Dagblaðið - 07.04.1981, Blaðsíða 18
18
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 7. APRÍL 1981.
Gert er róð fyrir sunnan étt me<
slyddu eða rigningu sunnan og vest
an lands framan af degi, siðan gongut
( suðvestan átt og slydduél, úrkomu-
laust verður á Norður- og Austur-
landi.
Klukkan 6 var suðaustan 7, rigning
og 7 stig ( Reykjavfk; sunnan 4, snjó-
koma og 0 stig á Gufuskálum; suð-
vestan 1, slydda og 1 stig á Galtar-
vita; sunnan 2, skýjað og 7 stig á
Akureyri; sunnan 4, skýjað og 6 stig á
Raufarhöfn; sunnan 7, skýjað og 7
stig á Dalatanga; sunnan 5, þoku-
móða og 7 stig á Höfn og sunnan 9
rígning og 7 stig á Stórhöfða.
( Þórshöfn var skýjað og 7 stig, lótt-
skýjað og 3 stig ( Kaupmannahöfn,
léttskýjað og —2 stig ( Osló, létt-
skýjað og 4 stig f Stokkhólmi, skýjað
og 5 sti'jí London.lóttskýjaðog 4 stig
f Hamborg, skýjað og 8 stig ( Paris,
skýjað ogðstig (Madrid, skýjað og 12
stig í Lissabon og léttskýjað og 8 stig
(New York.
v
Karólina Árnadóttir, Böðmóðsstöðum,
sem lézt 25. marz, fæddist 20. nóvem-
ber 1897 að Miðdalskoti í Laugardal.
Foreldrar hennar voru Árni Guð-
brandsson og Guðrún Jónsdóttir. Ung
að árum giftist Karólina Guðmundi
Njálssyni og áttu þau 15 börn, þau
hófu búskap sinn að Kringlu i Grims-
nesi árið 1918. Síðan fluttu þau að
Ketilvöllum í Laugardal og þaðan að
Böðmóðsstöðum þar sem þau bjuggu
síðan.
Oddur Jónsson, Fagurhólsmýri, sem
lézt 27. marz, fæddist 24. júní 1928 á
Hofi í Öræfum. Um 1955 réðst Oddur
til starfa hjá Kaupfélagi Skaftfellinga í
Vík sem útibússtjóri félagsins á Fagur-
hólsmýri. Árið 1965 réðst hann svo sem
starfsmaður Kaupfélags Austur-Skaft-
fellinga á Höfn og því starfi gegndi
hann til dauðadags. Oddur var oddviti
Öræfinga frá árinu 1966 til dauðadags.
Hann var kvæntur Nönnu Sigurðar-
dóttur og áttu þau þrjár dætur.
Anna Kvaran Schöth, sem lézt 15.
marz sl., fæddist 5. október 1909 á
Akureyri. Foreldrar hennar voru Axel
Achiöth og Margrethe Schiöth. Anna
lauk námi frá Gagnfræðaskólanum á
Akureyri og dvaldist eftir það um hrið 1
Danmörku. Eftir heimkomuna vann
hún á símstöðinni á Akureyri til ársins
1941 en þá giftist Anna Ágústi Kvaran,
áttu þau 2 börn en ólu einnig upp
sonarson sinn. Anna var um tíma ritari
félagsins Framtíðin á Akureyri.
Eiríkur Hjartarson rafvirkjameistari
lézt að Hafnistu 4. apríl sl.
Torfi Þorbjörnsson, Nökkvavogi 12,
lézt að elliheimilinu Grund 3. apríl sl.
Gunnar Ólafsson, Hraunbæ 13, lézt 5.
apríl sl.
Ragna Matthíasdóttir frá Holti, Ljós-
heimum 20, lézt í sjúkrahúsinu í Vest-
mannaeyjum 5. apríl sl.
Friðrik Óskar Sigurðsson, Kleppsvegi
74, lézt 5. apríl sl.
Jón Bergmann Jónsson frá Litla
Langadal Iézt í Sjúkrahúsi Akraness 5.
apríl sl.
Magnús Magnússon járnsmiður,
Þórufelli 4, verður jarðsunginn frá
Dómkirkjunni miðvikudaginn 8. apríl
nk. kl. 15.
Guðfinna Guðmundsdóttir verður
jarðsungin frá Hafnarfjarðarkirkju í
dag 7. apríl kl. 14.
Peter Colot 1025 E. Taylor Run Pkwy
Alexandríu VA lézt 5. apríl sl.
Guðfinnur Þorbjörnsson lézt 4. aprií
sl. Jarðarförin verður gerð frá
Neskirkju mánudaginn 13. april kl.
13.30.
