Dagblaðið - 28.01.1981, Síða 7

Dagblaðið - 28.01.1981, Síða 7
Walesa styður verkföllin Lech Walesa, leiðtogi Einingar, sam- bands hinna sjálfstæðu verkalýðsfélaga í Póllandi, hefur lýst fullum stuðningi við fyrirhugað verkfall bænda í landinu. Bændur krefjast þess sem kunnugt er að fá að stofna eins konar dreifbýlis- deild innan Einingar. Stjórnvöld hafa verið ákaflega treg til að fallast á það. Walesa er nú staddur í borginni Rzeszow í Suður-Póllandi og hefur lýst því yfir að hann muni ekki hverfa þaðan fyrr en mál bænda hafa fengið úrlausn. Bændur hafa staðið fyrir setu- verkföllum i Rzeszow undanfarna daga. Þess hefur nokkuð gætt að undan- förnu að Walesa hafi orðið að lúta í lægra haldi fyrir róttækari öflum innan verkalýðshreyfingarinnar, þeirra sem vilja ganga lengra í kröfugerðinni gagn- vart stjórnvöldum. Mörg þúsund húseigna á nauöungaruppboð? Annmarkar vaxtahækkunarínnar taldir miklir Mörg þúsund sænskir húseigendur munu trúlega missa eignir sínar á nauðungaruppboð í kjölfar hinna nýju váxtahækkana sem ákveðnar hafa verið í Svíþjóð. Bygging ein- býlishúsa og sumarbústaða hefur minnkað mjög og yfirvofandi er at- vjnnuleysi í byggingariðnaði. Þessa spá setja sérfræðingar i hús- næðismálum fram eftir ákvörðunina um hækkun vaxta úr 10 i 12%. Hækkunjn á að koma í veg fyrir gjaldeyrisútstreymi úr landinu en kemur harðast niður á heimilunum. Þessi hækkun kemi^t ekki strax niöur á þeim sem búa í leiguhúsnæði, þar sem leiga er í fiestum tilvikum ákveðin ár fram í tímann. Einbýlis- húsaeigendur voru þegar í fyrra mjög aðþrengdir. f Stokkhólmi voru 1300 hús seld á nauðungaruppboði en 600 árið áður. Líkur eru fyrir þvi að sú tala muni stórhækka á þessu ári. Áætlað er að um 200 þúsund ein- býlishúsaeigendur eigi eftir að lenda í miklum greiðsluerfiðleikum. Þessi hækkun kemur einna verst niður á þeim sem keypt hafa dýr gömul hús, með áhvíiandi lánum sem bera háa vexti. Thorbjðrn Falldin forsatisráðherra og Ola Ullsten utanrikisráðherra. Krfiðleik arnir i efnahagslifi Sviþjóðar hafa valdið óeiningu innan rikisstjórnarinnar. RIKISSKIP Sími : 28822 BROTTFARARDAGAR FRÁ REYKJAVÍK: VESTFIRÐIR: Alla þriðjudaga og annan hvern föstudag NORÐURLAND: Alla þriðjudaga og annan hvern föstudag NORÐ- AUSTURLAND: Vikulega fimmtudaga eða föstudaga AUSTURLAND OG VESTMANNAEYJAR: Alla fimmtudaga Biðjið um áætlun DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 28. JANÚAR 198|. Erlent Erlent Erlent Erlent REUTER Reagan heitir hörðum aðgerðum Ronald Reagan Bandaríkjaforseti fagnaði gíslunum 52 í Washington í gær. Hét Reagan því að hryðjuverka- starfsemi gegn Bandaríkjunum yrði mætt af mikilli hörku í framtíðinni. Mörg hundruð þúsund manns urðu til að fagna gíslunum við komuna til Washingtonígær. íranir neituðu enn í gær ásökunum um að gíslarnir hefðu sætt illri með- ferð. Talsmaður ríkisstjórnarinnar, Behzad Nabavi, sagði að itarleg viðtöl við gíslana hvern fyrir sig myndu leiða í ljós að þeir hefðu ekki sætt illri með- ferð. Brezkir gíslar ennííran Forsætisráðherra Breta, Margaret Thatcher, taldi að frelsun gíslanna 52 væri góður fyrirboði varðandi lausn á málum Bretanna fjögurra