Dagblaðið - 24.01.1981, Side 2
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 24. JANÚAR 1981.
Manntalið er:
PERSONUNJOSNIR
— fullnærgöngular
spurningar
Sigurunn Konráðsdóltir, Hverfisgötu
28 Rvik, skrifar:
Ég var að hlusta á fréttatíma út-
varps á þriðjudagskvöldið. Viðtal var
við starfsmann Hagstofu íslands um
þetta manntal sem á að fara að fram-
kvæma.
Mér finnst þetta manntal vera
skerðing á mannréttindum, ég veit
ekki hverju við eigum það að þakka
að verða þess heiðurs aðnjótandi að
vera fyrsta þjóðin til að framkvæma
slíkt manntal. Það er verið að tala um
persónunjósnir Rússa en mér finnst
þetta fyrirhugaða manntal engu
betra.
Það er mjög barnaleg skýring að
nota eigi þessi gögn til þess að komast
að því hversu mikið autt húsnæði er í
borginni. Þegar búið verður að vinna
úr þessum gögnum árið ’84 verður
þetta ástand allt gjörbreytt.
Ég ætla ekki að svara þessu plaggi,
mér finnst við ekki lifa í frjálsu landi
ef við erum neydd til að svara spurn-
ingum. Hvaða viðurlögum verða þeir
svo beittir sem ekki svara? Það þarf
enginn að segja manni að þessu verði
haldið leyndu, þessar uppiýsingar
verða settar í tölvu og þar geta allir
fengið aðgang að þeim, syndir feðr-
anna verða látnar bitna á börnunum.
EINSTAKLINGSSKÝRSLA
Manntal 31. janúar 1981
Hagstofa íslands
Mér finnst að það hefði verið nær
að eyða þeim peningum sem eiga að
fara í þetta til að greiða hitunar- og
rafmagnsgjöld fyrir ellilífeyrisþega.
Nafn
Staöur (hús, tbúð. sveitarfélag)
Skýrclu þMii b«r að gara um aérhvarn alnatakllng laddan 1K1 afia fyrr.Peir sem laddrr oru 1964 eða fyrr skui
1968 Honum ber og að annast um. að skýrsla þessi sé gerð um aiia Ijarverandi emstaklmga og hann skal beila sér I
— Hver maður er skyldur til að S|á svo um. að hann sé skriður á manntal. og til að láta i té allar paer upplysmgar
ÍHvar áttir þú heima 31 janúar fyrir 1 árt? 5 árum? 10
árum? 20 árum? Skrifaðu fullt heimtlisfang, en hafir þú
dvalist erlendis, t d viö nám eöa atvinnu. nægir heiti
landsins Skrifaðu ..sama þegar það á við
IErt þú i sambúð, vigðri eða óvigðri?
□ Já. siðan árið 19 □ Nei
IStundaöirþu / stundarþú nám aö loknu □ Já •
skytdunámi þinu?______ Q Net—\
ÍHetur þú lokið prófi til starfsréttinda eða
aðgangs aö storfum. t d i iðn. sjómennsku.
skrifstofustorfum. heilsugæslu
eða kennslu. eða hefur þú lokið □ Já —►
háskólaprófi? □ Nei -►7
Varst þú i skólanámi eða á náms-
samningi á árinu 1980? Námsketð
120 klst og lengri teljast hér til □ Já —►
skólanáms. □ Nei ->
Varst þú við heimilisstorf 120 klst eða meira
á árinu 1980? Teldu hvorki með tima við
launuð heimilisstörf né við það. □ Já —►
sem þú telur vera tómstundastörf □ Nei
TÍ976
11961 Settu » ef þú varst ekki fædd/fæddur pa^ ~
Ert þú gift/giftur?
□ Já, siðan árið 19
i hvaða skóla (deild
eða námsbraut) siðasP
□ Nei
ÞeSsari spurnmgu svara konur ein-
vorðungu Hve morg lifandi fædd
born hefur þú eignast?
I hvaða starfs- eða
fræðigrein / greinum.
frá hvaða skóla eða
að loknu hvaða nám-
skeiði. hvenær (ártal)1?
Varst þú á árinu 1980 i námi
bundnu samn-
mgi við atvm'nu-QJá -►
rekanda? □ Nei-»
Hve margar klukkustundir varst þú við
heimilisstörf vikuna 24—30 janúar 1981?
