Dagblaðið - 28.01.1981, Blaðsíða 5
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 28. JANÚAR 1981.
Snoppan á öðrum hestinum sem varð undir fargi skriðunnar gægist út um snjðstálið I
hesthústólftinni.
Fjárhúsin sem voru sambyggð við hesthúsið sluppu óskemmd, en litilsháttar vatn
flæddi þar inn. Hér eru félagar úr björgunarsveitinni i Reykholtsdal að laga hornið á
þaki fjárhússins.
Þórði Ásgeirssyni forseta Alþjóða hvalveiðiráðsins er
ókunnugt um ákvörðun Sovétmanna um hvalveiðibann:
Slík frétt hefur áður
komizt á kreik
—en Sovétmenn samt haldið áf ram að draga hvalbjörg í bú
Sovétríkin hafa ákveðið að hætta
hvalveiðum. Frétt þess efnis var
staðfest af hinni opinberu fréttastofu
sovézkra stjórnvalda, TASS, í gær.
Áður hafði skrifstofa umhverfis-
samtakanna Greenpeace i París
komið af stað sögusögnum um að
Sovétmenn, sem eru í hópi umsvifa-
mestu hvalfangara heims, hygðust
draga sig í hlé og hætta veiðunum.
Þórður Ásgeirsson skrif-
stofustjóri sjávarútvegsráðuneytisins
og forseti Alþjóða hvalveiðiráðsins,
sagðist í gær ekki hafa heyrt neitt
sem benti til breyttrar stefnu
Sovétríkjanna í hvalveiðimálum.
Hins vegar hafi hliðstæð frétt
komizt á kreik fyrir fáeinum árum,
þess efnis að Sovétríkin hygðust
hætta . hvalveiðum næstu 5 árin.
Ekkertvarð þóúrþví.
„Raunar má segja að hvort sem er
sé búið að kveða upp dauðadóm yfir
hvalveiðum Sovétmanna með sam-
þykkt á aðalfundi Alþjóða hvalveiði-
ráðsins 1979 um bann við notkun
verksmiðjuskipa á borð við þau sem
Sovétmenn notuðu við veiðar á búr-
hvölum. Eftir það veiddu þeir lítið
annað en hrefnur af hvalakyni. Sömu
sögu er að segja um Japani: Bann við
notkun verksmiðjuskipa og
ákvörðun um minni veiðikvóta hafa
sjálfkrafa dregið úr veiðum þeirra.”
Vísinda-, tækni- og lög-
fræðinefndir hvalveiðiráðsins koma
saman til fundar í Tókíó í lok
febrúarmánaðar. Þar á að ræða hug-
myndir um að breyta forsendum, sem
notaðar eru við ákvörðun á
hvalveiðikvótum. Þórður Ásgeirsson
verður fulltrúi íslands á fundinum í
Japan. Hann sagði erfitt vera að
segja fyrir um hvað þarna yrði
ákveðið um framtíðarveiðar og hvort
eða hvernig það snerti hagsmuni
íslenzkra hvalfangara.
„Það eina sem hægt er að segja
með nokkurri vissu er að reglunum
almennt verður frekar breytt
hvalnum í hag,” sagði Þórður.
Af hvalveiðum
til skelfiskveiða
TASS-fréttastofan segir að
þremur stærstu hvalveiðiskipum
Sovétmanna verði breytt þannig að
þau megi nota til fisk- og skeldýra-
veiða.
Um leið og hvalveiðibann gekk i
gildi voru ákveðin svæði innan
sovézkrar landhelgi í Kyrrahafi
friðuð fyrir hvers kyns fugla- og
dýraveiði.
Reuter-fréttastofan sagði i frétta-
skeyti í gær að ákvörðun Sovét-
manna um hvalveiðibann mundi
„einangra” Japani, umsvifamestu
hvalveiðiþjóð heimsins. Á fundi
Alþjóða hvalveiðiráðsins í júní 1980
hafi Japán og Sovétríkin verið í hópi
„eindregnustu andstæðinga banda-
rískrar tillögu um tíu ára bann við
hvalveiðum.” ísland studdi þá
sjónarmið Japans og Sovétríkjanna.