sem enn eru i haldi í íran. í þinginu kvaðst hún hafa látlaust reynt að fá írana til að láta gíslana lausa en þeir eru í fangelsi í íran án þess að höfðað hafi verið mál á hendur þeim. Bretarnir eru trúboðarnir John og Audrey Coleman, Jean Wadell fyrr- verandi ritari biskups írans og kaup- maðurinn Andrew Pyke. Þau voru handtekin fyrir fimm mánuðum grunuð um njósnir. Apamaður íKína? Kínverskur kvikmyndaleiðangur i Hupei hefur fundið tvö hundruð ein- kennileg fótaför. Það stærsta fannst í 2400 metra hæð og var 48 sm langt. Þar með var tilvera apamannsins sönnuð, taldi kínverska fréttastofan. Ráðstefna múhameðstrúarríkja f Saudi-Arabíu: Boðarheilagt stríð gegn ísraelsmönnum —algert viðskiptabann sett á Israel Þriðja ráðstefna islamskra ríkja (múhameðstrúarríkja) sem staðið hefur í Taif í Saudi-Arabíu undan- farna daga, ákvað í gærkvöld að hefja heilagt stríð (jihad) gegn ísrael með efnahagslegum þvingunum og öðrum tiltækum ráðum. Reiknað er með að áætlunin um þetta efni, sem samin er að ráði hinna 42 islömsku ríkja (ICO) verði birt í dag að lokinm ráðstefnunni. Heimildir greina að samþykkt ráð- stefnunnar, sem kölluð er Mekka- yfirlýsingin, muni hvetja islamskar þjóðir til að styðja þvingunaraö- gerðir Araba gegn ísrael. í Mekka-yfirlýsingunni segir meðal annars: „Við heitum þvi að heyja „jihad” með öllum tiltækum ráðum til frelsunar A1 Qods (borgin helga, Jerúsalem) og herteknu svæðunum.” Formaður ráðstefnunnar, Saud Al- Fashad prins frá Saudi-Arabíu, sagði á blaðamannafundi i gærkvöld, að sérhvert það land sem viðurkenndi Jerúsalem sem höfuðborg fsrael yrði einnig beitt þvingunaraðgerðum. Khalee Ibn Abdel-Aziz, konungur Saudi-Arabíu, tekur á móti Saddam Hussein, forseta íraks, á flugvellinum i Taif i Saudi-Arabiu. Carter fyrrum Bandarikjaforseti stóö i ströngu siðustu daga sina i forsetaembætti. Hann gaf sér þó tima til að fara út og hlaupa annað slagið og i eitt skiptið hrasaði hann illa og ekki var að sökum að spyrja. Ljósmyndari var nærstaddur og festi atvikið á filmu. Ýmsum þótti myndin táknræn fyrir lok valdaferils Carters en aðrir benda á að hann hafi þó leyst gislamálið með sóma og spá þvi aö hann eigi eftir að fá betri dóm þegar frá liður heldur en þann sem kjósendur kváðu upp i nóvembcr siðastliðnum. ■ Farþegaskip sökk: YfírSOOmanns ersaknað Meira en fimm hundruð manns er saknað af farþegaskipi, sem sökk á Jövuhafi eftir að eldur hafði komið upp í skipinu. Óttazt er um afdrif þessa fólks en í hópi farþega voru margar konur og börn. Farþegaskipið, sem er 6139 tonn að stærð og er frá Indónesu, var um 500 mílur norðaustur af Jakarta er slysið varð. Mjög vont veður var á svæðinu og hefur það gert björgunarmönnum erfitt fyrir. Talsmaður ríkisstjórnar Indónesíu sagði að tekizt hefði að bjarga yfir 500 manns af skipinu. 1054 farþegar voru með skipinu auk 82 manna áhafnar. Margir stukku í sjóinn fljótlega eftir að eldurinn kom upp i skipinu og var 60 björgunar- bátum kastað í sjóinn i þeirri von, að einhverjum tækist að komast i þá og bíða þar eftir hjálp. Miklir erfidleikar í sænsku ef nahagslíf i:

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.