Launuð heimilisstörf á ekki að telja með.
heldur koma þau sem atvmna hér á eftir
Warst þúiskola- * Hvemarga | Varst þú i
námi 1980-? mánuði? i skólanámi i
□ Já —►
□ Nei
ÍHaföir þú tekjur af atvinnu i vikunni 24.-30 janúar 1981? Þarna er einnig átt við tekjur i orlofi eða
veikindafjarvist Sá. sem starfar með heimilismanni i atvinnu hans. telst vinna fyrir tekjum. enda þótt sú vinna sé ólaunuð
mars?
□ Já
Q Nei
Hvenær siðast? 19
Hefur þu lokið
•^4 stúoentsprófi?
□ Já
Q Net
júli? nóvember?
□ Já
□ Nei
Þelr sem merktu við „Nei“ í 10. lið sleppa spurningum í 11., 12. og 13. lið
- - Hvar var vinnustaður þinn i vikunni 24 —30 janúar 1981? Tilgreindu gotu og hús.
■ * oða heili. svo og sveitarfélag, en aðeins aðalvinnustað, komi fleiri til greina
Hve margar klukkustundir varst þú við atvinnu, að meðtalinni
eftirvinnu og aukaatvinnu. vikuna 24 —30: janúar 1981? Teldu
ekki með fjarverustundir vegna orlofs eða veikinda
Fórst þú til vinnu heiman frá þér til (aöal-) vinnustaðar
vikunni 24 —30 janúar 1981?
□ Já ------------►
□ Nei —*. Q Vann heima
□ Dvaldist á vinnustað
□ Vann ekki þessa viku
□ 0 klst
□ 1—9 klst
□ 10-19 klst
Hve lengi varst þú venjulega á leið-
mm?
Hvernig fórst þú
þessa leið venju-
lega? Settu að-
eins einn kross
□ 20—29 klst "□'41-49 klst |Er þetta venjul lengd
□ 30—35 klst Q 50-59 klst |vmnuviku þmnar?
□ 36—40 klst □ 60 klst eða fl j □ Já □ Nei_______________
□ 0—9 minútur □ 20—29 minútur □ 45 minútur
□ 10—19 mínútur Q 30—44 minútur eða lengur
□ i almenningsvagni Q Á vélhjóli. á skellinoðru
□ í bil fyrirtækis/stofnunar stærri en 7 m Q Á reiöhjóli
Q i annars konar bil sem farþegi Q Með oðru fárartæki
□ i bil sem bilstjóri _____________,, , Q Gangandi__________________________
Kvöublööin sem sérhvvrjum dnslaklingi er tiert skylt aö úll'ylla.
Hringiðís'^
niikl.13^15’
GÍSLI SVAN
EINARSSON
Dr. Gunnar Thoroddsen:
Sterkasti
stjórn-
málamaður
þjóðar-
innar
Bréfritari lelur dr. Gunnar Thorodd-
sen langsterkasta stjórnmálamann
þjóöarinnar.
DB-mynd Gunnar Örn.
Sjálfstæöismaöur skrifar:
Til hamingju, dr. Gunnar.
Það eru örugglega margir íslend-
ingar reiðubúnir til að taka undir
þessi orð mín nú eftir að síðasta
skoðanakönnun Dagblaðsins liggur
fvrir Til hamingju, dr. Gunnar. Eftir
iiöhannfagnaðisjötíu ára afmæli sínu
uni mamfiiin liafa efnahagiráðstaf-
anir stjórnarinnar fallið í góóan jarð-
veg og Gervasoni málið svokallaða
virðist leyst. Síðan kemur niður-
staðan úr síðustu skoðanakönnun og
sýnir yfirburðastöðu ríkisstjórnar-
innar. Allt eru þetta gleðitíðindi fyrir
stuðningsfólk stjórnarinnar og sýnir
að þjóðin metur efnahagsráðstafan-
irnar. Þökk sé Dagblaðinu fyrir að
kanna hugi fólksins reglulega um
mikilvæg mál. Það verður ekki gert
öðruvísi en með skoðanakönnun og
þær hafa reynzt óvenju nákvæmar.
Dr. Gunnar má vel við una í dag,
hann er langsterkasti stjórnmála-
maður þjóðarinnar.
