Dagblaðið - 24.01.1981, Page 24
Mótmælaakstur á fund forsætisráðherra:
„Ótti okkar orð-
inn að veruleika
gosdrykkiaiðnað.
urínn geturekki
annaztþessa
auknuskatta-
innheimtu, segja
starfsmenn gos-
drykkja-
verksmiðjanna
Starfsmenn gosdrykkjaverksmiðj-
anna efndu til hópferðar á bílum verk-
smiðjanna í gær og héldu frá Um-
ferðarmiðstöðinni á fund forsætisráð-
herra í Stjórnarráðinu. Með för þessari
vildu starfsmenninrir mótmæla 30Vo
vörugjaldi sem sett var á öl og gos-
drykki um áramót.
Eins og DB greindi frá í gær hefur
verksmiðjan Vífilfell, sem framleiðir
Coca-Cola, sagt upp 60 starfsmönnum
og ölgerðin Egill Skallagrimsson hf. og
Sanitas hugleiða einnig uppsagnir
starfsfólks vegna samdráttar í sölu.
Forsætisráðherra var ekki viðlátinn í
gær en starfsmenn komu þó áleiðis
mótmælum til ráðherrans. Þar segir
m.a. að starfsmenn verksmiðjanna hafi
mótmælt frumvarpi til laga um vöru-
gjald af ótta við að starfsöryggi þeirra
væri stefnt í hættu. Nú væri sá ótti
orðinn að veruleika.
„Þegar mótmæli okkar voru afhent
alþingismönnum,” segir í mótmæla-
bréfinu, ,,létu nokkrir þingmenn hafa
eftir sér að vörugjaldið hefði ekki áhrif
á sölu. Nú hefur hins vegar komið í ljós
að samdráttur i sölu er mjög verulegur
og því augljóst að gosdrykkjaiðnaður-
inn getur ekki annazt innheimtu á þess-
um auknu sköttum á landsmenn.”
Starfsmenn verksmiðjanna fara
síðan fram á það að gjaldið verði fellt
niður eða dreift á fleiri atvinnugreinar.
,,Það er trú okkar að með því móti einu
sé hægt að vinna gegn samdrætti i
okkar atvinnugrein og þar með tryggja
atvinnuöryggi okkar og komið verði í
veg fyrir að á annað hundrað manns
voru einnig afhent fjármálaráðherra í
gær. -JH
m
fifálst, aháð daghlað
LAUGARDAGUR 24. JAN. 1981.
Starfsmenn gosdrvkkjaverksmiðja á leið
I Stjórnarráðið i gær. DB-nívnd S.
búi við það óöryggi sem atvinnuleysi Þessi mótmæli voru samþykkt á smiðjanna og skrifa trúnaðarmenn á
veldur.” fundum starfsmanna gosdrykkjaverk- vinnustöðunum undir. Mótmæli þessi
„Krakkarnir kaupa alltaf jafnmikið”
— starf sfólki söluturna ber ekki saman um það hvort sala gosdrykkja haf i minnkað
„Ég hef alls ekki orðið vör við sam-
drátt i gosdrykkjasölu hér,” sagði Inga
Bragadóttir í Söluturninum Gnoðar-
vogi 46 í gær. ,,Hérna rétt við
söluturninn eru tveir skólar og
krakkarnir kaupa alltaf jafnmikið
gos.”
„Nei, þetta er ósköp svipað og verið
hefur,” sagði Páll Gunnólfsson í
söluturninum Bræðraborgarstíg 43.
„Það hefur verið svipuð sala og endra-
nær á gosdrykkjum frá Sanitas og frá
Coca-Cola verksmiðjunni, þó e.t.v.
megi merkja ívið minni sölu á kóki
síðustu viku. Það hefur helzt hallað á
Egil Skallagrímsson en það kann að'
vera eðlilegt þvi fólk á oft birgðir af öli
og malti frá því um hátíðir.”
„ Já, það er enginn vafi að sala gos-
drykkja hefur dregizt saman að undan-
förnu,” sagði Guðlaugur Guðmunds-
son í Söluturninum Tindaseli 3. ,,Ég
hef. ekki nákvæmar tölur um þennan
samdrátt en ég gæti ímyndað mér að
hann væri á bilinu 10—15%, líklega
nær 15%. Þetta er samfara minni
sælgætissölu því ég sé ekki betur en
fólk hafi minni peninga handa á milli
en verið hefur.”
Ofanskráð sýnir að sjoppueigendur
eru alls ekki sammála um það hvort um
samdrátt í gosdrykkjasölu sé að ræða,
ef dæma má af viðbrögðum viðmæl-
enda í þessum söluturnum, einum í
vesturbæ, einum í austurbæ og einum í
Breiðholti.
