Dagblaðið - 28.01.1981, Blaðsíða 4
4
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 28. JANÚAR 1981.
Yfirlitsmynd yfir bæjarhúsin að Lundi. Yzt til hægri sést það eina, sem eftir stendur af fjósinu, mjólkur-
húsið, en fjósið sjálft sópaðist burt með öllu sem i þvi var. Má teljast kraftaverk að nokkur nautgripanna i
fjósinu skyldi sleppa lifandi. Jarðýtan og traktorsgrafan standa við það sem eftir varð af hlöðunni.
Snjóskriðan yzt til vinstri staðnæmdist við vegg fjárhússins, en það var fullt af kindum, sem allar sluppu.
Milli fjárhússins og hlöðunnar var litið hesthús, en þar urðu tveir hestar, folald og trippi undir farginu.
Myndin er tekin ofan af hólnum, sem fyllan losnaði úr og féll yfir húsin.
Stórtjön af völdum aurskríðunnar sem féll á útihúsin að Lundi:
Lítil þúfa velti miklu hlassi
—ekki munaði miklu að
manntjón yrði því fólk var
við vinnu í fjósinu
klukkutíma áður en
skriðan f éll
„Ég heyrði eitthvert hljóð á tíunda
tímanum en hélt að það hefði verið
þruma, það var svo ekki fyrr en langt
gengin ellefu að ég fór út í fjárhús að
athuga hvort j>ar hefði flætt inn >
leysingunum er ég sá hvers kyns var,”
sagöi Þorbjörn Gíslason bóndi að
Lundi i Lundarreykjadal, þegar við
spurðum hann í gær hvort heimilis-
fólkiö hefði ekki orðið vart við
skriðuna sem sópaði burt fjósi og
hlöðu á bænum í fyrrakvöld.
Ekki munaði miklu að manntjón
yrði í skriðunni því heimafólk á Lundi
hafði réttum klukkutíma áður en
skriðan féll lokið fjósverkum.
Það var ljót aðkoma þegar við kom-
um að bænum um miðjan dag í gær.
Þar sem áður stóðu fjós, hlaða og
áfast hesthús voru nú tættur einar og
hópur björgunarmanna vann ötuiiega
Björgunarmenn unnu ötullega að þvi i gær að bjarga þvi heyi sem óskemmt var i hiöðunni. Var það vélbundið og siðan fiutt i
hús.
I gærdag um fimmleytið voru nautgripirnir sem eftir lifðu fluttir með bil að næsta bæ,
Hóli, þar sem þeir fengu inni i auðu fjósi. Margir voru boðnir og búnir að hýsa
gripina, að sögn Þorbjörns bónda.
að því að bjarga því heyi sem verið
hafði í hlöðunni og sloppið óskemmt
undan skriðunni.
Það má teljast næsta ótrúlegt að
jafnlítil þúfa skyldi geta velt svo stóru
hlassi sem þarna varð raun á. Á ein-
hvern óskiljanlegan hátt, hefur stór
fylla úr lágum hól fyrir ofan bæinn
losnað, sennilega af völdum samspils
frosts og þíðu, og síðan fallið með
ógnarþunga á steinsteypt útihúsin og
bókstaflega sópað þeim burt.
„í húsunum var 21 nautgripur og
Þorbjörn Gislason bóndi að Lundi: „Það
eru allir boðnir og búnir að hjálpa manni
þegar svona stendur á”.
þrjú hross,” sagði Þorbjörn. Af þeim
björguðust ellefu úr fjósinu og einum
hestinum tókst að bjarga, en af honum
stóð aðeins hausinn upp úr skriðunni.
Af þeim nautgripum, sem voru I
fjósinu voru 13 mjólkandi kýr en
aðeins fjórar þeirra björguðust.
Sambyggð húsunum, sem lentu í
skriðunni eru fjárhús, sem sluppu nær
alveg viðskemmdir.en á bænum eru 274
kindur.
Strax og ljóst varð hvað gerzt hafði
dreif að menn til aðstoðar, bæði úr ná-
LJÓSM YINJDIR:
SIGURDUR ÞORRI
SIGUROSSON