misstu
eitt ungt.
Guðjóna Nikulásdóttir frá Stokkseyri
lézt í Cleveland Ohio 25. desember sl.
Elísabet Elfasdóttir, Austurbrún 6, lézt
á Hrafnistu 2. janúar sl. Jarðarförin
hefur farið fram í kyrrþey.
Salóme Mosdal Sumarliðason, Skipa-
sundi 61, verður jarðsunginn þriðju-
daginn 13. janúar frá Fíladelfíukirkju,
Hátúni 2, kl. 13.30.
Jón Magnús Pétursson frá Hafnardal,
Fellsmúla 5, verður jarðsunginn frá
Dómkirkjunni i dag, 12. janúar, kl.
13.30.
Gfsli E. Guðnason húsvörður, Lyng-
heiði 7 Selfossi, sem lézt í London 1.
janúar sl., verður jarðsunginn frá Sel-
fosskirkju í dag, 12.janúar, kl. 14.
Valgerður Guðnadóttir, Austurgötu 47
Hafnarfirði, sem lézt 4. janúar, verður
jarðsungin frá Hafnarfjarðarkirkju
þriðjudaginn 13.janúarkl. 15.
Jóhanna Guðmundsdóttir, Rjúpufelli
21, sem lézt 31. des. sl., verður jarð-
sungin frá Fossvogskirkju þriðju-
daginn 13. janúar kl. 15.
Jóna Ágústa Sigurðardóttir frá Flateyri
lézt á Landspítalanum 9. janúar.
Stjornmalafundir
Alþýðuflokkurinn
— Fjárhagsáætlun 1981
Fundur veröur haldinn i borgarmálaráðinu i Reykja
vik í dag kl. 17. Gestir fundarins vcrða Guðmundur
Haraldsson formaður Alþýðuflokksfélags Rcykja
víkur og Simon Gissurarson formaður FUJ i
Rcykjavik.
Alþýðubandalagið
á Akureyri
Bæjarmálaráðsfundur verður haldinn i dag. 12. jan..
kl. 20:30 i Lárusarhúsi. Fundarefni: Fjárhagsáætlun
og meirihlutasamstarfið.
Austur-Húnvetningar
Almennur stjómmálafundur verður haldinn að Hótel
Blönduósi í dag. 12. janúar, kl. 21.
Dagskrá:
1. Greint frá fjárveitingum i héraði á fjárlögum 1981.
2. Efnahagsráðstafanir ríkisstjórnarinnar.
Á fundinn mæta alþingismennirnir Páll Pétursson.
Stefán Guðmundsson og Ingólfur Guðnason.
Aðalfundur fulltrúaráðs
sjálfstæðisféiaganna
í Kópavogi
verður haldinn i dag. 12. janúar. kl. 20.30 í sjálfstæðis
húsinu að Hamraborg 1.3. hæð. Kópavogi.
Dagskrá: I. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Styrmir
Gunnarsson ritstjóri ræðir um forystu og framtið
Sjálfstæðisflokksins. Frjálsar umræður.
Þorrablót
Átthagafélag Strandamanna heldur þorrablót laugar
daginn 17. janúar i Domus Medica. Aðgöngumiðar
vcrða afhentir fimnuudaginn 15. janúar kl. 17—19 á
sama stað.
Mæðrafélagið
Fundur verður haldinn þriðjudaginn 13. januar kl. 20
að Hallvcigarstöðum. inngangur, Irá Oldugötu. l élags
mál.
Stjórn Vinnueftirlits ríkisins
l.janúar 1981 gengu ígildi lög nr. 46/1980 um aðbún
að. hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum. Sam
kvæmt 74. grein laga þessara hcfur félagsmálaráð
hcrra skipað stjórn Vinnueftirlits ríkisins til na»tu
fjögurra ára.
Formaður stjórnarinnar er Þorvarður Brynjólfsson
læknir og varamaður hans Alli Árnason læknir. Eru
þeir skipaðir án tilnefningar.
Aðrir stjórnarmenn eru skipaðir samkvæmt tilnefn
ingu samtaka svo sem hér greinir:
Alþýöusamband Islands: Guðjón Jónsson járnsmiður.
Karl Steinar Guðnason. form. Verkalýðs- og sjó
mannafél. Keflavikur. Guðmundur J. Guðmundsson.
form. Verkamannasambands Islands. Til vara: Bolli B.
Thoroddsen hagræðingarráðunautur. Grétar Þorleifs
son, form. Trésmiðafél. Hafnarfjarðar. Guðmundur
Þ. Jónsson. form. Iðju. Landssambands iðnverkafólks.
Vinnuveitendasamband íslands: Guðmundur Karls
son alþingismaöur. Viglundur Þorsteinsson fram
kvæmdastjóri. Til vara: Árni Kristjánsson fram
kvæmdastjóri. Sigurður Einarsson lögfræðingur.
Vinnumálasamband samvinnufélaganna: Július Kr.
Valdimarsson framkvæmdastjóri. Til vara: Árni Bene
diktsson framkvæmdastjóri.
Bandalag starfsmanna rlkis og bæja: Ólafur Jóhannes
son. starfsmaður á Veðurslofu Islands. Til vara: Arn
þór Sigurðsson slökkviliðsmaður.
Samband islenskra sveitarfélaga: Albcrt K. Sanders
bæjarstjóri. Til vara: Einar I. Haildórsson bæjarstjóri.
Þá hefur félagsmálaráðherra. samkvæmt tillögu
stjórnarinnar, skipað Eyjólf Sæmundsson forstjóra
Vinnueftirlits rikisins. en hann gegndi áður embætti
öryggismálastjóra.
GENGIÐ
GENGISSKRÁNING Ferflamann,
NR: 6 — 9. JANÚAR 1981 gjaldeyri.
Eining kl. 12.00 .-Kaup Sala Sala
1 Bandarfkjadolar 6,230 6,248 6,873
1 Steríingspund 14,963 15,006 16,507
1 Kanadadollar 5,250 5,265 5,792
1 Danskar krónur 1,0273 1,0303 1,1333
1 Norskar krónut 1,2112 U147 1,3382
‘1 Sænskar krónur 1,4202 1,4243 1,5867
1 Rnnsk mörk 1,6228 1,6275 1,7903
1 Franskir frankar 1,3704 1,3743 1,5117
1 Belg.frankar 0,1968 0,1974 0,2171
1 Sviasn. frankar 3,5020 3,5121 3,8633
Gyllini 2,9129 2,9213 3,2234
1 V.-þýzk mörk 3,1669 3,1780 3,4936
1 Lirur 0,00666 0,00668 0,00735
1 Austurr. Sch. 0,4466 0,4479 0,4927
1 Escudos 0,1173 0,1177 0,1295
1i Pesetar 0,0783 0,0785 0,0864
Yen 0,03082 0,03091 0,03400
1 irskt pund 11,778 11,812 13,993
1 Sárstök dráttarráttindi 7,9672 7,9802
* Breyting frá slflustu skráningu. Simsvari vegna gcngisskráningar 22190.