Dagblaðið - 23.05.1981, Blaðsíða 11

Dagblaðið - 23.05.1981, Blaðsíða 11
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 23. MAÍ 1981. upp meðan á aðgerðinni stóð. En laeknar notuðu svonefnda „crash” svæfingu, sem nýlega hefur verið uppgötvuð! Með þeirri aðferð er unnt að svæfa sjúklinginn í snatri án þess að eiga það á hættu að hann selji upp. Skyndileg breyting á þrýstingi á heilann kann oft að valda dauða sjúklings við skurðaðgerð sem þessa. Nú geta læknar hins vegar dregið úr hættunni á slíku með því að gefa sjúklingnum nýtt lyf, mannitol, sem dregur úr þrýstingi á heilann. Tölvustýrðar sniðmyndir, svokall- aðar CAT röntgenmyndir, sem fundnar hafa verið upp á síðustu ár- um, gerðu Kobrine og aðstoðar- mönnum hans kleift að meta heila- sköddun Bradys af mun meiri ná- kvæmni en venjulegar röntgen- myndir hefðu getað. Brady náði sér svo vel eftir aðgerðina að þegar hálfur mánuður var liðinn frá henni gat hann setzt upp, lesið dagblöð og horft á sjón- varp. Dr. Kobrine segir að bati hans sé „með ólíkindum”. Reagan forseti heldur blaðafull- trúastarfínu enn lausu fyrir Brady og dr. Kobrine segir, um leið og hann leggur áherzlu á að hann vilji ekki vera með neina spádóma: „Ekkert stjórn. Eina manninum sem á þeim tima tókst það sem formönnum hinna stjórnmálaflokkanna tókst ekki. En þess f stað valdi þingflokk- urinn þá leið að hlusta ekki á Gunnar og freista þess að stjórnarkreppan yrði enn lengri svo landið gæti verið enn lengur stjórnlaust. Allir vinnu- samningar lausir, óafgreidd fjárlög og margt og margt annað ógert. Þetta kalla ég ófyrirgefanlegt kæruleysi. Ég tel það skyldu þingmanna, eftir hverjar kosningar, að mynda rikis- stjórn. Við kjósendur veljum 60 þing- menn úr 500 manna hópi sem hefur gefið kost á sér til þingsetu. Og ég held að allir kjósi eftir bestu sam- visku. Þjóðin á því fyllstu heimtingu á að þessir 60 þingmenn myndi rikis- stjórn. Þjóðin þolir ekki að þing- menn séu í skollaleik eða eilífum hringdans eins og meinaðar sauð- kindur, á þriðja mánuð án þess að mynda stjórn, bara hirða launin sin. Gunnars Thoroddsens verður allt- af minnst, svo og Pálma landbúnað- arráðherra og Friðjóns dómsmála- ráðherra, fyrir að rjúfa sig úr þeim sinnulausa og heimatilbúna víta- hring, sem þingflokkur Sjálfstæðis- flokksins var kominn í. Og þökk sé Albert Guðmundssyni fyrir að verja ríkisstjórnina falli. Þar sýnir sá heillamaður mikla ábyrgð eins og ætíðáður. Hefði síðasti landsfundur Sjálf- stæðisflokksins verið svo framsýnn að kjósa Albert Guðmundsson og Gunnar Thoroddsen til formennsku i flokknum þá hefðu Geirsmenn ekki nú þurft að senda sína súkkulaði- drengi út um landið til að koma á sáttum innan Sjálfstæðisflokksins. Og þá hefði Sjálfstæðisflokkurinn ekki heldur klofnað og gengið þrí- klofinn til síðustu kosninga. En áður- greindir menn geta, sem betur fer, ekki miklast yfír því aö vera fæddir meö silfurskeið I munni eins og Geir miklaðist af í blaðaviðtali á sl. hausti. Gunnar Thor. og Albert Guðmunds- son áttu mörg systkini og byrjuðu snemma að vinna sem börn. Voru í sveit á sumrin, en þegar þeir stækk- uðu var unnið við höfnina, farið i vegavinnu og bara allt sem til féll. Já það býr lengi að fyrstu gerð. Þá var atvinnuleysi mikið hér á landi og fengu því ekki nema dúglegustu drengir vinnu og yfirleitt náðarbrauð að fá vinnu, og ekki síst í Reykjavík. Geir Hallgrímsson talaði aldrei við Gunnar þegar hann var að reyna stjórnarmyndun 1978, þrátt fyrir að útilokar nú að Brady muni um síðir reynast fær um að hefja sín fyrri störf.” Hann á þó enn talsvert langt í land. Dr. Kobrine segir að þó Brady muni verða haltur og ganga við staf og með handlegginn í fatla þá muni and- legt ástand hans verða „í grund- vallaratriðum eðlilegt”. Læknar segja að Brady muni mjög vel það sem gerzt hefur fyrir löngu en atburðir sem standa honum nær í tíma eru honum ekki í eins fersku minni, að því er taugaskurðlæknirinn segir. Kúlan vann mestar skemmdir á þeim hluta heilans sem stjórnar hreyfingum vinstri handarinnar. Læknar segja of snemmt að spá um hversu mikill máttur eigi eftir að komast í handlegginn síðar. Brady hefur hins vegar síðustu daga fengið aukinn mátt í vinstri fótinn. Mál, sjón og heyrn Bradys eru sögð í eðlilegu lagi en lyktar- og bragðskyni hans er nokkuð ábóta- vant enn. Hann gerir að gamni sínu við lækna og hjúkrunarkonur með sömu kímnigáfu og eiginkona hans segir að hafi einkennt hann áður en hann varð fyrir skotinu. Margháttaðar aðgerðir sem Brady hefur orðið að