Sigriður Hallbjörnsdóttir frá Einars-
lóni, Þverholti 2 Keflavík, lézt í Sjúkra-
húsi Keflavíkur sunnudaginn 5. april.
Jarðsett verður frá Keflavíkurkirkju
laugardaginn 11. apríl kl. 14.
AA-samtökin
I dag þriðjudag verða fundir á veguni AA-sanilakanna
sern hér scgir: Tjarnargata 3c ki. 12 og 21, Tjarnargata
5b kl. 21 og 14. Neskirkja kl. 21. Akranes Suðurgata
102 (s. 93-25401 kl. 21. Akureyri Gcislagata 39 Is. 96-
223731 kl. 21. Keflavík Klapparstig 7 Is. 92-18001 kl.
21. Isafjörður Gútló uppi kl. 20.30. Siglufjörður
Suðurgala 10 kl. 21. Keflavikurflugvöllur (Svavarl kl.
11.30. Dalvik kl. 21.
I hádeginu á morgun. miðvikudag. vcrða íúndir
sem hCrsegir:Tjarnargata 5bfopínn)kl. 12og 14.
Kvennadeiid Barðstrendinga-
fólagsins
heldur fund í Domus Medica þriöjudaginn 7. apríl
kl. 20.30. Fundarefni: Skírdagsskemmtun eldra
fólksins undirbúin.
Kvenfélag Háteigssóknar
Fundur veröur haldinn þriöjudaginn 7. april kl.
20.30 í Sjómannaskólanum. Gestur fundarins
verður Margrét Hróbjartsdóttir. Tizkusýning.
Mætiö vcl og stundvislega.
Kvenfélag
Háteigssóknar
Fundur vcrður i kvöld kl. 20.30 i Sjómannaskól-
anum. Gestur fundarins verður Margrét Hróbjarts-
dóttir. Þá verður tizkusýning.
Kvennadeild Flugbjörg-
unarsveitarinnar
heldur fund miðvikudaginn 8. april kl. 20.30. Vöru-
kynning frá Mjólkursamsölunni. Kynntir verða
réttir úr mjólkurafurðum. Mætið vel og takið með
ykkur gesti.
Kvenfélag Keflavíkur
Fundur i kvöld kl. 9. Fundarefni: Axel Jónsson
matreiöslumaður kemur á fundinn og gefur konum
uppskriftir og hugmyndir um veizluborð. Konur,
fjölmennið og takiö þátt í ákvörðun um framtið
Tjarnarlundar.
Stjórnin.
Kvennadeild Slysavarna-
félags íslands, Reykjavík
Afmælisfundur verður haldinn fimmtudaginn 9.
apríl kl. 20 stundvíslega. Girnilegur matur og góð
skemmtiatriöi. Mætum vel og njótum kvöldsins.
Látið vita um þátttöku í síma SVFÍ, 27000, á venju-
legum skrifstofutima sem allra fyrst.
Kvennadeild Flugbjörgunar-
sveitar íslands
Félagsfundur vcröur haldinn miðvikudaginn 8. april
kl. 20.30. Vörukynning frá Mjólkursamsölunni.
Kvenfélag
Kópavogs
Fundur verður haldinn í Félagsheimili Kópavogs 9.
apríl kl. 20.30. Spiluð verður félagsvist. Mætið
stundvíslega.
Vísnakvöld á Borginni
í kvöld
í kvöld verða Vísnavinir með vísnakvöld á Hótel
Borg og hefst það kl. 20.30. Dagskrá verður fjöl-
breytt að vanda og frjálsar upptroðslur verða
leyfðar. Fjölmennum.
Leiklist
Aukasýningar á Gretti
— Allra siöustu forvöö að sjá sýninguna.
Vegna mikillar aösóknar á siðustu sýningar á söng-
leiknum Gretti hjá Leikfélagi Reykajvíkur, hefur
veriö ákveðiö aö hafa tvær aukasýningar, annað
kvöld (miðvikudag) kl. 21 og á laugardagskvöld kl.
23.30. Þessi vinsæli gamanleikur hefur verið sýndur
i Austurbæjarbiói frá því í nóvember við afbragðs-
undirtektir. Eins og margoft hefur komið fram eru
það Þórarinn Edljárn, Ólafur Haukur Simonarson
I
GÆRKVÖLDI
VEÐUR
IDAGSKRARL0K
0G FIMM DAGA SPÁR
Veðurspá i lok dagskrár væri þörf og nauðsynleg.
Það fór fyrir mér líkt og odd-
vitanum í Sandgerði í gærkvöldi, það
var víða komið við en stutt ‘steppað.
