Dagblaðið - 12.01.1981, Page 31
SPEKINGAR SPJALLA - sjónvarp kl. 22,15:
Háf leygar umræður
Nóbelsverðlaunahafa
f kvöld eru á dagskrá sjónvarpsins
hinar árlegu hringborðsumræður
nóbelsverðlaunhafa í venjulegum
árið 1980. Að venju er það Bengt
Feldreich sem stýrir umræðunum, en
þátttakendur eru verðlaunahafarnir í
eðlisfræði, efnafræði og læknis-
fræði.
Spekingarnir spjalla m.a. um
vísindastörf almennt, hvernig bezt sú
að búa unga menn undir vísindastörf
og hvað þurfi til þess að hægt sé að
búast við árangri í visindum.
Þeir ræða um þekkinguna og
uppgötvanir, hve langan tíma taki að
dreifa þekkingunni og samband og
samvinna á milli vísindamanna. Þeir
velta þeirri spurningu fyrir sér hvort
vísindin séu opin, hvort allir hafi
aðgang að þeim.
Minnzt verður á erfðafræðina og
rætt um þá spurningu hvort hægt sé
að breyta arfberum og hvort hætta
getistafaðafafþví.
Hið sígilda umræðuefni, fram-
tíðin, verður að sjálfsögðu á dagskrá.
Spekingarnir munu reyna að spá í
hana. Staða konunnar mun tengjast
umræðunni og vísindamennirnir
velta þvi fyrir sér hvort áhrif kvenna
séu vaxandi í vísindum, en engin
’kona er meðal þátttakenda í
þættinum.
Þátturinn kemur frá sænska sjón-
varpinu og þýðandi er Jón O.
Edwald.
-KMU.
Sýnt verður frá sveitakeppni i júdó sem fram fór um helgina. DB-mvnd: Hörður.
Alfred Nobel.
ÍÞRÓTTIR—sjónvarp kl. 20,40:
MIN UUAN FRIÐ EFHR RAGNHBÐIJ0NSD0TTUR
—sjónvarp kl. 21,45:
lestur nýrrar útvarpssögu
—Gerist í sjávaiiwipi snemma á ðldinni
Fjallarumiaigatelpu semerfötluð
ár i líft stúlkunnar, en þó má segja að
móðir hennar sé sterkari sögupersóna
en hún sjálf.
Þegar Ragnheiður Jónsdóttir lézt,
árið 1967, hafði hún nýlokið við hand-
rit af framhaldi sögunnar Mín liljan
fríð sem hún nefndi Rósin rjóð. Sú
saga var aldrei prentuð en Sigrún ætlar
að iesa hana í framhaldi af lestri
sögunnar ,,Mín liljan fríð.
Alls verða lestrarnir 24.
-KMU.
f kvöld byrjar Sigrún Guðjónsdóttir
lestur nýrrar útvarpssögu, Mín liljan
frið, eftir Ragnheiði Jónsdóttur en
Sigrún er einmitt dóttir hennar.
Ragnheiður Jónsdóttir fæddist árið
1895. Hún var kennari að mennt og
stundaði fyrst kennslu áður en hún
byrjaði að skrifa. Fyrsta bók hennar,
„Ævintýraleikir fyrir börn, kom út
1934, en upphaflega skrifaði hún nær
eingöngu fyrir börn. Síðan fór hún að
skrifa jöfnum höndum barna- og
unglingabækur, skáldsögur og einnig
smásögur. Meðal verka hennar má
nefna Dóru-bækurnar, vinsælan bóka-
flokk, sem Iðunn er nú að endurútgefa.
Sagan sem Sigrún les, Min liljan
fríð, gerist í sjávarþorpi snemma á
öldinni. Hún fjallar um unga telpu,
sem er fötluð og hefst sagan þegar hún
er 12—13 ára. Sagan nær yfir nokkur
A dagskrá íþróttaþáttar Jóns B.
Stefánssonar í kvöld verða aðallega
innlendir íþróttaviðburðir helg-
arinnar. Sýnt verður úr leikjum á
Norðurlandamóti unglinga f
körfuknattleik en mótið fór fram hér
á landi um helgina.
Þá verður brugðið upp myndum
frá sveitakeppni Júdósambands
íslands, sem fram fór í íþróttahúsi
Kennaraháskólans í gær. Keppnin er
islandsmeistaramót í sveitakeppni og
jafnframt punktamót. Sú sveit sem
sigrar i mótinu öðlast rétt til þátt-
töku í Evrópubikarkeppni sem háð er
árlega.
Einnig er í ráði að sýna frá meist-
aramóti í badminton sem TBR stóð
fyrir í gær í iþróttahúsi félagsins við
Gnoðarvog.
Loks verður brugðið á skjáinn
einhverju erlendu efni en er DB
ræddi við Jón B. Stefánsson var enn
ekki búið að ákveða hvað það yrði.
-KMU.
Sigrún Guðjónsdóttir. Hún er dóttir
Ragnheiöar Jónsdóttur.
DB-mynd: Aðalstelnn Ingólfsson.
Einkaumboð á íslandi fyrir vasa- ogborðtölvur — llpplýslnflar, saia, þjónusta
STALTaCKI, Bankastrœti 8 Sfmi 27510
KRISTJÁN MÁR
UNNARSSON
Laugavegi 66 Sími 25980
Staðgr
LAUGAVEGI66 ^ SÍMI25980
BORGARTÚNI 18
REYKJAVIK SJMI 27099
SJÓNVARPSBUOIN
HEWLETT M PACKARD HEWLETT M PACKARD HEWLETT M PACKARD HEWLETT M PACKARD
\HEWLETT M PACKARD
20" 8.500 Q 5.V/Ö
22" 9.450 9.978
26" 10.990 10.441
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 12. JANÚAR 1981.
31
Útvarp
Sjónvarp
i)