Dagblaðið - 07.04.1981, Blaðsíða 1
7. ÁRG. — ÞRIÐJUDAGUR 7. APRÍL1981 — 82. TBL. RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12. AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI11.—AÐALSÍMI27022.
Kefíavík:
Fermmgarvebdan snerist i
hörkuslagsmál viö lögreglu
—gestgjafínn varað vísagestisínumíbílastæðiþegar„löggan,,kom
ogmálin tóku óvænta stefnu
Til óvænts og næsta fátíðs at-
burðar dró á götu í Keflavík um
miðjan dag á sunnudaginn. Maður
sem þar hélt fermingarveizlu og var
að taka móti einum gesta sinna, varð
næsta fyrirvaralítið fyrir ágangi
lögregluþjóns af Keflavíkurflugvelli.
Kom til harðra átaka milli þeirra og
er allt málið nú í rannsókn hjá Rann-
sóknarlögreglu ríkisins vegna tengsla
umrædds lögregluþjóns við lögreglu-
menn í Keflavík.
Þegar gestur Keflvíkingsins kom til
fermingarveizlunnar þurfti hann að
leggja bílnum og við það hjálpaði
gestgjafinn sem fyrr segir. Var bíllinn
í óvenjulegri stöðu á götunni er
lögreglubíll af Vellinum kom aftan
að honum.
Kom til orðaskipta og síðan kallaði
lögregluþjónn gestinn inn i lögreglu-
bílinn. Gestgjafinn bankaði í rúðuna
hugðist spurja hverju þetta sætti. Þá
var læsing sett á dyr lögreglubílsins.
Aftur bankaði gestgjafinn og spurði
hvort lögreglumennirnir væru í þeirra
umdæmi.
Við þá spurningu snaraðist
lögreglumaðurinn út, tók gestgjaf-
ann hengingartaki og sneri hann í
jörðina. Gestgjafinn kveðst hafa sagt
við lögregluþjóninn að hann teldi
hann ekki verðan að bera lögreglu-
búning og hann mundi því verja sig.
Urðu átök snörp. Gestgjafinn losaði
sig úr taki lögregluþjónsins, sparkaði
í hann og tókst að snúa hann undir.
Voru nú mörg vitni komin á staðinn
en vitni voru að atburðinum frá upp-
hafi.
Kom nú hinn lögregluþjónninn til
aðstoðar, enda hafði sá er í átökun-
um var beðið hann að koma með
handjárnin.
Kom nú Keflavíkurlögreglan á
vettvang og var gengið á milli lög-
reglumannsins og gestgjafans. Síðan
var allur hópurinn færður á lögreglu-
stöð. Skýrsla var tekin af gestgjafa og
gesti og e.t.v. einhverjum vitnum en
ennþá mun ekki búið að yfirheyra
lögregluþjóninn.
Öll átökin og eftirleikurinn tóku
hátt i þrjár stundir svo gestgjafinn
gerði lítið annað en heilsa sínum gest-
um og kveðja þá. Kom hann heim i
ónýtum fötum og með ónýtt tölvuúr.
-A.St.
Verkfail kennara:
„Skín í
gamla
fordóma-
grímu”
— segirðlafur
Sigurjónsson
á Akranesi
Öll kcnnsla i öldungadeildum
fjölbrautaskólanna á Akranesi og
í Breiðholti liggur niðri vegna
verkfalls kennaranna. Ástæðan
er deila um kaup og kjör við fjár-
málaráðuneytið, sem staðið hefur
frá því yfirstandandi námsönn
hófst.
Kennurunum i bóklegum
greinum er greitt samkvæmt
samningum sern eru í gildi í
öldungadeild Menntaskólans við
Hamrahlíð. Þar fá stunda-
kennarar tvöfalt kaup miðað við
stundakennslu i dagskólanunt og
visað til þess að yfirferð náms-
efnis sé helmingi meiri í öldunga-
dcildinni. Fastir kennarar, sem
kenna fulla skyldu t dagskóla frá
60% álag á stundakennsiu í
öldungadeildinni. Að sögn Ólafs
Sigurjónssonar, trúnaðarmanns
kennara á Akranesi, fellst fjár-
málaráðuneytið ekki á að þessar
reglur gildi um greiðslu fyrir
kennslu í verknámsgreinum
fjölbrautaskólanna, þar skuli
greitt einfaltkaup.
„Röksemdir ráðuneytisins eru
að ekki sé hægt að læra
verknámsgreinarnar eins hratt og
hinar grcinarnar. Þar skín i
gömlu fordómagrímuna að
verknámið sé sett skör lægra,”
sagði Ólafur.
Þrátt fyrir að liggi fyrir
samþykkt fjármálaráðuneytis
um að borga tvöfalt kaup fyrir
bóknámskennslu I fjölbrauta-
skólum, hafa kennarar heldur
ekki fengið mcira en einfalda
borgun frá þvi um áramótin.
Krafa þeirra er því um að
ráðuneytið borgi tvöfalt kaup
samkvæmt samningi fyrir
bóknámið, en viðurkenni og
borgi tvöfalt kaup fyrir
^ARH.
verknámið.
„Heldaðíslend-
ingumþyki
væntumað
borgaþennan
skatt"
— sjá bls. 5
KemurTravolta
tiiíslands?
— sjá bls. 17
Fólkáfrum-
sýningu
LaBohéme
— sjá bls. 16
Vantarneðri
hlutalíkamans
-sjábls.9
Mannfall
íóveðrinu
íJúgóslavíu
— sjá erl. fréttir
bls.6-7
-
J V