Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 28.01.1981, Qupperneq 20

Dagblaðið - 28.01.1981, Qupperneq 20
Sýnishorn af hollensku skarti. Gerhardt von Graevenitz — Án nafns, 1971. hún því hún stendur ekki i beinum tengslum við þekkjanlega hlutveröld. Umbreyta f ormi og lit En hann tekur einnig fram að geó- metrísk afstraktlist sé eins fjölbreytt og fígúratíf list og geómetrían og sé listamönnum aðeins tæki i rannsókn- um á myndlistarsviði. Og séu hinir tíu listamenn sem þarna er að finna skoðaðir til hlítar kemur í ljós að þrátt fyrir sameiginlegar forsendur verður útkoman mjög mismunandi hjá hverjum og einum. Sumir þeirra (Peter Struycken til dæmis) kanna tengsl forms og litar, aðrir (t.d. Ad Dekkers, Gerhardt von Graevenitz) vinna í myndröðum út frá einu tema eða fleirum og enn aðrir gera hvort tveggja: umbreyta formum og litum eftir fyrirfram gefnum formúlum. Markmið hinna hollensku harð- línumanna eru einnig margbreytileg. Bonies segist vera að búa sér til eins konar algilt, sterkt myndmál. Franck Gribling kannar áreiðanleika mann- legrar skynjunar: hvað er það sem við sjáum i raun og veru? Og aðrir þykj- ast leita að grundvallarreglum náttúr- unnar. Silfur, brons, plexigler Það þarf sérstakt hugarfar til að njóta verka af þessu tagi til lengdar, svo mjög sem þau eru dauðhreinsuð og gerilsneydd á köflum. En þau geta lika verið nauðsynleg stikkpilla þá tima þegar önnur kúnst þjáist af þembu. En geómetrískrar strangtrúar gætir ekki aðeins í myndlist heldur einnig í húsbúnaði, arkitektúr og flestallri listiðn Hollendinga. Til að minna okkur á þá staðreynd hefur verið sett upp skartgripasýning með grafíkinni, í kössum sem eru svo haganlega úr garði gerðir að minna á kistil Steinars bónda. „Skart” er eiginlega ekki rétta orðið yfir þessi stykki úr silfri, bronsi og plexígleri því sumir hönn- uðanna virðast beinlínis gera sér far um að búa til and-skart, — gripi sem minna meir á rennibekkinn og tölvu- búnað en lífræn form hefðbundinna skartgripa. En sumar hugmynda þeirra sem koma upp í leiðinni eru samt stórsniðugar og vænlegar til endurnýjunar í iðninni. Ég vil hvetja alla áhugamenn að gaumgæfa þessa hollensku framleiðslu. - AI nægjusemi og nákvæmni og þær dyggðir hefur strangtrú mótmælenda tamið þeim, ásamt öðrum slíkum. En viðskiptatengsl þeirra og nábýli við óigandi haf annars vegar og volduga nágranna hins vegar hefur einnig tamið þeim pragmatisma sem hefur haldið allri ofsatrú í skefjum og haldið þeim opnum fyrir þróun mála annars staðar í heiminum. Hreint og klárt Það ætti því ekki að koma neinum á óvart þótt þessi einkenni settu einnig svip á myndlist Hollendinga. Sem þau og gera. Skýr myndbygging, hreinir og klárir myndfletir, nákvæm og vönduð útlistun smáatriða — þetta er aðall hollenskrar myndlistar allt frá Sanredam, Ruysdael, Cuyp og allar götur til Mondrians og De Stijl hreyfingarinnar. Sú arfleifð er ekki aldeilis dauð því geómetrísk af- straktlist á sér hvergi fleiri né mælsk- ari talsmenn en einmitt þar i landi, eins og glöggt kemur fram á þeim tveim sýningum frá Hollandi sem nú er að finna að Kjarvalsstöðum, Grafík frá landi Mondrians og Hol- lenskt skart. í formála að þeirri fyrrnefndu skil- greinir Gijs van Tuyl einmitt hugtakið „geómetrísk afstraktlist” sisvona: geómetrisk er hún vegna þess að listamenn nota frumeiningar geómetríunnar, beinar línur, hringi, þríhyrninga, ferninga. Afstrakt er AÐALMANNTAL 1981 Til starfsmanna við manntal Starfsmenn við manntal 1981 í þéttbýli á höfuðborgarsvæði og á Akureyri eru beðnir að mæta til starfa í hverfamið- stöðum í kvöld kl. 18. SVEITARSTJÓRNIRNAR. AÐALMANNTAL 1981 Manntalseyðublöðum verður dreift í kvöld til íbúa á höfuðborgarsvæði og á Akureyri. Fólk er beðið að kynna sér eyðublöðin vel, en láta útfyllingu þeirra bíða til helgarinnar, vegna sjónvarpsþáttar á föstudag og laugardag. SVEITARSTJÓRNIRNAR. DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 28. JANUAR 1981. Menning Menning Menning Menning Hringur, þríhym- ingur, femingur Hollensk myndlist og skart að Kjarvalsstöðum Það er gömul tugga að segja sem sjónhringurinn óendanlegur, aðeins háhýsi, bátsmastri. Þetta land hafa svo að náttúra og siðferðilegur rofinn af stöku lóðréttu formi: tré, Hollendingar þurft að 'yrkja af þankagangur með hverri þjóð hafi úrslitaáhrif á þá myndlist sem þar verður til. En í slíkum tuggum er jafnan að finna sannleikskorn og hvað ofangreinda fullyrðingu snertir er eitthvert skýrasta dæmið að finna meðal Niðurlendinga, einkanlega Hollendinga. Myndlist Þar er land flatt og takmarkað, AÐALSTEINN INGÖLFSSON

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.