Dagblaðið - 07.04.1981, Síða 28
Tvö innbrot hjá Rafni hf. í Sandgerði með háKsmánaðar millibili:
Stálu humrí og seldu
þegar þá vantaði fé
— Seldu humarínn á afsláttarverði í veitingahúsum í Reykjavík
Tveir menn sátu inni i nótt hjá
rannsóknarlögreglunni í Keflavik.
Voru þeir gripnir í Reykjavík síðdegis
i gær, en vaknað hafði rökstuddur
grunur um aðild þeirra að innbroti í
Rafn hf. í Sandgerði og stuld á humri
þaða'i.
Játning liggur nú fyrir um
innbrotið og humarstuldinn aðfara-
nótt sl. sunnudags. Stálu mennirnir
tveir 15—20 öskjum af humri en hver
vegur 5 ensk pund. Er magnið óklárt
því mennirnir, sem fæddir eru 1936
og 1953 og þvi 45 og 28 ára, voru
ekki alveg klárir í kollinum er þeir
stálu humrinum og seldu hann síðan
á veitingahúsum í Reykjavík.
Við yfirheyrslur í gær kom í ljós,
að þeir höfðu framið sams konar
verknað á sama stað hálfum mánuði
áður. Þá voru þeir við þriðja mann
að verki að afloknum dansleik f
Keflavík. Einnig þá stálu þeir um
15-20 öskjum af humri.Það innbrot
var aldrei kært, því óljóst þótti hjá
Rafni hf. hvort nokkuð hefði horfið,
þó einhver merki mannaferða hefðu
sézt í húsinu.
Einn þremenninganna, sem í hlut
eiga var á árum áður verkstjóri hjá
Rafni hf. og því hnútum kunnugur.
Gangverð hverrar öskju af humri
er 13—16000 krónur. Gæti því heild-
arþýfið numið allt að 60 þúsund
krónum eða 6 milljónum gkr.
-A.St.
Misjöfn þátttaka ísamúðarverkfalli
,,Við önzum ekki svona kjaftæði,” sögðu viðskiptafræðinemar á
3ja ári í Háskólanum í morgun. Þeir töldu að 80% mæting hefði
verið hjá sér í skólann í dag, þrátt fyrir allsherjarverkfall stúdenta
til stuðnings stundakennurum. Léleg mæting var hins vegar hjá
fyrsta ársnemum í viðskiptafræði og víða í deildum Háskólans lá
kennsla algjörlega niðri þar sem nemendur létu ekki sjá sig.
DB-myndir: Sig. Þorri.
Innbrot í Landsbankaútibúið á Hellissandi:
„Frusu" þegar þjófa-
bjöllukerfið fór ígang
—teknir skammt f rá Rif i—annar skólaus
Skerandi bjölluhringing vakti
Hilmar Viggósson, forstöðumann
Landsbankans á Hellissandi, af
værum svefni um kl. hálffimm í
fyrrinótt. Þekkti hann þar strax
þjófabjöllukerfi Landsbankans, sem
er á neðri hæð íbúðar útibússtjórans.
Hilmar dreif sig út á tröppur og
leit í kringum sig en varð ekki var við
neitt grunsamlegt. Fór hann þá strax
inn og hringdi í lögreglu til að láta
vita af því sem var að gerast.
Hann fór síðan út aftur og gekk í
kringum bankann. Þá sá hann að
bakatil á húsinu hafði verið spenntur
upp lítill gluggi og var fastur þar í
karlmannsskór. 1 sömu svifum bar
lögregluna að. Fóru þeir nú inn, lög-
reglumennirnir og útibússtjórinn og
leituðu hátt og lágt um bankann en
fundu ekkert. Ljóst var þó að einhver
hafði farið þar inn þótt ekkert hefði
verið skemmt né við nokkru hreyft.
LOgreglumennirnir fóru þá af stað
með sönnunargagnið, karlmanns-
skóinn, í pússi sinu. Eftir árangurs-
lausa athugun á líklegustu stöðum á
Hellissandi óku þeir áleiðis til Ólafs-
víkur. Þegar þeir voru komnir
skammt inn fyrir afleggjarann að
Rifshöfn óku þeir fram á tvo fót-
gangandi menn. Stakk annar við fæti
og kom í ljós að hann vantaði annan
skóinn. Reyndist skórinn, sem tekinn
hafði verið úr glugga Landsbanka-
útibúsins á Hellissandi, vera sams
konar þeim sem maðurinn bar á hin-
um fætinum og passa á fótinn í
ofanálag.
