Dagblaðið - 05.05.1981, Page 11
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 5. MAÍ 1981.
/■'“ ..................
\
II
\
til íslands
í sumar
Um þessar mundir er staddur hér á
landi Steve Erickson framkvæmda-
stjóri aksturslistasýningaflokksins
American Hell Drivers. Hefur
flokkurinn áhuga á að koma til ís-
lands í sumar og halda hér sýningar,
en Steve Erickson er, i samráði við
Landssamband islenzkra aksturs-
íþróttaklúbba, að vinna að því að fá
nauðsynleg leyfi fyrir sýningunum.
Fyrirhugað er að halda þrjár til fjórar
sýningar á Melavellinum i Reykjavík,
Steve Erickson, (til hægri) framkvæmdastjóri American Helldrivers hefur dvalizt
hér á landi undanfarið til að undirbúa sýningarnar I sumar.
DB-mynd JAK.
.
. *•
I einu atriðinu stekkur mótorhjólakappinn yfir 10 bila sem radad er upp hlió vió hlió.
eina sýningu i Keflavík og tvær sýn-
ingar á Akureyri en þar er Bilaklúbb-
ur Akureyrar að vinna að undirbún-
ingi fyrir sýningarnar.
Sýningarflokkurinn American Hell
Drivers var stofnaður I Bandaríkjun-
um fyrir um 35 árum og þá var ein-
ungis um einn flokk að ræða sem
feröaðist um og hélt sýningar á ýms-
um glæfralegum akstursatriðum. í
dag eru starfandi fimm sjálfstæðir
sýningarflokkar og er það brezki
hópurinn sem hyggst koma til tslands
i sumar, en hann hefur nú starfað
samfleytt f 15 ár. Hópurinn er á
stöðugum feröalögum og sagði
Erickson að þeir héldu um 130 sýn-
ingar á ári, en æfingar eru stundaðar
á hverjum degi. Hópurinn hefur farið
víða um. Má þar nefna Ástralíu og
meginland Evrópu, auk Bretlands-
eyja, en i sumar hyggjast þeir koma
til íslands og héðan fara þeir til Fær-
eyja og halda þar sýningar.
Sýningar flokksins eru mjög fjöl-
breytilegar og í meira lagi glæfralegar
en Steve Erickson segir að í rauninni
sé engin hætta á ferðum því öku-
mennirnir séu þrautþjálfaðir og viti
nákvæmlega hvað þeir eru að gera.
Meðal þess sem ökukapparnir gera er
að aka um á tveimur hjólum og
standa þá stúlkur á þeirri hlið bílsins
sem snýr upp. Þeir snúa bílunum
hálfhring á fleygiferð, stökkva yfir
bíla á mótorhjólum eða bílum en
stundum kemur fyrir að þeir drífa
ekki alveg yfir og þá þurfa þeir að fá
sér nýja bÚa. Þeir velta bílunum og
klessukeyra þá. Mótorhjólakapp-
arnir aka í gegnum eldvegg og stund-
um stökkva þeir af hjólunum á
fleygiferð, en leðurbótin á rasshluta
buxnanna sem þeir eru í þá þarf að
vera vel þykk. Þrátt fyrir að lýsing-
arnar á sýningaratriðunum fái hroll
til að fara um mann segir Steve Erick-
son að sýningar flokksins séu hin
bezta fjölskylduskemmtun en í hópn-
um er einn trúður og er hann að sögn
mjöggóður.
American Hell Drivers nota tíu bíla
við sýningar sínar og tvö mótorhjól.
Bílarnir, sem þeir nota, eru alveg
óbreyttir, en þeir nota aðallega Opel
og Vauxhall. Ef tilskilin leyfi fást og
allt fer að óskum er líklegt að þeir
verði margir sem fá gæsahúð i sumar
við að fylgjast með sýningum
American Hell Drivers. En sjón er
sögu ríkari.
-JAK.
m
Heimdellingar blása í herlúðra
—hörkukosningar um formannsembættið á sunnudaginn
Árni Sigfússon blaðamaður og Björn
Hermannsson flugvirki bjóða sig fram
til formennsku í Heimdalli, samtökum
ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík.