Forstjóri Vífilfells lét hafa það eftir
sér i fjölmiðlum í gær að samdráttur í
sölu á kóki næmi 27% frá áramótum.
Þá var sett 30% vörugjald á gosdrykki.
Formaður Iðju, félags verksmiðju-
fólks, spurði trúnaðarmenn að þvi í
fyrradag, hvort ætla mætti að forstjór-
ar gosdrykkjaverksmiðjanna beittu
starfsfólki fyrir sig til þess að þrýsta á
ríkisstjórn um afnám vörugjaldsins, en
trúnaðarmenn sögðu samdráttinn
slaðreynd.
-JH.
Fóstrur í kjarabaráttu íReykjavík, Kópavogi og á Akureyri:
„Fóstrustarfið hefur
lengi verið vanmetið”
„Það er langt í frá að þetta sé
skyndilegt upphlaup hjá okkur núna.
Aðgerðirnar eiga sér langan aðdrag-
anda. Okkar starf hefur verið van-
metið mjög í gegnum tíðina og nú
getum við ekki látið við svo búið sitja
lengur,” sagði Arna Jónsdóttir fóstra
í Reykjavík í samtali við Dagblaðið í
gær.
139 fóstrur hjá Reykjavíkurborg
hafa afhent uppsagnarbréf sem taka
eiga gildi 1. febrúar og hætta þær
störfum 1. mai nema þær fái leiðrétt-
ingu á kjörum sem þær sætta sig við.
Auk þess hafa 13 fóstrur á dagheimili
Borgarspítalans sagt upp og búizt er
við enn fleiri uppsögnum fóstra I:
borginni. Fóstrur mótmæla nýgerð-.
um sérkjarasamningi við borgar-
starfsmenn en samkvæmt honum
færast fóstrur úr 10. launaflokki í
11. en vilja færast upp í 12. flokk.
Þá vilja þær fá fleiri undirbúnings-
tima vegna starfs síns greidda en
samningurinn kveður á um. Sam-
kvæmt lögum getur borgin frestaö
framkvæmd uppsagna um þrjá mán-
uði, þannig að hún kæmi fyrst til
framkvæmda 1. ágúst. Fóstrumálið
mun hafa borið á góma á fundi í
- Akureyrarf óstrur
ætla að leggja niður
störf 1. febrúar,
Kópavogsfóstrur
ræða kjaramál
sín eftir helgi
launamálaráði borgarinnar í gær en
ekkert ákveðið af hálfu borgaryfir-
valda.
Fóstrur á Akureyri eiga i svipuðu
stríði við yfirvöld bæjarins. Þær eru í
11. launaflokki en krefjast þess að
fara í 14. flokk, auk fleiri krafna.
Ólokið er sérkjarasamningi við
bæjarstarfsmenn á Akureyri en búizt
við að verkinu ljúki alveg á næstunni.
Fái fóstrur ekki þá leiðréttingu mála,
sem þær sætta sig við, hóta þær því
að hætta störfum um næstu mánaða-
mót og verður þá lokað 5 dagvistar-
stofnunum 1 bænum. Akureyrar-
fóstrur sögðu upp störfum 1. nóvem-
ber en bæjaryfirvöld notuðu sér ekki
heimild til að framlengja uppsagnar-
frestinn um 3 mánuði. Þ^er eru því
lausar allra mála 1. febrúar. Sigríður
Gísladóttir, formaður samninga-
nefndar fóstranna á Akureyri, sagði
við Dagblaðið í gær að bæjarráð
hefði skrifað þeim bréf og beðið um
frestun aðgerða. Á fundi í vikunni
tóku þær 16 fóstrur sem hér um
ræðir ákvörðun um að hafa þau til-
mæli að engu og ganga út um mán-
aðamótin.
Þá má enn nefna að Kópavogs-
fóstrur, 38 talsins, hafa verið með
lausa samninga frá árinu 1978 og
sögðu þá upp störfum. Uppsagnir
hafa þó ekki komið til framkvæmda
en eru áfram í gildi. Krafa fóstranna
er að þær fái hækkun byrjunarlauna
úr 10. í 13. launaflokk, 5 tíma 1
undirbúning o.fl. í gær undirrituðu
bæjarstarfsmenn og forráðamenn
Kópavogsbæjar sérkjarasamning.
Samkvæmt honum fá fóstrur hækk-
un upp í 12. flokk og 2 tíma í undir-
búning. Heiðrún Steingrímsdóttir
fóstra, sem sat í samninganefnd
bæjarstarfsmanna, sagði í samtali við
Dagblaðið að fóstrur myndu koma
saman á fund eftir helgina og ræða
viðbrögðin við niðurstöðu samnings-
ins.
- ARH