Dagblaðið - 07.04.1981, Side 10

Dagblaðið - 07.04.1981, Side 10
10 DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 7. APRÍL 1981. Yfirgnæfandi meirihluta stúdenta í Háskóla íslands styður stundakenn- ara í kjaradeilunni sem þeir eiga í við ríkisvaldhafa. Til marks um það má taka yfirlýsingar 20 deildarfélaga sem borizt höfðu í gær, auk stuðnings allra fylkinganna í Stúdentaráði: Vöku, vinstri manna og umbóta- sinna. Á fundi stúdenta í Félagsstofnun í hádeginu í gær fengu ræðumenn úr röðum stundakennara og nemenda hinar beztu viðtökur áheyrenda, en hins vegar andaði köldu í garð Þrastar Ólafssonar aðstoðarmanns fjármálaráðherra og Guðmundar Magnússonar rektors sem lýstu verk- fallið ólöglegt í ræðum sínum. Tveir stúdentar greiddu atk'væði gegn ein- dreginni stuðningsyfirlýsingu við kennarana — sem borin var upp í fundarlok — og forðuðu sér strax af fundi þegar ljóst var að allur þorri viðstaddra samþykkti stuðninginn. í yfirlýsingu fundarins var átalin sú stefna yfirvalda að „leysa aukna kennsluþörf með síaukinni stunda- kennslu. Verði þróun undanfarinna ára ekki snúið við er stöðu Háskól- ans, sem rannsóknar- og kennslu- stofnunar, stefnt í voða.” Skorað var ATLI RUNAR HALLDÓRSSON Stúdentafundur í Félagsstofnun um stundakennaradeiluna: Stúdentar leggjast á sveif með kennurum „kröfurnareru vissulegaekki hógværar,” sagði aðstoðarmaður fjármálaráðherrans Vilja fá aðild að rektorskjöri á yfirvöld að „ganga til samninga um sanngjarnar kröfur Samtaka stunda-- kennara” og klykkt út með áskorun til stúdenta um að „mæta alls ekki til kennslu” í dag, þriðjudag, til stuðn- ings stundakennurum. Kröfur um 40% kaup- hækkun, sagði Þröstur Það var Stúdentaráð sem boðaði til hádegisfundarins í gær og strax um tólfleytið var matsalurinn þéttsetinn fólki. Ekkert bólaði hins vegar á-há- skólarektor, aðstoðarmanni ráðherra og fulltrúum stundakennara á tilsett- um tíma. Skýringin var sú að fundur sem rektor boðaði til með deiluaðil- um í gærmorgun dróst á langinn. Menn styttu sér því stundir með því að taka til sín næringu, skyr úr döll- um eða kjötbollur, sem sigldu um diskana í karrísósu. Seint og um síðir skiluðu ræðu- menn sér og Jón Ólafur Skarphéðins- son tók til máls af hálfu stundakenn- ara. Hann gerði stuttlega grein fyrir helztu kröfum sinna manna og sagði að nú væri svo komið að deilan snerist fyrst og fremst um líf Samtaka stundakennara, þ.e. hvort ríkisvaldið viðurkenndi rétt þeirra til að fjalla um kaup og kjör félagsmanna. Þröstur Ólafsson, hægri hönd fjár- málaráðherrans, sagði að kröfur kennaranna væru „vissulega ekki hógværar miðað við það sem gengur og gerist í þjóðlífinu.” Kennararriir hafi fengið 6% hækkun kaups eins og félagsmenn í BHM og BSRB. „Ef allar kröfur stundakennara Troðfullur fundarsalur i Félagsstofnun í hádeginu i gær þegar stúdentar og fleiri reifuðu stundakennaradeiluna. Axel Eyjólfsson frá Vöku í ræðustól. DB-myndir Einar Ólason. „Stuðningur stúdenta og frum- kvæði háskólarektors geta orðið til að flýta fyrir lausn deilunnar,” sagði Ólafur Jónsson samningamaður stundakennara á fréttamannafundi í gær. Þar gerði stjórn Samtaka stundakennara grein fyrir kröfum sínum á hendur ríkisvaldinu og stöðu deilunnar. Af sjö kröfum, sem lagðar voru fyrir ráðuneyti fjármála og mennta- mála 25. febrúar, hefur ríkið fallizt á eina: að greiðslur í veikindaforföllum verði samræmdar því sem gerist hjá stundakennurum í Kennaraháskólan- um. Af öðrum kröfum má nefna þá að stundakennarar geti færzt upp um launaflokka eins og fastir kennarar. Stundakennarar taka laun sam- kvæmt 109.—111. flokki og komast ekki hærra. Fastir kennarar geta komizt í 112.—114. flokk. Laun sam- kvæmt 109. flokki eru ca 63 krónur á klukkustund, en hæsta mögulega kaup samkvæmt 111. flokki er um 70 krónur að meðtöldum álögum. Stundakennarar krefjast þess að fá greidda yfirvinnu að lokinni 40 stunda kennslu á viku og að laun verði greidd í hlutfalli við kennslu í páska- og jólaleyfum. Þá vilja stundakennarar fá fulltrúa í háskólaráði og rétt til setu á deilda- fundum og í deildaráðum, ennfremur að þeir hljóti aðild að rektorskjöri. -ARH * Stundakennarar hafa náð fram einni af sjö kröfum sem lögð var fyrir ráðuneytin 25. febrúar: eru metnar til beinna fjárútláta, er i þeim farið fram á u.