Aðalfundur Heimdallar er boðaður i
Valhöll kl. 13.30 sunnudaginn 10. maí.
Enn einu sinni er blásið í herlúðra
innan Sjálfstæðisfl»kksins og engum
blöðum er um það að fletta að hér
stefnir í hörkukosningu. Atkvæða-
smölun er I gangi á báða bóga, stuðn-
ingsmannafundir og fleira tilheyrandi-
kosningaslagnum.
Ekki hafa heimildarmenn DB í
Heimdalli treyst sér til að greina fram-
boð þeirra félaga samkvæmt margum-
töluðum forsendum: Alberts/
Gunnars/ Geirs-fylkingar. Enda segj-
ast Árni og Björn í meðfylgjandi
viðtölum mest lítið vera ósammála!
Hvað um það, framboðin eru stað-
reynd og hart verður barizt. Á því
leikurekki vafi.
Pétur Rafnsson er fráfarandi for-
maður i Heimdalli. Hann var kjörinn
í embættiö árið 1979.
-ARH.
Bjöm Hermannsson f lugvirki:
FRAMBOÐIÐ Min HEFUR
VAKIÐ HÖRÐ VIÐBRÖGÐ
— með öllu móti reynt að draga f lokksmenn í dilka
,,Ég tel að mikil reynsla min í starfi
fyrir ungliðahreyfmgar Sjálfstæðis-
flokksins getið komið að gagni við að
ná Heimdalli upp úr þeim öldudal sem
félagið er í. Og ekki síður vil ég leggja
mitt af mörkum til að lægja þann úlfa-
þyt sem rikir f flokknum vegna forystu-
mála,” sagði Björn Hermannsson flug-
virki frambjóðandi til formennsku í
Heimdalli.
Björn gerðist félagi í Heimdalli árið
1970 og var kjörinn í fúlltrúaráð félags-
ins 1971. Frá 1972 til 1977 sat hann i
stjórn Heimdallar og var á því tímabili
framkvæmdastjóri, ritari, auk þess að
gegna varafórmennsku 1 2 ár. Árið
1977 fór Björn til útlanda til náms 1
flugvirkjun, en skömmu eftir heim-
komuna var hann kjörinn 1 stjóm Sam-
bands ungra sjálfstæðismanna (SUS)
(árið 1979) og situr þar enn. Hann
hefur séð um útgáfumál Stefnis og
annazt fjármál sambandsins. Þá má enn
nefna að Bjöm hefur verið fulltrúi
Heimdallar i stjórn Varðbergs, félags
um vestræna samvinnu, 1 hálft þriðja
ár.
„Ég ætla ekki að lofa kjósendum
neinu nema þvi að vinna vel og stuðla
Bjöm Hermannsson: Endurnýjunar er
þörf i forystu Sjálfstæðlsflokkslns, að
þingflokknum meðtöldum.
að auknu starfi i Heimdalli,” sagöi
Bjöm aöspurður. Hann sagöist telja að
framboðið nyti stuðnings „úr öllum
hópum í félaginu.”
„Ég held að viö Ámi Sigfússon séum
ósköp lltið ósammála. Hins vegar er
þvi ekki að leyna að reynt er með öllu
móti að draga flokksmenn í dilka. Við
erum þar engin undantekning. Því er
ekki aö neita að framboöið mitt hefur
vakiö hörð viðbrögð.
Sögur em settar af stað sem ég m.a.
gruna ákveðinn starfsmann Sjálf-
stæðisflokksins um að standa fyrir. Því
er til dæmis komið á kreik i siöasta
Helgarpósti að Gunnlaugur Snædal sé
varaformannsefni Árna Sigfússonar en
aö Jón Bragi Gunnlaugsson sé mitt
varaformannsefni. Staðreyndin er þó
sú að Gunnlaugur Snædal lýsti yfír að
hann myndi gefa kost á sér i stjórn
Heimdallar hvort sem ég eða Árni
yrðum kjömir formenn.”