Bréfritari er óánægöur með hvernig til hefur teki/t i launamálum alþingismanna.
Þangað leitar
auðurinn
— þar sem hann er fyrir
l.aunþegi 1228, Akranesi, skrifar:
Kannast ekki allir við þann flökur-
leika, sem að manni sækir þegar
borðaðer of mikið?
Þetta datt mér strax í hug, þegar
Kjaradómur kvað upp úrskurð sinn
varðandi kollega sína. Mér varð
óglatt.
Það er talað um þjóðarkökuna.
Um réttláta skiptingu þjóðarauðsins,
sem ekki er talinn mikill, og því enn
meiri ástæða til að vanda sig með
tertuhnífinn. Það að þeir sem sitja
við bakarofninn telji það rétt sinn að
mega éta óáreittir nægju sína af
bakstrinum þætti léleg frammistaða í
hvaða bakaríi sem er, þeir starfsmenn
væru umsvifalaust reknir. Hún er
líka þeirri náttúru gædd, þjóðarkak-
an, að þeim mun meira sem af henni
er étið, þeim mun sólgnara verður
fólk i hana, þannig að með ólíkind-
um er.
í fyrra og hittifyrra varð orðið lág-
launastétt að hálfgerðu tízkuorði.
Hver man ekki eftir orðagjálfrinu um
að jafna laun, að hætta þessu launa-
misrétti, um að minnka bilið á milli
hátekjufólks og lágtekjufólks?
Hver getur álasað mér þó að mér
sæki klígja?
tutt og skýr bréf
Enn cinu sinni minna icscndadáikar DB alla þá. cr
hynnjast senda þættinum linu. ai) láta fylgja fullt nafn. .
hcimilisfany. símanúmcr lcfum f>ai) cr að rcvda) oy ^
nafnnámer. Þetta cr litil fyrirhöfn fyrir hrcfritara okkar
oy til mikilla þægindafyrir DB.
Lcsendur eru jafnframt minntir á ai) hrcfciya ai)
icra stult og skýr. Áskilinn crfullur rcttur til ai)
stytta hrcfoy umoröa til að spara rúm og koma
cfni bctur til skila. Brcf ættu helzt ekki að vcra
lengri cn 200—300 orð. ,
Simatími lcscndadálka DB cr milli kl.
13 Ofi 15 frá mánudöyum tilfostudaya.
Utangarðsmenn
—hljómsveit á heimsmælikvarða
Garri skrifar:
Já, loksins kom að því. Hvað í
fjáranum hugsar fólk? Það sem ég er
að hlakka yfir er það að við eigum nú
loks hljómsveit á heimsmælikvarða.
Að vísu höfum við áður átt góða
hljómsveit, eins og Trúbrot, sællar
minningar. En þessi hljómsveit sem
ég er að tala um eru hinir einu og
sönnu Utangarðsmenn Mér finnst
þeir ekki eiga sína líka hér á landi.
Þeir sýndu það og sönnuðu á síðast-
liðnu ári með þvi að „kýla” út þrem
meiriháttar plötum. Fróðir menn
segja að plata þeirra Geislavirkir sé
bezta rokkplata sem komið hefur út
hér á landi. Mér finnst að hann
Bubbi okkar Morthens eigi heiður
skilið fyrir texta sína og það er pott-
þétt mál að hann er á bandi okkar
unglinganna. Ég óska Utangarðs-
mönnum langlífis og velgengni í
framtíðinni.
Úr því að ég er farinn að röfla um
tónlist vil ég segja það að ég er mjög
svo hrifinn af Frætbblunum. En mig
langar gjarnan til að benda þeim á að
passa sig á að ganga ekki of langt i
textum. Það finnst mér að þeir geri í
einum texta sínum á plötunni „Viltu
nammi, væna?” En þar segir orðrétt
að stríðið hafi byrjað út af því að
Guð hafi veriðupptekinri við að hlusta
á Fræbbblana. i öllum bænum,
strákar mínir, þó að þið hafið gaman
af því að hneyksia fólk, eins og þið
reynduð einu sinni ,í sjónvarpinu,
þegar þið sögðuð að allir íslendingar
væru heimskir, blandiðekki Guði inn
í texta ykkar.
Utangarösmenn á sviöi.
spörum
RAFORKU
18
rU
spörum
RAFORKU
% & 'új
S!
Raddir
lesenda