Dagblaðið - 07.04.1981, Page 4

Dagblaðið - 07.04.1981, Page 4
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 7. APRÍL 1981. a ne ytendamarkaði í ^ v > ' ALBERTSDÓTTIR Bakaður f iskréttur í eigin soði að hætfi Sigrúnar Davíi Nú heimsækjum við f isksalann og búum til herramannsmat úr nýjum f iski Páskarnir nálgast óðum og þar sem kjötréttir verða þá á matborðinu nær daglega er ekki óvitlaust að hafa fisk á boðstólum næstu daga. Það hefur líka komið fram að íslendingar hafi minnkað stórlega fiskát. Við megum ekki gleyma því að fiskinn má mat- reiða á svo geysimargan hátt og með þvi hráefni sem við eigum úr að velja getum við gert okkur herramannsmat úr fiskinum. Hvernig væri að kaupa sér nýjan fisk strax i dag eða á morgun og reyna uppskriftina hennar Sigrúnar Davíðsdóttur um bakaðan fisk í eigin soði? Við veljum þennan rétt þar sem við teljum okkur vita að uppskriftir Sigrúnar eru afar góðar. í bókinni sinni, Matreiðslubók fyrir ungt fólk á öllum aldri, er upp- skriftin Stór bakaður fiskur í eigin BLÓMAHORNIÐ COFFEA ARABICA soði. Sigrún segir: „Soðinn fiskur er harla góður, en bezt nýtur fiskurinn sín bakaður í ofni. Þannig fer ekkert af bragðinu til spillis. Með þessum fiski er gott að bera fram góðar soðnar kartöflur, hýðis- hrísgrjón eða eingöngu gott,brauð. Þið takið þá heilan fisk sem búið er að hreinsa innan úr, helzt á hausinn að vera með. Leggið hann á smurðan álpappír. Utan um fiskinn og inn í' hann getið þið síðan lagt sítrónu- sneiðar, nýjar, frystar eða þurrkaðar kryddjurtir, hvítlauk og pipar, allt eftir því hvað ykkur lízt bezt á. Síðan brjótið þið pappírinn í kring- um fiskinn þannig að hann myndi nokkurs konar bát, en lokið ekki fiskinn inni. Penslið síðan fiskinn með olíu eða bræddu smjöri og setjið inn í heitan ofn, t.d. á 200°. Á meðan fiskurinn bakast er gott að pensla hann öðru hverju með soðinu sem af honum kemur. Síðan er auðvelt að lyfta bátnum yfir á annað fat, að lóknum bakstri, ef þess er þörf. Þessi aðferð er bezt við stóran fisk. Það er talið hæfilegt að baka t.d. heila ýsu við 200° í u.þ.b. 10 mín. fyrirhverSOOgr.” -ELA Jón Steinn Elíasson fisksali á Sundlaugavegi 12 sagðist eiga nóg af góðum fiski og heldur hér hreykinn á ýsunni góðu. Við vonum bara að sem flestir fisksalar eigi góðan fisk svo við getum búið til réttinn hennar Sigrúnar. DB-mynd Sig. Þorri. íslenzku „frönsku” kartöfl- urnar komnar í verzlanir Þá eru íslenzku „frönsku” kartöfl- urnar komnar i verzlanir á höfuð- borgarsvæðinu. Kartöflurnar eru í smekklega hönnuðum pokum, 800 gr og 2 kg. Á umbúðunum eru merktar leiðbeiningar um notkun, innihald vörunnar, næringargildi og geymslu- þol. Þar ermerktur pökkunardagur. Kartöflurnar eru mátulega skornar. Blaðamaður Neytendasíðunnar próf- aði kartöflurnar nýlega og verður að segja að þær eru mjög góðar, jafnvel betri en margar af þeim útlendu teg- undum sem hann hefur bragðað! i verzluninni Víði fengum við þær upplýsingar að minni pokinn kostar 14,40 krónur og sá stærri 34,50. Stærri pokarnir seldust upp um leið og þeir komu í verzlunina. Sagði Eirikur Sigurðsson, kaupmaður í Víði í Starmýri, að fólk væri mjög ánægt með þessar kartöflur. Þess má 'geta að kartöflurnar má baka í ofni, grilli, á pönnu eða steikja í olíu. - ELA Helga Runólfsdóttir afgreiðslustúlka