Dagskrár ríkisfjölmiðlanna voru
kannski ekki beint til þess fallnar i
gærkvöldi að þær höfðuðu til mín.
Að loknum kvöldfréttum hlustaði
ég á „talnaleik” Böðvars Guðmunds-
sonar í Daglegu máli. Þessir stuttu
málvöndunarþættir gera sennilega
meira gagn en margur gæti haldið,
menn ættu bara að minnast allrar
bununnar sem kom úr „læknum”
hansGuðna.
Á eftir Böðvari kom oddvitinn
þeirra í Sandgerði, Elsa Kristjáns-
dóttir. Hún datt í þá gryfju, líkt og
margir þeirra sem á þessum vett-
vangi tala, að þeir ætla sér um of,
koma of víða við, en þegar upp er
staðið stendur fátt eitt eftir minnis-
stætt, þótt margt af því sem frúin
sagði í gærkvöldi hefði verið athyglis-
vert, allt frá magnesíumvinnslu til
umhverfisverndar.
Á eftir „brjálæðislega æðislega
stutta þættinum” sem á dagskránni
heitir Lög unga fólksins greip ég
lítillega niður í endurtekinn þátt
Finnboga Hermannssonar um síldar-
ævintýrið í Árneshreppi norður á
Ströndum og hafði býsna gaman af.
Sérstaklega af því þegar sagt var frá
byggingu síldarverksmiðjunnar sem
aldrei fékk neina síld. Það er gott á
sinn hátt að landsfeður nútímans
skuli ekki vera þeir einu sem byggja
óarðbært. Þó er aðeins munur á, það
var tekið til þess að þeir heiðursmenn
sem byggðu síldarverksmiðjuna í
Ingólfsftrði og ekki gátu séð fyrir
dynti síldarinnar stóðu við sinar
skuldbindingar og borguðu sínar
skuldir, en „kröflukóngar”
nútímans treysta bara á sjóði og vasa
skattborgaranna.
Fátt eitt annað í útvarpinu i gær-
kvöldi freistaði min og frekar hefði
mig fýst að heyra lestur Guðna
Kolbeinssonar á þætti um Jón Hrólf,
sem er á dagskrá í dag, en „dönsku
tónlistina”, sem sló botninn í dag-
skrá útvarpsins i gærkvöldi.
Sjónvarpið í gærkvöldi fór nær
alveg fyrir ofan garð og neðan, enda
var dagskráin ek'ki margbrotin.
Fréttir og veður, stutt teiknimynd
svo hægt sé að segja að börnin fái
sinn skammt, íþróttarall Jóns B. og
seinni helmingur af óperu sem
byrjaði á sunnudagskvöldið. Annars
má segja Jóni iþróttarallara það til
hróss að hann kemur víðar við en
Bjarni Fel. og virðist gera sér grein
fyrir því að yngri kynslóðin stundar
h'ka íþróttir. Ef Jón næði því að slaka
aðeins á, keyra í „lægri gír”, þá yrði
þáttur hans sennilega hinn ágætasti.
Veðurkort í
lok dagskrár
Einn er sá liður í sjón-
varpi sem ég reyni alltaf að ná að
sjá, en það er veðrið, Vcðurfregnir i
sjónvarpi eru miklum mun greinilegri
en í útvarpi, því sjón er sögu ríkari.
Einnig fæst meiri fróðleikur um
veðrið næsta sólarhringinn í
sjónvarpinu en útvarpsfregnunum.
Ég hef til dæmis aldrei getað skilið af
hverju ekki er hægt i útvarpinu að
gefa upp áætlað hitastig í hinum
ýmsu landshlutum likt og gert er í
sjónvarpi. Ekki sakar heldur að í
sjónvarpinu flýtur oft hinn
skemmtilegasti fróðleikur um veður
og veðurtengda atburði með veður-
spá dagsins.
Því væri gaman að vita hve dýrt
það væri að taka upp veðurfregnir
kvöldsins á myndband og senda síðan
út aftur i lok dagskrár, þó ekki væri
nema semstillimynd. Ef ég þekki rétt
til í sjónvarpinu þá hef ég grun um að
þessi „dagskráruppbót” myndi nú
ekki setja þessa mjög svo fjársveltu
stofnun á hausinn en hinsvegar afla
henni aukinna vinsælda og
hugsanlega mætti telja slíka endur-
tekningu á veðurfregnum til öryggis-
atriða, sérstaklega á þeim árstímum
þegar allra veðra er von.