þ.b. 40% kaup- hækkun,” sagði Þröstur. Ennfremur sagði hann að eðlilegt væri að reyna að bæta kjör þess hóps stundakenn- ara („nokkurra tuga manna”) sem hefðu þetta að aðalstarfi. Hins vegar „verða aldrei samþykktar slíkar kjarabætur handa stundakehmirum sem eru að aðalstarfi embættismenn hjá ríkinu.” Guðmundur Magnússon rektor sagði að hlutfall stundakennslu væri hærra hérlendis en í háskólum erlendis og þannig yrði það líklega alltaf. Erlendis væru stundakennarar mest fólk í doktorsnámi í háskólun- um, hérlendis aðallega „fólk utan úr bæ”. Rektor taldi að fjölga þyrfti föstum stöðum við skólann, en einnig að bæta aðstöðu stundakennaranna til dæmis að veita þeim aðstöðu til starfs utan kennslustunda og til að gefa nemendum færi á viðtölum. Atli Eyjólfsson fulltrúi Vöku í menntamálaráði og Guðmundur Þor- bergsson fulltrúi vinstri manna í Stúdentaráði töluðu. Axel spurði hvort stúdentar mættu eiga von á stuðningi stundakennara í vor, til að vinna upp það sem tapast vegna verk- fallsins, ef stúdentar styddu þá nú. Guðmundur skammaði Þröst Ólafs- son fyrir „forneskjusjónarmið” og hvatti stúdenta til að fara í verkfall til stuðnings stundakennurum. - ARH Þröstur Ólafsson aðstoðarmaður fjármálaráðherra og Guðmundur Magnús- son háskólarektor á fundinum i Félagsstofnun. Rektorinn er sýnilega að láta ráðuneytismanninn fá eitthvað gott í andlegt vegarnesti. Og ráðuneytismaður- inn hlustar af athygli. „Hallelúja”, nýtt leikrit eftir Jónas Árnason, var frumsýnt á Húsavík um helgina. Það fjallar um forsetafram- bjóðandann P.B. sem orðið hefur frægur af kraftlyftingum sínum. Á móti honum er kona í framboði, Val- kyrjan, og hafa þau bæði sama bar- áttusönginn, sem fenginn er að láni úr Hallelúja-kór Hándels. Dregur verkið nafn af honum. „Hvers vegna eru þau bæði með sama sönginn?” spurðum við Jónas í stuttu símtali norður á Húsavík. „Tókstu ekki eftir því að í síðustu forsetakosningum enduðu allir fjórir frambjóðendur fundi sína á þvi að láta syngja eða spila „ísland ögrum skorið?” svaraði Jónas. „Hallelúja er gamanleikur, með dýpri kjarna þó, um þann stíl eða brag, sem getur orðið á kosningabaráttu eftir tuttugu ár, nálægt næstu aldamótum, ef svo heldur sem horfir.” Jónas sagði að Húsvíkingar hefðu framkvæmt hreinasta tækniundir í gamla samkomuhúsinu þar sem leikið er. „Þeir lögðu tvöfalt sjónvarpskerfi í húsið. Þetta eru snillingar enda létu þeir sig í hittifyrra ekki muna um að setja upp Fiðlarann á þakinu. ' Sjálfur í framboði á Húsavík Leikstjóri er María Kristjánsdóttir. Hún hefur áður sett upp ný verk eftir íslenzka höfunda, bæði Svövu Jakobs- dóttur og Véstein Lúðvíksson. Þá er aðalleikarinn, Sigurður Hallmarsson, vel þekktur, og fer með hlutverk Snorra Sturlusonar í stórmynd þeirri sem gerð var í sumar og væntanlega kemur á skjáinn eftir nokkra mánuði. „Ég er stóránægður,” sagði Jónas, Jónas Árnason við Húsavikurhöfn. Hann metur sjómannastéttina mikils, og hefur látið þau orð falla, að þorskurinn standi undir menningunni i landinu, að minnsta kosti sinfóniunni. DB-mynd Ómar Valdimarsson. Fyrsta sinn sem leikrít eftir Jónas Árnason er frumsýnt utan Reykjavíkur: „Hallelúja” á Húsavík — segir frá kraftlyftingamanninum ogforsetaframbjóðandanum P.B. sem hefur unnið með leikhópnum allt í allt fimm vikur af æfingatímanum og breytt ýmsu, enda sagði hann að leik- ritið hefði varla verið fullunnið, þegar Húsvíkingar fengu það í hendur. Leikrit Jónasar hafa hingað til öll verið frumsýnd í Reykjavík og mörg orðið feykivinsæl, svo sem „Ðelerium Bubonis”, sem hann samdi með bróður sínum Jóni Múla, „Jörundur” og „Skjaldhamrar”. , ,Því valdirðu Húsavík núna? ’ ’ Jónas hló við og sagði að Þingey- ingar væru ættræknir mjög og hann inga Huld Hákonardóttir væri bæði af Skútustaðaætt og Reykja- hlíðarætt. „Svo hef ég tvisvar verið hér í fram- boði til alþingiskosninga og eignaðist þá góða vini í öllum flokkum.” Hann hefur ekki erft það við Húsvík- inga að í hvorugt skiptið náði hann kjöri, og trúlega munu þeir flykkjast á „Hallelúja”, sem sýnt verður í sam- komuhúsi þeirra á miðvikudags-, föstudags- og sunnudagskvöid kl. 20.30. -IHH

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.