-ARH.
Þegar okkur bar að garði að Lundi var Þorbjörn bóndi að ráðgast við tryggingamenn
um tjónið. Næst á myndinni situr Einar bróðir Þorbjörns og faðir þeirra er yzt til
hægri.
grenninu og einnig kom björgunar-
sveitin úr Borgarnesi á staðinn en vegna
háiku og vatnavaxta varð hún að fara
um Hestsháls.
Unnið var við það í nótt að koma
þeim gripum sem eftir lifðu í húsaskjól
og kanna rústirnar. Var unnið við það
fram til klukkan fimm i gærmorgun en
síðan hafizt aftur handa klukkan níu
og unnið sleitulaust að því í allan gær-
dag að taka til og binda hey sem var í
hlöðunni og koma því i hús. Var unnið
með jarðýtu og traktorsgröfu að ryðja
skriðunni burt.
í gærdag voru þarna að verki á milli
40 og 50 menn, bæði úr nágrenninu og
einnig komu menn úr Reykholtsdal og
Hálsasveit, félagar í björgunarsveit
Slysavarnafélagsins, þangað til vinnu.
„Það eru allir tilbúnir að hjálpa
þegar svona kemur fyrir,” sagði Þor-
björn, þegar við trufiuðum hann þar
sem hann var að ræða tjónið við
fulltrúatrygginga.
„Þetta var allt tryggt eins og hægt
er,” sagði Þorbjörn, en vildi ekki gizka
á hve mikið tjón hefði orðið þarna.
Þorbjörn býr á Lundi ásamt for-
eldrum sínum, þeim Gísla Brynjólfs-
syni og Sigríði Jónsdóttur, en bróðir
Þorbjörns, Einar Gíslason, býr einnig
ásamt fjölskyldu sinni á Lundi, og voru
þeir bræður til skamms tíma með
félagsbú, ' en Einar vinnur nú á
verkstæði á Bæ í Bæjarsveit.
í gærdag voru kýrnar sem eftir lifðu
fiuttar fram að næsta bæ, Hóli, en þar
var autt fjós þar sem Þorbjörn hefur
fengið inni með kýrnar á meðan hugað
verður að þvi hvort og hvernig fjósið
verður byggt upp aftur, en aðspurður
sagðist Þorbjörn enga grein gera sér
fyrir því núna hvað gert yrði í því að
byggja upp húsin, sem sópuðust burt í
skriðunni. Þorbjörn sagðist eiga næg
hey, önnur hlaða væri á bænum full af
heyi og svo væri nóg framboð á heyi í
sveitinni.
Björgunarmenn skiptust á að fá sér hressingu hjá heimilisfólkinu að Lundi. en þar
voru margar hendur á lofti að gefa þeim kaffi og rikulegt meðlæti. Sigriður, móðir
Þorbjörns bónda, er yzt til vinstri.
WOODY ALLEN
DIANE KEATON
MICHÁEL MURPHY
MARIEL HEMINGWAY
MERYL STREEP
ANNE BYRNE
Manhattan hefur hlotið verðlaun, sem bezta erlenda mynd ársins víða um
heim, m.a. í Bretlandi, Frakklandi, Danmörku og Ítalíu. Einnig er þetta bezt
sótta mynd Woody Allen.
Leikstjóri:
WOODY ALLEN
Aðalhlutverk:
WOODY ALLEN, DIANE KEATON
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
MANHATTAN" GEORGE GERSHWIN
A JACK ROLLINS-CHARLES H. JOFFE ^
Written bv Directed bv
WOODY ALLEN:„MARSHALL BRICKMAN WOODY ALLEN
Prodfjced by Execufive Producer Directcx of Photography
CHARLES H. JOFFE ROBERT GREENHUT GORDON WILUS
1 Umted Artists
ATransamerica Company
R
WK8TWICTKD
Copyright c 1979 Umted Artisls Corp All nghis reserved
T H E A T R E