gangast undir hafa gert það að verkum að hann þarf á miklum svefni að halda. Þess á milli ræðir hann við kunningja sem koma í heimsókn til hans eða leikur sér að litlu rafmagnsfótboltaspili. (INT. HERALDTRIBUNE). Brady blaðafulltrúl liggur helsærður á gangstéttlnni eftir að hafa verið skotinn i höfuöið 1 tilræðinu við Reagan forseta 30. marz siðastliðinn. Gunnar væri varaformaður Sjálf- stæðisfiokksins. Þetta var lýðræðið innan forystunnar. Óbilgirni og mikilmennska Geirs var og er óþol- andi. Enda var það auðséð að í þing- flokknum hefur Geir verið svo til einráður. Því þegar Geir kemur fram i sjónvarpi, t.d. þegar nýlega var verið að ræða byggingu flugskýlis ! Keflavík, þá átti stjórnandi þáttarins fullt i fangi með Geir, því hann vildi helst tala einn. Ég get ályktað að Geir sé einræðisherra í þingflokknum. Og er leitt til þess að vita. Þarna er komin skýringin á hvernig komið er fyrir flokknum í dag. Að sjálfsögðu er sofandaskapur þingmanna aðalor- sökin. Mogginn segir 12. mai sl. frá fundi sem Geir hélt nýlega. Þar á hann aö hafa sagt: „Ég vil sprengja þessa stjórn sem fyrst.” Og Geir gerir líka allt sem hann getur til þess. Ábyrgð- arleysið og sjálfsálitið er ótakmarkað þrátt fyrir að hann hafí aldrei getað rayndað rikisstjóm. f Morgunblaðinu 28. mai sl. segir frá fundi á Akureyri, þar sem Birgir fsl. Gunnarsson segir: „Það hefur enginn maður verið rægður svo gegndarlaust sem Geir Hallgrímsson og er varla samlfkingu að finna nema ef vera skyldu árásirnar forðum á Jónas frá Hriflu.” Ur því að Birgir ísl. fer í sfnum barnaskap að minnast á ljóta og ófyrirgefanlegu framkomu ráðandi sjálfstæðismanna gagnvart Jónasi frá Hriflu, þá mun ég álíta hann meiri mann að segja þjóðinni frá þeirri andstyggilegu framkomu, sem sjálfstæöismenn sýndu Jónasi með því að fara heim til hans óbeðnir með lækni, sem sagði að Jónas væri Kleppstækur. Svanhildur Björnsdóttir tók einnig til máls á Akureyrarfundinum og segir: „Mér finnst ástæöulaust að vera sífellt að slá á þá strengi að ráðist væri ómaklega að formanni flokksins. ” Undir þessi orð Svanhild- ar get ég tekið. Það er tilgangslaust að ræða við ekta súkkulaðidrengi, þrátt fyrir að Geir hafi klofið Sjálf- stæðisflokkinn í sinni formannstíð. „Á þessum tíma var Sverrir sjáandi og ábyrgur þingmaöur.” Geir Hallgrimsson er ómögulegur formaður, enda tala verkin svo. Og ef hann hefði verið með réttu ráði, átti hann að segja af sér formennsku strax og ljóst var að flokkurinn gengi þríklofmn til síðustu þingkosninga. Það var Geir sem stuðlaði að jóla- kosningunum 1979. Hann vildi koma Jóni Sólnes af Alþingi til að fá einn súkkulaðidrenginn f viðbót í sína vörslu áþing. Pólitikin er það tryllitæki sem fáir ráða við. Þess vegna vil ég kjósa ábyrga menn á þing, sem hugsa af alúð um það sem þjóðinni er fyrir bestu f nútið og framtið, en ekki þá menn sem hugsa bara um að sprengja og sprengja hverja ríkisstjórnina eftir aðra. Það er nauðsynlegt að eiga góða ríkisstjórn (eins og við eigum nú) en það er lfka jafnnauðsynlegt að eiga trausta og heiðarlega stjórnar- andstöðu. En það er annaðen hægt er að með sanni að segja, því miður, um Geirsbrotið í dag. Ef nú yrði gengið til kosninga myndi Geirsarm- urinn missa mikið fylgi vegna mein- loku formanns síns. Núverandi ríkis- stjórn á að fá að starfa í friði. En á meðan þingið starfar er enginn friður fyrir Geir Hallgrímssyni sjálfum. Hann þarf að tala utan dagskrár um alls kyns Gróusögur, sem enginn tekur mark á. Betur hefði verið að Geir væri enn borgarstjóri. Þar var réttur maður á réttum stað. Þá trúi ég að Sjálfstæðisflokkurinn væri búinn að fá meirihluta á Alþingi íslendinga ef Geir hefði aldrei tekið við for- mennsku flokksins. Já þeir geta orðið þjóðinni dýrir súkkulaðidrengirnir. Og ekki síður þeir sem eru montnir yfir því að vera fæddir með silfurskeið í munninum. Enginn veit hvað átt hefur fyrr en misst hefur. Nú segja Geirsmenn að þeir þurfi sem fyrst að fá þremenn- inganaaftur í Sjálfstæðisflokkinn.Þá sé hann á grænni grein. Og þá á Sjálf- stæðisflokkurinn að geta allt. Já Pálmi og Friðjón eru enn úr sveita- kjördæmum og hafa þar af leiðandi aldrei verið súkkulaðidrengir. Dr. Gunnar Thoroddsen hefur ætfð verið fjölhæfur og kurteis stjórnmálamaður. Auk þess hefur hann ávallt samið við fólk með ólíkar skoðanir. Það eru góðir stjórnmála- menn sem fá það besta út úr hverjum flokki. Slíkir pólitfkusar eru þjóðinni til heilla. Regfna Thorarensen Eskifirði.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.