Mennirnir voru drifnir upp í lög-
reglubílinn og viðurkenndu þeir strax
athæfið. Sagðist þeim svo frá að þeir
hefðu í ölvímu fengið þá hugdettu að
fara inn í bankann, þó ekkert frekar
til að afla sér fjár. Annar fór inn en
hinn stóð vakt fyrir utan. Hvorugur
þeirra hafði reiknað með því sem
gerðist allt i einu; að þjófa-
bjöllukerfið færi í gang með gaura-
gangi miklum. Varð þeim svo mikið
um, að vaktmaðurinn tók á rás og
hljóp eins og lífið ætti að leysa i
burtu. Sá sem inni var stirðnaði af
skelfingu eitt augnablik en tókst
síðan að komast út um gluggann —
en varð að skilja skóinn eftir.
Lögreglan í Ólafsvík, sem hafði
hendur í hári tvímenninganna, sagði
DB síðdegis í gær, að eftir
skýrslugjöf hefðu mennirnir verið
látnir lausir. Þeir eru báðir Reyk-
víkingar, skipverjar á bát frá Reykja-
vík, sem lá í Rifshöfn, og verður mál
þeirra sent til réttra yfirvalda i
höfuðstaðnum til frekari meðferðar.
-HJ Hellissandi.
Srfálst, úháð daghlað
ÞRIÐJUDAGUR 7. APRÍL1981.
„Ekki fjár-
magn íflug-
stöðíár”
— segir Ólafur Ragnar
Grímsson, formaður
þingflokks
Alþýðubandalagsins
„Það er ljóst að í lánsfjáráætlun
ríkisstjórnarinnar var ekki gerð tillaga
um neitt fjármagn í flugstöð. Við af-
greiðslu í efri deild hafa ekki komið
fram neinar breytingártillögur í þá átt
frá stjórnarandstöðunni. Það liggur því
fyrir að ekki verður varið fjármagni í
flugstöð í ár,” sagði Ólafur Ragnar
Grímsson, formaður þingflokks
Alþýðubandalagsins, í viðtali við DB í
morgun.
„Alþýðubandalagið leggur fyrst og
fremst áherzlu á að mörg önnur verk-
efni á sviði flugmála séu mun brýnni,
svo sem um öryggisbúnað og uppbygg-
ingu flugvalla úti um land og hugsan-
lega uppbygging varaflugvallar, t.d. á
Sauðárkróki. Það er hægt að byggja
meira og minna upp allt flugvallar-
kerfið fyrir það fjármagn sem hugsan-
lega yrði lagt í flugstöðvarbyggingu.
Alþýðubandalagið telur þó að flugstöð
fyrir íslendinga sé mikilvægt verkefni
en meginatriði er að íslendingar fjár-
magni hana algerlega sjálfir. Þá eru
þær teikningar sem fyrir liggja af allt of
stórri og íburðarmikilli flugstöð miðað
við þróun í flugmálum. Það á ekki að
reisa flotta risahöll,” sagði Ólafur
Ragnar Grímsson. -HH.
Háskóladeilan:
Ráðuneyt-
ismenn á
samninga-
buxum
— félagsf undur stunda-
kennara tekur
afstöðu til tilboðs
ríkisins íkvöld
Stundakennarar boða fund í félagi
sinu í Árnagarði kl. 20.30 i kvöld til að
taka afstöðu til sáttatilboðs í kjaradeil-
unni sem fulltrúar fjármálaráðuneytis-
ins lögðu fram í gærmorgun. Ráðu-
neytið óskar eftir að kennararnir fresti
eða aflýsi verkfallinu sem staðið hefur í
rétta viku. í tilboðinu er réttur Sam-
taka stundakennara til að semja um
kaup og kjör félagsmanna í reynd
viðurkenndur og gefið vilyrði fyrir að
skipan stundakennslu við Háskólann
verði þegar tekin til gagngerrar endur-
skoðunar, með aðild Samtaka stunda-
kennara. Þetta eru einmitt meginkröfur
kennaranna sem ríkisvaldið hafði áður
hafnað og verkfall þvi boðað 1. apríl.
Samningamenn stundakennara óskuðu
eftir orðalagsbreytingu á tilboði fjár-
málaráðuneytisins og var búizt við
svari þess í morgun. Ef ráðuneytið
verður við þeirri ósk er talið liklegra
að kennarar taki ákvörðun um frestun
verkfalls. -ARH.
diet pepsi
MINNA EN EIN
KALÓRÍA í FLÖSKU
Saniltis