í Víði heldur hér á nokkrum 800 gr pokum af íslenzku „frönsku” kart- öflunum. DB-mynd Einar Ólason. — Kaffitré Kaffitréð er komið frá hitabeltum Afríku. Það er falleg jurt með glans- andi sígrænum blöðum. Kaffitréð blómstrar á sumrin með hvitum blómum sem lykta vel. Plantan blómstrar ekki eða ber ávöxt fyrr en hún hefur náð ákveðinni hæð, venju- lega eftir 2 til 3 ár. Berin eru rauð og glansandil Kaffitréð er auðræktað og þarf að vera á björtum stað en ekki i brennandi sól eða dragsúg. Með því að úða yfir plöntuna daglega með vatni þrífst hún betur. Einnig er gott að hafa pottinn vel stóran. Á sumrin þarf að vökva ríkulega með vatni og áburðarupplausn. Dregið er úr vökv- unyfir veturinn. Plöntur sem keyptar eru úr blóma- búð er nauðsynlegt að aðlaga breyttu loftslagi með því að hafa þær á rökkvuðum stað í nokkra daga og úða daglega yfir blöðin með vatni. Kaffitrénu er fjölgað með fræjum. Kaffitréð má klippa niður en falleg- ast er það þegar það hefur náð ca eins metra hæð. -JSB/VG OHafið plöntuna á björtum stað en ekki í brennandi sól. Á vet- urna þarf hún að vera í eins mikilli birtu op hægt er. Vökvið rikulega yfir sumarið en dragið úr vökvun yfir vetrar- tímann. Áburðarupplausn er gefin reglulega. Þrífst bezt í venjulcg- um stofuhita. Þolir illa dragsúg. Varðan svarar Katrínu: r „MÆTTIHALDA AÐ HUN HAFI VERIÐ í TORFÆRUAKSTRI” Arngrímur Ingimundarson eigandi. Vörðunnar hafði samband vegna bréfs Katrínar í DB 2. apríl sl. og óskaði eftir að blaðið birti eftirfar- andi athugasemd. í bréfinu segist Katrín hafa fengið tvíburavagn af Silver Cross gerð vorið 1979. Hún lýsir vagninum þannig: „Ekki liðu margir mánuðir unz vagninn varð ekki svipur hjá sjón. Allur í ryðblettum og hjólin uppspænd. Enginn skyldi trúa að þar færi nýr vagn.” Og Katrín heldur áfram: „Ekki held ég að meðferð hans hafi verið neitt ámælisverð en hitt verð ég að viðurkenna að ég hef ekki pússað hann og bónað á hverj- um degi.” Ég tel að þessi lýsing Katrínar segi greinilega sína sögu. Það mætti halda að hún hafi verið með vagninn í torf- færuakstri fyrst hjólin voru svona uppspænd. Ég get bent á að til okkar hringja oft konur sem segja sem svo: „Ég er með Silver Cross barnavagn sem ég er búin að nota undir eitt bam. Vagninn litur vel út, svo að segja sem nýr. Nú langar mig að vita hvað svona vagn kostar núna svo ég geti gert mér grein fyrir hvað ég geti sett á hann þegar ég auglýsi hann til sölu.” Þetta lýsir nokkuð annarri meðferð en Katrín talar um. Eftir þá tilvitnun sem ég hafði eftir Katrínu hér að ofan kemur alvar- legasti hlutur þessa bréfs. Þar segir orðrétt: Það væri kannski rétt að leiða hugann að því hvort merkið (Silver Cross) standi undir sér lengur. Ég get ekki betur séð en svona skrif falli undir lög um atvinnuróg. Fer þess vegna fram á það við DB að það birti fullt nafn og heimilisfang Katrínar, svo hún sæti ábyrgð ef lög- fræðingur minn telur ástæðu til. Að lokum segist Katrín hafa fengið hjól undir þennan vagnhelmingi ódýrari annars staðar en í Vörðunni. Ég efa ekki að það sé rétt. Við höfum oft bent fólki á að það gæti verið til í Fálkanum hjól á gömlu verði. í okkar verðbólguþjóðfélagi getur oft verið um mikinn mun að ræða á gömlu og nýju verði. - ELA V l/

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.