Fyrst veðurfregnir í sjónvarpi eru
annars á dagskrá, þá er rétt að kasta
þetm bolta til veðurfræðinga og
sjónvarpsins hvort ekki væri hægt að
hafa einu sinni í viku fimm mínútna
þátt þar sem veður vikunnar væri
„gert upp" og sagt frá næstu fimm
daga spá. Slíkur þáttur væri
upplagður í kjölfar veðurfregna á
föstudagskvöldum, þegar menn
hyggja gjarnan á helgarferðalög og
fýsir að vita lengra fram í tímann en
einn sólarhring.
Grettir æfir sig með gormana (Kjartan Ragnarsson).
og Egill'ölafsson, sem eru höfundar verksins og
Kjartan Ragnarsson er í titilhlutverki. AUs koma 16
leikarar, söngvarar og dansarar fram og Þursaflokk-
urinn sér um tónlistarhliðina. Minna má á, aö fyrir
nokkrum dögum kom á markaðinn hljómplata með
lögunum úr Gretti og er hún til sölu á kynningar-
verði á sýningum í bíóinu.
Kvenfélag Óháða
safnaðarins
Fimmtudagskvöldið 9. apríl kl. 20.30 verður spiluð
félagsvist í Kirkjubæ. Verðlaun og kaffiveitingar.
Takið með ykkur gesti. Allt safnaðarfólk velkomið.
. Aöaffundir
íbúasamtök vesturbæjar
Aðalfundur íbúasamtaka vesturbæjar verður á
Hailveigarstöðum þriðjudagskvöldiö 14. april aö
loknum almennum fundi þar sem rædd verða úr-
ræði til að bæta húsakost barnaskóla í vesturbæn-
um. Fræðslustjóri mun þar kynna athuganir i þeim
efnum sem verið er að gera á Fræðsluskrifstofu
Reykjavíkur. Fundurinn hefst kl. 20.30.
Hafnfirsk
menningarvaka
Þriðjudagur 7. apríl:
Kl. 20.30
Kammertónleikar i Hafnarfjarðarkirkju:
Elín Guömundsdóttir, sembal
Gunnar Gunnarsson, flauta
Ingi Gröndal, lágfiðla
Jóhannes Eggertsson, selló
Þorvaldur Steingrímsson, fiðla
Útivistarferðir
Myndakvöld þriðjud. 7.4 ki. 20.30 að Freyjugötu
27. Hallur og Óli sýna. Kaffi og með því.
Páskaferðir:
Snæfellsnes, göngur við allra hæfi um fjöll og
strönd, gist á Lýsuhóli, sundlaug. Fararstj. Steing-
rimur Gautur Kristjánsson o.fl.
Fimmvörðuháls, gengið upp frá Skógum, göngu-
skiðaferð. Fararstj. Styrkár Sveinbjarnarson.
Farseðlar á skrifstofunni Lækjargötu 6a, sími
14606.
Ferðafélag íslands
Ferðafélag íslands heldur myndakvöld að Hótel
Heklu, Rauðarárstig 18, miðvikudaginn 8. april kl.
20.30 stundvíslega.
íslenzki Alpaklúbburinn (ÍSALP) sýnir myndir
frá skíðagönguferð yfir Kjöl, skíðagönguferð á Mýr-
dalsjökli, klifri á Eyjafjallajökli og klifri á Hraun-
dranga og fleiri stöðum.
Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir. Veitingar i
hléi.
GENGIÐ
GENGISSKRÁNING Ferðamanna
Nr. 67 — 6. aprfl 1981 gjaldeyrir
Einingkl. 12.00 Kaup Sala Sala
1 Bandarikjadollar 6,614 6,632 7,295
1 Sterlingspund 14,356 14,395 15,835
1 Kanadadollar 6,577 5,593 6,152
1 Dönsk króna 0,9787 0,9814 1,0795
1 Norsk króna 1,2187 1,2220 1,3442
1 Sœnsk króna 1,4173 1,4211 1,5632
1 Finnsktmark 1,6053 1,6097 1,7707
1 Franskur franki 1,3084 1,3120 1,4432
1 Belg. franki 0,1880 0,1885 0,2074
1 Svissn. f ranki 3,3758 3,3850 3,7235
1 Hollenzk florina 2,7825 2,7901 3,0691
1 k V.-þýzkt mark 3,0804 3,0888 3,3977
l ltölsk líra 0,00619 0,00620 0,00682
1 Austurr. Sch. 0,4353 0,4365 0,4802
1 Portug. Escudo 0,1143 0,1146 0,1261
1 Spánskur peseti 0,0758 0,0760 0,0836
1 Japansktyen 0,03084 0,03092 0,03401
1 írsktDund 11,224 11,255 12,381
SDR (sórstök dráttarréttindi) 8/1 8,0147 8,0367
# Breyting frá siðustu skráningu. Simsvari vegna gengisskráningar 22190.