Björn var spurður um afstöðu hans
til ríkisstjórnarinnar og forystumála
sjálfstæðismanna:
„Ég er stjórnarandstæðingur i sam-
ræmi við yfirlýsta stefnu ungra sjálf-
stæðismanna. Varðandi forystuna er ég
þeirrar skoðunar að mikilla breytinga
og endumýjunar sé þörf. Ekki aðeins
að skipta um formann og varaformann
heldur endumýja 1 forystunni yfirleitt,
að þingflokknum meðtöldum.”
-ARH.
Ámi Sigfússon blaðamaður:
Framboðið er óháð
klof ningi og brölti
eldri flokksmanna
—aðalmarkmiðið er að reka slyðruorðið
af Heimdalli
„Aðalmarkmiðið er að reka slyðru-
orðið af félaginu. Takist það ekki hef
ég ekkert þarna að gera,” sagði Árni
Sigfússon blaðamaður á Vísi, annar
tveggja er býður sig fram til for-
mennsku í Heimdalli. Árni er reyndar
Vestmannaeyingur að uppruna. Hann
hefur starfað í Heimdalli nokkur
undanfarin ár og verið framkvæmda-
stjóri þar i eitt ár, auk þess að sitja um
skeið 1 stjórn. Hann hefur gegnt
ýmsum trúnaðarstööum fyrir Samband
ungra sjálfstæðismanna og haft af-
skipti af umhverfisverndarmálum, til
dæmis sem varamaður í umhverfis-
málaráði Reykjavíkur. Árni var
kennari í Vogaskóla i ein fjögur ár og
hefur stundað nám 1 Kennaraháskól-
anum meðfram blaðamennskunni.
Hann lýkur kennaraprófi að vori.
„Undanfarin ár hefur Heimdallur
verið í mikilli lægð og almenningur
þekkir félagið nánast ekki fyrir annaö
en upphrópanir um að þar séu „stutt-
Árni Sigfússon: Breytinga er þörf 1
forystu Sjálfstæflisflokksins, á þvi
leikur enginn vafi.
buxnastrákar”, „pabbadrengir” og
annað eftir þvi. Jafnvel vilja margir
sjálfstæðismenn sem minnst af félaginu
vita. Við sem erum af yngri kynslóð-
inni í HeimdaUi byrjuðum að breyta
þessu, enda er vilji fyrir því, sérstaklega
hjá skólafólki og öðrum ungliðum.
Framboðið mitt er í beinu framhaldi og
á því er ekki launung að við Gunn-
laugur Snædal viðskiptafræðinemi
setjum dæmið svo upp að ég bjóði mig
fram tU formanns en hann til varafor-
manns. Gunnlaugur er líka varafor-
maður í núverandi stjórn HeimaUar.
Lengi vel var ekki vitað um önnur
framboð til formanns og Jón Magnús-
son formaður SUS sagði að við Gunn-
laugur værum þeir sem hann teldi aö
hægt væri að ná samkomulagi um. ”
Árni og Björn Hermannsson, hinn
formannsframbjóðandinn, hafa starf-
að mikið saman í HeimdaUi. Árni
kvaðst ekki halda að hægt væri að tala
um málefnalegan árgreining þeirra.
„Hins vegar tel ég að þeir, sem
standa aö baki framboði Björns, séu
sumir hverjir ágætis menn en aðrir met-
orðastritarar. Menn sem hafa það fyrst
og fremst að markmiði að „komast
áfram” i flokknum.”
En hver er afstaða Árna tU ríkis-
stjórnarinnar og forystumála Sjálf-
stæðisflokksins?
„Þvi er fljótsvarað að ég er ekki
stuðningsmaður ríkisstjórnarinnar.
Um klofning i röðum eldri manna
flokksins finnst mér ieiðinlegt að tjá
mig. Mitt framboð kemur klofningnum
ekki við og er óháö brölti eldri og yngri
manna. Breytinga er þörf í flokks-
forystunni, á því leikur ekki vafi.
Fjöldi manna er nefndur til forystu og
ég mun styðja hvern þann er lands-
fundur velur til hennar.” -ARH.